Verkamaðurinn - 09.05.1947, Blaðsíða 2
2
VERKAMAÐURINN
„Lííil þjóð verður að vera andlegf stór-
veldi, ef hún á að halda frelsi sínu/'
- segir söngvarinn og rithöfundurinn Eggert Stefánsson
Eggert Stefánsson, hinn víðfrægi og þróttmikli söngvari og rithöfund-
ur, dvelur hér í bænum um þessar mundir ásamt konu sinni sem er ítölsk.
Eins og kunnugt er, hefur hann ákveðið að kveðja sönginn, a. m. k. um
stundarsakir, og helga krafta sína ritstörfunum, en á því sviði hefur hann
einnig veilið afkastamikill, þó fæst af því, sem hann hefur skrifað, hafi
birzt á íslenzku.
Eggert ætlar að halda konsert hér í Nýja-Bíó í kvöld, og er það kveðja
hans til söngsins og Akureyringa, því að þau hjónin líara bráðlega til
ítabu og munu dvöljUst þar eitthvað.
Eg hitti þau hjónin að máli í
fyrradag, þar sem þau búa að Hótel
KEA, og spjallaði við þau um alla
heima og geyma. Frúin er ákaflega
hrifin af landinu og þjóðinni og
sagði að íslendingar væru a. m. k.
kurteisasta og gestrisnasta þjóðin í
Evrópu. Þá sagði hún að fjallasýnin
hér væri ógleymanleg og náttúru-
fegurðin engu minni en í heima-
landi sínu, Ítalíu.
Þau hjónin eru nýlega komin frá
Ameríku, en þar hafa þau dvalið
H/z ár og að langmestu leyti í ís-
lendingabýggðum. Voru þau mjög
hrifin af viðtökum þar og af ættjarð-
arást og átthagatryggð Vestur-ís-
■lendinganna.
Eggert Stefánsson er víðförull
maður, hann hefur verið svo að
segja á óslitnu ferðalagi sl. 30—40
ár — og hann hefur alltaf farið
syngjajjdi um heiminn. Hann hef-
ur haldið konserta í flestum lörid-
um Evrópu og víða oftsinnis, einnig
hefur hann tvisvar sinnum farið í
söngferðir til Ameríku og farið þar
víða. Hann hefur sungið fyrir út-»
varpsstöðvar í flestum stórborgum
Evrópu og víðast hvar sem fyrsti ís-
lendingurinn. Og hann hefur gert
meira en að syngja og vinna fyrir þá
list, hann hefur alltaf og alls staðar'
verið sískrifandi um land sitt og
þjóð á mörgum tungum. Með því
hefur hann eflaust unnið meira
landkynningarstarf en nokkur ann-
ar núlifandi landi.
nokkur annar núlifandi landi.
Eggert Stefánsson hefur verið
strangur við sjálfan sig, hann hefur
löngum fómað öllu fyrir listina og
verið óþreytandi í leitinni að hinu
sanna og göfga inntaki þeirrar list-
greinar sem hann hefur helgað starf
sitt. En nú veit eg að Eggert vill
ekkertsíður, en að honum séu slegn-
ir gulihamrar eða sungið lof og þess
vegna iæt eg hér staðar numið, þótt
mig langi raunar til að segja miklu
meira um söngvarann og manninn
Eggert Stefánsson, en ætla að láta
hann sjálfan hafa orðið.
Hann segir: „Lítil þjóð verður að
vera andlegt stórveldi, ef hún á að
haida frelsi sínu og sjálfstæði. ís-
lendingar hafa gáfur og skilyrði til
að vera þetta, ef þeir eru nógu
strangir við sjálfa sig og vakandi yf-
ir þjóðarmetnaði síns lands, en um-
fram allt verða þeir þó að trúa á
landið sitt.“
Og þegar talið barst að listhæfni
íslendinga á mælikvarða heimsins,
sagði Eggert: „íslendingurinn á síð-
ur en svo erfiðara með að ná áröngr-
um á listabrautinni og hljóta frægð,
heldur en synir stórþjóðinni. En
ungur listamaður, sem vill verða
eitthvað, þarf að leggja óhikað á
brattann. Hann má ekki horfa í
neitt, hann má ekki setja fyrir sig
erfiðleikana, því að þeir eru alls
staðar og æfinlyega til staðar — en í
gegnum erfiðleikana fást sigrarnir.
Sá, sem ekki leggur á brattann
kemst aldrei upp á fjallið, hvað mik-
ill garpur,. sem hann annars er.“
Nú fór eg að inna Eggert eftir
konsertinum í kvöld.
„Þetta verður hátíða-konsert,“
sagði Eggert, kveðja mín til
söngsins og Akureyringa, sem mér'
hefur álltaf verið einkar kær staður.
Fyrst les eg „Óðinn til ársins 1944“,
það er að vísu af plötu, sem eg tal-
aði inn á íyrir vestan haf, en ekkert
verra fyrir, það og síðan syng eg
nokkur eftir Kaldalóns og svo létt,
ítölsk ástalög."
Frú Þyri F.ydal annast undirleik.
Tíminn líðurfljótt, þegar maður
er að tala við Eggert Stefánsson,
hann hefur allt það til að bera, sem
gerir menn aðlaðandi, og það sem
mest er um vert: maður finnur að
þar er fyrst og fremst íslendingur,
gæddur brennheitri ást á landinu og
velvild til þjóðar sinnar og maður,
sem trúir á framtíð Islands.
Eg vil vona að Akureyringar taki
kveðju hans í kvöld. R. G. Sn.
Dagsbrún segir upp
samningum
Síðastl. laugardag var haldinn
fundur í Verkamannafélaginu
Dagsbrún í Reykjavík. Samþykkti
hann með 600 atkv. gegn 3 greinar-
gerð stjórnafinnar um nauðsyn fyr-
ir því að segja upp samningum við
atvinnurekendur. Á sunnudaginn
fór svo fram allsherjar atkvæða-
greiðsla innan félagsins um upp-
sögn á samningunum.
Heildsalaflokkarnir höfðu mik-
inn viðbúnað og hugðust geta kom-
ið því til leiðar, að verkamenn
felldu tillöguna um uppsögn. —
Höfðu þeir tugi bíla í þjónustu
sinni allan daginn til að smala á
kjörstað og Framsóknarflokkurinn
sendi út dreyfibréf, en allt kom fyr-
ir ekki. Uppsögnin var samþykkt
með 937 atkv. gegn 770. Samningar
renna út 7. júní næstkomandi.
1 íþróttanámskeið Í.S.Í.
Vegna mistaka féll niður síðarihluti
greinar um íþróttanámskeið í. S. I., sem
birtist í síðasta blaði. Hér kemur niður-
lagið. — Ritstj.
V
Glíma. Kennari Kjartan Berg-
mann. Dómarapróf í glímu.
Kennslu annast Tón Þorsteinsson,
Porsteinn Einarsson og Kjartan
Bergmann.
Frjdlsar iþróttir. Kennarar: Bene-
dikt Jakobsson og Svíinn Egberg.
Dómarapróf í frjálsum íþróttum.
Kennslu annast: Benedikt Jakobs-
son, Ólafur Sveinsson og Þorsteinn
Einarsson.
Knattspyrria. Kennarar: Englend-
ingurinn Steel og Karl Guðmunds-
son. Dómarapróf í knattspyrnu.
Kennslu annast. Gunnar Axelsson,
Guðjón Einarsson og Sigurjón
Jónsson.
Dórnaraþróf i handknattleik. —
Kennslu annast: Baldur Kristjóns-
son.
íþróttasamband íslands hefir
skipað sérstaka nefnd til að sjá um
allan undirbúning námskeiðsins og
ráða tilhögun og fyrirkomulagi. —
Nefndina skipa: Form. Kjartan
Bergmann, Benedi'kt Jakobsson og
Þorsteinn Einarsson.
Þau íþróttanámskeið, er íþrótta-
samband íslands hefir gengizt fyrir,
hafa verið mjög vinsæl, og margir af
forustumönnum íþróttamálanna
hafa hafið starf sitt á námskeiðum
í. S. í.
Það er ætlun í. S. í., að ef vel
gengur með námskeið þetta, þá
verði slík námskeið fastur starfslið-
ur í starfi í. S. í.
Reykjavík, 15. apríl 1947.
F. h. íþróttasambands íslands,
Nefndin.
Ameríkanar banna að sýna
kvikmyndina „Þrúgur reið-
innar“ öðruvísi en falsaða!
í febrúar s. 1. áttu á fleiri en einu
kvikmyndahúsi í Osló að hefjast
sýningar á myndinni „Þrúgur reið-
innar“, gerðri eftir samnefndri
sáldsögu Steinbecks. Þessum sýning-
um var öllum aflýst, vegna ósatn-
komulags milli leigjenda myndar-
innar og bíóeigenda í Osló. „Þrúg-
ur reiðinnar" fjalla, eins og kunn-
ugt er, uim þjóðfélagsvandamál, og
eru hörð árás á auðstétt Bandaríkj-
anna. En Ameríkanarnir kröfðust
þess, að myndinni fylgdi teksti,
sem gerði þessa árás máttlausa
segði að misrétti þ;rð, sem deilt er
á, stafaði af náttúruhamförum og
slysum, en ekki þjóðfélagslegum
orsökum. Ennfremur var þess ósk-
að, að tekstinn segði, að nú væri
löngu búið að laga þetta misrétti.
Bíóforstjórar í Osló lýstu því þá
yfir, að þeir rnundu ekki líta við
myndinni þannig spilltri, og „Dag-
blaðið“ Lrætir við:
„Við óskum ekki eftir að sjá
myndina, eftir að búið er að falsa
hana með því að breiða yfir aðal-
atriði hennar — þjóðfélagsvanda-
málin."
„Iðja“ gerir nýja kjara-
samninga
Hinn 4. maí sl. var undirritaður
samningur milli Iðju, félags verk-
smiðjufólks, annars vegar og kol-
sýruverksmiðjunnar Sindri h.f. hins
vegar um kaup og kjör starfismanna
þeirra er við verksmiðjuna vinna.
Starfsmenn á ,,Sindra“ fá nú 560
kr. í grunnkaup á mán. í stað 500
kr. áður.
Helztu atriði samningsins eru
þessi:
„Vinnutími skiptist þannig í vakt-
ir: frá kl. 4-12.30, 12.30-19.30,
19.30—4, þó þannig, að vinnutími
hvers manns sé að meðaltali 8
stundir á sólarhring og vinnuvikan
sé 48 stundir. Vinnuveitanda er
heimilt að hafa fleiri vinnutíma á
sólarhring hverjum, ef nauðsyn
krefur, og má þá vinnutími byrja og
enda á öðrum tíirium en tekið er
fram í samningi þessum.
Kaupið skal vera sem hér segir:
Fyrir karlmenn: Byrjunarlaun
fyrstu 2 mánuðina kr. 460.00 á mán-
unði. Efti 2r mánuði kr. 560.00 á
mánuði.
Allar tölurnar eru grunnkaup og
greiðist á það vísitala framfærslu-
kostnaðar eins og hún er á hverjum
tíma.
Kaupgreiðslur skjulu fara íram 15.
og síðasta virkan dag hvers mánað-
ar.
Fyrir aukavaktir greiðist kr.
37,50 að viðbættri vísitölu fram-
færslukostnaðar. Yfirvinna greiðist
með 50% álagi á grunnkaupið. Ef
unnið er 1. desember, 17. júní eða
fyrsta sumardag greiðist helgidaga-
kaup. 1. maí sé alger frídagur.
Þeir fastir starfsmenn, sem verið
hafa hjá fyrirtækinu í minnst eitt
ár, halda í sjúkdómsforföllum full-
um launum í 4 vikur á 12 mánuð-
um. Vari veikindaforfö.11 lengur
falla launagreiðslur niður.
Þeir fastir starfsmenn, sem vinna
hjá fyrirtækinu skulu vera meðlim-
ir „Iðju“, félagi verksmiðjufólks.
Samningur þessi gildir frá 1. maí
1947 til 1. maí 1948, sé honum ekki
sabt upp með minnst 3ja mánaða
fyrirvara (fyfir 28. febrúar 1948) en
framléngist af sjálfu sér um eitt ár í
senn að öðrum kosti.“
Þá hefur Iðja einnig gert nýja
samninga við Prjónastofu Ásgríms
Stefánssonar og er hann að mestu
samhljóða samningi Iðju við
Saumastofu Gefjunar, sem gerðar
var í vetur.
=NÝJA BÍÓ=]j
Ncesta mynd:
Látum Drottin
dæma
Amerísk stórmynd í eðlilegum
litum frá 20th Century Fox
Pictures
Leikstjóri: John M. Stahl.
Aðalhlutverkin leika:
Jeanne Crain — Gene Tierny
Cornel Wilde
lÁ- ' "