Verkamaðurinn - 09.05.1947, Qupperneq 4
4
VERKAMAÐURINN
Heklu-eldar sjást
Orðsending
til bifreiðaeigenda
Að gefnu tilefni viljum vér hér með taka fram: Ástæður fyrir því, að vér sjáum oss fært
að taka upp þá nýbreytni í bifreiðatryggingum, að lækka iðgjöld á þeim bifreiðum, er
sjaldan valda tjóni, eru meðal annars:
*
Ódýr og hagkvæmur rekstur.
Framúrskarandi hagkvæmir endurtryggingarskilmálar.
Að hagnaður, sem kann að verða af tryggingarstarfseminni, verður notaður
til þess að lækka iðgjöldin, en ekki til þess að greiða háan arð til hluthafa,
svo sem tíðkast í tryggingarhlutafélögum.
frá Akureyri
Kl. 2.30, aðfaranótt 7. maí, sá
Kristján Einarsson, sein var á vakt
í kolsýruverksmiðjunni Sindra, Ak-
ureyri, eldbólstur, ‘ dökkrauðan,
teygjast upp yfir miðjan vestasta
hnjúkinn fyrir botni Eyjafjarðar.
tók bólstur iþessi á sig alls konar lög-
un, ýmist sem turn, hnöttur eða
burst. Kl. 2.40 var þetta aðeins dauf-
ur bjarmi. Lagði af þessu rauðan
geisla á Pollinn.
Kl. 3—3.10 blossaði aftur upp eld-
ur, þá fyrir vestan hnjúkinn, eða
viestanvert við miðjan dalbotninn
(vestasta) og er þá enn stórfenglegra.
Eins og eldveggur, en í honum kol-
svartir reykjarhnyklar, fjaraði út
eftir 10 mínútur. — Hefur þetta óef-
að verið bjarmi af Heklueldi, en
Hekla gaus ákaflega um þær mund-
ir.
v Samvinnutryggingarnar gerðu endurtryggingarsamning við sænsku samvinnutrygg-
ingarfélögin, og eru þessir samningar sérstaklega hagkvæmir, enda byggjast þeir ekki á
gróðavon endurtryggjenda, heldur samhjálp fyrir góðu málefni. Samningarnir eru gerðir
til margra ára og tryggja afkomu Samvinnutrygginga eins vel og hægt er. Það má geta
þess, að hin sænsku samvinnutryggingarfélög greiða sænskum bifreiðaeigendum allt að
50% afslátt af iðgjaldi fyrir þær bifreiðar, sem ekki hafa orðið fyrir tjóni í 4 ár.
Samband ísl. samvinnufélaga hefur tryggt afkomu Samvinnutrygginga með 500.000
kr. framlagi í tryggingarsjóð.
Hafi orðið tap á bifreiðatryggingum hjá þeim félögum, sem rekið hafa þá starfsemi
hér. á landi, hefir slíkt tap orsakað iðgjaldahækkun, samanber hækkun þá, er Almennar
' Tryggingar h.f. og Sjóvátryggingarfélag fslands auglýstu fyrir nokkrum dögum.
Umferðamálin hér á landi eru mjög aðkallandi vandamál. — Daglega koma fyrir um-
ferðaslys og ekki ósjaldan berast fregnir um dauðaslys á Aönnum. Þegar Samvinnutrygg-
ingar tóku upp hið nýja fyrirkomulag um iðgjaldaafslátt, vildu þær stuðla að auknu ör-
yggi í umferðamálum. Fyrirkpmulag þetta er mjög algengt erlendis og gefst alls staðar vel.
Er ekki sanngjarnt/að eigendur þeirra bifreiða, er sjaldan valda tjóni, fái ó d ý r a r i
tryggingu?
SAMVINNUTRYGGINGAR
Vinnustöðvun bílstjóra
(Framh. af 1. síðu).
tollafrumvörpin sáu dagsins ljós. —
Þessar „röksemdir" atvinnurekenda
eru því haldlausar með öllu og
munu allir sjá í gegnum þær.
Hitt er svo allt annað mál, að
tolla- og skattahækkanirnar gera
bílstjórunum enn nauðsynlegra en
ella hefði verið að kvika hvergi frá
kröfum sínurti. Því að vafalaust
hefðu þær . orðið aðrar og hærri
hefðu þeir átt kost á að miða þær
við það nýja viðhorf, sem skapaðist
fyrir alla launþega, eftir að stuðn-
ingslið núverandi ríkisstjórnar sam-
þykkti að sækja 35—40 milj. króna
á næstu 8 mán. í vasa alþýðu lands-
ins, með 65—200% hækkun tolla á
flestum nauðsynjavörum, meðan
heildsalar og braskarar fá bezta næði
j til að stunda þjóðskemmdarstörf sín
| óáreittir. *.
Blekkingar atvinnurekenda og
afturhaldsins munu því falla mátt-
vana. Tilraunir andstagðinganna til
sundrungar munu líka mistakast
með öllu. Samtök bílstjóranna
nwnu reynast hlutverki sínu vaxin
og sigra.
„V erkamaðurinn“
er seldur á eftirtöldum stöðum:
Fornbókad. Eddu h.f., Hafnarstr.
Bókabúð Akureyrar.
Skóvinnustofu Jóhanns Jónss.
Verklýðshúsinu og
I Verzl. Gústafs Jónassonar, .
Gránufélagsgötu 18.
1 Verzl. Glerá, Glerárþorpi.
Kveðjuhljómleikar. Eggert Stefánsson
söngvari heldur kveðjuhljómleika í Nýja-
Bíó í kvöld kl. 9.
Námskeið fyrir kennara í handavinnu
skólabarna verður haldið á Svalbarði við
Eyjafjörð og hefst 28. maí næstk. Upp-
lýsingar veitir símastöðin á Svalbarðseyri
í fjarveru minni. — Halldóra Bjarnadótt-
ir.
Heimilisiðnaðarsýning verður haldin
hér á Akureyri á vegum Heimilisiðnaðar-
félags Norðurlands dagana 24.—26. þ.
m. Sjá auglýsingu á 3ju síðu.
Sósíalistar. Fundur í Sósíalistafél. Ak-
ureyrar á mánudagskvöldið. Áríðandi mál
á dagskrá. Mætið öll.
Teikningar Mehntaskólanemenda verða
til sýnis í nyrztu kennslustofu skólans,
sunnudaginn 11. þ. m. kl. 10 f. h. til kl. 5
e. h.
Skuldabréf Krossa-
nesverksmiðjunnar
FyrÍT skömmu boðaði stjórn
Krossanesverksmiðjunnar blaða-
menn og bæjarráð á fund sinn og
skýrði form., Guðm. Guðlaugsson,
nokkuð frá framkvæmduim og end-
urbótum, sem hefðu verið gerðar á
verksmiðjunni síðan bærinn keypti
hana. Þessar framkvæmdir hafa að
vonum orðið allfjárfrekar, t. d. hafa
verið keypt ný, fullkomnari löndun-
artæki, sem kosta munu uppsett
kr. 500.000.00.
Þá hefur þurft að bæta bryggjur
og setja upp rafmótora og fl. Er ætl-
ast til að þetta verði allt tilbúið fyr-
ir næstk. síldarvertíð og standa von-
ir til að verksmijðan geti þá unnið
úr 3000 málum síldar á sólarhring.
Fé það, sem bærinn hefur tekið að
láni til kaupa á verksmiðjunni og
endurbóta er samt kr. 1.530.000.00,
en kaupverðsvíxilinn kr. 530.000.00
þarf að greiða upp í haust.
Til þess að það verði hægt, hefur
bæjarstjórn ákveðið að bjóða út
skuldabréfalán. Skuldabréfin verða
til tólf ára, en eftir tvö ár á að byrja
að innleysa bréfin. Vextir verða 5%
og eru það mjög hagkvæm vaxta-
kjör fyrir þá, sem hafa ráð á því að
leggja eitthvert fép slík bréf. Bréfin
verða tilbúin til sölu einhvern
næstu daga og munu verða auglýst
í blöðunum þegar þar að kemur.
Það er mjög nauðsynlegt að sala
bréfanna takist vel og ættu bæjar-
búar að setja stolt sitt í það að lána
bænum umbeðna upphæð, með því
vinna þeir tvennt: tryggja rekstur
Krossanesverksmiðjunnar og koma
peningum sínum á trygga og hag-
kvæma vöxtu.
Góð kýr
ti] sölu hjá
Sigurði Vigfussyni,
Melgerði.