Verkamaðurinn - 19.04.1951, Blaðsíða 1
VERKAMAOURINN
XXXIV. árg. Akureyri, fimmtudaginn 19. apríl 1951 14. tbl.
Ellefu verklýðsfélög í Reykjavík
hafa gert með sér samkomulag um sameiginlega
uppsögn samninga frá og með 18. maí næstk.
til að knýja fram hina sanngjörnu
kröfu um vísitölugreiðslu
mánaðarlega
Formaður „Hlífar“ í Hafnarfirði hefir tjáð sig
samþykkan samkomulaginu
11 verkalýðsfélög í Reykjavík hafa sagt upp
samningum sínum við atvinnurekendur frá og
með 18. maí næstkomandi, og hafa þessi félög
gert með sér svohljóðandi
SAMKOMULAG
milli fulltrúa verkalýðsfélaganna í Reykfavík, sem hafa sam-
vinnu um uppsögn samninga sinna við atvinnurekendur rneð
pað fyrir augum að fá fulla vísitölu greidda mánaðarlega á
kaup félagsmanna.
1. a) Félögin heita því hvert fyrir sig að gera ekki samkomu-
lag eða samninga við atvinnurekendur nema fyrir liggi
samþykki allra þeirra félaga, sem að þessu samkomulagi
standa, þar sem það er ætlun félaganna að samningar verði
gerðir samtimis við þau öll.
b) Félögin kfósi sameiginlega samninganefnd, sem fari með
samninga fyrir hönd félaganna að svo miklu leyti sem sam-
eiginlegum samningaviðrœðum verður við komið. 1 aefnd
þessa tilnefni Alþýðusamband Íslands einnig einn fulltrúa.
c) Ef til verkfalls skyldi koma, verði mynduð sameiginleg
verkfallsstjórn.
2. Þurfi félögin að láta koma til verkfalla, telja þau óhjá-
kvœmilegt, að stjórn Alþýðusambands íslands tryggi sam-
úðaraðgerðir þýðingarmikilla sambandsfélaga, sem hafa
fasta samninga, svo sem félaga í nágrenni Reykjdvíkur, Sjó-
mannafélags Reykjavíkur óg'Hirís islenzka prentarafélags,
þar á meðal tryggingu hins siðastnefnda fyrir stöðvun á
vinnu við þau blöð, sem verða gegn verkalýðsfélögunum
í vinnudeilunni.
3. Til þess að gera verkalýðnum unnt að halda út í verkfalli,
sem kynni að verða langvinnt, telja félögin óhjákvæmilegt
að fyrir liggi frá stjórn Alþýðusambands íslands trygging
fyrir nægilegri fjárhagsaðstoð frá þvi alþjóðasambandi, er
Alþýðusamband Íslands er meðlimur í, og að slikar greiðsl-
ur geti hafizt eigi síðar en mánuði eftir að verkfallið hefst.
Sömuleiðis að tryggð verði stöðvun á íslenzkum skipum og
öðrum farartœkjum erlendis, sem þangað kynni að leita i
banni íslenzku verkalýðshreyfingarinnar.
Kosningar á aðalfund Kron:
Árásinni á kaupfélagið hrundið
Samvinnumenn hlutu 2319 atkvæði, en sundr-
ungaröflin 1575
íslenzk flugvél týnist
Um síðustu helgi fór fram
kosning 146 aðalfulltrúa og 49
varafulltrúa á aðalfund Kaup-
félags Reykjavíkur og nágrennis.
Kosið var að þessu sinni um tvær
tillögur, tillögu kjörnefndar og
tillögu, sem heildsalar, hægri-
kratar og nokkrir Framsóknar-
menn stóðu að. Árásarfylkingin
hafði ákaflega mikinn viðbúnað,
t. d. kosningaskrifstofur víða um
bæinn, meira að segja kaup-
mannsbúð suður í Kópavogi!
Þessi hatrama árás á Kron mis-
tókst herfilega, urðu úrslitin þau
að listi kjörnefndar hlaut 2319 at-
kvæði ,en listi árásarfylkingar-
innar 1575. 47 seðlar voru auðir
og 6 ógildir, á kjörskrá voru
5874, en atkvæði greiddu 3948.
Árásarliðið efndi til sigurhátíð-
ar á sunnudagskvöldið í Mjólkur-
stöðinni, en sú hátíð leystist upp
á heldur leiðinlegan hátt, þegar
fregnir fóru að berast af talning-
unni. Höfðu árásarmennirnir tal-
ið sig vissa með að fá 2200 at-
kvæði.
Á undirbúningsfundinum 12. þ.
m. fólu fulltrúar félaganna, Eð-
varð Sigurðssyni (, ,Dagsbrún“ ),
Óskari Hallgrímssyni (Rafvirkja-
félagið) og Sigurjóni Jónssyni
(Járnsmiðafélagið) að hafa á
hendi framkvæmdastjórn fyrir
samstarfi félaganna.
í júní 1936 gerðu spænskir fas-
istar uppreist, með stuðningi
þýzkra og ítalskra fasista, gegn
löglega kosinni ríkisstjórn vinstri
flokkanna.
Blað Framsóknarflokksins,
„Dagur“, tók þá ákveðna afstöðu
á móti fastistunum og uppreist
þeirra, og skrifaði af samúð með
hinni löglega kjörnu lýðveldis-
stjórn — enda var Ingimar Eydal
þá ritstj. „Dags“ en ekki dollara-
dindillinn og pólitíski hálfvitinn
Haukur Snorrason. En Ingimar
Eydal hafði mörgum árum áður
haft allmikið samstarf við verka-
lýð bæjarins og meðal annars
kosinn fyrst í bæjarstjórn með
atfylgi verkamanna og nánu,
skipulagsbundnu samstarfi við
þá. Framsókn hafði líka um langt
áraskeið að kjörorði: Allt er betra
en íhaldið, en nú hefur hún ásamt
íhaldinu tekið upp kjörorð Hitl-
ers, Göbbels og Franco: Niður
með kommúnismann.
Til staðfestingar á því, hve
stefna og starf Framsóknar er
orðin gjörbreytt, meira að segja
þó ekki sé farið lengra aftur í
tímann en 1936, skulu birtar hér
orðréttar nokkrar tilvitnanir úr
„Degi“:
Dagur 30. júlí 1936:
„Fyrir nálega hálfum mán-
uði brauzt út uppreisn á Spáni
gegn stjórn vinstri flokk-
anna“.......„Að uppreistinni
standa fasistar og konungs-
sinnar“.
•>
3. september 1936:
„Og fasistar á Spáni gera
blóðuga uppreisn gegn lög-
legri stjórn og eru á góðum
vegi með að leggja land sitt
og þjóð í rústir“.
10. september 1936:
„í sambandi við borgara-
styrjöldina á Spáni hefur að
undanfömu mest verið rætt
um borg eina, er Irun nefnist.
Formaður Verkamannafélagsins
Hlíf í Hafnarfirði, Hermann Guð-
mundsson, var mættur á undir-
búningsfundinum og lýsti sig
samþykkan þessu samkomulagi.
Eins og kunnugt er voru eftir-
talin félög áður búin að segja upp
samningum sínum: Verka-
kvennafélagið Framsókn, Starfs-
stúlknafélagið Sókn, Nót, félag
netabætingafólks og Mjólkur-
fræðingafélag íslands.
. . . . Hefur uppreistarherinn
sótt ákaft að borg þessari....
Þegar bardaganum lauk var
borgin öll í brennandi rústum.
Þeir af borgarbúum, sem féllu
í hendur uppreisnarhernum,
voru allir brytjaðir niður, en
þúsundir borgarbúa flýðu í
dauðans ofboði yfir landa-
mœrin til Frakklands. Upp-
reisnarmenn ráku flóttann
með skothríð og drápu alla,
er þeir náðu til, jafnt konur
og bqrn sem aðra.“
Nú eru liðin um 12 ár síðan
Franco, leiðtogi spænskra fasista,
náði völdunum á Spáni. Mikil
breyting hefur orðið í heiminum
síðan Franco hóf uppreisn sína.
Mussolini og Hitler eru horfnir í
skaut jarðar, og Sjang Kai Shek
hrakinn af meginlandi Asíu og
japanska fasismanum greitt
banasárið. Hins vegar hefur sú
breyting orðið á, að „Dagur“ er
nú orðinn stuðningsblað spænska
fasismans og flokkur sá, er gefur
hann út, gert ráðstafanir til þess
að ísland verði bandalagsríki
Spánar. Er þá ástandið á Spáni
svona glæsilegt eftir 12 ára stjórn
Franco? Við skulum láta stjórn-
arblaðið og heildsalamálgagnið
„Vísir“ lýsir því, samherja
„Dags“ í baráttunni gegn komm-
únismanum, enginn þarf að halda
að það blað segi ástandið í ríki
Franco verra en það er. En „Vís-
ir“ segir 6. apríl sl. orðrétt:
„Einraðisstjórnin hefur að und-
anförnu œ ofan i œ lofað ráðstöf-
unurn til þess að draga úr dýrtið-
inni, en þœr ráðstafanir hafa reynzt-
misjafnlega og óánægjan farið va.x-
andi. Hráefnaskortur veldur og erf-
iðleikum i iðnaðinum. Hið háa ull-
arverð t. d. veldur skorti á fingerð-
ari ull en Sþánverjar framteiða
sjálfir, þvi að sina eigin ull nota
þeir aðeins i grófgerðari dúka. Karl-
mannafatnaður i Madrid er nú 75
af hundraði dýrari en hann var i
nóvember.
Kolaskortur er i landinu og verð-
(Framhald á 4. síðu).
með þriggja manna
áhöfn
Fimmtudaginn 12. þ. m. týndist
íslenzk flugvél á leiðinni frá
London til Prestwick í Skot-
landi. Hefur ekkert til hennar
spurzt síðan. í flugvélinni voru
þeir Páll Magnússon flugmaður,
Rvík, en þeir höfðu nýlega keypt
Rvík ,en þei rhöfðu nýlega keypt
þessa flugvél. Einn Englendingur
var einnig í flugvélinni.
Leikkvöld Menntaskól-
ans á Akureyri
Leikfélag Menntaskólans hafði
frumsýningu sl. föstudag á hinum
bráðskemmtilega gamanleik
Sundgarpurinn eftir Franz Arn-
old og Ernst Bach. Tókst sýning-
in prýðilega og var leikurunum
forunnarvel tekið af leikhús-
gestum.
Leikstjóri er Jón Norðfjörð.
Um mörg ár hefur Leikfélag
Menntaskólans æft leik á vetri
hverjum og hefur Jón Norðfjörð
jafnan verið leiðbeinandi félags-
ins og leyst það starf af hendi
með alveg sérstakri prýði.
Leikkvöld Menntaskólans er að
verða fastur liður í skemmtana-
lífi bæjarbúa, og er það vel farið,
bæjarbúar hafa líka sýnt það, að
þeir kunna að meta þetta starf
skólafólksins, því aðsókn að leik-
sýningum Menntaskólans hefur
farið vaxandi og þær átt auknum
vinsældum að fagna.
Aðalhlutverkið í leiknum, Ottó
(Framhald á 4. síðu).
1936 var „Dagur" andsiæður
Franco,
1951 er hann stuðningsmaður hans!