Verkamaðurinn - 28.09.1951, Síða 3
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 28. sept. 1951
3
VERKAMAÐURINN 1
VIKUBLAÐ
Útgefandi:
Sósíalistafélag Akureyrar
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
JAKOB ARNASON
Ritstjórn:
Asgrímur Albertsson
Jóhannes Jósefsson
Þórir Daníelsson
Afgreiðsla:
Brekkugötu 1 — Sími 1516
Afgreiðslan er opin kl. 5—7 alla virka
daga, nema laugardaga.
Askriftarverð: kr. 25.00 árgangurinn.
í lausasölu 50 aura eintakið.
Sósíalistafélag Akureyrar
Skrifstofa í Brekkugötu 1.
Opin kl. 5—7 alla virka daga nema
laugardaga.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Tryggur hundur
bítur ekki
hásbónda siiin
Okyrröin í stjórnarliðinu fer
mjög vaxandi um þessar mundir.
Svik „íslenzku“ ríkisstjórnarinn-
ar í landhelgismálunum veldur
þar miklu um. Þessi stórhættu-
legu svik hafa m. a. haft þær af-
leiðingar, að hundtryggir fylgis-
menn stjórnarinnar hafa hleypt
í sig kjarki og hreift andmælum
opinberlega. Meira að segja
fékkst birt grein í Alþýðubl., þar
sem haldið var á málum íslend-
inga gegn yfirgangi og takmarka-
lausri ósvífni Breta.
Þá vakti það ekki minni undr-
un, að stjórnarblaðið „Dagur“
skyldi voga sér að gagnrýna
gerðir ríkisstjórnarinnar í land-
helgismálunum. En ,,Dagur“ lét
m. a. svo orð falla 10. þ. m.:
„Brezkir togaraeigendur hafa
fengið mál sitt fram í bráðina. En
með þessum undanslætti er
sköpuð algerlega óviðunandi að-
staða að fiskimiðunum fyrir
Norðurlandi, með því að íslenzk
yfirvöld samþykkja að fram-
lengja um óákveðinn tíma for-
réttindi útlendinga umfram ís-
lendinga."
Það er nú komið í ljós, eins og
við var að búast, að engin alvara
var á bak við þessi skrif „Dags“.
Þau áttu einungis að vera sem
nokkurs konar róandi meðal fyr-
ir þá lesendur „Dags“, sem af
heilum huga eru andvígir svik-
um ríkisstjórnarinnar í land-
helgismálunum. Ritstjórnar-
greinin í síðasta ,,Degi“ er óræk-
ur vottur um óheilindi ,,Dags“ í
þessum málum. Með skætingi,
skammaryrðum og lygum á
Rússa og íslenzka sósíalistá, er
reynt að breiða yfir hin þjóð-
hættulegu svik ríkisstjórnarinn-
ar. Fjöllin tóku jóðsótt, en það
fæddist bara mús. Andstaða
„Dags“ gegn ríkisstjóminni var
aldrei nema nafnið tómt. f hjarta
sínu er „Dagur“ eftir sem áður
trúr og tryggur fylgjandi ríkis-
stjórnarinnar. Hvæs hans á dög-
unum að ríkisstjórninni, út af
landhelgismálunum, var bara
tóm uppgerð. Tryggur hundur
bítur ekki þó að hann gelti að
húsbónda sínum.
Og auðvitað er þess ekki að
vænta, að „Dagur“ hafi skilning
á því að yfirlýsing Ráðstjórnar-
ríkjanna um 12 mílna landhelgi
Svört verÖa sólskin
Ljóð eftir Guðmund Frímann, myndskreytt
af höfundi. Þorsteinn M. Jónsson gaf út
Það skal strax játað, að þegar
mér barst í hendur nú fyrir
skömmu, ný ljóðabók eftir Guð-
mund Frímann, var gleði mín
kannski ekki með öllu laus við
kvíða. Fjórtán ár eru liðin frá
pví er síðasta Ijóðabók hans,
Störin syngur, kom út, og eftir
svo langan tíma, mun sá uggur
hafa heimsótt fleiri en mig, að við
svo búið mundi lenda. Eftir svo
ótvíræð fyrirheit sem sú bók gaf,
var sú tilhugsun ekki sársauka-
laus — en launuð er löng bið
svari framhaldið til fyrirheit-
anna.
Fjórtán ár er langur tími, þó
er hitt þyngra á metunum, að
þessi síðustu fjórtán ár verða
ekki fyrst og fremst metin eftir
lengd sinni, heldur eftir öðrum
mælikvarða, sem mörgum hefur
reynzt öllu ísjárverðari, þegar
öllu er á botninn hvolft. Heims-
styrjöld hefur geysað með geig-
vænlegri eyðingu mannslífa og
annarra verðmæta, en dæmi
þekkjast. Ennþá búa margar
þjóðir við raunverulegt hernað-
arástand, og margar uggvænleg-
ar blikur á lofti, sem byrgja vilja
sólarsýn. Hin kvíðvænlega óvissa
um það, hvað framundan sé,
reynist mörgum ofjarl, og er
skáldunum þar hættara en öðr-
um, því að engir standa jafn ber-
skjaldaðir í stormum samtíðar-
innar en einmitt þau. Þau eru
skuggsjá mannlífsins á hverjum
tíma, og auk þess er
þeirra vandi meiri en annarra, að
þau hafa ábyrgðar að gæta gagn-
vart samtíð sinni og framtíð.
Á tímum eins og þessum, er
það engu skáldi haldbær afsök-
un, að vant sé yrkisefna, því að
tíðindalaust hefur ekki verið í
heimi, þótt ekki verði kannske
allir á einu máli um það, hvort
vér höfum gengið til góðs, götuna
fram eftir veg, eða öfugt. Á hinn
bóginn leggjast vandamál mann-
lífsins misjafnlega þungt á skáld-
in eins og viðhorf þeirra til köll-
unar sinnar er með ólíkum hætti,
en of oft verður það svo, að þau
snúa baki við mannlífinu, sem er
utan þess, er snertir þau persónu
lega, og taka að horfa inn í sjálf
sig, á eitthvað, sem þeim kemur
einum við. Þegar svo er komið, á
skáldið aðeins um það tvennt að
velja, að snúa baki við sjálíu sér,
eða hætta að vera skáld.
Þessi orð hér að framan eru
ekki ritdómur um fyrrnefnda
bók, þau eru aðeins í stuttu máli
staðreyndir, sem gerast áleitnar,
þegar svo vill til, að maður fær
nýja bók í hendur. Nafn bókar-
innar, Svört verða sólskin, á ef til
vill nokkurn hlut að þeirri hlið
málsins, en sem betur fer á það
ekki við nema að takmörkuðu
leyti, því að í bókinni leynast
margir sólskinsblettir, ef vel er
að gáð. Bölsýni og tregi sækir þó
og að hver þjóð hafi rétt til að
ákveða sína landhelgi, sé veiga-
mikill stuðningur við landhelgis-
mál íslenzku þjóðarinnar.
oft fast að skáldinu, en sem betur
fer á það sjaldan skylt við sjálfs-
aumkvun, og aldrei fatast því hið
tárhreina, kliðmjúka ljóðform,
þótt syrti í álinn. Eg get ekki
stillt mig um, að taka hér upp
tvö erindi úr kvæðinu: Svört
verða sólskin:
Það kom sem óljós kvíði fyrst í
stað,
sem kaldur grunur veitti enga ró,
unz dökkum skugga á
himinheiðið sló,
og hylji draums þíns. Gazt þú
skilið það?
Þinn leyndardraum og hjartans
rósemd rauf
ein reginmyrk og þungbrýn
voðanótt.
Að fótum þínum drupu
dauðahljótt
sem dropar rauðir haustsins
fyrstu lauf.
í kvæðinu: Vísur um vetrar-
kvíða, gætir þessa dimma geigs
ekki síður, en sú ljóðræna fegurð,
sem hann er búinn, er ekki öllum
tiltæk:
Á mörk og víðivöllum standa
bjarkir allar bleikar,
og bráðum heyrist hvinurinn í
dauðans veltiplóg. —
Sjá skuggalega flakkarann —
ræningjann, sem reikar
um riðusjúkan skóg.
í kvæðinu: Við gröf Péturs, er
tónninn slunginn nokkurri kald-
hæðni:
Hví dró þig löngun logasár
til leikja þeirra, er aldrei
vannstu?
Hví seyddi fram á efstu ár
það óskaland, sem hvergi
fannstu?
Hví vekja oss ávallt angur mest
þau æskuglöp, sé horft til baka,
sem mundum vér, ef vér fengjum
frest,
þó fram í dauðann endurtaka.
En eins og áður er getið lumar
bókin á mörgum sólskinsblettum.
Þessar línur eru teknar úr kvæð-
inu: Vísa um gleðina, vorið og
þig:
Þá skelfur hjartað af fögnuði og
fyrirheitum,
þá fellur í stundargleymsku
minn draumur um dauða og gröf.
Og hvílík tindrandi birta í
þessum hendingum úr: Lítið
heiðaljóð:
En lengra inni á heiðunum
blávötn blika og loga,
og bjóða leynivoga —
og griðland hverjum gesti, sem
fram um heiðar fer.
Á hæli hvítra jökla
og blárra veiðivatna
á veikum manni að batna,
því kyngimáttur fjallanna er saga
fyrir sig.
Af öðrum kvæðum vil eg sér-
staklega nefna: Til einnar skóg-
arlilju, Draumur um Skógar-
Rósu, Intermezzo, og Mainnia, öll
ágæt kvæði og skilgetin af-
kvæmi góðs skálds.
Af nokkuð öðrum toga eru
kvæðin: Síðustu dagar Smyrla-
bergs Kobba, Húsgangur um
Blálands-Dísu, og síðast en ekki
sízt: Fiðlarinn í Vagnbrekku, öll
sannar og rammíslenzkar þjóð-
lífsmyndir, þó sín með hvorum
hætti, gæddar lífi og ljóðrænum
töfrum, og trúað gæti eg því, að
Dau ættu eftir að verða langlíf á
vörum íslenzkrar alþýðu.
Kvæðin láta flest ekki mikið
yfir sér við fyrstu kynni, en í lát-
leysi sínu og ljóðrænni fegurð
eru þau gædd þeim galdri, sem
sleppir ekki af manni tökum eft-
ir að hafa komizt í snertingu við
Dau. Við lesturinn gat eg þó
stundum ekki varizt því að óska,
að skáldið hristi af sér tregann,
gerðist dálítið vígreifara og sækti
af meiri djörfung til stærri við-
fangsefna á víðari vettvangi. Eg
ætla engum getum að leiða að
dví, hvað Guðmundur Frímann
ætlast fyrir í þeim efnum, en eg
er illa svikinn, ef honum reynist
vandrötuð leiðin til stærri sigra í
ríki listarinnar, því að sólarsýn
hefur hann betri en nafngift bók-
arinnar bendir til. Allar spásagn-
ir í þeim efnum eru raunar
óþarfar, því að það vill svo vel
til, að í síðasta kvæði bókarinn-
ar er nokkur vísbending um það,
sem koma skal:
Við vetrarkvíðann átti eg óvæg
kynni,
hann að mér stöðugt sótti og lék
mig grátt,
og þó fór ekki þrá mín öðru sinni
jafn þreyjulausum flótta í
sólarátt.
Ó, vík úr mínum draumi,
vetrarkvíði,
og verði spásögn þín að engu
gjörð.
Kom vorsins dís með flúr og
furðusmíði
og fagurblóm og klið um alla
jörð.
„Kom heitur til míns hjarta,
blærinn blíði.“
Guðmundur Frímann er gott
skáld og vaxandi, og vonandi
þarf ekki að bíða önnur fjórtán
ár eftir næstu bók frá hans hendi.
Ekki er bókarinnar að fullu
getið, nema þess sé minnst, að
höfundurinn hefur myndskreytt
hana af frábærum hagleik og
smekkvísi, og eykur það gildi
hennar stórum. Sumar myndirn-
ar eru einar út af fyrir sig ágæt
skáldverk.
Skyldu önnur íslenzk ljóðskáld
gera betur á þessu ári?
Sigurður Róbertsson.
SÓSÍALISTAR!
Verzlið við þá, sem
auglýsa í ,,Verkam.“.
Lúðrasveit Akureyrar leikur á
Ráðhústorgi næstk. laugardag kl.
4, ef veður leyfir.
Vetrarstarfsemin í íþrótta-
húsinu er nú að hefjast. Félög óg
aðrir, sem vilja tryggja sér æf-
ingartíma í vetur, vinsamlegast
áminnast um að leggja fram um-
sóknir sínar fyrir 30. þ. m. Nán-
ari upplýsingar hjá húsverði í
síma 1617.
Brúðkaup. 19. þ. m. voru gefin
saman í hjónaband í Kaup-
mannahöfn, ungfrú Ingibjörg Ól-
afsdóttir Bjarnasonar í Brautar-
holti — hjúkrunarnemi, og stud.
polit. Gunnar Sigurðsson Sölva-
sonar, byggingameistara, Akur-
eyri.
Hjónaband. Ungfrú Þórunn H.
Björnsdóttir, ljósmóðir, og Þor-
valdur Gunnlaugsson, sjómaður.
Fimmtugur er í dag Þórður Að-
alsteinsson, múrarameistari,
Munkaþverárstræti 1.
Þóroddi Jónassyni, lækni, sem
hefur um nokkurt skeið stundað
lækningar hér í bænum, hefur
verið veitt Breiðamýrarlæknis-
hérað frá 1. okt. næstk.
Bifreiðaslys. Aðfaranótt síðastl.
laugardags rakst bifreiðin A—641
á vatnsrör er stóðu aftur af vöru-
bifreiðinni A—344, sem stóð á
hægri kanti götunnar norðan við
gatnamót Fjólugötu og Norður-
götu. Rákust rörin gegnum fram-
rúðuna á A—641 og skrámaðist
bifreiðastjórinn, Hjalti Eymann,
nokkuð á höfði.
Árekstrar og hraður akstur. —
Samkv. upplýsingum frá lög-
reglunni hafa nokkrir ökumenn
hlotið sektir að undanförnu fyrir
of hraðan og ógætilegan akstur.
Einnig hefur nokkuð kveðið að
minni háttar árekstrum. Lítur
út fyrir að ýmsir hinna yngri í
starfinu gæti minni varúðar í
aktsri en þeir eldri og reyndari.
Ef til vill væri rétt af lögreglunni
að birta opinberlega nöfn þeirra
bílstjóra, sem gerast sekir um
óleyfilega hraðan akstur.
Frá Tónlistarskóla
Akureyrar
Þeir nemendur, sem ætla að
stunda nám við skólann á kom-
andi vetri, eru beðnir að tilkynna
það sem allra fyrst til skólastjór-
ans, Jakobs Tryggvasonar. At-
hygli skal vakin á því, að á þessu
hausti verður hafin söngkennsla
við skólann. Kennari verður ung-
frú Ingibjörg Steingrímsdóttir,
sem undanfarin ár hefur stundað
söngnám í Kaupmannahöfn. Er
þess að vænta, að þeir, sem
áhuga hafa á söng, noti þetta
tækifæri. — Þá er ástæða til að
hvetja til meiri þátttöku í námi í
fiðluleik en hingað til hefur ver-
ið. — Skólinn verður settur að
Lóni, miðvikudaginn 3. okt. n.k.,
kl. 6 e. h.
Happdrætti Háskóla íslands !|
Endurnýjun til 10. flokks er liafin. — Verður ji
að vera lokið 9. október.
ENDURNÝIÐ í TÍMA! j:
Bókaverzlun Axels Kristjánssonar h.f.