Verkamaðurinn - 28.09.1951, Qupperneq 4
Bretar selja Rússum
síld, en kaupa timbur
og korn af þeim
í staðinn
Bretar og Rússar eru nýlega
búnir að gera með sér nýjan við-
skiptasamning.
Hafa Bretar selt Rússum 44
þús. tunnur af skozkri sumarsíld
og austurstrandar-haustsíld, og á
afhendingu að vera lokið fyrir 31.
jan. n.k. Ennfremur selja Bretar
10 þús. tunnur til Austur-Þýzka-
lands og fá í staðinn tilbúinn
áburð. — Gera Bretar sér vonir
um að geta selt Rússum meira af
síld.
Bretar fá timbur og korn frá
Sovétríkjunum, þar af 200.000
tonn af hveiti.
Gaitskell, fjármálaráðherra
Bretlands, vék nýlega að því í
ræðu, að í bandarískum blöðum
væri ráðist mjög óvægilega á
Breta vegna hinna miklu viðskipta
þeirra við Rússa. Sannleikurinn
væri sá, að Bretar keyptu timbur
og korn af Rússum og væri þeim
nauðsynlegt að eiga viðskipti við
Rússa sem aðrar þjóðir, þar sem
skilyrði væri til hagstæðra samn-
inga. Bandaríkin keyptu hins veg-
ar aðallega loðfeldi og styrju-
hrogn af Rússum, og væri auðvelt
að hætta slíkum viðskiptum.
Þetta er í fyrsta skipti, sem
Bretar selja síld til Sovétríkjanna
síðan fyrir seinni heimsstyrjöldina.
í skýrslu síldariðnaðarnefndar-
innar segir m. a.: „Þó að síldin
væri seld fyrir neðan framleiðslu-
verð, lítur nefndin svo á, að tapið
sé réttlætanlegt, þar eð um er að
ræða að vinna þarna aftur þennan
markað.“
NÆR OG FJÆR
(Framhald af 2. síðu).
Hvers vegna ræða þeir ekki
landhelgismálin frá öðrum sjón-
armiðum? Hve segja blöðin ekki
lesendum sínum, hvað ríkis-
stjórnin raunverulega aðhefst, og
hvort hún ætli að láta bótalaust í
minni pokann fyrir ásælni
Breta?“
Skemmdarstarfsemi. — Hafn-
arnefndin er skilgetið afkvæmi
Framsóknar og Sjálfstæðisfl.
„Hækja íhaldsins", eins og
Hannibal Valdimarsson, þing-
maður Alþýðufl. kallaði Alþýðu-
flokkinn, tók á móti barninu, og
hjálpaði þannig til að það kæmist
í þennan heim. Bryggjurnar í
innbænum bera þess vott að
hafnamefndin er ómótmælanlega
skilgétið afkvæmi bæjarstjórn-
arafturhaldsins. Hirðuleysið þar
tekur af allan vafa. Þessi dýru og
dýrmætu mannvirki eru að
grotna niður rétt við nefið á
bæjarstjóranum. Nóg efni er til,
svo að hægt sé að gera við
bryggjurnar, nógir peningar eru
til og nóg vinnuafl. Það er því
ekki hægt að álykta annað en að
hafnarnefndin og bæjarstjórnar-
afturhaldið vinni vísvitandi að
því að þessi mannvirki grotni
niður. Hverjir eru í hafnarnefnd-
inni? Eiginnöfn þeirra skipta
raunar ekki miklu máli. En þeir
eiga eitt samheiti: Skemmdar-
vargar.
UTAN UR HEIMI
(Framhald af 2. síðu).
gerðu aðrir aðalstarfsmenn
blaðsins. Við starfi Mr. Hopkin-
s,on tók aðstoðarritstjórinn, Mr.
Ted Castle, en hann fór frá blað-
inu skömmu seinna. Picture Post
hefur um nokkurt skeið farið æ
lengra til hægri.
Á ráðstefnu, sem 50 fulltrúar
—o—
og meðlimir allra deilda sósíal-
demokrataflokksins í Hamborg,
héldu nýlega, var sett á laggirnar
sérstök nefnd til að skipuleggja
baráttuna á móti endurvígbúnaði
Vestur-Þýzkalands. Ráðstefnan
samþykkti einróma ályktun, þar
sem m. a. segir: „Það er skylda
allra sósíaldemokrata að hindra
að nýtt stríð brjótist út.“Ennfrem
ur segir í ályktuninni: „Við vit-
um að einungis er hægt að koma
í vcg fyrir þriðju heimsstyrjöld-
ina með því að allir menn, sósíal-
demokratar, kristnir eða óflokks-
bundnir, standi saman og rétti
hver öðrum höndina á þessari
úrslitastundu.“
—o—
Stjórnendur sænska útvarpsins
hafa nú látið undan krofum um
það, að flutt verði erindi um
Sovétríkin í útvarpið. Verða
flutt 5—6 erindi í haust um Sov-
étríkin, frá mismunandb sjónar-
miðum.
Einn af hjálparmönnum Hitl-
ers, Frakkinn Joseph Joanovici,
var nýlega látinn laus, eftir að
hafa setið í fangelsi í tvö ár af
fimm, sem hann var dæmdur í
1949 fyrir samstarf við Þjóð-
verja á stríðsárunum. Er talið að
hann hafi grætt 4 milljarða
franca á því að selja Þjóðverjum
blý og kopar.
Iran eða Persía var fyrir
æfalöngu afar voldugt ríki. Það
þarf því engan að undra þó að
Persar uni illa kúgun og ofríki
Breta og þeirri niðurlægingu er
því fylgir, að hafa verið um all-
langt skeið nokkurs konar ný-
lenda Breta. Hitt er undravert
að hér á íslandi, sem hefur ný-
lega að kalla má endurheimt
frelsi sitt úr höndum Dana eftir
aldalanga kúgun, skuli fyrirfinn-
ast menn, sem veita kúgurum
Búa stuðning í ræðum og ritum
gegn sjálfstæðisbaráttu Persa.
Persaveldi náði um eitt skeið
alla leið frá fljótinu Indus í Ind-
landi til vesturstrandar Litlu-
Asíu. Árið 553 f. Kr. lögðu Pers-
ar undir sig Medíu (norðurhluta
núverandi Persíu), Lydíu 546,
Nýju-Babyloníu 538, Egypta-
land 525. Þeir lögðu einnig undir
dg Armeníu, Sýrland og Libyu
Dg allt landflæmið frá Arabiska
aafi austur að Indus norður að
Kaspiska hafi og norður fyrir 40.
Dreiddarbauginn norðaustast á
aessu svæði (Belutshistan,
\fganistan og Turkestan).
VERKAMAÐURINN
í kvöld kl. 9:
Dætur götunnar
Þýzk mynd með sænskum
skýringum, er lýsir vanda-
málum stórborganna.
Aðalhlutverkin leika:
.Gisela Trowe
Sigemar Schneider.
SKJALDBORGAR
B í Ó
sýnir í kvöld kl. 9:
Hættulegur leikur
Spennandi, ný, amerísk
sakamálamynd.
Howard Duff,
Shelley Winters og
Dan Duryen.
Börnum innan 12 ára
bannaður aðgangur.
Færri kindum slátrað
hér í haust en í fyrra
Erfiöleikar á að fá
slátur keypt
Haustslátrun hófst í Sláturhúsi
KEA hér í bænum 21. þ. m. og
verður lokið 2. okt. næstk. Að
þessu sinni er slátrað aðeins
rúmlega 4000 kindum, og er það
minna en í fyrra og margfalt
minna en venjulega. Eru miklir
erfiðleikar á því að fá keypt slát-
ur. Dilkar eru sagðir vænir í
haust.
í dag er slátrað 110 kindum úr
Saurbæjardeild, 220 úr Bárðar-
dal, 110 úr Eyjadeild, 15 úr
Fnjóskadal og 45 úr Kinnadeild.
Á morgun verður slátrað 185
kindum úr Fnjóskadal og 45 úr
Bárðardal.
Á mánudaginn verður slátrað
175 kindum úr Hrafnagilshreppi
og 325 úr Bárðardal.
Þriðjud. 2. okt. verður slátrað
100 kindum úr Saurbæjardeild,
110 úr Bárðardal, 15 úr Arnar-
nesdeild, 22 úr Glæsibæjardeild
og 100 úr Akureyrardeild.
Sjötugur verður Skafti Eiríks-
son, starfsmaður á Gefjun, 1. okt.
næstk. og átti 40 ára starfsafmæli
síðastliðið vor.
Skógræktarfélag Tjarnargerðis
hefur félagsvist og dans að Hótel
Norðurland næstk. sunnudags-
kvöld kl. 8.30, — Fjölmennið! —
Munið að taka með ykkur spil og
blýant. — Spilanefndin.
1
Nokkrar sfúlkur
geta enn komizt að í heimavist Húsmæðraskóla
Ákureyrar. Skólinn verður settur mánudaginn 1.
október, kl. 17 e. hád.
Forstööukonan.
HLUTAVELTA
Fulltrúaráð verklýðsfélaganna
lieldur hlutaveltu í Verklýðshúsinu sunnudaginn
30. september, kl. 2 e. h.
Margt ágætra muna, svo sem:
Ljósmynd (lituð), vegghilla, fatahreins-
un, kartöflur, rakstrar, veggfóður í 1 stofu,
fatnaður, búsáhöld, afmæliskringlur,
bílferðir.
I HAPPDRÆTTl
Forði til vetrarins,
ca. 1000 kr. virði
50 kg. hveiti
25 kg. hafragrjón
25 kg. rúgmjöl
50 kg. strásykur
5 kg. smjörlíki
1 kg. kaffi
50 kg. kartöflur
1 kassi kex
- Drátturinn kostar 2 krónur. -
Fulltrúaráö verklýðsfélaganna.
......... 11111111
IIIlllillII■IIIIIIIlllll|||,,,|
ORÐSENDING
til með'ima verklýðsfélaganna
Munir á hlutaveltu Fulltrúaráðsins þurfa að vera
komnir í tæka tíð. Mununum og peningagjöf-
um veitt móttaka í Verklýðshúsinu í dag og
á morgun.
Áríðandi að hert sé nú á söfnuninni. Fmginn meðlimur
verklýðsfélaganna má skerast úr leik.
Formaður Fulltrúardðs verklýðsfélaganna.
TILKYNNING
Fjárhgasráð hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð
á brauðum í smásölu:
Án Með
söluskatts: söluskatti:
Rúgbrauð, óseydd, 1500 gr. . . kr. 4.07 kr. 4.20
Normalbrauð, 1250 gr.........kr. 4.07 kr. 4.20
Séu nefnd brauð bökuð með annarri þyngd en að
ofan greinir, skulu þau verðlögð í hlutfalli við ofan-
greint verð.
Á þeim stöðum, sem brauðgerðir eru ekki starfandi,
má bæta sannanlegum flutningskostnaði við hámarks-
verðið.
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið vera
kr. 0,20 hærra en að framan greinir.
Reykjavík, 19. sept. 1951.
Verðlagsskrifstofan.