Verkamaðurinn - 05.03.1954, Qupperneq 2
2
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 5. marz 1954
VERKHlflÐlIRinn
- VIKUBLAÐ. -
Útgefandi: SÓSÍALISTAFÉLAG AKUREYRAR.
Ritnefnd: Björn Jónsson, ábyrgðarmaður, Jakob Árnason,
Þórir Daníelsson.
Afgreiðsla: Hafnarstræti 88. — Sími 1516. — Pósthólf 21.
Áskriftarverð 30 kr. árg. Lausasöluverð 75 au. eintakið.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
Samfylking alþýðunnar og
alþjóðleg samskipti
Orðið er laust
ÞAÐ leynir sér ekki, nú upp á
síðkastið, á blöðum Alþýðu-
flokksins, að foringjar flokksins
eru gripnir skelfingu yfir því að
samfylkingarstefna Sósíalista-
flokksins hlýtur sífellt vaxandi
fylgi óbreyttra liðsmanna Al-
þýðuflokksins. Þr-'ir reyna allt
hvað af tekur að fálma eftir
hverju hálmstrái í örvæntingar-
fullri leit sinni að ,.röksemdum“
gegn því samstarfi, sem þegar er
orðið að raunveruleika víða um
land, í bæjarstjórr.um og verka-
lýðsfélögum og gegn þeirri sam-
einingu vinstri aflanna, á lands-
mælikvarða, sem fleiri og fleiri
alþýðumenn setja nú vonir sín-
ar um árangursríka stjórnmála-
baráttu alþýðustéttarinnar.
ÞAÐ ER að vísu ánægjuleg
framför að foringjarnir skuli nú
yfirleitt telja sér nauðsynlegt að
leita uppi „röksemdir" í þessu
sambandi, því að fram til þessa
hafa þeir ekki talið þeirra neina
þörf. Og fyrst þeir hafa sýnt slíka
framför er ekki nerr.a sjálfsagt að
líta á þessar „röksemdir" og vega
þær og meta. Þessar virðast
helztar:
ÞANNIG var stefna flokksins
lun alþjóðleg afskpiti mörkuð við
stofnun hans og þessari stefnu
hefur hann verið trúr og mun
verða, hvort sem andstæðingun-
um líkar betur eða verr.
SÓSIALISTAFLOKKURINN
er stofnaður af sósíaldemokrötum
Og kommúnistum sameiginlega,
1. Sósíalistaflokkurjnn er skipað-
ur tvenns konar fólki, sósíalist-
um og kommúnistum, en þeir
fyrri eru þar eins konar vinnu-
hjú og ráða engu fyrir ofríki
hinna síðarnefndu.
2. Forustumenn Sósfalistafl. hafa
setið, sem gestir, á þingum er-
lendra kommúr.ista og gætu
því flækst inn í njósnamál.
3. Kommúnistarnir, sem öllu ráða
í Sósíalistaflokknum, dýrka
Rússa og gerast meira að segja
svo djarfir að sækja þá heim.
4. Kommúnismi er slæmt „vöru-
merki“ í „heimi vestrænna lýð-
ræðisrfkja".
Þessar fjórar „meginröksemd-
ir“ Alþýðuflokksforingjanna eru
svo tengdar hvor annarri á hinn
fjölskrúðugasta hátt í skrifum
blaðanna og renna eigi ósjaldan
allar saman í eina munntama
upphrópun: Moskva! Moskva!
í STEFNU SKRÁ Sósíalista-
flokksins segir svo um þau atriði,
sem hér ræðir aðallega
en honum tókst, þegar í upphafi,
að samrýma svo skoðanir með-
lima sinna á grundvelli marx-
ismans, að mörkin milli þessara
tveggja aðila eru löngu horfin og
engum kemur nú lengur til hug-
ar að tala um tvær stefnur innan
flokksins. Allt hjal um slíkt er
ómerkilegt þvaður, sett fram af
vanþekkingu eða gegn betri vit- I
und.
SÓSÍALISTAFLOKKURINN
er fuilmótaður sósíalistiskur
flokkur, sem byggir stefnu sína
á þöríum íslenzkrar aiþýðu og er
engum háður nema henni einni.
En hann er, eins og verkalýðs-
hreyfingin öil, einnig alþjóðiegur
í eðli sínu. Þess vegna. vill hann
hafa vinsamleg samskipti við „al-
þýðuflokka í öllum löndum",
hvort sem þeir teija sig komm-
únistiska, sósíaldemokratiska eða
hvorugt, aðeins ef þeir eru trúir
grundvallarhugsjónum verkalýðs
hreyfingarinnar. Foringjar Al-
þýðuflokksins eru einnig alþjóð-
lega sinnaðir og þeir eru bundnir
í skipulögðum samtökum sósíal-
demokrata. En alþjóðahyggja
þeirra hefur að þessu ekki náð
lengra en til þeirra samtaka, sem
háðust eru auðvaldinu og nú síð-
ustu árin nær einungis til þeirra
fiokka og alþjóðasamtaka, sem
beint eða óbeint hlýta yfirstjóm
Bandaríkjanna og mótast af ut-
anríkispólitík þeirra.
ÞEIR HAFA hrifizt með í of-
stækisfuliri áróðurs- og ófræg-
ingarherferð auðvaldsins gegn
ríkjum alþýðunnar og sósíaLism-
ans og ekki skirrst við þótt slíkt
hafnaði í þátttöku þeirra í afsaii
íslenzku þjóðarinnar í hemaðar-
kerfi voldugasta auðvaldsríkisins.
Og nú, þegar alþýðan krefst ein-
ingar og samstarfs alþýðuflokk-
anna til þess að rétta hlut sinn,
ekki sízt gegn sameinuðum árás-
um íslenzka og ameríska auð-
valdsins, þá hrópa foringjar Al-
þýðuflokksins á móti: Þetta er
ekki hægt nema íslenzka aiþýðu-
stéttin falli fram og tilbiðji Atl-
antshafsbandalagið, hernámið,
Kéflavíkursamninginn og gerist
auk þess einn af hrópendunum í
samkór afturhaldsafla allrar ver-
aldar gegn þeim stórfellu átökum
sem alþýðan í þriðjvmgi veraidar
er nú að gera til þess að koma
hugsjónum verkalýðshreyfingar-
innar í framkvæmd.
SLÍK SVÖR af hendi foringja
Alþýðuflokksins eru í samræmi
við stefnu þeirra síðustu áratug-
ina, en þau munu ekki finna
neinn hljómgrunn meðal alþýð-
unnar. Hún mun sýna slíkri af-
stöðu gegn hagsmunum sínum og
vandamálum fullkomna fyrirlitn-
ingu og margfalda jafnframt
sókn sína fyrir einingu gegn aft-
urhaldinu. — b.
Orðabók
Sigfúsar Blöndals
verður framvegis seld með
mánaðarlegum afborgunum.
Verð í skb. kr. 650.00, ób.
kr. 500.00. Við móttöku
greiðist kr. 50.00 og síðan
1. hvers mánaðar kr. 50.00.
Tekið á móti pöntunum í
Bókaverzl. EDDA h.f.
Sími 1334.
aiiiniii iii iiiiii ii iii iiiimii ii iii 11(111111111111111111 ii mniii||»
(Ritsafn Jóns Trausta 1-81
Með afborgunum.
} Bókaverzl. Edda li.f. \
Akureyri.
llllUIIIMIMIIIIMMtMIIIIIIIIIIMIIMIIIIIIIinllllllllllllllllir
Bókasafn sjúkrahússins.
Nú eftir að nýja sjúkrahúsið er
tekið til starfa datt mér í hug að
beina því til hinna ýmsu bókaút-
gefenda, hvort þeir vildu nú
ekki gefa bækur, svo að myndast
gæti smám saman bókasafn af
nýjum og nýlegum bókum, því að
svo mikið er gefið út árlega af
bókum, að á tiltölulega stuttum
tíma ætti að geta myndast dálítið
bókasafn. Þetta eru aðeins vin-
samleg tilmæh mín, vegna þess
að það gæti orðið mörgum sjúkl-
ingi til afþreytingar að geta litið
í bók. Eg þekki það sjálfur, frá
því að eg var sjúklingur í sjúkra-
húsinu hér, hversu mikil vöntun
var að fá enga lesandi bók til að
líta í. — Blöð fullnægja ekki
lestrarþörf sjúklinga, en sjúkl-
ingar eiga ekki aðgang að bóka-
safni bæjarins, sem ekki er við að
búast.
Á gamla sjúkrahúsinu voru til
nokkrar gamlar skræður, mjög
óaðgengilegar, vegna þess að þær
voru allar trosnaðar og grút-
skitnar, og nú sjálfsagt ekki til
annars en að brenna þær.
Bókaútgefendur og bókamenn
hafa frá upphafi sýnt mikið tóm-
læti í bókagjöfum til sjúkrahúss-
ins, og hins vegar, mér vitanlega,
enginn vakið máls á þessu, þó
vitanlegt sé, að þarna á gamla
sjúkrahúsinu hafa legið þúsundir
sjúklinga með alveg nákvæmlega
sömu tilfinningar og þeir sjúkl-
ingar, sem liggja á hinum nýrri
heilsuhælum og sjúkrahúsum
landsins.
Eg hef þá trú, að þetta sé ekki
fyrir þá ástæðu, að bókaútgef-
endur tími ekki að gefa bækur,
heldur fyrir þá ástæðu, að þeim
hafi ekki hugkvæmst það, hversu
mikill velgjömingur þetta væri
gagnvart sjúklingunum.
J. Jak.
Jarðarför móður okkar,
KRISTRÚNAR GUÐLAUGAR JÓNSDÓTTUR,
er lézt að heimili sínu, Hjalteyrargötu 1, 28. febrúar, fer fram
frá Akureyrarkirkju laugardaginn 6. marz kl. 1.30 e. h.
Helga Eyjólfsdóttir. Elís Eyjólfsson.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
fráfall sonar okkar og bróður,
JÓNS HERMANNSSONAR,
sem drukknaði af m.b. „Sæfinni" 11. febrúar sl.
Guðrún Magnúsdóttir. Hermann Jakobsson og systkini.
H.f. Eimskipafélag íslands.
Tilkynning til hluthafa
Stjórn H. f. Eimskipafélags íslands hefir ákveðið að
falla skuli niður aukafundur sá, er haldinn skyldi 12.
marz 1954 til ákvörðunar um innköllun og endurmat
hlutabréfa félagsins.
Ástæða til þessarar ákvörðunar er sú, að endurskoðun
gildandi skattalaga er ekki enn lokið og þykir því ekki
rétt að ráða þessu máli endanlega til lykta nú.
Málið verður tekið fyrir á aðalfundi félagsins 12.
júní 1954.
STTÓRNIN.
Aðalf undur
Akureyrardeildar MÍR
verður haldinn í Ásgarði (Hafnarstræti 88) n. k. sunnu-
dag (7. marz) kl. 5 síðdegis.
DAGSKRÁ:
Inntökubeiðnir.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar fjölmennið og komið með nýja félaga!
Stjómin.
.................1 -■ 1 i
um:
„BARÁTTAN milli peninga- og atvinmirekendavaldsins annars
vcgar og hinnar vinnandi alþýðu hins vegar eða milli auðvaldsins og
sósíalismans, er nú háð í öllum auðvaldslöndum. Sigur eða ósigur
alþýðunnar í einu landi hefur áhrif á aðstöðu alþýðunnar í öðrum
löndum, og er að því leyti sigur hennar eða ósigur.
FLOKKURINN lýsir samúð sinni með starfsemi bræðraflokka
sinna, alþýðuflokkunum í öllum löndum. Hann fylgist af mikilli at-
hygli og samúð með starfsemi alþýðuflokkanna á Norðurlöndum,
fyrir bættum kjörum alþýðunnar, eflingu lýðræðisins og undirbún-
ingi undir framkvæmd sósíalismans; vill flokkurinn hafa við þá vin-
samlegt samstarf og nána samvinnu.
FLOKKURINN fylgist einnig af mikilli athygli og samúð með
starfsemi alþýðiuvnar í Sovétlýðveldasambandinu að skapa sósíalis-
tiskt þjóðféléag. Þar sem ósigur Sovétríkjanna myndi vera ósigur
fyrir verkalýðinn um allan heim, berst hann á móti hvers konar
einangrunartilraunum, árásarherferðum, spellvirkjum auðvaldsins
og öllum óhróðri gegn hinu nýja þjóðfélagi. Flokkurinn vill auka
hið viðskiptalega og menningarlega samband við Sovétríkin og veita
óhlutdræga fræðslu um baráttu þeirra fyrir sköpun sósíalismans.
FLOKKURINN vill hagnýta sér þá reynslu erlendra stéttarbræðra
og sósíalistaflokka, sem eiga við íslenzka staðhætti, en vill jafnframt
taka það skýrt fram, að hlutverk íslenzkrar alþýðu og flokks henn-
ar, er að skapa sósíalistiskt þjóðfélag á þeim sögulega og þjóðfélags-
lega gnmdvelli, sem fyrir hendi er hér á landi.
FLOKKURINN stendur fyrst um sinn, eftir að sameining ís-
lenzkrar alþýðu í einn flokk hefur farið fram, utan allra pólitískra
alþjóðasambanda. En þar sem alþýðunni eru einhuga alþjóðasam-
tök nauðsynleg, eins og eining alþýðusamtakanna innan hvers lands,
fylgist flokkurinn af áhuga og samúð með öllum tilraunum til þess
að samcina alþýðu allra landa á grundvelli sósialismans og lýðræðis-
ins, og lýsir sig andvígan allri klofningsstarfsemi, sem miðar í öfuga
átt, undir hvaða yfirskini sem er.“