Verkamaðurinn - 09.04.1954, Page 2
2
VERKAMAÐUBINN
Fðstudaginn 9. apríl 1954
VERKHOUIÐURinn1
— vikublað —
Útgefandi:
Sósíalistafélag Akureyrar
Ritnefnd:
Björn Jónsson, ábyrgðar-
maður, Jakob Ámason,
Þórir Daníelsson.
Afgreiðsla: Hafnarstræti 88. —
Sími 1516. — Pósthólf 21.
Askriftarverð 30 kr. árg.
Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentv. Odds Bjömssonar h/f
Stækkun lögsagnar-
umdæmisins
í sögu Akureyrar mun bæjar-
estjómarfundarins sl. þriðjudag
lengi minnst sem merkisfimdar
vegna þess að þá var endanleg
ákvorðun tekin um svo mikla
stækkun lögsagnarumdæmisins,
að líklegt má telja að hún nægi
til stækkunar bæjarins um ófyr-
irsjáanlega framtíð, enda þótt hún
verði hraðari en björtustu vonir
standa nú til.
Með þessum aðgerðum er ekki
einasta séð fyrir nægu landrými
til húsabygginga og hvers konar
atvinnurekstrar, heldur einnig
miklum mun hentuguri bygg-
ingastæðum, en nú er að verða
völ á í bænum. Þær lóðir, sem
enn eru óbyggðar á bezta bygg-
ingasvæðinu í bænum, Oddeyr-
inni, verða að mestu notaðar
undir verksmiðjur, verzlanir og
annan atvinnurekstur. Þar verða
aðeins byggð örfá íbúðarhús hér
eftir. Byggingalóða hefði því fyrst
og fremst orðið að leita uppi á
brekkunum, sem á margan hátt
er erfitt og óæskilegt, a. m. k. enn
jim sinn, ef ekki hefði verið horf-
ið að því að stækka bæinn til
norðurs. Fyrsta afleiðing af
stækkim lögsagnarumdæmisins
verður því vafalaust sú, að íbúð-
arhús verða frekast byggð í Gler-
árþorpi, ef svo verður, sem flestir
munu vona, að stækkun bæjarins
haldi áfram, og þess verður e. t.
v. ekki langt að bíða, að ,mið-
punktur" bæjarins færizt til
norðurs að atafnasvæðunum
norðan til á Gleráreyrum.
En Akureyringar hafa ekki að-
eins ,unnið“ ný lönd, þar sem bær
þeirra verður að mestu leyti
reistur í framtíðinni, heldur bæt-
ist þeim álitlegur hópur dugandi
borgara, sem í framtíðinni munu
leggja fram sinn skerf til vaxtar
og viðgangs bæjarfélagsins. í
Glerárþorpi búa nú um 500
manns og flest af því er verka-
fólk, sjómenn, verkamenn og
iðnverkafólk að miklum meiri-
luta. Þetta fólk er að allra dómi,
sem til þekkja, engir eftirbátar
Akureyringa né annarra að
dugnaði og framtakssemi, nema
síður sé. Á margan hátt hefur
kos.ti þess verið þrengt enn fastar
en verkafólks hér innan bæjar-
takmarkanna og oft hefur það
ráðið úrslitum um möguleikana
til atvinnu og lífsbjargar, hvort
viðkomandi bjó norðan eða sunn-
an Glerár. En þorpsbúar hafa J
samt með harðfylgi og dugnaði
brotizt í gegnum erfiðleikana.
Mikill meirihluti Akureyringa
býður þetta fólk velkomið til Ak-
ureyrar og væntir sér mikils af
samstarfi og samvinnu við það á
komandi tímum. Sérstaklega er
það fagnaðarefni verkafólki jafnt
sunnan sem norðan Glerár, að nú
getur það eygt þá stund, er allur
grundvöllur undir misklíð, erjum
og þrætum út af skiptingu at-
vinnu og réttindum til vinnu, er
numinn burtu og sameiginlega
mun það nú taka að snúa sér af
einbeittni að því að hér vaxi upp
athafnalíf, sem skapað geti öllum
næga og trygga atvinnu.
Andófsmenn í sameiningarmál-
unum hafa stundum haldið því
fram, að verkafólkið í Glerár-
þorpi yrði þungur baggi á bæjar-
íélaginu. Þeir, sem slíkt mæla,
eru skammsýnir einfeldningar.
Ekkert getur verið dýrmætara
bæjarféélaginu en atorkusamir
borgarar. Á starfi þeirra veltur
framtíð þess. Við höfum dæmin
fyrir okkur um það, að veruleg-
ur hluti vöskustu sjómannanna á
togaraflotanum er úr „þorpinu",
sömuleiðis fjöldi af prýðilega
hæfu iðnverkafólki sem hér starf
ar. Slíkt fólk er vissulega ekki
líklegt til þess að verða bænum
til byrði, ef að atvinnuvegunum
er búið af framsýni og áræði.
Framtíðin mim vissulega sanna
að ákvörðuni num stækkun bæj-
arins er heillaspor fyrir Akur-
eyri og framtíð hennar. Og það
er sérstaklega ánægjulegt að það
spor skyldi stigið óhikað af bæj-
arstjóminni og ekki skyldi finn-
ast þar nema einn fulltrúi, sem
spymti þar fótum við eðlilegri
þróun og vexti bæjarins.
-K KVENNASAMBAND AKUR-
EYRAR (Einingin, Framtíðin
og Hlíf) heldur fund sunnud.
11. apríl kl. 8.30 e. h. í Verka-
lýðshúsinu, Strandgöngu 7. —
Fundarefni: Skýrt frá 10.
Landsþingi K. í. og Sambands-
fundi N. K. á Dalvík. — Rætt
um 40 ára afmæli-S .N. K. á
Akureyri næsta sumar. Stjórn-
in.
-K Páskamynd Skjaldborgarbíós
að þessu sinni verður að lík-
indum Chopinmyndin „Unaðs-
ómar“. í myndinni er mikið af
fegurstu hljómlist þessa mikla
snillings. — „Unðsómar11 var
fyrsta myndin, sem Skjald-
borgarbíó sýndi ,en hún er nú
komin aftur í nýrri „kopíu” og
hefur að undanfömu verið
sýnd við geysimikla aðsókn í
Tjamarbíó í Reykjavík.
Skemmtiklúbbur Iðju
verður n. k. laugardagskvöld
í Alþýðuhúsinu og hefst kl. 8.30
e. h. — Spiluð verður félagsvist.
Þorleifur Þorleifsson stjórnar,
verðlaun veitt. Aðalspilaverð-
laun Ritsafn Jóns Trausta.
DANS Á EFTIR. Svanhvít
Jósefsdóttir syngur með
hljómsveitinni.
Komið og skemmtið ykkur.
STJÓRNIN.
Krafan um algert bann við kjarnorkuvopnum og
frekari tilraunir með þau rís stöðugt hærra
Þingmenn Sósíalistaflokksins leggja til að
Alþingi skori á Bandaríkjastjórn að hætta
vetnissprengjutilraunum
„Alþingi íslendinga ályktar að skora á ríkisstjóm Banda-
ríkja Norður-Ameríku að framkvæma eigi frekari tilraunir
með vetnissprengjur og ennfremur að taka nú þegar upp
samninga við Sovétríkin, Bretland og önnur ríki um bann
við framleiðslu kjarnorkuvopna og strangt, alþjóðlegt eftirlit
með því, að banninu verði framfylgt, jafnframt því, sem þessi
ríki, ásamt öðrum, skuldbindi sig til þess, að beita ekki kjam-
orkuvopnum í hemaði."
Tillaga þessi til þingsályktunar
var flutt á Alþingi af öllum þing-
mönnum Sósíalistaflokksins þann
1. þ. m. Tillögunni fylgdi löng og
ýtarleg greinargerð, lengri en svo,
að tök séu á að birta hana hér.
Lesendum öllum mun kunn-
ugt af fréttum útvarps og blaða,
hvert er tilefni tillögunnar, sem
sé, að þann 1. marz sl. sprengdu
Bandaríkjamenn svokallaða vetn
issprengju á Kyrrahafi. Leystist
við það úr læðingi þvílíkur ógn-
arkraftur, að mannkyni öllu stóð
af ógn og menn spurðu hver ann-
an: eru dagar mannkynsins senn
taldir.
Sprengiafl þessarar einu
sprengju var slíkt, að jafngilti 6
millj. tonna af TNT, eða öllum
slíkum sprengjum, sem notaðar
voru í síðustu heimsstyrjöld! —
Sprengingin var a. m. k. 600 föld
við þá, sem lagði Hiroshima í
rúst.
Afleiðingar.
Sprengingin varð a. m. k. fjór-
um sinnum meiri en vísindamenn
gerðu ráð fyrir og meiri hluti
allra mælitækja, sem komið hafði
verið fyrir eyðilagðist. A. m. k. 4
skip, japönsk, með 60 manna
áhöfn, sem stödd voru utan
hættusvæðisins" fórust og önnur
urðu geislavirk af völdum ösku-
falls, sem stafaði frá sprenging-
unni. Liggja nú fjölmargir jap-
anskir fiskimenn í sjúkrahúsi
þungt haldnir, og er með öllu
vonlaust um fullan bata. Geisla-
virkur snjór féll í Kanada, fisk-
urinn í hafinu varð geislavirkur,
söltin í hafinu urðu geislavirk og
stórkostlega mikið vantar á, að
enn séu öll kurl komin til grafar
í þessu efni. Má því til sönnunar
benda á, að enn þann dag í dag, 9
árum eftir sprenginguna á Hiros-
hima ,eru að koma í ljós afleið-
ingar hennar.
Einn þeirra vísindamanna, sem
lagt hafa stund á atomvísindi,
japanski prófessorinn Súzúki,
hefur bent á, að sú hætta sé til
staðar, að stór hluti Kyrrahafsins
verði mengaður geislavirkum
söltum og öðrum efnum, sem
gætu skolast upp að ströndum, ef
þessum tilraunum verður haldið
áfram.
Viðbrögð þjóðanna.
Þegar fréttimar fóru að berast
um hinar alvarlegu afleiðingar
sprengingar þessarar, var sem
þjóðirnar vöknuðu af dvala og
gerðu sér grein fyrir, hvað var
að gerast, að verið var að leika
sér að tilveru alls mannkyns, alls
lífs á jörðunni. — Vísindamenn
eru ekki óhræddir um, að jafn-
vægi náttúrunnar á Kyrrahafi
hafi þegar raskast af völdum
sprenginganna. — Sunnudaginn
þann 21. marz prédikaði dr. Hew-
lett Johnsson, dómprófastur í
Kantaraborg, í kirkju sinni,
frægustu og virðulegustu kirkju
Bretaveldis, ræddi hann þar um
sprenginguna og afleiðingar henn
ar. Ræða hans varð til þess að
vekja brezku þjóðina og margar
þjóðir aðrar til umhugsunar og
umræðu um þessi mál og nú rís
hærra með hverjum degi sem líð-
ur sú krafa, að hætt verði þegar
í stað öllum tilraimum með
vetnissprengjur og notkun kjam-
orkuvopna verði bönnuð.
Brezka íhaldsstjómin, undir
forystu Churchills, lýsti blessun
sinno yfir aðgerðum Bandaríkj-
anna, en fékk á sig slíka mót-
mælaöldu, að sl. þriðjudag var
samþykkt mótatkvæðalaust í
brezka þinginu tillaga þess efnis
frá Verkamannaflokknum, að
Bretar beittu sér þegar í stað fyr-
ir fundi Breta, Bandaríkjamanna
og Rússa til umræðna um algert
bann við vetnissprengjum.
Kröfur svipaðs efnis hafa
komið frá Japan, Ástralíu, Nýja-
Sjálandi og fleiri löndum.
Hlutur Bandaríkjastjómar.
Stjóm Bandaríkjanna svaraði
kröfum þjóðanna um bann við
kjarnorkuvopnum með því að
gera aðra tilraun með vetnis-
sprengjur! Stríðspostularnir hafa
gengið berserksgang þar vestra
sl. mánuð. Æðstu menn Banda-
ríkjanna, svo sem Eisenhower
forseti og Dulles utanríkisráð-
herra, hafa lýst yfir hvor í kapp
við annan, að forsetinn hafi vald
upp á sitt eindæmi til að ákveða
að þessu ógnarvopni sé beitt, þ. e.
að hann hafi vald til að þurrka
út allt líf úr heilum þjóðlöndum!
Heimildin segja þeir að sé í Atl-
antshafssáttmálanum. Þeir hafa
jafnframt lýst yfir, að allt kapp
verði lagt á framleiðslu þessa
ógnarvopns og hvers konar annar
stríðsundirbúningur aukinn af
fremsta megni. Og allt á þetta að
vera gert í þágu friðarins!!
I Hlutur vor.
Eðlilegt er, að okkur íslending-
um verði til þess hugsað, hver
hlutur vor sé orðinn eins og nú
er komið málum. Staðreynd er að
Bandaríkin eiga vopn, sem geta
lagt stórborgir eins og New York
og London í auðn í einu vetfangi
og brezka íhaldsblaðið „The Re-
corder“ segir að Rússar hafi þeg-
ar náð forskoti í vetnissprengju-
kapphlaupinu.
Gegn þessum ógnarvopnum eru
engar vamir til. Ameríska her-
liðið hér, sem kallað er „varnar-
lið , getur ekki, frekar en nokk-
ur mannlegur máttur veitt okkur
neina vöm heldur aðeins — og
nú meir en nokkru sinni fyrr —
boðið hættunni heim, hættunni á
algerri tortimingu þjóðarinnar.
Þessi staðreynd hlýtur að verða
hverjum þeim, er um hugsar,
1 j ós. V etnisspr engj utilraunimar
hljóta því að gefa kröfunni um
tafarlausa brottför liðs þessa af
landinu aukið og margfaldað
gildi.
•Mt jJ
Niðurlagsorð dr. H. Johnsson.
Hér skulu að lokum tilfærð
niðurlagsorð dr. Hewlett Johns-
son í prédikun hans, sem áður
var getið,
„Ef kristin kirkja lætur þetta
tækifæri hjá líða, ef hún lætur nú
undir höfuð leggjast að vinna
friðinn og tryggja hann, ef hún
vanrækir að taka sér stöðu við
hlið Rússa í baráttunni fyrir
banni kjamorkuvopna, með því
að hafna að bera fram kröfur um
samninga, ef hún lœtur sér lynda
að augu fólks séu blinduð með
því, að þögn sé lokið um viðhorfin
eins og þau eru í raun og sann-
leika ,ef hún lætur viðgangast, að
örlög vor séu falin öðrum á úr-
slitastundum — þá hefur hún
svikið Hann, sem hún kallar
Meistara sinn, hún hefur þá tekið
sér stöðu við hlið hinna stríðsóðu.
1 þessari aðstöðu er hlutleysi
óhugsandi.
Þessi þórduna háskans og þessi
boðskapur um möguleika varan-
legs friðar skyldi gjalla frá hverj-
um prédikunarstóli landsins.
Kantaraborg, heimakirkja allra
enskumælandi þjóða, er valinn
staður til að hefja frá nýja frið-
arsókn.
Látum oss í Kantaraborg hugsa
um frið, tala um frið, berjast fyr-
ir friði.“
Vill íslenzka kirkjan taka und-
ir þessi orð hins merka, brezka
kirk j uhöfðingja ?
Skemmtiklúbbur
„EININGAR“
hefur félagsvist og dans (gömlu
dansana) n. k. föstudag kl. 8
e. h í Alþýðuhúsinu. — Maetið
stundvíslega. Aðgöngumiðar eru
seldir við innganginn.
NEFNDIN.