Verkamaðurinn - 07.05.1954, Page 4
4
VERK AM AÐURINN
Föstudaginn 7. maí 1954
TILKYNNING
til meðlima Verkamannafélags Akureyrar-
kaupstaðar og Sjómannafélags Akureyrar
Félagsmenn eru minntir á að télagsgjöldin féllu í gjald-
daga í janúarmánuði, og er innheimta þeirra því hafin.
Þeir félagsmenn, sem síður vilja að gjald þeirra sé inn-
heimt hjá vinnuveitendum, eru vinsamlega beðnir að
greiða þau fyrir 15. maí n. k. Litið verður svo á að þeir,
sem ekki hafa greitt fyrir þann tíma, óski eftir að gjöldin
verði innheimt hjá vinnuveitendum. Skrifstofan í Verka-
lýðshúsinu er opin kl. 4.3Q--7 alla virka daga nema
laugardaga.
Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar.
Sjómannafélag Akureyrar.
BAZAR
muna.
verður haldinn í Verkalýðshúsinu n. k. sunnudag, 9. maí,
kl. 2.30'síðdegis. Verður þar margt góðra og nytsamra
Félagskonur eru beðnar að koma munum í Verkalýðs-
húsið í dag, kl. 5—7, eða á morgun, kl. 1—3.
NERNDIN.
Akureyrarbörn fá sfarf við fisk-
þurrkun og garðrækt í sumar
Samsöngur Kantötukórs Akureyrar
Ákveðið hefur verið að Vinnu-
skóli Akureyrarbæjar taki til
starfa 20. þ. m. og standi til 20.
september í haust.
Skólinn tekur á móti 11, 12 og
13 ára bömum og verða verk-
efni þeirra að starfa við fiskþurrk
xm og garðrækt.
Garðræktin.
Skólinn legurr til ókeypis
kennara, áhöld, útsæði og áburð,
— verður bömunum greitt með
væntanlegri uppskeru, allt að 8-
faldri, en það sem fram yfir er,
gengur til Vinnuskólans. Stjórn
skólans mun og aðstoða á allan
hátt við sölu jarðávaxtanna.
Bömimum verður úthlutaður
reitur til matjurtaræktar. Mun
skólinn sjá um útvegun á plönt-
um, en bömin greiði sjálf and-
virði þeirra.
Fiskverkunin.
Tekinn verður þveginn saltfisk
ur til sólþurrkunar á fiskgrind-
um á svæði norðan Glerár. Börn-
in,sem þar vinna.mæti þann dag-
inn, sem ekki er unnið við garð-
ræktina, til vinnu við fiskinn. Á-
kveðið er að greiða börnunum
nokkra byrjunargreiðslu á klst.,
en endanlega greitt við skólaslit,
eftir því sem fiskverkunin gefur
af sér. Þau börn, sem óska eftir
vinnu í skólanum, eru skuldbund
in að vinna jöfnum höndum við
garðrækt og fiskþurrkun.
Umsóknir fyrir 12. maí.
Allar nánari upplýsingar gefur
Vinnuskólanefndin. Símar 1334
og 1645. Skriflegar umsóknir um
vinnu í skólanum þurfa að hafa
borizt fyrir 12. maí n.k. í Bóka-
verzlun Eddu h.f., Akureyri.
Vinnuskólanefndina skipa:
Árni Bjamarson, formaður,
Guðmundur Jörundsson, útgerð-
armaður, frú Guðrún Guðvarðar-
dóttir og frú Hlín Jónsdóttir.
- 1. maí
(Framhald af 1. síðu).
formaður Bílstjórafélagsins, Stef-
án Árnason, verkam., Tryggvi
Helgason, formaður Sjómanna-
:élagsins og Þórir Daníelsson, rit-
ari Verkamannafélags Akureyr-
arkaupstaðar. Voru ræður þeirra
illra •hinar áheyrilegustu, stuttar
og hnitmiðaðar. Allir lögðu
ræðumenn ríka áherzlu á nauð-
syn þess að styrkja alþýðusamtök
':n jöfnum höndum stjómmála-
lega og faglega. Jón Rögnvalds-
son, formaður Bílstjórafélagsins,
mælti í stuttri en snjallri ræðu
m. a. á þessa leið:
„.... hlýtur það að verða
krafa verkalýðssamtakanna í
dag til allra sinna manna, að
þeir geri hugmyndina um einn
stóran verkalýðsflokk sem
fyrst að veruleika, og ekki síð-
ar en við næstu alþingiskosn-
ingar.... Þið, sem mál mitt
heyrið, hefjið baráttuna fyrir
hugmyndinni um einn sterkan
verkalýðsflokk strax í dag....“
Guðrún Guðvarðardóttir, for-
maður Fulltrúaráðs verkalýðs-
félaganna stjómaði útifundinum
af skörungsskap.
Síðar um daginn, að lokinni
kröfugöngunni, var kvikmynda-
sýning og bamaskemmtun, en
um kvöldið voru dansleikir að
Varðborg og í Alþýðuhúsinu. —
Var þar alls staðar húsfyllir,
nema á kvikmyndasýningunni.
Sýna hátíðahöldin hér að þessu
sinni, að ekki vantar nú nema
herzlumun til þess að 1. maí verði
sá þáttur í starfi verkalýðssam-
takanna, sem vera ber.
Rausnarleg gjöf
Við vígsluathöfn Æsitulýðs-
heimiiis teinpiara a sl. nausu tii-
kynnu imuctor rriojonsson,
iyrrv. ritstjon, að hann netoi
axveoiö ao geta hetmumu boxa-
saín sitt. Si. miðvtkudag aínenti
svo Haudor gjöf sina og haíói
stjorn heimnisins boö inni iyrir
trettamenn af þvi túeíni, og syndi
peim satmö. Heíur þvt verið
smekktega komiö íyrir í einnt
stoíu heimiiisins ásamt með öor-
um boitum, sem pví haía venð
geínar af ymsum útgefendum. —
liegnt bóxasaininu er svo lestrar
stoia íyrrr gesti hetmilsins.
Safn Handors er um 1500 bindi
bóka, tímarita og biaða og er þar
margt merkra og veromætra
bóka. Mæti þar tii nefna Isiend-
ingasögurnar allar, Þjóðsögur
Jons Arnasonar, Þjóðsögur Oiafs
Davíðssonar, Flateyjarbók, rit-
söfn allmargra höfuna, Gests
Pálssonar, Jónasar Haligrímsson-
ar, Guðmundar Guðmundssonar,
Guðmundar Hagalín, Kristínar
Sigfúsdóttur, Ljóömæli Hannesar
Hafstein o. m. fi. Þá eru þar rit-
söfn Strindbergs, Bjömsons og
nokkuð annrra góðra erlendra
bóka.
Þá er nokkuð af blöðum og
tímaritum, sem sjaldgæf eru orð-
in, svo sem Nýjar Kvöldvökur
fram á þennan dag og blöð þau,
Verkamaðurinn og Alþýðumað-
urinn, sem Halldór ritstýrði um
fjölda ára. Er Verkamaðurinn þar
„komplett“ til 1930 og er eitt af
2^-3 eintökum, sem til eru á
landinu öllu, og því stórveiðmætt
orðið.
Eiríkur Sigurðsson, yfirkenn-
ari, þakkaði Halldóri í ræðu, fyrir
hina rausarlegu gjöf og allt það
mikla starf, sem hann hefði lagt
af mörkum fyrir Góðtemplara-
regluna um tugi ára, en Halldór
þakkaði þann sóma, sem gjöf
sinni hefði verið sýnd með að-
búnaði öllum og lét í ljósi sann-
færingu um nytsemi þess upp-
eldisstarfs sem Æskulýðsheimilið
ynni og mundi vinna, ekki einasta
fyrir æskulýð Akureyrar heldur
og með áhrifum sínum á æsku-
lýðsstarfsemi í okkar landsfjórð-
ungi.
Eins og að líkum lætur eru aft—
urhaldsblöðin æf yfir því góða
samstarfi, sem tekizt hefur kring-
um hátíðisdag verkalýðsins. Sjá
þau nú hilla undir þá tíma að
dagar hlutdeildar íhaldsaflanna í
alþýðusamtökunum verði senn
taldir Afstaða yfirgnæfandi
meirihluta verkalýðsins í Al-
þýðuflokknum til áframhaldandi
samstarfs við fhaldið innan verka
lýðshreyfingarinnar, er þegar
mörkuð: Áhrif íhaldsins verða að
þurrkast út, tekið verði upp sam-
starf við sósíalista og aðra sam-
einingarmenn innan verkalýðs-
hreyfingarinnar. Slíkt samstarf er
þegar orðin staðreynd í mörgum
verkalýðsfélögum og það var
gleðileg staðreynd 1. maí um land
allt. Verði trúlega haldið áfram á
sömu braut, er sameining alþýð-
unnar í einum sterkum verka-
lýðsflokki ekkert fjarlægt tak-
mark. Samstarf innan vprkalýðs-
hreyfingarinnar er óhjákvæmi-
lega fyrsti áfanginn.
-* * HÚSMÆÐRASKÓLAFÉLAG
AKURERAR heldur aðalfund
í kvöld (föstudagnn 7. maí) kl.
8.30 í Húsmæðraskólanum. —
Venjuleg aðalfundarstörf. —
Kaffidrykkja eftir fund.
Föstudaginn 30. apríl sl. hélt
Kantötukór Akureyrar hljóm-
leika í Nýja-Bíó undir stjóm
Björgvins Guðmundssonar tón-
skálds. Kantötukórinn er nú inn-
an skamms búinn að starfa hér í
bænum í 22 ár og orðinn Akur-
eyringum kunnari en frá þurfi að
segja. Hann var stofnaður á sín-
um tima til þess fyrst og fremst
að flytja Alþingishátíðarkantötu
Björgvins Guðmundssonar, eins
og nafn hans bendir til, og raunar
verðist hlutverk hans hafa verið
það aðallega að flytja tónverk
föður síns og stjómanda, B. G.
Við því er ekkert nema gott að
segja, því að Björgvin er afkasta-
mikið tónskáld og margt gott ligg
ur eftir hann, og þess vegna
ástæðulaust fyrir hann að setja
ljós sitt undir mæliker. En í þetta
skipti skipuðu fleiri höfundar
sæti á söngskránni en áður, því
að söngstjórinn sjálfur átti aðeins
um helming þeirra verka, sem
flutt voru, og er það ekki illa þeg-
in tilbreyting á hljómleikum
Kantötukórs Akureyrar, án þess
að kastað sé rýrð á tónverk
Björgvins Guðmundssonar. Aðrir
höfundar á hljómleikaksránni
voru Jóhann Ó. Haraldsson.
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, F.
Möhring, H. Wetterling og A. E
Marschner. Kórinn hefur nú æft
af kappi undanfarna mánuði
enda bar konsertinn þess glöggt
vitni, því að sjaldan eða jafnvel
aldrei hefur kórinn verið betur
æfður en nú. Einsöngvarar með
kórnum voru Helga Sigvalda-
Reykjavík—Akureyri hafa flutn-
ingar aukizt stórlega frá ári til
árs, og má fullyrða að flutningar
stóraukast enn á þessari leið, eink
um eftir að nýi flugvöllurinn hjá
Akureyri verður tekinn í notkun,
en það verður að því að tahð er í
fyrsta lagi næsta vetur, en með
nokun þessa nýja flugvallar stór-
batna öll afgreiðsluskilyrði til
þæginda fyrir farþega. í kjölfar
radiovitanna hefur siglt stóraukið
öryggi og flugdögunum hefur
líka fjölgað mikið af þeim ástæð-
um og fer sífjölgandi.“
„Og hvað er að frétta um flug-
ið á öðrum flugleiðum innan-
lands.“
„Við fjölgum flugferðunum
milli Reykjavíkur og Vestmanna-
eyja og verða farnar tvær ferðir
á dag alla virka daga vikunnar og
ein ferð á sunnudögum. Til
Sauðárkróks verða þrjár ferðir
vikulega og tvær til Siglufjarðar
og fjórum sinnum til Egilsstaða.
Þá má sérstaklega benda á það,
að tvisvar í viku verður flogið
milli Akureyrar og Egilsstaða og
Akureyrar og Kópaskers.
Til ísafjarðar verða flugferðir
alla virka daga og auk þess til 5
annarra staða á Vestfjörðum. Þá
er um ýmsar aðrar flugleiðir eða
flugferðir að ræða eins og sjá má
í hinni nýprentuðu sumarflug-
áætlun okkar.
dóttir og Hallfríður Árnadóttir,
en undirleik annaðist Árni Ingi-
mundarson.
Þetta var í alla staði vel heppn-
aður konsert, enda viðtökurnar
eftir því. Varð kórinn að endur-
taka sum lögin, og söngstjóranum
bárust blóm. Konsertinn var vel
xóttur .Hafi stjómandi og kór
bökk.
Áheyrandi.
Guðrún 4. Símonar
söng í gærkvöldi í Nýja-Bíó á
vegum Tónlistarfélas Akureyrar.
Var þar húsfyllir og var söng
ungfrúarinnar tekið af ákafri
hrifninu. Umsögn um sönginn
birtist í næsta blaði.
1. MAINEFNDIN
heldur fund í Verkalýðshúsinu
í dag kl. 6. Gengið frá reikningum
yfir hátíðahöldin. — Stjórnin.
* HJÓNABAND: Ungfrú Jó-
hanna Birgitta Winther og Karl
Fridtjof Hovgaard skósmiður.
-KFIMMTUGUR varð sl. mið-
vikudag, 5. maí, Hjálmar Hall-
dórsson, sjómaður, Norðurgötu
12 hér í bænum.
En með því að fjölga flugferð-
um milli Reykjavíkur og annarra
fólksflestu héraða og bæja lands-
ins hefur Flugfélag íslands reynt
að verða við óskum manna um
betri samgöngur.“
„Já, þetta verður ekkert smá-
ræðis vafstur í ykkur, þið hljótið
að hafa heilan her manns í þjón-
ustu ykkar?“
„Já, það er orðinn allálitlegur
hópur. Félagið hefur nú afgreiðsl
ur og umboðsmenn á 25 stöðum
víðs vegar á landinu og í þjón-
ustu félagsins er nú alls um 150
manns, og eins og kunnugt er
hefur félagið afgi'eiðslu hér á
Akureyri í Kaupvangsstræti 4, og
er forstöðumaður hennar hr.
Kristinn Jónsson, fulltrúi."
„En flugið til útlanda í sum-
ar?“
„Um það er þetta aðallega að
segja: Flogið verður frá Reykja-
vík til Prestvick—London alla
mánudaga og heim alla þriðju-
daga. Frá Reykjavík—Osló—
Kaupmannahöfn alla laugardaga
og heim alla sunnudaga.
Frá Reykjavík til Kaupmanna-
hafnar samdægurs fram og til
baka alla miðvikudaga frá 15.
júní.“
Við þökkum svo Hilmari Sig-
urðssyni fyrir ýtarlegar upplýs-
:ngar um leið og við kveðjum
hann og óskum þess að gifta megi
'ylgja öllu flugi og öllu starfi
Flugfélags íslands.
- Stóraukið öryggi, fleiri flugferðir
(Framhald af 1. síðu).