Verkamaðurinn - 23.07.1954, Page 1
VERKHmflÐURintl
XXXVII. árg. Akureyri, föstudaginn 23. júlí 1954 23. tbl.
Flokkurinn
Flokksfélagar eru minntir á
að félagsgjöldin fyrir 3. ársf jórð
ung eru fallin í gjaíddaga og
eru allir beðnir að gera skil á
þeim næstu daga, annað hvort
til deildargjaldkera eða til
skrifstofu Sósíalistafélagsins.
Freklegt brot á hernáms
samningnum
Verður rafmagn leitt irá Laxárvirkjun
til Austurlands?
Verði horfið að því ráði, verður án tafar að
hefja nýja virkjun Laxár
Njósnadeild bandaríska her-
námsliðsins hefnir sín á pólitízk-
um andstæðingi með því að festa
upp af honum myndir og lýsingar
eins og tíðkast þegar lýst er eftir
morðingjum.
í síðustu viku gerðist sá fá-
heyrði atburður á Keflavíkur-
flugvelli að njósnadeild hersins
lét festa upp í íbúðarbröggum,
matskálum, skrifstofum og víðar
myndir og lýsingar af Guðgeiri
Magnússyni frá Raufarhöfn.
Undir myndimum er af aflokinni
nákvæmri lýsingu um aldur, hæð,
þyngd, háralit, augnalit og kyn,
birtar ásakanir um að hann sé
„útsendari Þjóðviljans áróðurs-
málgagns kommúnistans á ís-
landi."
Bræði njósnadeildarinnar gegn
Guðgeiri mun eiga rætur sínar í
því að hann ritaði nýlega 2 grein-
ar í Þjóðviljann, greinagóða lýs-
ingu á spillingartengslum ís-
lenzku leppanna og hemámsliðs-
ins og lífi og starfi á flugvellinum.
Slíkar aðfarir, sem gerðar hafa
verið að Guðgeiri muni algert
einsdæmi, nema um sé að ræða
morðingja eða stórhættulega
glæpamenn og þekkjast naumast
nema í Bandaríkjvmum og annars
staðar en þar sem morð og rán
eru daglegir viðburðir.
I hemámssamningnum var
því lofað að herinn hefði engin
afskipti af íslenzkum stjóm-
málum. Efndimar hafa nú
reynst þær að herinn og ísl.
njósnadindlar hans skipa ís-
lenzkum mönnum á bekk með
morðingjum fyrir þær sakir
einar að aðhyllast aðrar stjóm-
málaskoðanir, en hemámsliðið
hefir velþóknun á. Freklegri
Kvennanefndin komin
heim
Fimm af þeim átta konum, sem
að undanfömu hafa ferðast um
Sovétríkin í boði kvennasamtaka
þar, komu heim 18. þ. m., en
þrjár úr nefndinni hafa enn
nokkra viðdvöl á Norðurlöndum.
Konurnar dvöldu 3 vikur í
Sovétríkjunum og ferðuðust víða
um. Voru þær fyrst fjór daga í
Leningrad og síðan tvo daga í
Moskvu, en héldu svoo þaðan til
Georgíu, þar sem þær voru í þrjá
daga. Dvöldu þær síðan í þrjá
daga á hvíldarheimili námu-
verkamanna í Sochi, sem er bað-
staður við Svartahafið. Þaðan
héldu þær til Moskvu aftur og
voru sex daga um kyrrt þar.
Gekk öll ferðin mjög að óskum
og mættu þær hvarvetna atburða
gestrisni.
samningsbrot og svívirðing á
íslenzkum lögum og skoðana-
frelsi er vart hægt að hugsa
sér.
Þessar glæpsamlegu aðfarir
vöktu þegar í stað megnustu
gremju og fyrirlitningu íslend-
inga á Keflavíkurflugvelli og
öll þjóðin rnuri fordæma þær.
Lögreglustjórinn á Keflavíkur-
flugvelli hefir nú, eftir kröfu lög-
fræðings Guðgeirs Magnússonar
látið taka myndirnar niður, en
atvik þetta sýnir engu að síður
hvers virði hernámsliðinu og ís-
lenzkum njósnurum þess er skoð
anafrelsi og samningsefndir, og
við hverju má búast af þeirra
hendi, hvenær sem þeir telja sér
fært að níðast á hvorutveggja.
Aðfaranótt sl. laugardags varð
það sviplega slys á togaranum
Kaldbak að einn hásetanna,
Hallur Antonsson, Rauðamýri
14 hér í bæ, féll fyrir borð og
drukknaði.
Sjópróf, sem fram fóru á Pat-
reksfirði, er skipið kom þangað,
hafa ekki leitt í ljós, hvemig
þessi hörmulegi atburður hefur
orðið. Skipið var á leið á veiðar
Eftir átta ára styrjöld í Indó-
Kína ríkir nú aftur friður í þessu
náttúruauðuga landi. Voru samn-
ingar um vopnahlé undirritaðir í
Genf í fyrrinótt og fyrradag.
Að því er fregnir herma eru
meginatriði samninganna þessi:
Vopnahlé á að vera komið á
ekki síðar en 28. þ. m. á öllum
meginvígstöðvum í Indó-Kína.
Viet Nam, sem er stærsta og
fólksflesta ríki Indó-Kína, verður
skipt í tvennt, fyrst um sinn, ná-
lægt 17. þréiddarþaug norður-
breiddar. Fær Sjálfstæðishreyf-
ingin norðurhlutann með um 13
milljónum íbúa, en Frakkar og
leppstjórn þeirra suðurhlutann
með um 9 milljónum íbúum.
Hernaðaraðilar flytja heri sína
brott hver af annars yfirráða-
svæði. Frakkar hverfa á brott úr
borgunum Hanoi og Haiphong,
en Sjálfstæðisherinn af stórum
svæðum víðs vegar í suðurhluta
landsins.
Öll þrjú ríki Indó-Kína mega
Gula í saltfiski stafar
af kopar í saltinu
Geir Arnesen, verkfræðingur,
hefur undanfarið ár fengist við
rannsóknir á gulu í saltfiski, en
hún hefur á liðnum árum valdið
milljónatjóni. Rannsóknir hafa
nú borið þann árangur, að fulll-
sannað er að gulan stafar af kop-
ar, sem er í sumum tegundum af
salti. Auðvelt er að ganga úr
skugga um koparinnihald salt-
tegundanna og ætti því, í framtíð-
inni, að vera unnt að girða fyrir
frekara tjón af þessum sökum.
Talið er að guluskemmdimar
hafi á sl. 5 árum valdið 10—20
millj. kr. tjóni. Hefur Geir Ame-
sen því unnið hið nýtasta verk
með rannsóknum sínum.
eftir löndun í Reykjavík er þess
varð vart að Hallur var horfinn.
Hallur var aðeins 19 ára að
aidri, sonur hjónanna Margrétar
Vilmundardóttur og Antons Sig-
urjónssonar. Hinn mesti mynd-
ar- og efnispiltur.
Er hér um að ræða fyrsta dauða
slysið er orðið hefur á togara
héðan frá Akureyri.
ekki leyfa erlendum ríkjum her-
stöðvar í landi sínu né gerast að-
ilar að hernaðarbandalögum.
Eftirlitsnefnd, skipuð fulltrúum
frá Indlandi, Kanada og Póllandi,
eiga að sjá um að samningamir
séu haldnir í öllum ríkjum Indó-
Kína.
Plómutré ber ávöxt
hér í bænum
Ekki skal fullyrt um það, hvort
einsdæmi muni vera hérlendis að
plómutré beri ávöxt hérlendis en
fágætt mun það vera. Jóhann
Jónsson, skósmiður, Krabbastíg
2 hér í bænum, hefur nokkur
plómutré í garði sínum og gerði
hann glerskýli um eitt þeirra
fyrir fáum árum. Hefur þetta
borið þann árangur að tréð hef-
ur náð eðlilegum þroska og stóð
þakið blómum snemma sumars
og eru ávextir þess þegar á góðri
leið með að ná fullum þroska.
Á síðasta Alþingi voru sam-
þykkt lög um virkjun Lagarfoss
og mun hafa verið gert ráð fyrir
3000 k\v. stöð sem fyrsta áfangá.
Lög þessi voru staðfesting á
marg gefnum loforðum stjórnar-
flokkanna um virkjanir fyrir
Austurland og munu Austfirð-
ingar hafa litið svo á, að með
þeim væru byrjunarframkvæmd-
ir tryggðar.
Nú hefur komið í ljós, að ríkis-
stjórnin hefur í hyggju að fram-
kvæma ekki lögin um virkjun
Lagarfoss. Fyrra miðvikudag hélt
raforkumálaráðherra, Steingrím-
ur Steinþórssoon, fund með for-
ustumönnum Austfirðinga um
raforkumál. Var fundurinn hald-
inn að Egilsstöðum. Á fundinum
voru og mættir raforkumálastjóri
og forstöðumaður Rafveitna rík-
isins. Þar gerðu þeir fundur-
mönnum grein fyrir þeirri hug-
mynd að leiða rafmagn frá Lax-
árvirkjun til Austurlands, en
fresta virkj unarframk væmdum
þar.
Án samráðs við Laxárstjóm.
Fundarmenn munu hafa litið
Almennar þingkosningar eiga
að fara fram hið fyrsta í Laos og
Kambodía og eigi síðar en 20. júlí
1956 í Viet-Nam. Verður þá
mynduo .ein stjórn í Viet-Nam og
Frakkar hverfa jafnframt úr suð-
urhluta landsins.
Átta af níu aðalfulltrúum Gen-
far-ráðstefnunna rlýstu því yfir
að ríki þeirra myndu bera saman
ráð sín ef vopnahléð yrði rofið.
Níundi fulltrúinn, aðstoðarut-
anríkisréðherra Bandaríkjanna,
lýsti því yfir að stjórn hans gæti
ekki fallist á að gerast aðili að
þessari skuldbindingu. Flutti
hann jafnframt yfirlýsingu um að
Bandaríkin muni skoða það sem
alvarlega ógnvrn við frið og öryggi
ef vopnahléð yrði rofið.
í Frakklandi er almennur og
mikill fögnuður yfir því að samn-
ingar hafa tekist um vopnahlé í
Indó-Kína. Að vísu eru borgara-
blöðin mjög hnuggin en telja þó
að um annað hafi ekki verið að
ræða fyrir Frakka en að semja.
í Bandaríjunum er geysileg
gremja hjá auðmönnum og blöð-
um þeirra og stjórnmálapeðum.
(Framhald á 4. síðu).
þessar fyrirætlanir með tor-
tryggni og haldið fast við að stað-
ið yrði við gefin fyrirheit um
virkjun Lagarfoss. Lauk svo
fundinum að raforkumálaráð-
herra hét því að fullnaðarákvörð-
tm skyldi tekin um eða úr næstu
mánaðamótum.
Sterkar líkur eru fyrir því, að
mjög fast verði sótt, af hendi rík-
isstjórnarinnar að leiða raf-
magnið frá Laxá, enda þótt engar
viðræður hafi enn farið fram um
málið við stjórn Laxárvirkjunar-
innar, sem þó hlýtur að skoðast
sem ráðandi aðili um það, hvem-
ig raforkunni verði ráðstafað.
Ónóg orka.
Afgangsorka Laxárvirkjunar
mun nú vera um 7000 kw. þegar
allt er í lagi. Ef 3000—4000 kw. af
þeirri orku væru leidd til Aust-
urlands yrðu því ekki eftir nema
um 3000 kw. sem upp á yrði að
hlaupa með aukna raforkuþörf
Akureyrarbæjar og víðlendra
héréaða, sem byrjað er nú að
rafvæða. Sé því gert ráð fyrir
því að athafnalíf dafni hér um
slóðir með eðlilegum hætti verð-
ur augljóst að mjög skammt
verður þess að bíða að Laxár-
virkjunin verði ófullnægjandi.
Enn er þess að gæta að fram-
kvæmdir þær við Mývatn, sem
tryggja eiga snuðrulausan rekst-
ur Laxárvirkjunarinnar, hafa nú
(Framhald á 4. síðu).
ORÐSENDING
til kaupenda biaðsins
Nú þessa dagana er inn-
heimta áskriftargjaldanna að
hefjast, en gjalddagi þeirra var
1. júní. Væntir blaðið þess að
kaupendur bregðist vel við og
greiði áskriftimar, allir sem
einn, og helzt við fyrstu heim-
sókn innheimtumanns.
Fjárhagur blaðsins er þröng-
ur eins og oft áður, og er því
hin mesta nauðsyn á skilvísri
greiðslu.
Askriftargjaldið er hið sama
og áður, kr. 30,00, en hærri
greiðsla er að sjálfsögðu þakk-
samlega þegin og hafa all-
margir þegar sýnt þ árausn að
greiða mun hærri upphæðir.
Með næsta blaði verða póst-
kröfur sendar til kaupenda úti
á landi og eru kaupendur þar
vinsamlega beðnir að gleyma
ekki að innleysa þær.
Ungur sjómaður hverfur í hafi
Friðaröflin vinna stórsigur
Bandaríkjunum mistókst að koma í veg fyrir
að friður kæmist á í Indo-Kína