Verkamaðurinn - 13.08.1954, Blaðsíða 3
Föstudaginn 13. ágúst 1954
VERKAMAÐURINN
S
Utanríkisverzlunin varð meirl
1953 en nokkru sinni áður
Samningurinn við Sovétríkin var mikilvægasti
viðskiptasamningurinn
í nýútkominni ársskýrslu
Landsbanka íslands eru helztu
þættir hagþróunar ársins 1953
raktir.
Um utanríkisviðskiptin segir í
skýrslunni:
Utanríkisviðskipti urðu meiri
á árinu 1953 en nokkru sinni fyrr.
Útflutningur nam 706 millj. kr.,
en innflutningur 1.111 millj. kr.,
og var hinn mikli verzlunarhalli
jafnaður með duldum gjaldeyris-
tekjum, þ. e. tekjur vegna her-
liðsins, óafturkræf framlög vegna
efnahagsaðstoðar og lán erlendis.
Sala íslenzkra afurða erlendis
tókst að öllu samanlögðu vel, en
markaðsaðstæður kröfðust all-
mikilla breytinga bæði á verkun
sjávaraflans og skiptingu við-
skipta íslendinga á lönd. Vegna
löndunarbannsins í Bretlandi var
ísfiskksmarkaðurinn lokaður
mestan hluta ársins. Einnig varð
nokkur samdráttur á útflutningi
saltfisks vegna sölutregðu, eink-
um fyrri hluta árs. Góðir mark-
aðir unnust fyrir skreið, og var
verð á henni mjög hagstætt fram
á mitt ár, en eftir það gætti
nokkurra söluerfiðleika. Skreið-
arútflutningurinn var að mestu
greiddur í frjálsum gjaldeyri.
Sala flestrar annarrar framleiðslu
gekk vel og var verðlag hagstætt.
Lítið af landbúnaðarafurðumkom
til útflutnings á árinu.
Freðfiskinn, sem nú er orðinn
langmestur að verðmæti allra
útflutningsafurða, gekk mjög
misjafnlega að selja. Bandaríkin
voru enn höfuðmarkaðurinn, en
útflutningur þangað varð all
miklu minni en árið áður, og
einnig minnkaði mjög sala til
Bretlands. Af þessum sökum
hlóðust upp miklar birgðir af
freðfiski fyrra helming ársins og
leit mjög illa út um sölu á þeim,
þar til gerður var viðskiptasamn-
ingur við Rússa í ágúst, en þeir
tóku nær þriðjung freðfisksfram
leiðslu ársins á sæmilegu verði.
Mikilvægasti viðskiptasamning-
urinn.
Viðskiptasamningurinn við
Rússa var langmikilvægastur
Þrisvar sinnum meiri
veiði með nylon- eða
perlonnefjum
Norska fiskimálastjórnamefnd-
in hefur látið fara fram tilrauna'
veiðar til að rannsaka, hvort net
úr nylon- eða perlongami er
betra en venjulegt netjagam. Má
telja að niðurstöðurnar af þess-
um rannsóknum séu harla at-
hyglisverðar, þar eð meðalveiðin
með nylon- eða perlongami var
8,4 kg. af fiski á dag. Með netjum
úr venjulegu garni var meðal-
veiðin aðeins 2,8 kg.
irra samninga um viðskipti,
sem gerðir voru 1953. Samkvæmt
honum skyldu Rússar kaupa á
næstu 2 árum mikið magn af
freðfiski, saltsíld og freðsíld, en
íslendingar fá í staðinn olíur, se-
ment, kornvörur og fleira, en
flestar þessar vörur höfðu áður
verið keyptar fyrir frjáisan gjald-
eyri. Vöruskiptasamningar voru
einnig í gildi við Finnland, ísrael,
Pólland, Tékkóslóvakíu, Ung-
verjaland Austur-Þýzkaland,
Austurríki, Spán og Brazilíu.
Vöruskipti aukast.
Á síðustu árum hafa viðskipti
íslendinga við vöruskiptalöndin
farið jafnt og þétt vaxandi, en
viðskiptin við lönd á EPU og
sterlingssvæðinu minnkað að
sama skapi, einkum vegna minni
útflutnings til Bretlands. Nú er
svo komið að meira en þriðjung-
ur alls útflutnings fer til vöru-
skiptalandanna. Á sl. ári minnk-
aði útflutningur til Bandaríkj-
anna allmikið, en. vegna duldra
dollaratekna, lána og framlaga
hélt innflutningur þaðan áfram
að aukast hröðum skrefum.
85 hallir
afhentar aftur austurrískum fasistaforingja
Snemma í þessum mánuði ógilti
stjórnarskrárdómstóllinn í Aust-
urríki 2 lög frá því í marz 1952
um að stórjarðir og hallir Riidi-
gar van Starhemberg fursta
skyldu gerðar upptækar.
Starhemberg fursti, sem nú
dvelur í Suður-Ameríku, hefur
með þessum dómsúrskurði fengið
þannig aftur 85 hallir og stór-
jarðir. Hann var á sínum tíma
leiðtogi hinna vopnuðu faSista-
sveita „Heimwehr“.
Nazisma Starhembergs fursta
má rekja allt til þess tíma, þegar
hann stóð við hlið Hitlers í hinni
misheppnuðu valdaránstilraun í
Munchen. Hann hvarf aftur heim
til Austurríkis og lýsti yfir,
„Við eigum margt sameiginlegt
með hinum þýzku nazistum..
Austurríki mun fyrr eða síðar
verða fasistískt. Því fyrr, því
betra. Asíxunannahöfuð (Gyðing'
ar)! munu bráðum velta í sand'
• „ <<
ínn.
1934 stofnaði hann heimavarn-
arlið sitt, sem hófst handa með
fjöldaaftökum og morðum
verkalýðssinnum, kommúnistum
og sósíaldemokrötum og ruddi
þannig bi*autina fyrir Hitlers
Anschluss.
Starhemberg varð hins vegar á
að veðja á skakkan hest og studdi
sig við Mussolini í staðinn fyrir
Hitler og lagðist gegn Anschluss.
Þegar Hitler hertók Austurríki
tók hann þess vegna eignarnámi
hallir hins gamla vinar síns. í
árslok 1951 kváðu dómstólarnir
upp þann úrskurð að Starhem-
berg hefði verið fórnarlamb fas-
ismans“ og þess vegna bæri að
afhenda honum aftur auðæfi hans
sem áætluð voru að minnsta
kosti 350 milljón kr. virði. Verka-
lýðsfélögin, sósíaldemokratar og
kommúnistar framkvæmdu hins
vegar skyndiverkföll um allt
landið og þingið neyddist til að
samþykkja sérstök lög, um að
eignir hans skyldu gerðar upp-
tækar.
Nú hefur þessi fyrrverandi vin-
ur, fóstbróðir og sálufélagi Hitl-
ers og Mussolini og núverandi
vinur og kjö.lturakki Mc Carthy-
istanna í Bandarikjunum, fengið
aftur stóreignir sínar alveg eins
og fyrrverandi samstarfsmenn
vinir og sálufélagar Hitlers
Vestur-Þýzkalandi hafa fengið
aftur sínar stóreignir og völd
fyrir atbeina bandarískra auð-
manna og Mc Carthyista.
1 SAMBANDI við gröft í Indó-
Kína hefur fundizt hljóðfæri, sem
er talið það elzta sem þekkist í
heiminum. Það minnir á zylofon
Þegar búið var að taka það sund-
ur og hreinsa það og setja það
saman aftur, var reynt að spila á
það bæði klassíska músik og jazz
— með prýðilegum árangri.
$ f
Hjartans þakkir til þeirra, sem minntust mín á átt- £
ræðisafmæli mínu með skeytum, blómum, gjöfum og
hlýjum handtökum.
Guð blessi ykkur öll.
PÁLL MARKÚSSON.
* SJOTUGSAFMÆLI átti 9.
m. Ingibjörg Kristjánsdóttir
Eldjárn, Þingvallastræti 8.
IBUÐ
Mig vantar 2—3 herbergja
íbúð strax eða 1. sept.
Ingólfur Árnason,
Gránuf élagsgötu 11.
Sími 1227 eftir kl. 19.
Sendum heim. Sendum heim.
Húsmæður,
þér þurfið aðeins að hringja
í síma 1081 og þér fáið það,
sem yður vantar sent heim að
eldhúsdyrum.
BÍLLINN fer héðan tvisvar á
dag kl. 10,30 f. h. og 3,30 e. h.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
NÝJA-Bfó
sýnir með Panorama-breiðtjaldi:
Sýnir um helgina og næstu kvöld:
SÉRA CAMILLO OC KOMMÚNISTINN
(Le Petit mondi de Don Camillo)
Frönsk kvikmynd byggð á hinni heimsfrægu sögu eftir
CIOVANNI GUARESCHI
er komið hefur ut í íslenzkri þýðingu undir nafninu
HEIMUR í HNOTSKURN.
Aðalhlutverkin leika hinir frægu leikarar:
Fernandel, og Gino Cervi.
AUGLÝSING
UM LÖGTÖK
Samkvæmt kröfu bæjarritarans á Akureyri og að
undangengnum úrskurði verða eftirtalin ólokin gjald-
fallin gjöld arsins 1954 til bæjarsjóðs Akureyrar og
Akureyrarhafnar ,tekin lögtaki á kostnað gjaldenda en
abyrgð bæjarsjoðs að liðnum 8 dögum frá birtingu
þessarar auglýsingar:
1. Útsvör gjaldfallin 1. júlí s. 1.
2. Fasteignagjöld.
3. Gjöld til Akureyrarhafnar.
Bæjarfógetinn á Akureyri, 6. ágúst 1954.
TILKYNNING
frá verðgæzlustjóra
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið eftirfarandi
hámarksverð á brauðum:
Franskbrauð, 500 gr
Heilhveitibrauð, 500 gr. .. ... . - 2.60
Vínarbrauð, pr. stk. . ... - 0.70
Kringlur, pr. kg . .. . - 7.60
Tvíbökur, pr. kg ./.. - 11.55
Rúgbrauð, óseydd, 1500 gr. .... - 4.00
Normalbrauð, 1250 gr .... - 4.00
Séu nefnd brauð bökuð með annarri þyngd en að ofan
greinir, skulu þau verðlögð í hlutfalli við ofangreint
verð.
Á þeim stöðum, sem brauðgerðir eru ekki starfandi, má
bæta sannanlegum flutningskostnaði við hámarksverðið.
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið á rúg-
brailðum og normalbrauðum vera kr. 0.20 hærra en að
framan greinir.
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 30. júní 1954.
Verðlagsstjóri.
XX X
NflNKIN
IR-fl
'k.'k'k
KHflKI