Verkamaðurinn - 03.09.1954, Side 2
2
VERKAMAÐURINN
Föstudagínn 3. sept. 1954
VERKRfflJMRinn
— VIKUBLAD —
Útgefandi:
Sósíalistafélag Akureyrar
Ritnefnd:
Björn Jónsson, ábyrgðar-
maðwr, Jakob Arnason,
Þórir Daníelsson.
Afgreiðsla: Hafnarstrseti 88. —
Sími 1516. — Pósthólf 21.
Áskriftarverð 30 kr. árg.
Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentv. Odds Bjömssonar h/f
Verður togaraflotinn
stöðvaður að nýju?
Það mun næsta fágætt, ef ekki
einsdæmi, að atvinnurekendur
víðurkenni opinskátt í vinnudeil-
um, að kröfur launþega eigi full-
an rétt á sér og að brýna nauðsyn
beri til að bæta kjör þeirra. Þetta
hefur þó átt sér stað í sambandi
við kröfur sjómannasamtakanna
um bætt kjör togarasjómanna.
Jafnvel þeir útgerðarmenn, sem
fastast hafa barizt gegn öllum
réttarbótum til handa sjómanna-
stéttinni, hafa nú neyðst til að
opna augun og viðurkenna, að
stórhækkuð laun væru eina leið-
in til þess að fá nægan mannafla
hæfra manna á togarana og
tryggja þannig fullan rekstur
þeirra.
Það mætti því ætla að greiðlega
gengi um lausn á kjaradeilu tog-
arasjómanna, er svo óvenjulegur
skilningur er fyrir hendi, af hálfu
viðsemjanda, en sú er þó ekki
reyndin. Viðræðufundir hafa
hingað til reynzt árangurslausir
og sjómannafélögunum hefur
verið sá kostur nauðugur að und-
irbúa verkfall. Hafa flest félag-
anna nú þegar samþykkt heimild
til handa sameiginlegri samn-
inganefnd sinni um vinnustöðvun
og hafa þær samþykktir verið
nær algerlega einróma. Má því
búast við að innan skamms liggi
allur togaraflotinn bundinn í
höfn að nýju, ef ekki verður að
gert.
Hvemig má slíkt verða? Ástæð-
an er sú, að einn aðili málsins
hefur enn ekki viðrukennt,
hvorki rétt togarasjómannanna til
bættra kjara né heldur nauðsyn
þeirra. Og sá aðili er einmitt sá,
sem hefur í höndum úrslitavald
— sjálf ríkisstjórnin.
í „lausn“ sinni á vandamálum
togaraútgerðarinnar hunzaði rík-
isstjómin með öllu hina óhjá-
kvæmilegu hækkun á kaupi sjó-
mannanna, enda þótt henni hljóti
að hafa verið ljósar afleiðingar
þess. Samkvæmt áliti togara-
nefndarinnar var gert ráð fyrir að
launahækkim sjómannanna á
hverju skipi næmi 300 þús. kr. á
ári, en öll „bjargráð" ríkisstjóm-
arinnar, sem enn hafa verið
ákveðin hrökkva ekki til eins árs
útgjalda í samræmi við þetta.
Hins vegar hafði ríkisstjómin
fulla sinnu á því að hrifsa í ríkis-
sjóð um 20 milljónir í formi dýr-
tíðarsjóðsgjalds og tolla af bíla-
innflutningnum um leið og hún
rétti útgerðinni 10 milljónir. Ef
þær 20 milljónir, sem „bjargráð-
in“ færa ríkisstjórninni í kassann,
hefðu verið látnar renna til út-
gerðarinnar eins og togaranefnd-
in hafði lagt til, mundu horfumar
aðrar um rekstur togaranna á
næstu tímiun, jafnvel þótt aðrar
ráðstafanir, sem nefndin lagði til
að gerðar yrðu, svo sem að lækka
vátryggingargjöld, olíu, farmgjöld
og hækka fiskverðið, væru að
sjálfsögðu ekki lítilvægari.
Ollum landsmönnum má því
vera ljóst, hver ábyrgðina ber, ef
svo kynni að fara, að togaraflot-
inn yrði enn stöðvaður að nokkr-
um dögum eða vikum liðnum,
þrátt fyrir stórfelldustu markaði,
sem nokkru sinni hafa verið opn-
ir fyrir framleiðsla þeirra: Það
er ríkisstjómin og flokkar henn-
ar, sem verða að standa þar fyrir
allri ábyrgð.
Orðið er laust
Tvö dósalok og „túkall“.
„Víðförull“ skrifar blaðinu:
„Túkallinn er ekki orðinn stór
peningur nú ó þessum síðustu og
verstu tímum, jafnvel í höndum
lítils snáða eða tátu, sem er á leið
á hlutaveltu. Og þó skín eftir-
vænting eftir miklu happi úr
augum hnokkans, sem þrýstir
peningnum í lófann og ýtir sér af
miklum dugnaði milli fullorðinna
karla og kvenna, sem líka eiga
eftir það mikið af barnslegri ein-
feldni, að þau hafa gaman af að
freista hamingjunnar á „tom-
bólu“.
Eg stóð utan við Alþýðuhúsið
sl. sunnudag og virti fyrir mér
um stund hópinn, sem þangað
streymdi á „fyrstu og beztu“
hlutaveltu ársins. Mörg börnin
koma út ánægð á svip. Eitt er
með piparbréf í hendinni, það er
þó alltaf hægt að gefa mömmu,
annað með litla skrifblokk — hún
kemur sér vel þegar skólinn
byrjar — en hvað er nú að — lítil
telpa kemur út snöktandi, eftir-
væntingarsvipurinn frá því fyrir
nokkrum mínútum hefur breytzt
í sárustu sorg. Eg fer og aðgæti
um
Sigfús Sigurhjartarson
Minningarspjöldin eru til
sölu í skrifstofu Sósíalistafé-
lags Akureyrar, Hafnarstr. 88.
hvað valdi. Litla stúlkan hafði
hreppt tvö dósalok fyrir túkall-
inn sinn. Tvö dósalok eru einkis
virði, þau er ekki hægt að gefa
mömmu eða pabba, þau eru ekki
nothæf í „búið“ — jafnvel ekki í
bú 8 ára telpu, en samt fleygir
hún þeim ekki. Það er eins og
hún trúi því ekki að nokkur geti
verið svo harður í viðskiptum, að
hann láti tvö dósalok í skiptum
fyrir gljáandi, stóran tveggja
krónu pening — kannske þann
eina, sem hún hefur handa á
milli fyrst um sinn... . “
Nú geta menn fengið kossa með
bragði sem segir sex. Varalita-
verksmiðja í Bruxells er farin að
framleiða varaliti með kampa-
víns-, bardó- eða kokteilbragði.
FjÁREIGENDUR
á Akureyri, sem vilja leggja
fé inn til slátrunar hjá
K.E.A. í haust eru áminntir
um að tilkynna undirrituð-
um það, fyrir 6. sept. n. k.
Ármann Dalmannsson.
Vil kaupa
gamalt skrifborð, helzt úr
eik.
Afgr. vísar á.
I Ritsafn Jóns Trausta 1-81
Með afborgumtm.
i Bókaverzl. Edda h.f. |
Akureyri.
*
.........................i
Ný blaða- og sælgætissala
Opnum í dag föstud. 3. sept. nýtízku blaða- og sælgætis-
sölu, í sambandi við bókabúð okkar.
Verða þar á boðstólum öll innlend blöð og tímarit,
ennfremur mikið af erlendum tímaritum. Þá verður og
lögð áherzla á mikið úrval af tóbaksvörum og sælgæti.
Kaupið dagblöðin í Blaðasölu Axels.
Opið frá kl. 9 á morgnana til kl. 11.30 á kvöldin.
AXEL KRISTJÁNSSON
ÖUum þeim mörgu er auðsýndu okkur samúð og hluttekn-
ingu við fráfall og minningarathöfn sonar okkar og bróður
HALLS ANTONSSONAR
vottum við okkar innilegustu þakkir.
Sérstaklega þökkum við Útgerðarféélagi Akureyringa h.f„
framkvæmdastjóra þess og skrifstofustjóra alla þeirra miklu
vinsemd í okkar garð. — Guð blessi ykkur öll.
Foreldrar og systkini.
Niðursuðuglös
1 1. á kr. 4.60, Va 1. á kr. 4.25 og
Vi 1. á kr. 3.85.
HAFNARBÚÐIN h.f. og útibú
Strásykur kr. 2,65 kg.
Hveiti kr. 2,60 kg.
HAFNARRÚÐIN h.f. og útibú
Bifreiðaeigendur athugið
5 w.
SEM KEMUR
í STAÐ
SAE 10W, 20W og 20
er vetrar- og sumarolía, sem hæfir sérstaklega háþrýst-
um bílhreyflum.
BP
olíuverzlunI ’ÍSLANDS 5
Vélstjóranámskeið
Að tilhlutun Fiskifélags íslands verður hið minna vél-
stjóranámskeið haldið á Akureyri á komandi hausti ef
nægileg þátttaka fæst.
Námskeiðið' hefst 1. okt. n. k. Umsóknir sendist Fiski-
félagi íslands, eða Helga Pálssyni erindreka á Akureyri.
FRÁ VATNSVEITUNNI
Aðfaranótt 19. þ. m. var tekinn verkfærakassi með trésmíða-
verkfæmm í, við ræsi, sem er í smíðum uppi við vatnsgeyma. Þar
sem sást til mannaferða á umræddum stað og tíma, er þeim bezt,
sem þetta framdi, að skila verkfærunum á sama stað, svo að ekki
þurfi að senda lögregluna eftir þeim.
Sigurður Svanbcrgsson.
XX X
NflNKIN
[R-^
A it it
KHAKI