Verkamaðurinn - 24.09.1954, Síða 1
GERIST ÁSKRIFENDUR
að VERKAMANNINUM. —
Nýjir kaupendur fá blaðið
ókeypis til næstu áramóta. —
XXXVII. árg.
Akureyri, föstudaginn 24. septeraber 1954
Síminn er 1516.
31. tbl.
Hægri klíkan hrósaði stundarsigri
í Alþýðuflokknum
Hannibal féll úr formannssæti fyrir Haraldi
Guðmundssyni. Verður sviptur ritstjórn Alþýðu-
blaðsins næstu daga
Samningar
Togarahásetar fá 30% kauphækkun miðað við
meðalafla á s.l. ári
Samningar tókust sl. mánudagskvöld í kjaradeilu togarasjó-
manna og útgerðarmanna. Voru samnixigar undirritaðir um
kl. 8, en þá hofðu samningaumleitanir staðið yfir daglega í
heila viku, fynr milligöngu sáttasemjara. Samkomulagið er
undirritað með þeim fyrirvara að sjómannafélögin og samtök
útgerðarmanna samþykki það og hefur verkfallsaðgerðum af
hálfu sjómanna verið frestað fram til laugardags, en verkfall
átti að hefjast á miðnætti 21. þ. m. hefðu samningar ekki tek-
izt. Hefur atkvæðagreiðsla að undanfömu staðið yfir í sjó-
mannafélogunum svo og í Félagi íslenzkra botnvörpuskipa-
eigenda og mun talið líklegt að samningamir verði staðfestir.
Samkvæmt samkomulaginu hækkar fastakaup sjómanna á
togurunum, aflahlutur, aflaverðlaun o. fl. sem snertir kjör
þeirra, þannig, að kjarabætumar nema um 30 prósent kaup-
hækkun og er þá miðað við kaup háseta á meðalskipi á sl. ári.
hðia tekizt milli togarasjó-
manna og útgerðarmanna
Þingi Alþýðuflokksins lauk sl.
þriðjudagsnótt eftir mjög harð-
vítugar deilur milli vinstri arms
flokksins, undir forustu Hanni-
bals Valdimarssonar, og hægri
klíkunnar, sem einskis hafði látið
ófreistað til þess að ná yfirtökum
á þinginu, enda þótt vitað sé að
hún er í miklum minnihluta
meðal almennra fylgjenda flokks-
ins.
í þingsetningarræðu sinni setti
Hannibal fram sína pólitísku yf-
irlýsingu og kvað aðeins um tvær
leiðir að velja, að viðhalda sundr-
ung verkalýðshreyfingarinnar og
verkalýðsflokkanna og þola það
að íhaldið hrifsaði til sín meiri-
hlutavald á Alþingi eða að vinna
að sameiningu vinstri aflanna og
skapa þannig sterka andstöðu
gegn afturhaldinu og sóknarað-
stöðu fyrir verkalýðshreyfing-
una.
Meirihluti þingsins hafnaði með
öllu þessari stefnu og fóru leikar
svo, að nálega engir vinstri menn
hlutu kosningu í stjóm eða aðrar
trúnaðarstöður flokksins. Var
Hannibal borinn ofurliði bæði við
formannskjör, en Haraldur Guð-
mundsson varð þar hlutskarpari
og hlaut 62 atkv. en Hannibal 36,
og við kjör varaformanns, en þar
sigraði Guðmundur í. Guð-
mundsson með 9 atkv. fram yfir
Hannibal (53 atkv. gegn 44).
1 upphafi hins 9. þings S. Þ., er
hófst í New York sl. þriðjudag,
lagði aðalfulltrúi Sovétríkjanna,
Vishinski, fram tillögu um að
kínverska alþýðustjómin tæki
við umboði Kína hjá S. Þ.
Lodge, fulltrúi Bandaríkjanna
bar fram frávísunartillögu og var
hún samþykkt með 43 gegn 11
atkv., en fulltrúar 6 ríkja sátu
hjá.
Atkvæðagreiðslan er hin at-
hyglisverðasta fyrir íslendinga,
vegna þess að fulltrúar fslands
reyndust ekki'meðal þeirra þjóða,
sem fylgjandi voru tillögu Vis-
hinskis, þótt fulltrúar Danmerk-
ur, Svíþj. og Noregs stæðu við þá
samþykkt, sem um þetta var gerð
á utanríkisráðherrafundi Norð-
urlanda, þ. á. m. utanríkisráð-
Er almennt búizt við því að
Stefáns Jóhanns-klíkan láti nú
næstu daga kné fylgja kviði og
svifti Hannibal ritstjórn við Al-
þýðublaðið.
Þrátt fyrir þessi úrslit á þingi
Alþýðuflokksins dylst nú eng-
um lengur, að það er ekki á
valdi hægri klíku Alþýðu-
flokksins að stöðva þá þróun,
sem nú er hafin í þá átt að sam-
eina verkalýðshreyfinguna. —
Þótt málgögn afturhaldsins
hælist nú um yfir sigri sínum í
Alþýðuflokknum, mun þess
skammt að bíða að hinir
óbreyttu liðsmenn taki til sinna
ráða og skilji hægri klíkuna
eftir einangraðri og fylgislaus-
ari en nokkru sinni áður.
f samræmi við það samkomu-
lag, sem orðið hefur meðal vinstri
manna innan verkalýðsfélaganna
hér í bænum, um kosningar til
Alþýðusambansþings, hafa vinstri
menn í Verkamannafélagi Akur-
eyrarkaupstaðar borið fram sam-
eiginlegan lista. Skipa hann eftir-
taldir:
hei-ra íslands, er þá lýsti sig
fylgjandi aðild kínversku alþýðu-
stjómarinnar. En kjarkurinn til
þess að halda fram réttu máli
gegn vilja Bandaríkjanna hefur
ekki enzt alla leiðina frá Rvík til
New York.
Það er einnig athyglisvert að
í þessari atkvæðagreiðslu
studdu Bretar, þrátt fyrir allar
yfirlýsingar um hið gagnstæða,
frávísunartillögu Bandaríkj-
anna og lögðu þeim þar með
lið sitt til þess að níðast á rétti
fjölmennustu þjóðar veraldar.
Á sama tíma veita svo Banda-
ríkin Bretum lið í landhelgis-
deilunni við íslendinga og
hjálpa þeim þaimig til að níðast
á óumdeilanlegum rétti hinnar
minnstu meðal þjóðanna.
Kommúnistar stórauka
fylgi sitt í Ítalíu
Fullnaðartölur frá bæja- og
sveitastjómarkosningum, sem
fóru fram í Suður- og Mið-ítalíu
í vor og sumar, eru nú kunnar og
leiða í ljós að Kommúnistaflokk-
urinn hefm- aukið fylgi sitt um
36,6 til 41,1 prósent. Allir borg-
araflokkarnir töpuðu fylgi, eink-
um hægri flokkurinn.
í lok júní í sumar voru 2.130.095
flokksbundnir kommúnistar á
ítalíu og 423.522 æskumenn í
sambandi ungra kommúnista. —
Á fyrra misseri þessa árs fjölgaði
flokksmönnum um 160,685.
Á næsta ári fara fram bæjaL og
sveitastjórnarkosningar í allri
ítalíu.
-K KIRKJAN. Messað í Akureyr-
arkirkju næstk. sunnudag kl. 5,
í Lögmannshlíðarkirkju kl. 2
og í Glerárþorpi kl. 8.30. Prest-
ur sr. Birgir Snæbjörnsson.
Björn Jónsson,
Gestur Jóhannesson,
Jóhannes Jósepsson,
Stefán Ámason og
Torfi Vilhjálmsson.
Varamenn eru:
Steingrímur Eggertsson,
Rósberg Snædal,
Ólafur Aðalsteinsson,
Gunnar Aðalsteinsson,
Árni Þorgrímsson.
Framboðsfrestur til fulltrúa-
kjörsins var útrunninn kl. 12 á
hádegi í dag og hafi enginn ann-
ar listi komið fram innan þess
tíma verður hinn sameiginlegi
listi vinstri manna sjálfkjörinn.
2 stúlkur frá Akureyri
matsveinar á togara
Þegar togarinn Jón Baldvins-
son lagði upp í veiðiför sína á
Grænlandsmið 11. þ. m. voru
tvær konur meðal áhafnarinnar
og voru ráðnar sem matsveinar.
Þess er aðeins eitt dæmi áður, að
konur ráði sig til starfa á íslenzk-
um togara. Stúlkumar eru tvær
systui- frá Akureyri, Dísa og Jó-
hanna Pétursdætur.
Stúlkunum líkaði starfinn vel
og sjómennirnir voru einnig
hæstánægðir með matinn og alla
frammistöðu þeirra. Eru þær
systur nú famar í aðra veiðiför
með togaranum.
Helztu breytingamar frá fyrri
samningum eru eftirfarandi:
Fastakaup háseta hækkar úr
kr. 1018 í kr. 1300 á mánuði,
netjamanna úr 1230 kr. í 1480
kr. og bátsmanna og 1. matsveins
ur 1500 kr. í 1805 kr. — Á kaupið
kemur svo verðlagsuppbót skv.
gildandi reglum.
Þegar ísfiski er landað erlendis
Iækkar frádráttur vegna kostnað-
ar úr 20% í 18%.
Verð á þorski, löngu og karfa
til sjómanna, þegar ísfiski er
landað innanlands, hækkar úr kr.
0.85 í kr. 1.00 pr. kg.
Aflaverðlaun á saltfiskveiðum
hækka úr kr. 6.00 í kr. 10.00 pr.
smálest og auk þess fá sjómenn
gæðaverðlaun, ef fiskur reynist
góður (70% í 1. fl. miðað við að-
gerðarskemmdir) upp úr skipi,
kr. 1.50 pr. smálest hver maður.
Aflaverðlaun á karfaveiðum til
vinnslu í verksmiðjum hækka úr
Allir þeir bátar af Norðurlandi,
sem stundað hafa reknetaveiðar
og saltað um borð, eru nú farnir
fyrir rúmri viku tO veiða í Faxa-
flóa og hafa aflað vel, þegar lagt
hefur verið.
í fyrradag hafði Snæfell fengið
um 500 tunnur og Súlan lítið
minna. Auður og Akraborg hafa
einnig fengið góða veiði, en þó
nokkm minni en Snæfell.
Veiðarfæratjón hefrn- orðið hjá
Auði, sem missti um 30 net og
Súlunni, sem missti 10 net í fyrri-
kr. 2.25 í kr. 2.80 pr. smálest.
Allt lýsi verður greitt með sama
verði, þ. e. kr. 40.00 pr. smálest af
1. og 2. fl. lýsi og kr. 20.00 af því
sem lakara reynist. Er þetta sama
og áður var greitt á saltfjgkveið-
um, en á ísfiskveiðum var greitt
kr. 17.00 pr. smálest.
Sjómenn fá 5 daga hafnarfrí í
hverjum mónuði að meðaltali
með fullu kaupi og fæðispeninga.
Fæðispeningar í hafnarfríum
hækka úr kr. 15.00 I kr. 18.00, auk
verðlagsuppbótar. Áður voru
hafnarfríin ákveðin aðeins einn
sólarhringur að lokinni hverri
veiðiferð, sem að jafnaði gerði 1—
3 daga í mánuði.
Félagar í sjómannafélögunum,
sem standa að samningnum hafa
nú forgangsrétt til skipsrúma á
togurunmn, hvert á sínum stað.
Forgangsréttinn höfðu áður öll
félögin nema Sjómannafélag
(Framhald á 4. síðu).
nótt, hvort tveggja af völdum há-
hymings. Veiðarfæratjón hefur
þó orðið minna hjá norðanbátun-
um en flestum öðrum, einkum
vegna þess að þeir hafa lagt net
sín vestur undir Jökli, en sunn-
anbátar yfirleitt í flóanum sunn-
anverðum, en þar hefur háhym-
ingsins mest orðið vart.
Súlan og Snæfell leggja afla
sinn upp í Hafnarfirði, Akraborg
í Inm-i-Njarðvík og Auður í Kefla
í Innri-Njarðvík og Aður í Kefla-
vík, en Ólafsfj,- og Siglufj.-bát-
amir sigla norður með sinn afla.
Kínverjum enn meinuð aðild að
Sameinuðu Þjóðunum
Fulltrúalisti vinstri manna í
Verkamannafélaginu
Reknetabátarnir allir farnir
til veiða í Faxaflóa
Hafa fengið góða veiði en orðið fyrir nokkru
veiðarfæratjóni af völdum háhyrnings