Verkamaðurinn - 12.11.1954, Blaðsíða 3
Föstudaginn 12. nóv. 1954
VERKAMAÐURINN
3
SIGURGEIR JÓNSSON
söngkennari og organleikari frá Stóruvöllum
Fæddur 25. nóv. 1866. — Dáinn 4. nóv. 1954
Þegar ég man fyrst eftir mér
nokkru fyrir síðustu aldamót,
heyrði ég oft talað um ýmsa
merkismenn, sem á einn eða ann-
an hátt þóttu skara fram úr sam-
tíðarmönnum sínum. Þessir menn
voru jafnan nefndir með virð-
ingu og oft með mikilli aðdáun.
iiitt nafn var það þó, sem mér
fannst meiri Ijonu um en önnur
nofn, og það var naímö Sigurgeir
a Storuvöllutn, eins og hann var
þá jaínan nefndm'. Og það sem
gaf nafni hans siíkan ijoma hjá
foreldrum mínum og öðrum
þeim, er ég heyrði tala um hann,
var það, að hann gat öðrum betur
leikið á hljóðfæri, sungið og látið
aðra syngja. En söngur var í mín-
um augum í þá daga hin æðsta
fegurð og uppspretta gleðinnar.
Ekki átti ég þó því láni að
fagna að sjá Sigurgeh' á Stóru-
völlum eða kynnast list hans fyrr
en á aldamótahátíðinni á Ljósa-
vatni. Þar stýrði hann stórum
blönduðum kór, sem söng fjölda
ættjarðarsöngva og mörg önnur
fögur lög. Þetta var einhver allra
minnisstæðasti viðburður á
bemskuárum mínum, og óx
ljóminn um nafn Sigurgeirs mjög
í augum mínum við hann. Ég var
ögn farinn að spila á orgel og orð-
inn allvel læs á nótur, þegar þetta
var, og átti ég því léttara með að
gera mér grein fyrir meðferð lag-
anna, ekki sízt þar sem ég kunni
þau flest eða öll. Vakti það eink-
um eftirtekt mína, að flest lögin
voru sungin af miklu meira fjöri
og lífi en ég hafði áður heyrt og
urðu mér mörg sem ný opinber-
un.
Sigurgeir Jónsson var kominn
af þingeyskum bændaættum í
báðar ættir. Foreldrar hans voru
hjónin Aðaibjörg Pálsdóttir og
Jón Benediktsson á Stóruvöllum
í Bárðardal. Jón var sonur Bene-
dikts Indriðasonar frá Fornastöð-
um og Guðnýjar Jónsdóttur frá
Mýri. Þau bjuggu á Stóruvöllum,
og var Benedikt síðari maður
Guðnýjar. Voru þau einhver
merkustu bændahjón í Þingeyj-
arsýslu á sínum tíma. Jón faðir
Sigurgeirs þótti og hinn merkasti
maður. Aðalbjörg móðir Sigur-
geirs var dóttir Páls Jóakimsson-
ar í Hólum í Laxárdal og fyrri
konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur.
Páll var bróðir Jóns á Þverá, föð-
ur Benedikts á Auðnum og þeirra
systkina. Eru þetta alkunnar
ættir.
Þegar Sigurgeir var að alast
upp heima á Stóruvöllum, var
þar eitt hið mesta menningar-
heimili í Þingeyjarsýslu og þótt
víðar væri leitað. Fór þar saman
mikil verkmenning, bæði í bún-
aðarháttum og heimilisiðnaði
(faðir hans var t. d afburða góð-
ur söðlasmiður) og mikil andleg
menning, mikill lestur góðra
bóka, bæði íslenzkra og á Norð-
urlandamálum, og umfram allt
iðkun sönglistar. Hafði t. d. Arn-
grímur Gíslason málari, sem var
þar um tíma allmarga vetur, mik-
il áhrif í þá átt. Margt fólk var í
heimili, og var þar oft sungið í
kór. Stýrði Benedikt bróðir Sig-
urgeirs söngnum. Hann fluttist
ungur til Vesturheims, og kom
þá í hlut Sigurgeirs að vera söng-
stjóri á heimihnu og í dalnum.
Var hann þá eigi langt kominn yf-
ir fermingaraldur. En sönglistin
var köllun hans, og hann stund-
aði hana í heimahúsum af sama
áhuga og kappi eins og margir ís-
lenzkir alþýðumenn hafa um ald-
ir stundað ýmisleg fræði og listir,
sem hafa sérstaxiega verið
ahugamal þeirra, og varð hann
íijott mjög vei að sér. Þó nægði
honum það ekki, heldur hélt
hann til Heykjavíkur og iagði þar
stund á tóniist, einkum pianó- og
orgeileik 1091—1892. Keimari
hans var frú Anna Petersen,
móðir dr. Helga Péturss. Þótti
hún ágætur kennari, enda færði
Sigurgeir tilsögn hennar sér vel
í nyt. Aðra skóia sótti hann ekki,
nema hvað hann var einn vetur á
lýðskóla Guðmundar Hjaltasonar.
Var það fyrr en hann fór til
Reykjavíkur.
Guðmundur Hjaltason var mjög
merkur skóiamaður, og var hon-
um einkar lagið að hrífa unga
menn og vekja áhuga þeirra á
hverskyns menningarmálum.
Árið 1895 gekk Sigurgeii að
eiga Friðriku Tómasdóttur frá
Litluvöllum í Báiðardal. Þau
bjuggu síðan á Stóruvöllum á
nokkrum hluta jarðarinnar. Jafn-
framt búskapnum stundaði Sig-
urgeir sönglistina, lék á hljóð-
færi, æfði kórsöng og kenndi
mörgum hljóðfæraleik.
Árið 1904 brugðu þau hjónin
búi og fluttust til Akureyrar. Tók
Sigurgeir þegar til óspilltra mál-
anna við að kenna hljóðfæraleik.
Jafnframt stundaði hann hér
múraraiðn, sem hann hafði num-
ið heima á Stóruvölliun, er þeir
bræður reistu þar vandað íbúð-
arhús úr steini. Kennari hans þar
heima í þeirri iðn var Steinþór
Björnsson á Litluströnd, er num-
ið hafði í Kaupmannahöfn. Þótti
Sigurgeir ágætur starfsmaður í
þeirri grein, og mátti segja, að
hvert það verk, er hann snerti á,
léki í höndum hans. Eitt af því, er
hann lagði stund á. var að stilla
hljóðfæri. Það er hið mesta
vandaverk og er talið, að til þess
þurfi sérstakan lærdóm. En Sig-
urgeir kenndi sér þetta sjálfur og
tókst svo vel, að orð var á gert og
var lengi eini píanóstillari hér í
bæ.
Þegar Magnús Einarsson hætti
að leika á kirkjuorgelið og að
stjórna kirkjusöngnum, tók Sig-
urgeir við því starfi. Það var árið
1911. Hélt hann því til 1941. Var
bæði orgelleikur hans og kirkju-
söngurinn mjög vandaður og
smekkvíslegur, svo að orð var á
gert.
Um nokkurra ára skeið kenndi
hann söng í Bamaskólanum og
Gagnfræðaskólanum.
Þá má ekki gleyma því, að hann
æfði hér blandaðan kór og stjórn-
aði honum um nokkur ár. Ekki
hafði ég tækifæri til að heyra
þann kór nema einu sinni, síðasta
skiptið er hann söng. Minnist ég
þess söngs með óblandinni gleði.
Sigurgeir mun hafa kennt um
700 manna hljóðfæraleik. Hafa
margir þeirra stundað framhalds-
nám í tónlist og orðið þar dug-
andi.
Sigurgeir Jónsson var fríður
maður og höfðinglegur. Hann
var fjörlegur og glaðlegur í bragði
og hélt sér mjög vel. Stundaði
hann kennslu fram í háa elli.
Hann var mjög félagslyndur. Var
hann alla tíð bindindismaður og
starfandi meðlimur Góðtempl-
arareglunnar um marga áratugi,
var þar organleikari og söng-
stjóx-i. Hann tók þátt í menning-
arfélagsskap á fleiri sviðum, t. d.
starfaði hann mikið í félagsskap
guðspekinga.
í síðasta sinn stýrði Sigurgeir
söng á söngmóti ,,Heklu“ 1948,
þá nær 82 ára. Stýrði hann þá
hinum mikla söngfiokk, er allir
sambandskórarnir sungu sameig-
inlega hið fagra lag Magnúsar
Einarssonar: „Mikli guð“. Gerði
hann það af slíkri festu, myndug-
leika, öryggi og skaphita, að
flutningur þessa lags varð kórón-
an á þessum minnisstæðu hljóm-
leikum.
Kona Sigurgeirs er látin fyrir
meir en an. Pau eignuoust
mu börn. Eut þeirra, Agnes. cto
ung, hin mesta etmsstUiKa, nvers
manns hugijúfi. Hin iiía öii og
eru veimetm og vinsæl. Oli hata
þau erft meira og minna af lista-
gáfum föður síns og fjöinreyttu
hætiieiKum. Þau eru: Paii, Kaup-
maður á Akureyri, Vigfús, ljos-
myndari, ReyKjavík, Gunnar,
píanóleikari og söngstjóri, R.vík,
Hermína, píanóieikari, R.vík, Jón,
kennari, Akureyri, Eðvarð, ljós-
myndari, Akureyri, Höi-ður, ljós-
myndari, Vestmannaeyjum, og
Haraldur, verzlunarstjóri, Akur-
eyri.
Ekki þarf að efa, að ef Sigur-
geir Jónsson hefði á unga aldri
gefið sig tónlistinni einni á vald
og lært hana til hlítar og starfað
í því umhverfi, þar sem allar gáf-
ur hans og hæfileikar hefðu notið
sín að fullu, þá hefði hann orðið
mikill listamaður, sem hefði orð-
ið þjóðinni til mikils sóma. Og þó
er í raun og veru óvíst, hvort
hann hefur ekki einmitt unnið
þjóðinni enn meira gagn með því
að starfa eins og hann gerði, með-
al alþýðunnar sem einn af henni.
Áhrif hans hafa orðið þýðing-
armeiri en hægt er að gera sér
grein fyrir í fljótu bragði, og starf
hans á eftir að bera ávöxt langt
fram um ókomin ár. ekki aðeins
í þessum bæ, heldur hvar sem
nemendur hans lifa og starfa.
Með Sigurgeiri Jónssyni er fall-
inn einn hinna ágætu manna, er
mestan menningarsvip hafa sett
á Akureyri um langt skeið.
Blessuð sé minning hans.
A. S.
MAN-O-TILE plastveggdúkur
MAN-O-TILE PLASTVEGGDÚKUR
fyrir eldihús og baðherbergi fyrirliggjandi í
mörgum litum. Svo sem: grænn, grár, blár, gulur
og fcveir bleikir.
MAN-O-TOP COUNTER
fyrir eldhúsborð í sama litaúrvali.
ATLAS-LÍM,
þolir raka og bleytu.
ERUM FLUTTIR
í Haínarstræti 97, bakhúsið
(gengið upp með Hótel Goðafoss).
Höfum mikið úr\ral af
vönduðu og fallegu, dönsku silfurpletti.
Einnig alls konar
handsmíðaða skartgripi, úr gulli og silfri.
Sérstaklega fjölbreytt úrval af steinhringum.
Trúlofunarhringar með stuttum fyrirvara.
Kaupið hjá fagmönnum. Það borgar sig bezt.
Sigtryggui- & Eyjólfur, gullsmiðir.
Gardínustengurnar
marg eftirspurðu eru komnar.
ByggmgavönHlcild KEA.
hreinsoi. vemdon
mýkii oq fegraf
hýfiina — Biðjið
um RÓSA-sAPU
HAPPDRÆTTI
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
VINNINGUR:
Dodge Custon Royal bifreið raódel 1955.
Aðeins 8000 miðar. — Verð kr. 100.00.
Dregið verður 23. desember n. k.
Á Akureyri eru miðar seldir í
Bókabúð RIKKU.