Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 12.11.1954, Blaðsíða 4

Verkamaðurinn - 12.11.1954, Blaðsíða 4
4 VERKAMAÐURINN Föstudaginn 12. nóv. 1954 María Markan Östlund Hún söng hér á Akureyri á vegum Tónlistarfélags Akureyr- ar síðastliðinn laugardag. — Við hljóðfærið var Fritz Weiss- happel. — Hljómleikarnir fóru fram í Nýja-Bíó. Húsfyllir var, og mikil fagnaðarlæti meðal áheyranda. — Söngkonan fékk blómvendi og varð að syngja mörg aukalög og endurtaka lög. Ég hefi ekki heyrt Maríu Markan syngja fyrr, svo að ég get engan samanburð gert á söng hennar fyrr og nú. En mér duld- ist það ekki við fyrsta lagið, að hér var á ferðinni ágæt söng- kona, sem bjó yfir fullkominni kunnáttu, skilningi og draina- tískum krafti. Röddin er bæði mikil og fögur. Framan af átti hún í nokkurum erfiðleikum með röddina, eins og oft kemur fyrir hjá þeim, sem mikið hafa sungið, ekki sízt þegar syngja þarf að ný- afstöðnu ferðalagi. En frú María Markan lét það ekki á nokkurn hátt á sig fá, enda lagaðist þetta fljótlega og röddin kom fram, björt, silfurskær og þýð eins og fiðla í snillingshöndum. Ekki vantar umhyggjuna! Ritstjóri fsl. helgar ofurlítið af „hinu ódýra lesefni" blaðsins þeim upplýsingum Verkamanns- ins, sem birtar voru 15. okt. sl., að vélar til hraðfrystihússins væru fáanlegar með hagstæðum lánskjörum í Austur-Þýzkalandi. Hefur ritstjórinn uppi tilburði til að sanna að þetta geti ekki talizt svo fréttnæmt, að hæft geti hinu vandaða og ódýra lesefni íslend- ings. Ekki telur blaðið þetta þó aðalástæðuna fyrir því að þessi frétt fann ekki náð fyrir augum ritstjórans, heldur sé hún sú, að blaðið beri svo mikla umhyggju fyrir bæjarbúum, að það vilji ekki, að því er helzt verður skil- ið, spilla hugarró bæjarbúa með því að „vekja vonir manna með „ótímabærum“ fréttum um að málið sé að leysast." Má þetta teljast alveg óvenju- leg manngæzka og umhyggja hjá blaðinu, ekki sízt þegar þess er gætt að nú er senn liðið heilt ár frá því að þetta sama blað skýrði frá því „að frystihúsmálið væri komið í örugga höfn“. Þá var umhyggjan ekki alveg jafn mikil, enda stóðu þá kosningar fyrir dyrum. Vafalítið er það einnig sprottið af einskærri umhyggju fyrir bæj- arbúum að ritstj. íslendings gerir sér hægt um hönd og fullyrðir að varðandi nefnt vélalán „sé aðeins um uppástungu um athugun að ræða,‘. Staðreyndin er hins vegar sú, að fullvíst er að möguleikar fyrir láni fyrir vélum frystihúss- ins og afurðasala fyrir andvirði þeirra er fyrir hendi. Hitt er svo auðvitað verkefni stjómar Ú. A. að meta það, hvort þeir mögu- leikar eru hagstæðari en aðrir, sem henni kunna að standa opnir. Um það hefur Verkamaðurinn ekkert fullyrt að svo komnu máll Söngskráin var fjölbreytt. Inn- lendir og erlendir ljóðsöngvar og tvær óperuaríur: Draumur Elsu úr „Lohengrin“ eftir Wagner og Voi lo sapete úr „Cavalleria rusticana“ eftir Mascagni. í óperulöguniun naut hin mikla rödd og tækni söngkonunnar sín sérlega vel, en mörg hinna „lýr- isku“ laga urðu engu síður ógleymanleg, og skal ég nefna sérstaklega Söng bláu nunnanna eftir Pál ísólfsson, Til skýsins eftir Emil Thoroddsen, Heimi eftir S. Kaldalóns (aukalag) og Augun bláu eftir Sigfús Einars- son (aukalag). Undirleikur Weisshappels var með miklum ágætum, svo sem við mátti búast. A. S. Góðar undirtektir í hlutafjársöfnuninni Unnið hefur verið að því und- anfarna daga að bera út um bæ- inn ávarp stjórnar Útgerðarfélags Akureyringa og leita undirtekta. um hlutafjárkaup. Vinna 30 menn að þessu starfi og verður allvel ágengt, að því er bezt verður enn vitað. Er nefndarmönnum nær hvarvetna vel tekið og hafa margir þegar skirfað sig fyrir hlutafjárloforðum. Eitthvað mun hafa borið á því að einstaka menn hafi haft í frammi áróður í þá átt að hluta- fjársöfnunin væri eins konar betliherferð og að hlutabréfin yrðu raunverulega lítilla fjár- muna virði. Að sjálfsögðu er þetta hin herfilegasta blekking. Hluta- bréf í Útgerðarfélagi Akureyr- inga munu nú raunverulega vera mun meira virði en nafnverð þeirra hljóðar upp á, þegar tillit er tekið til þess hve eignir félags- ins hafa verið afskrifaðar mikið á undanförnum árum. Allt bendir til þess að hraðfrystihús muni renna svo styrkum stoðum undir starfsemi félagsins að hlutafjár- eign í því verið mjög álitleg eign. Hlutafjáraukningin á því ekkert skylt við betliherferð, heldur er þar um hrein viðskipti að ræða. Viðskipti, sem jafnframt því að vera örugg ráðstöfun fjármuna, mun á komandi árum færa bæj- arbúum stórfellda möguleika til bættrar atvinnu og afkomu. Síldarleit enn án árangurs M.b. Garðar leitaði síldar í gær og fyrradag hér innfjarðar og kastaði tvisvar. Veiðin reyndist mjög lítil (4—5 tunnur í kast) og eingöngu kræða. Verður leitinni hætt í bili. RITDÓMURINN um ljóðabók Braga Sigurjóns- sonar, sem birtist á 2. síðu blaðs- ins í dag, er eftir Rósberg G. Snædal, en nafn hans undir greininni hefur fallið niður. ■K KIRKJAN. Messað í Akureyr- arkirkju kl. 2 e. h. n.k. sunnu- dag. Prófasturinn, sr. Sigurður Stefánsson, setur sr. Kristján Róbetrsson inn í annað prests- embætti Akureyrarprestakalls. * KANTÖTUKÓR AKUREYR- AR. Æfing að LÓNI í kvöld kl. 8.30Allir þeir, sem hafa hugsað sér a ðstarfa með kórnum í vet- ur, eru vinsamlega beðnir að mæta, og eldri félagar, sem kunna að hafa í fórum sínum nótur frá liðnum árum, að taka þær með á æfinguna. ■K MÁLVERKASÝNINGU Kjar- vals lauk á sunnudagskvöldið og höfðu þá 3100 manns skoðað hana. Er það áreiðanlega met- aðsókn og sýnu meiri hlut- fallslega en í Rvík, en þar voru sýningargestir um 11 þúsund og þótti það þó einsdæmi. * HJÓNABAND. Ungfrú Krist- jana Ríkey Tryggvadóttir og Bjarni Sigurðsson (Sigurðar O. Björnssonar, prentmeistara). — Ungfrú Helga Ingibjörg Stein- dórsdóttir og Ólafur Stefáns- son. -K NÝJA-BXÓ sýnir um þessar mundir stórmyndina Quo Vadis eftir samnefndri sögu, sem þýdd hefur verið á íslenzku og margir hafa lesið. Er myndin stórvel gerð og vel leikin. Á það sérstaklega við um aðal- hlutverkið, Neró keisara, en hann leikur Peter Ustinov. Er leikur hans frábær. Akureyr- ingar hafa fyllt Nýja-Bíó að undanfömu vegna þessarar myndar. ■K GLÆSILEGT HAPPDRÆTTI. Blaðið vill vekja athygli á happdrætti Styrktarfélags lam- aðra og fatlaðra, sem auglýst er í blaðinu í dag. Fer þar saman glæsilegur vinningur og gott málefni. Hljómplöfur: NÝ AMERÍSK DANS- OG DÆGURLÖG SVO SEM: Long John Secret love (Doris Day) There must be a reason (Frankie Laine) Shippin Soda Make love to me (Jo Stafford) April and you (Jo Stafford) o. m. fl. EINNG NÝJUSTU DANS- OG DÆGURLÖGIN Á NÓTUM. Bókaverzlun Axels Kristjánssonar h.f. Sími 1325. Verkfall ástralskra hafnar- verkamamia. 26 þúsundir verkamanna eru nú í verkfalli í Ástralíu. Nær verkfallið 'til allra hafna landsins og hefur staðið í viku. Um 150 skip liggja óafgreidd. Verkfallið beinist gegn frumvarpi stjórnar- innar, en samkv. því er vinnu- veitendum falið að beina hafnar- verkamönnum til þeirra hafna.þar sem vinnu þeirra er mest þörf, en þetta verkefni hefur hingað til verið í höndum verkalýðssamtaka hafnarverkamanna sjálfra. Talið er, að verkfall þetta kunni að standa mjög lengi, þar eð báðir aðilar, verkamenn og ríkisstjórn, segjast óhagganlegir í afstöðu sinni. Stjórnin hefur í hótunum um að kveðja hermenn til vinnu við hafnirnar. Enskir hafnarverkamenn unnu sigur. Fyrra laugardag lauk verkfalli hafnarverkamanna, sem staðið hafði yfir í flestum hafnarborg- um Bretlands í rúmlega mánað- artíma, Var verkfall þetta háð til að knýja fram viðurkenningu á því að verkamenn væru að því sjálfráðir, hvort þeir ynnu eftir- vinnu eða ekki. Samkomulagið var á þá lund, að samningar verða þegar í stað hafnir milli hafnarstjórnanna og fulltrúa verkfallsmanna um eft- irvinnureglurnar Meðan viðræð- urnar fara fram eru verkamenn frjálsir að því að neita eftirvinnu. Ef fullnaðarsamningar hafa ekki tekizt að mánuði liðnum munu foringjar verkfallsmanna koma saman og ræða frekari aðgerðir. Úrslit deilunnar eru talið mjög mikið áfall fyrir hægrikratana, sem stjórna TUC, /Alþýðusam- bandi Bretlands ,því að verkfall- ið var háð í trássi við stjórn sam- bandsins og samningar að lokum gerðir án allrar milligöngu, enda hafði Félagi hafnarverkamanna þá verið vikið úr sambandinu. Fmmvarp um stækkun lögsagnarumdæmisins Félagsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um stækkun lögsagnarumdæmis Ak- ureyrar í samræmi við þá samn- inga, sem gerðir hafa verið um sameiningu Glerárþorps og Ak- ureyrar. Gert mun ráð fyrir að frum- varpið verði afgreitt fyrir áramót og sameiningin fari þá fram. KJÓLAEFNI t miklu úrvali. UNDIRFÖT margskonar ÓDÝRIR nylonsokkar SMÁBARNAFATNAÐUR MARKAÐURINN Geislagötu 5. LOGTAK Eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og að undan- gengnum úrskurði verða lögtök látin fara fram, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnuin frá birtingu þessarar auglýsingar fyrir ógreidd- Hm þinggjöldum á Akureyri og í Eyjafjarðarsýslu 1954, veitingaskatti, söluskatti, gjaldi af innlendum tollvör- um, lögskráningargjöldum, aðflutningsgjöldum, út- flutningsgjöldum, skemmtanaskatti, skipulagsgjaldi, vitagjaldi, lestagjaldi og bifreiðagjöldum. Skrifstofu Akureyrar og Eyjafjarðarsýslu, 10. nóvember 1954.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.