Verkamaðurinn - 03.12.1954, Page 4
\
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 3. desember 1954
Yfirlýsing Hannibals Valdimarss.
iiauruDal Valdimarsson hefur
sent frá sér eftirfarandi yfirlýs-
ingu í tilefni af samþykkt mið-
stjómar Alþýðuflokksins, sem
getið er á forsíðu blaðsins í dag:
„Að gefnu tilefni yfirlýsingar,
sem birt var á forsíðu Alþýðu-
blaðsins í gær um afstöðu Al-
þýðuflokksins til mfn sem forseta
Aiþýðusambands fslands, vil eg
biðja heiðrað blað yðar að birta
eftirfarandi:
Ég hef verið kjörinn forseti Al-
þýðusambands íslands af lögleg-
um meirihluta á þingi verkalýðs-
samtakanna, og óska ekki eftir,
að neinn pólitískur flokkur taki
ábyrgð á störfum mínum sem for-
seta sambandsins.
Að kosningum og ö’ðrum und-
irbúningi alþýðusambandsþings
var unnið fyrir opnum tjöldum á
sL sumri,, og hafði miðstjórn Al-
þýðuflokksins lýst yfir því, að af-
staða til annarra flokka í verka-
lýðsmálum væri sérmál verka-
lýðsfélaganna.
Þess vegna unnu ýmsir Alþýðu-
flokksmenn að undirbúningi al-
þýðusambandsþings með það fyr-
ir augum, að mynda þar meiri-
hluta með stjórnarflokkunum.
Eg vann hins vegar að því, að
mynduð yrði sterk stjórn Alþýðu
sambandsins með þátttöku
stærstu verkalýðsfélaga landsins,
án tillits til stjómmálaskoðana
forustumanna þeirra.
Auðvitað höfðu báðir aðilar
jafnan rétt til þessarar afstöðu
sinnar og starfsemL
Mkmihlutastjóm Alþýðuflokks
ins yfir verkalýðssamtökunum
taldi eg í senn ólýðræðislega og
máttlausa.
Miðstjómarsamyþkktir stjóm-
málaflokka um, að það skoðist
sem flokksleg hollustu- og trún-
- Stjórnmálabandalag
(Framhald af 1. síðu).
vald Bandarikjanna, um algert
einræði í landinu, og að sækja
fram til sjálfstæðis og betra
lífs fyrir íslenzku þjóðina alla.
Þau meginstefnumál, sem kosta
verður kapps um að sameina
um allt hið vinnandi fólk á fs-
landi eru þessi:
Uppsögn hemámssamnings-
ins og brottför alls amerísks
herafla úr landinu, mikið átak
til eflingar arðbærrar íslenzkr-
ar framleiðslu, er tryggt geti
öllum vinnu við arðbær, íslenzk
framleiðslustörf og samfara því
stórbætt kjör til handa allra
vinnandi stétta.
Slíkt bandalag mundi verða
fulltrúi fyrir yfirgnæfandi
meirihluta islenzku þjóðarinnar
og mundi hafa möguleika til að
gerbreyta svo skipan Alþingis,
að unnt yrði að mynda ríkis-
stjóm, sem með tilstyrk sam-
taka fólksins væri þess megnug
að hrinda í framkvæmd þeim
stefnumálum, sem hér hafa
verið talin.
Þetta er í stórum dráttum
höfuðverkefni Sósíalistaflokks-
ins á núverandi skeiði.
aðarbrot, ef fulltrúar á alþýðu-
sambannsþingi taki þessa eða
hina afstöðu til manna eða mál-
efna, tel eg óviðurkvæmilega til-
raun til skoðanakúgunar, og mót-
mæli slíkum afskiptum stjóm-
málaflokkanna.
Samstarf við pólitíska and-
stæðinga Alþýðuflokksins um
stjóm A. S. í. er ekki að hefjast
nú, og hefur ekki þótt vítavert til
þessa.
í Alþýðusambandinu er fólk í
öllum stjómmálaflokkium, og
kemur mér því mjög á óvart, ef
nauðsynlegt þykir, að forseti sam
bandsins starfi aðeins á ábyrgð
eins stjómmálaflokks.
Það er þing Alþýðusambands
íslands, sem með röskum meiri-
hluta atkvæða hefur falið mér
forustu samtakanna næstu tvö
ár, og verður sú ábyrgð að nægja,
hvað sem stjómmálaflokkamir
segja. Gefst þeim óefað tækifæri
til að sýna í verki, hversu heitir
verkalýðsflokkar þeir séu, þegar
til þeirra verður leitað um stuðn-
ing við mál verkalýðssamtakanna.
Með þökk fyrir birtinguna.
V irðingarfy llst,
Hannibal Valdimarsson,
(forseti A. S. í.)“.
I 9 ifí « *
tírt
I ( «
Jir • i
attw
Tilkynning
Þeir sem hafa undir höndum
»
undirskriftalista um uppsögn
herverndarsamningsins, em beðn
ir að skila þeim til einhvers und-
irritaðra nefndarmanna fyrir n.k.
miðvikudagskvöld 8. þ. m.
í framkvæmdanefnd
imdirskirftasöfnunarinnar.
Einar Kristjánsson.
Anna Helgadóttir.
Magnús Albertsson.
V innumiðlunarnef ndin
tekin til starfa
Vinnumiðlunamefnd Akureyr-
arbæjar er tekin til starfa, en hlut
verk hennar er að úthluta vinnu
hjá bænum.
Atvinnuumsóknir nefndarinn-
ar eru skráðar á skrifstofu bæjar-
stjóra eins og verið hefur og er
nauðsynlegt að atvinnulausir eða
atvinnulitlir verkamenn láti skrá
sig þar hið fyrsta. Nefndin heldur
að jafnaði fundi á föstudögum og
ráðstafar þá vinnu þeirri, sem til
fellur næstu viku.
-K 65 ÁRA varð Jón Sveinsson,
fyrrv. bæjarstjóri þann 25. f. m.
-K 80 ÁRA varð 1. þ. m. Ólafur
Tryggvi Ólafsson skrifstofum.
hjá KEA.
•K KIRKJAN. Messað í Akureyr-
arkirkju næstk. sunnudag kl. 2
e. h. — K. R. — Sálmar: 259,
201, 441, 326 og 451.
-K FRÁ LEIKFÉL. AKUREYR-
AR. Meyjaskemman. Sýning
næstk. sunnudag. (Engin sýn-
ing á laugardag). Aðgöngu-
miðasími 1639. Aðgöngumiðar
afgreiddir í afgreiðslu Morgim-
blaðsins kl. 4.30—6 leikdagana
og við innganginn, ef eitthvað
er óselt
-K HJÓNABAND. Ungfrú Krist-
jana Guðrún Benediktsdóttir,
Hólmavaði, og Jónas Þorsteins-
son, Aðalstræti 4, Akureyri.
Heimili ungu hjónanna verður
að Hólmavaði. — Ungfrú Frið-
rún Sigríður Sigurbjömsdóttir
og Ragnar Guðmundss., Vöku-
völlum II, Akureyri.
- Ályktun Alþýðusam-
bándsþmgs
(Framhald af 1. síðu).
Afnám söluskattsins.
Afnám bátagjaldeyrisfyrir-
komulagsins.
Skynsamlegt og öruggt eftirlit
með álagningiL
Lækkun flutningsgjalda.
Lækkað vöruverð. — Minni
útgjöld ríkissjóðs.
Yrði þetta gert myndi vöruverð
lækka stórum og ríkissjóður
myndi spara veruleg útgjöld, sem
eitthvað myndi vega upp á móti
tekjumissi ríkissjóðs við þessar
ráðstafanir. En tekjuþörf sinni
þarf ríkissjóður að fullnægja á
annan hátt en þann, að halda uppi
háu verðlagi. Hinir óbeinu skatt-
ar koma, svo sem margoft hefur
verið á bent, þyngst niður á fá-
tækasta fólkið og stærstu fjöl-
skyldumar.
Ríkisinnflutningur.
Þá vill þingið lýsa stuðningi
sínum við heilbrigða samvinnu
alþýðunnar til sölu afurða og inn-
kaupa á nauðsynjavörum. Enn-
fremur telur þingið nauðsynlegt
að ríkið taki að sér innflutning og
dreifingu nokkurra vörutegunda
til að tryggja sannvirði hennar og
hefur þá einkum í huga olíuinn-
flutning, en sú vara er ein þýð-
ingarmesta vara atvixmuveganna
og jafnframt einn stærsti útgjalda
liður þeirra, auk þess sem olía er
víða um land notuð til rafmagns-
framleiðslu og húsakyndinga.
Loks vill þingið lýsa yfir því,
að það telur óeðlilegt að raf-
magnsverð sé misjafnlega hátt
eftir því hvar á landinu það er
framleitt og selt og skorar á lög-
gjafann að hlutast til um að þessi
nauðsynjavara verði seld á sama
verði um allt land.
Iðja í Reykjavík hefur gert
nýja samninga
Góður áfangi á leiðinni til að bæta kjör
iðnverkafólksins
Iðja, félag verksmiðjufólks í
Reykjavík, og Félag íslenzkra
iðnrekenda sömdu í fyrrakvöld.
Kvennakaupið hækkar sam-
kvæmt nýju samningunum um
9% og á vaktavinnukaupið, sé
unnið í þrískiptum vöktum, greið
ist 35% álag og er það hæsta
vaktavinnukaup sem hér hefur
verið samið um.
Ymsar aðrar breytingar til lag-
færingar á samningunum voru
gerðar.
Kvennakaupið var áður 1035,00
kr. í gnmn á fyrstu 6 mánuðun-
um, en er nú 1065,00. Eftir 6 mán-
uði var það 1095,00 í grunn, en er
nú 1160,00. Eftir 1 ár var kzupið
1200,00 kr. á mánuði, en er nú
1310,00.
Unglingataxtinn breytist í sam-
ræmi við þetta.
Kaup karlmanna breytist þann-
ig, að þeir sem höfðu unnið 4 ár
eða lengur höfðu kr. 1830,00 í
grunn, en hafa nú kr. 2000,00.
35% álag í þrískiptum vöktum.
Vaktavinnan breytist þannig,
að þegar unnið er í þrískiptum
vöktum (allan sólarhringinn), er
aðeins fyrsta vaktin („dagvakt-
in“) 8 vinnustundir, en hinar
hvor um sig 7.
Samkvæmt nýju samningunum
er heimilt að virma í þrískiptum
vöktum, þ. e. allan sólarhringinn,
allt árið, og er þá greitt 35% álag
á launin.
Guðrún Kristinsdóttir
lýkur námi við Kgl.
tónlistarskólann
Ungfrú Guðrún Kristinsdóttir
(Þorsteinssonar deildarstjóra),
hefur nýlega lokið námi í píanó-
leik við Kgl. tónlistarskólann í
Kaupmannahöfn með frábærum
vitnisburði. Kaupmannahafnar-
blöðin, svo sem Berlinske Aften-
avis og Politiken, hafa farið mjög
lofsamlegum orðum um opinbera
tónleika, er imgfrúin hefur ný
lega haldið þar í borginni. —
Óska blöðin Islendingum til ham-
ingju með hina ungu listakonu.
Ekki lægra en 20% yfir
mánaðarkaupL
Þá var gerð sú breyting á
samningunum, sem er mjög mik-
ilvæg, að ákvæðisvinnumaður,
sem unnið hefur eitt ár eða leng-
tn-, má aldrei fá greitt lægra kaup
en 20% yfir umsömdu mánaðar-
kaupi.
Áður var greidd full vísitala á
1440,00 kr. ákvæðisvinnukaup óg
23% á það ,sem fram yfir hefur
verið, en nú er greidd full vísi-
tala á kr. 1550,00 og 23% á það,
sem er þar yfir.
ORÐSENDING
Að gefnu tilefni viljum vér
minna á eftirfarandi atriði úr lög-
reglusamþykktinni og reglugerð
um barnavemd á Akureyri:
„í umdæmi bamavemdar-
nefndar Akureyrar er bannað að
selja börnum og unglingum inn-
an 16 ára aldurs tóbak, hverju
nafni sem nefnist, gefa þeim það,
eða stuðla að því að þau neyti
þess, eða hafi það um hönd.“
„Unglingum innan 16 ára er
óheimill aðgangur að almennum
knattborðsstofum, dansstöðum og
ölstofum. Þeim er og óheimill að-
gangur að almennum kaffistofum
eftir kl. 20, nema í fylgd með full-
orðnum vandamönnum, sem bera
ábyrgð á þeim. Eigendum og um-
sjónarmönnum þessara stofnsma
ber að sjá um, að unglingar fái
ekki þar aðgang né hafizt þar við.
Böm yngri en 12 ára mega ekki
vera á almannafæri seinna en kl.
20 á tímabilinu frá 1. október til
1. maí, og ekki seinna en kL 22
frá 1. maí til 1. október, nema í
fylgd með fullorðnum vanda-
mönnum.
Böm frá 12—14 ára mega ekki
vera á almannafæri seinna en kl.
22 á tímabilinu frá 1. október til
1. maí, og ekki seinna en kl. 23
frá 1. maí til 1. október, nema í
fylgd með fullorðnum vanda-
mönnum.... Foreldrar og hús-
bændur barnanna skulu, að við-
lögðum sektum, sjá um, að
ákvæðum þessum sé framfylgt.“
Nauðsynlegt er, að unglingar
innan 16 ára aldurs, geti sannað
aldur sinn með skírteinum, þar
sem aðgangur er bundinn við
vissan aldur.
F. h. bamavemdamefndar
Akureyrar.
Páll Gunnarsson.
. BAZAR
Kvenfélag sósíalista heldur bazar í Verkalýðshúsinu
n. k. sunnudag 5. des. kl. 4 síðdegis.
Þar verður margt þarflegt.
KOMIÐ OG SJÁIÐ.
Bazamefndin.
á A
KHRKI