Verkamaðurinn - 06.01.1956, Qupperneq 4
4
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 6. janúar 1956
ATHYGLISVERÐ
UMMÆLI
í grein, sem hinn kunni frétta-
skýrandi Walter Lippman skrifaði
í stórblaðið New York Herald Tri-
bune, eftir að Genfarfundi utanrík-
ismálaráðherranna fjögurra lauk í
haust, farast Lippman m. a. svo orð:
„Skilyrðin, sem hr. Dulles hafði
með sér til Genf, hefðu verið ágæt,
ef Sovétríkin hefðu gefizt upp skil-
yrðislaust. Skilyrði hans leiddu al-
veg hjá sér hinn sanna Genfaranda,
sem táknar, að úr því að ekkert er
hægt að útkljá með valdi, er nauð-
synlegt að leiða saman hesta sina
og semja. Skilyrði vesturveldanna
í Genf fólu ekki í sér neina mögu-
leika til viðbragða, ekkert efni til
að ræða um, ekkert tækifæri til að
semja.
Þessi misreiknaða alveldisstefna
hefur einmitt verið tromp Sovét-
rikjanna,“ segir Lippman. Vegna
þessara mistaka hafa Sovétríkin
tryggt sér rúmgott svið til athafna
í Vestur-Þýzkalandi, á sama tíma og
Bandaríkin geta ekki mýkt skilyrði
sín „án þess að tefla stöðu Aden-
auers í hættu og án eyðileggjandi
afleiðinga fyrir Norður-Atlanshafs-
bandalagið. — Máske hefur Dulles
haft betur í orðaskiptum við Molo-
toff i Genf. En Sovétríkin hafa
unnið og við höfum tapað áhrifum
í Þýzkalandi."
Og Lippman lýkur grein sinni
með þessum orðum:
„Nú, þegar hr. Dulles er kominn
heim frá Genf, mun, álitum vér,
ekki verða gerð nein tilraun til að
láta líta svo út, að við höfum unnið
stjórnmálalegan sigur í Genf. Við
höfum hlotið mjög mikið áfall og
getum aðeins náð okkur aftur, með
því að framkvæma allsherjar endur-
skoðun á aðstöðu okkar og tillögum
í heiminum eftir Genfarfundinn."
„Við verðum öll að breyta
skoðunum okkar á Sovét-
ríkjunum.“
Með þessum orðum dró fiskimála
ráðherra Kanada, James Sinclair,
saman í ræðu, sem hann flutti í Ot-
tawa 14. nóv., áhrifin, sem hann
varð fyrir eftir langt ferðalag um
Sovétríkin. Og hann bætti við:
„Maður getur ekki heimsótt Sov-
étríkin án þess að koma heim aftur
stórhrifinn."
V erkamannaf élagið
semur við T. R.
Samningar hafa tekizt milli
Verkamannafélags Akureyrarkaup-
staðar og Tunnuverksmiðja ríkis-
ins.
Tímakaup verkamanna verður
kr. 10,47 í grunn og er það kr. 0,30
hærra en almenn vinna.
í*á fá verkamenn greitt fullt
kaup fyrir vinnutap, sem orsakast
af vélbilunum o. þ. 1. og standa allt
að tveim dögum.
Að öðru leyti gilda hinir al-
mennu samningar.
Til þessa hefur aðeins verið
greitt almennt kaup í verksmiðj-
unni og er því hér um nokkra
kjarabót að ræða.
Aðalfundur Sósíalista-
félags Akureyrar
Sósíalistaféálag Akureyrar held-
ur aðalfund sinn í Ásgarði sunnud.
8. þ. m. kl. 8.30 e. h. — Dagskrá
fundarins: Aalfundarstörf og bæj-
armál. Sósíalistar eru áminntir um
að fjölmenna á fundinn.
• 1111111111111111111111(1111111(111111 IIiiiii 1111111 iiiiiiiiiiiuiiii* .
I 1
NÝJA-BÍÓ
I Aðgöngumiðasala opin kl. 7-9. =
Sími 1285. f
Ncesta mynd:
Ernir hersins
| Stórfengleg bandaríks flug- 1
{ hernaðarmynd í litum. — f
f Gerð af Howard Hughes. f
I Kvikmynd þessi er tileink- f
f uð og gerð til heiðurs „US f
f Marine Corps“. Loftorr- f
f ustu- og hernaðarlýsingar f
f myndarinnar eru raun- f
f verulegar og voru teknar í |
f síðari heimsstyrjöld og f
{voru fengnar að láni úr f
f kvikmyndasafni Banda- f
ríkjahers.
Aðalhlutverk:
I JOHN WAYNE og
ROBERT RYAN.
Sunnudaginn kl. 3:
Smámyndasafn
(Teiknimyndir)
{ M. a. Flugið til tunglsins, f
f Gullna antílópan og fleiri f
i teiknimyndir með Donald f
f Duck, Pluto og kettinum f
og músinni.
I Ath. Jólasveinninn kemur f
f d sýninguna til að kveðja. f
íii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii1111111111111111111111111111111iiiii*
Aðalfundur V. A.
(Framhald af 1. síðu).
son, meðstjórnendur: Gunnar Að-
alsteinsson, Sverrir Georgsson. —
Varastjárn: Bjöm Gunnarsson,
Júlíus Davíðsson, Jóhannes Jós-
epsson. — T rúnaðarmarmaráð:
Haraldur Þorvaldsson, Rósberg
Snædal, Gestur Jóhannesson, Stef-
án Hólm Kristjánsson, Björgvin
Einarsson, Loftur Meldal, Olafur
Þórðarson, Sigurjón Jóhannesson,
Olafur Aðalsteinsson, Ágúst Ás-
grímsson, Þórður Valdimarsson og
Hallgrímur Vilhjálmsson, Aðalstr.
— Varamenn: Alfreð Steinþórs-
son, Jón Sigtryggsson, Þingv.str.,
Ingólfur Guðmundsson, Aðólf Da-
víðsson, Ingólfur Baldvinsson, Pét-
ur Þorvaldsson, Garðar Sigurjóns-
son, Gunnar Sigtryggsson, Stein-
grímur Davíðsson, Ingólfur Árna-
son, Hríseyjarg., Guðmundur
Baldvinsson og Árni J. Árnason.
Endurskoðendur vom kjörnir:
Sig. G. Sigurðsson og Ingólfur
Árnason, til vara Halldór B. Jóns-
son.
Eignir félagsins í húseignum og
sjóðum eru kr. 107,762,34. Árgjald
fyrir þetta ár var ákveðið kr.
150,00. Meðlimir félagsins eru nú
482 og hafði fjölgað um 69 á ár-
inu.
Hjónaefni. Á gamlaárskvöld op-
inberuðu trúlofun sína í Reykjavík
ungfrú Guðrún Briem hjúkrunar-
kona, Reykjavík, og Þráinn Þór-
hallsson, prentari, Akureyri. —
Á jóladag opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Björg Þórðardóttir, verzl-
unarmær, og Kristján Kristjáns-
son, prentari. — Ungfrú Edda Ei-
ríksdóttir, stúdent, og Rafn B.
Helgason, bifvélavirki, Ránargötu
2. — Ungfrú Sigurbjörg Andrés-
dóttir, Kambsmýri 6, og Guðm.
Kristinn Björnsson, Koté.
Lokun sölubúða. Frá 1. þ. m.
verur sölubúðum lokað kl. 1 (13)
á laugardögum og kl. 7 (19) á
föstudögum.
Brúðkaup. 18. des. voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Þor-
birna Jakobsdóttir og Marteinn
Tryggvi Sigurólason. — Heimili
þeirra verður að Gránufélags. 20.
— Á jóladag voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju ung-
frú Jónína Axelsdóttir og Bergþór
Arngrímsson. — Heimili þeirra
verður að Grímsstöðum í Glerár-
þorpi. — 30. des. voru gefin sam-
an í hjónaband ungfrú Ásdís Svan-
bergsdóttir og Magnús Þórisson.
— Heimili þeirra er að Hafnarstr.
,81. — 31. des. voru gefin saman í
hjónaband í Akureyrarkirkju ung-
frú Unnur Jósavinsdóttir og Berg-
vin Halldórsson. — Heimili þeirra
er að Skútum, Glerárþorpi. —
30. des. ungfrú Gunnlaug Björk
Þorláksdóttir og Magnús G. Jóns-
son, sjómaður. Heimili ungu hjón-
anna er að Þingvallastræti 36. —
31. des. ungfrú Guðrún Stefáns-
dóttir (læknis Guðnasonar) blaða-
kona og Baldur Jónsson, stud.
mag. Heimili þeirra er að Víðimel
49, Reykjavík. — Ennfremur hafa
verið gefin saman í hjónaband um
htáíðirnar: Ungfrú Valgerður Þóra
Valtýsdóttir og Haraldur Val-
steinsson, starfsmaður hjá Lands-
bankanum. Heimili þeirra er að
Fjólugötu 18. — Ungfrú Ragna
Bjarnadóttir og Olafur Einarsson,
stud. jur., Stangarholti 3, Rvík. —
Ungfrú Karítas Sigurbjörg Egg-
ertsdóttir Melstað og Sverrir
Ragnarsson, húsasmíðanemi, Borg-
arholtsbraut 13, Kópavogi. —
Ungfrú Svanfríður Jónasdóttir og
Jóhann Sigurðsson, rafvirkjanemi,
Bjarmastíg 3. — Ungfrú Salína
Margrét Jónasdóttir og Jón Sig-
urðsson, sjómaður, Strandgötu 49.
— Ungfrú Sjöfn Oskarsdóttir og
Njáll Friðrik Bergsson, Byrgi,
Glerárþorpi. — Ungfrú Margrét
Jóhannsdóttir og Helgi Sigurðsson,
bóndi, Brautarhóli, Svalbarðs-
strönd. — Ungfrú Rósa Svanfríður
Oddsdóttir og Geir Héðinn Svan-
bergsson, lögregluþjónn, Eikjuvog
26, Reykjavík. — Ungfrú Gunn-
þórunn Oddsdóttir og Páll Sigur-
laugur Jónsson, sjómaður, Strand-
götu 45.
- Alþjóðamálin
(Framhald af 3. síðu).
Ennfremur að herafli eða vopnað
lið Þjóðverja sjálfra í Vestur-
og Austur-Þýzkalandi yrði skorinn
niður að sama skapi. Því vísuðu
Vesturveldin algjörlega á bug.
Daginn eftir lagði Molotoff fram
nýjar tillögur í afvopmmarmálun-
um. Voru þær í aðalatriðum sam-
hljóða tillögum þeim, sem Bretar
og Frakkar báru fram snemma í
sumar og Bandaríkin höfu lýst
yfir að þau styddu. Meginatriðin,
samkvæmt þessum tillögum, voru
þau, að her Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna yrði minnkaður
niður í IV2 milljón, Frakklands og
Bretlands niður í 650 þús. og her
annarra ríkja niður í 150—200
þús. Og her Kína sennilega niður
IV2 milljón, en um það yrði að
semja við þau.
Vesturveldin höfnuðu þverlega
þessum tillögum og gengu þar með
frá sínum eigin tillögum.
(Niðurlag í nœsta blaði.)
yERKflnwDURinn
Útgefandi: Sósíalistafélag Akureyrar.
Ritnefnd: Björn Jónsson (áb.), Jakob Árnason, Einar Kristjánsson.
Afgreiðsla: Hafnarstræti 88. Sínti 1516. Pósthólf 21.
Áskriftarverð 40 krónur árg. Lausasöluverð 1. kr. eintakið.
Akureyri. — Prentverk Odds Björnssonar h.f.
í Beztu þakkir fceri ég Iðju, félagi verksmiðjufólks á f
% Akureyri, fyrir þann styrk, sem það veitti mér. Sérstak- f
* lega þakka ég formanni og stjórn félagsins og óska 4
© þeim og öllum félagsmönnum góðs og gleðilegs nýdrs T
* með beztu þökk fyrir liðin ár. t
í STEINMAR JÓHANNSSON. $
AÐALFUNDUR
Sósíalistafélags Akureyrar
verðnr haldinn í Ásgarði n. k. sunnudag, 8. janúar,
kl. 8.30 síðdegis.
DAGSKRÁ: '
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Bæjarmál.
Fjölmennið stundvislega.
STJÓRNIN.
Jólatrésfagnaður
fyrir börn
verður í ALÞÝÐUHÚSINU n. k. sunnudag, 8. þ. m.,
kl. 2 eftir hádegi.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna.
ARÐMIÐAR
úr brauðbúðum vorum og Kjörbúðinni frá
síðastliðnu ári, skilist fyrir 15. febrúar n. k.
í skrifstofu verksmiðjanna.
Kaupfélag Eyfirðinga
HAPPDRÆTTI D A S
Dregið verður 9. þ. m. um Chevrolet fólksbifreið
og mótorbát.
Munið að endurnýja.
UMBOÐSMAÐUR.
LÖGTAK
Eftir kröfu hreppsnefndar Glæsibæjarhrepps og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin fara fram
á kostnað gjaldenda en ábyrgð sveitarsjóðs fyrir van-
goldnum útsvörum og hreppsvegagjöldum til sveitar-
sjóðs gjaldföllnum 1954 og 1955 að 8 dögum liðnum
frá birtingu þessarar auglýsingar.
Skrifstofu Eyjafjarðarsýslu 29. des. 1955.