Verkamaðurinn - 24.08.1956, Side 1
AKUREYRINGAR!
VtRKIIITUIÐURintl
Með því að lesa Þjóðvilj-
ann fylgist þið bezt með
innlendum sem erlend-
um málum. — Áskrifta-
sími 1516.
XXXIX. árg.
Akureyri, föstudaginn 24. ágúst 1956
26. tbl.
Skriðmótin valda byltingu í
byggingariðnaðinum
Ekkert samkomulag uin Súez
Valdbeiting ólíkleg
Ný aðferS við að steypa hús
hefur að undanförnu verið reynd
í Reykjavík'og vakið mjög mikla
athygli, og það ekki að ástæðu-
lausu. Er hér um að ræða notk-
un svonefndra skriðmóta í stað
þess að slá upp steypumótum úr
trmbri, svo sem hingað til hefur
tíðkast við allar húsabyggingar
hérlendis.
Skriðmótin eru keypt hingað
frá Svíþjóð og munu vera sænsk
uppfinning, sem hefur verið not-
uð þar um nokkur ár. Það er
byggingafélagið Stapi 'h.f., sem
hefur keypt mótin hingað til
lands, og hefur þegar steypt í
þeim eitt hús fyrir Reykjavíkur-
bæ. Er það fjögurra hæða hús á
kjallara og tók fimm daga að
steypa það. Þá er gert ráð fyrir,
að mótin verði á næstunni notuð
til að steypa upp níu hæða stór-
hýsi, sem Byggingasamvinnufé-
lag prentara ætlar að reisa í
Reykjavík. Er gert ráð fyrir að
það taki ca. einn mánuð að
steypa það upp, en bygginga-
fróðir menn segja, að með venju
legri aðferð hefði það tekið fimm
ár. Má því öllum ljóst vera
hversu stórfellda framför hér er
um að ræða og mikinn sparnað á
byggingarkostnaði. Má í því sam
bandi benda á eftirtalin atriði:
1. Stytting byggingartímans og
og þar með vaxtasparnaður
o. fl.
2. Aukin gæði steinsteyptra
veggja, þar sem hvergi verða
steypuskil og engir vírar eða
teinar ganga í gegnum veggi,
3. áferð steypunnar verður því
sem næst sem um grófhúð-
aðan vegg væri að ræða og
múrhúðunar því eigi þörf,
nema að litlu leyti innan-
húss,
4. timbursparnaður, þar sem
mótatimbur á veggi sparast
að mestu. leyti, og þar af
leiðandi einnig gjaldeyris-
sparnaður.
Samkvæmt lýsingum sunnan-
blaða er gerð og notkun skrið-
móatnna í aðalatriðum á þessa
leið:
Skriðmót fyrir steinsteypu eru
smíðuð úr timbri eða stáli og eru
notuð til að steypa lóðrétta veggi.
Hæð mótanna er venjulega um 1
metri. Mótunum er haldið saman
með stálökum, og er 2—3 metra
bil milli oka. Okarnir eru sam-
byggðir við vökvalyftitæki, sem
„klifra“ upp eftir stálstöngum, og
draga mótin upp með sér. Klif-
urstengurnar standa á botnplötu
byggingarinnar og eru fram-
lengdar jafnóðum og mótin
hækka á styrktum veggjimum.
Hraða mótanna er stjórnað með
sjálfvirkri klukku, sem setur
vökvaþrýstidælu í gang 10—15
mínútna fresti, og lyftast þá mót-
in 2% sm. hverju sinni.
Um leið og mótin skríða upp
eru þau fyllt með steypu og
þannig haldið látlaust áfram unz
lokið er að steypa húsið. Venju-
legur byggingarhraði er 1 hæð á
sólarhring, veggir og loft. Glugg-
ar og hurðamót eru sett í mótin
um leið og veggir eru steyptir. —
Loftin eru steypt á venjulegan
hátt og hafa ásetu í þar til gerð-
um raufum í veggjunum. Þegar
skriðmótin eru komin upp fyrir
hæðaskil er byrjað að stilla upp
mótum fyrir loftið, og er það
síðan steypt samtímis veggjun-
um.
Að sjálfsögðu er mikill kostn-
aður við flutninga á mótunum og
við að koma þeim fyrir á hverj-
um stað, áður en sjálf steypan
hefst. Af þessu leiðir, að noktun
þeirra verður því hagkvæmari
sem húsin eru hærri,, og er ekki
ólíklegt að það hafi þau áhrif, að
farið verði að byggja hér hærri
hús en til þessa hafa tíðkast, og
er raunar ekki óeðlilegt að farið
sé út á þá braut, a. m. k. í
Reykjavík, svo víðáttumikil sem
hún er orðin. Og full ástæða er
fyrir okkur Akureyringa að
hugsa það mál vel, hvort ekki er
rétt að fara einnig hér að hugsa
um stærri byggingar í stað þess
að auka víðáttu bæjarins enda-
laust. í því sambandi verðum við
líka að gera ráð fyrir, að íbúum
bæjarins fari að fjölga, og það
kannski all verulega. Við getum
ekki og megum ekki álíta að
fólksstraumurinn til Reykjavík-
ur haldist endalaust. Við verðum
að vona, að sú óheillaþróun taki
senn enda og að bærinn okkar
vaxi og blómgist.
Hólastóll 850 ára
Síðastl. sunnudag var þess
minnst með veglegum hátíða-
höldum að Hólum í Hjaltadal, að
þá voru liðin 850 ár síðan þar
var settur biskupsstóll.
Mikill mannfjöldi safnaðist
„heim að Hólum“, til að vera við
hátíðahöldin, sem fóru virðulega
fram og öllum hlutaðeigendum
til sóma.
36 prestar voru á staðnum að
biskupi meðtöldum.
Hjúskapur. Laugardaginn 18.
ágúst voru gefin saman í hjóna-
band af sóknarprestinum í
Grundarþingum, ungfrú Helga
Árnadóttir hreppstj. Jóhannes-
sonar, Þverá, og Halldór Pálsson
skipasmiður. Heimili þeirra er í
Ytri-Njarðvík.
5 : 0
Akureyri - Reykjavík
Akureyringar og Reykvíkingar
hafa tvívgis í sumar háð bæja-
keppni í knattspyrnu og í bæði
skiptin hafa Akureyringar sigrað
glæsilega. Síðkfi leikurinn var
háður í Reykjavík sl. sunnudag
og sigruðu Akureyringar þá með
yfirburðum og settu 5 mörk gegn
engu. Fyrri leikui'inn var háður
hér á Akureyri snemma í sumar
og lauk honum 4 : 1 fyrir Akur-
eyringa. Verður því ekki sagt að
Reykvíkingar hafi riðið feitum
hesti frá knattspyrnukeppninni
við Akureyringa á þessu sumri.
Því miður hefur Akureyrarlið-
ið ekki orðið jafn sigursælt í
keppnum við einstök félög á ís-
landsmótinu. Hefur það þegar
lokið öllum leikjum sínum á
mótinu, en aðeins unnið einn.
Nokkrir leikir mótsins eru enn
eftir og því ekki útséð, hvort lið-
ið heldur sæti sínu í 1. deild, en
vonandi verður það, enda ekki
vafi, að liðið er það sterkt, að
það á skihð sæti þar. Óheppni
liðsins í einstökum leikjum
mótsins má vafalaust rekja til
þess að leikmenn hafa oft verið
illa undir leikina búnir, jafnvel
farið beint úr flugvélinni í
keppnina. Má ætla, að útkoman
hefði orðið önnur, ef einhverjir
leikjanna hefðu farið fram á
heimavelli.
Nú í vikunni gaf forseti ís-
lands, að tilhlutan félagsmála- I
ráðherra, Hannibals Valdimars-
sonar, út bráðabirgðalög um
bann við því að nota íbúðarhús-
næði eða hús, sem teiknuð hafa
verið sem íbúðarhús, til annars
en íbúðar.
Fer hér á eftir fréttatilkynning
félagsmálaráðuneytisins um þetta
mál; gefin út s.l. þriðjudag:
„Að tilhlutan félagsmálaráðu-
neytisins hefur forseti íslands í
dag gefið út bráðabirgðalög um
afnot íbúðarhúsnæðis:
í þessum bráðabirgðalögum er
lagt bann við því að nota íbúðar-
húsnæði í kaupstöðum til annars
en íbúðar, en íbúðarhúsnæði
telzt það húsnæði, sem við gild-
istöku laganna er notað til íbúðar
og er íbúðarhæft án verulegra
endurbóta, svo og húsnæði, sem
ætlað er til íbúðar samkvæmt
Að undanförnu hefur staðið
yfir í Lundúnum ráðstefna 22
ríkja til að ræða, hvert skuli
verða í framtíðinni rekstrarfyr-
irkomulag Súezskurðarins, en
miklar deilur hafa staðið um það
síðan Egyptar þjóðnýttu rekstur
hans á dögunum. — Ekkert sam-
komulag náðizt á ráðstefnu þess
ari, en taldar eru minnkandi lík-
ur fyrir valdbeitingu gegn
Egyptum af hálfu Breta og
Frakka, en þeir hafa látið all-
ófriðlega að undanförnu, heldur
er gert ráð fyrir að reynt verði
að ná einhverju samkomulagi,
hvenær sem það kann að verða
og hvernig.
Biskup Íslands boðinn
til Finniands og Sovét-
rikjanna
Biskupi Islands, herra Ásmundi
Guðmundssyni hefur verið boðið
til Finnlands og Sovétríkjanna.
Erkibiskup Finnlands hefur
boðið biskupshjónunum til Finn-
lands 9. næsta mánaðar til að
vera við stofnun og vígslu nýs
biskupsembættis í Finnlandi.
Þá hefur patríarkinn í Moskva
boðið þeim að dvelja hálfan
mánuð í Sovétríkjunum til þess
að kynnast kirkjumálum og
\
menningarlífi þar í landi.
teikningu hlutaðeigandi húss og
hefur ekki verið tekið til ann-
arra afnota við gildistöku lag-
anna. Þá leggja lögin einnig bann
við því að halda ónotuðu íbúðar-
húsnæði, sem kostur er á að
leigja.
Brot gegn fi'amangreindum
ákvæðum varða 10.000.00 til
1.000.000.00 króna sektum, er
renna í varasjóð hins almenna
veðlánakerfis til aðstoðar við
húsbyggingar samkv. lögum nr.
55, 20. maí 1955, en eftirlit með
því að ákvæðum laganna sé fylgt
er í höndum húsnæðismála-
sjtórnar.
Félagsmálaráðherra er heim-
ilt að veita einstökqm kaupstöð-
um undanlþágu frá ákvæðum
þessara laga, enda liggi fyrir um-
sókn um það frá hlutaðeigandi
bæjarstjóra og ekki sé þar um að
ræða skort á íbúðarhúsnæði.
Tvennar tillögur komu einkum
til álita á Lundúnaráðstefnunni.
Tillaga frá vesturveldunum þess
efnis, að alþjóðleg nefnd taki við
stjórn skurðarins af hinu þjóð-
nýtta Súezskurðarfélagi, og til-
laga frá Indlandi á þá lund, að
alþjóðleg nefnd verði hinu
egypska félagi til ráðuneytis í
sambandi við rekstur skurðarins.
Tillaga vesturveldanna átti
meirihlutafylgi að fagna, en til-
laga Indlands var studd af Indó-
nesíu, Ceylon og Sovétríkjunum.
Allar umræður um framtíð
skurðarins virðast nú orðið snú-
ast um stjórn hans, en svo er að
sjá, sem engum þyki lengur fært
að berjast gegn því, að megin-
hluti hagnaðar af rekstrinum
renni til Egypta.
Stundaskrá sundnám-
skeiðs barnaskólanna
alla virka daga vikunnar.
Kl. 8,30—9: 5. bekkur, 14.
stofu, 5. bekkur 2. stofu (dreng-
ir) og 6. bekkur.
Kl. 9,05—9,35: 5. bekkur, 13.
stofu, 5. bekkur, 2. stofu (stúlk-
ur), og Glerárþorp.
Kl. 9,40—10,10: 5. bekkur, 16.
stofu, og 4 .bekkur 6, stofu.
Kl. 10,15—10,45: 5. bekkur, 3.
stofu, og 4. bekkur, 11. stofu.
Kl. 10,50—11,20: 4. bekkur, 7.
stofu, og 4. bekkur, 1. stofu.
Kl. 11,25—11,45: 4. bekkur, 8.
stofu, og 4. bekkur, 18. stofu.
Síðdegis:
Kl. 1—1,30: 5. bekkur, 14.
stofu, 5. bekkur, 2. stofu (dreng-
ir), og 6. bekkur.
Kl. 1,35—2,15: 5. bekkur, 13.
stcnfu, 5. bekkur, 2. stofu (stúlk-
ur), og Glerárþorp.
Kl. 2,30—3,10: 5. bekkur, 16.
stofu, og 4. bekkur, 6. stofu.
Kl. 3,15—3,45: 5. bekkur, 3.
stofu, og 4 .bekkur, 11. stofu.
Kl. 3,50—4,20: 4. bekkur, 7.
stofu, og 4. bekkur, 1. stofu.
Kl. 4,25—4,55: 4. bekkur, 8.
stofu, og 4. bekkur, 18. stofu.
Ekkert námskeið síðdegis á
laugai'dag.
Togari tekinn í
landhelgi
Varðskipið Þór tók í fyrra-
kvöld enskan togara í landhelgi,
0.4 sjómílur innan fiskveiðitak-
markanna út af Gerpi. Togarinn
heitir Sisapon og er frá Grims-
iby. Farið var með togarann til
Seyðisfjarðar, og var skipstjórinn
dæmdur í gær í 74.000 kr. sekt,
en afli og veiðarfæri upptæk.
Togarinn var með 700 kit af
fiski er hann var tekinn.
Bráðabirgðalög um bann við
notkun íbúðarhúsnæðis til
annars en íbúðar