Verkamaðurinn - 21.09.1956, Page 3
Föstudaginn 21. sept. 1956
VERKAMAÐURINN
S
Jarðarför litla drengsins okkar,
4 SIGTBYGGS,
er andaðist þann 17. þ. m., er ákveðin þriðjudaginn 25. sept.
kl. 2 e. h. frá Akureyrarkirkju.
Jóhanna Jóhannsdóttir,
Sigtryggur Júliusson.
SAUMASTOFA GEFJUNAR
Ráðhústorgi 7. — Akureyri.
Sími 1347.*
SAUMASTOFA GEFJUNAR
er stærsta fataverzlun landsins, utan
Reykjavíkur.
Höfum úrval af Karlmannafötum, saumuðum
eftir nýjustu amerískum sniðum, úr fjölbreytt-
um efnum og litum.
SKÓLAFÓLK!
Reynslan hefur sannað, að sterkustu, beztu og
ódýrustu skólafötin eru frá
SAUMASTOFU GEFJUNAR
BROTABROT
Ríkisstjómin hefur nú nýverið
gert samninga við Sovétríkin um
sölu á 5000 tonnum af frystum
karfa þangað til viðbótar áður
gerðum samningum, sem hljóð-
uðu upp á 20.000 tonna sölu á
árinu, en þeir samningar höfðu
þegar verið uppfylltir 6g karfa-
birgðir hafa að undanfömu safn-
ast fyrir í frystihúsunum.
Þá er komin til Reykjavíkur
viðskiptanefnd, er ganga skal frá
samningum um viðskipti íslands
og Sovétríkjanna á næsta ári.
Fyrsta sending af mænusóttar-
bóluefni, hinu svonefnda Salk-
bóluefni, er nú komin til lands-
ins og dreifing þess um landið að
hefjast. Ætlunin er, að fyrst
verði bólusett börn á aldrinum
7—12 ára, þ. e. barnaskólaaldri.
Sjálft bóluefnið, sem er mjög
dýrt, verður greitt af ríkissjóði.
ETkki hefur enn fengizt til lands-
ins svo mikið magn af bóluefni
að hægt sé að bólusetja alla, sem
þess kunna að óska, að svo
stöddu.
Auglýsið í Verkamanninum
Kaupið Verkamanninn
V.A.C.
Vinnufatnaður
! VtjRUHÚSIÐ H.F.
NÝMALAÐ
RÚGMJÖL
Verð kr. 2.80 pr. kg.
Iðja, félag verksmiðjufólks, Akureyri
Fulltrúakjör á 25. þing
Alþýðusambands íslands
Hér með er auglýst eftir listum til fulltrúakjörs á 25.
jring Alþýðnsambands Islands.
Listarnir skulu skipaðir nöfnum fjögurra aðalmanna
og fjögurra varamanna. Þá skulu og fylgja listunum
meðmæli 40 fullgildra félagsmanna.
Framboðslistum skal skila til formanns íélagsins, jóns
Ingimarssonar eigi síðar en kl. 22.00 miðvikudaginn
2(). þessa mánaðar.
Stjórn Iðju - félags verksmiðjufólks.
Frá Barnaskóla Akureyrar
Skólinn verður settur þriðjudaginn 2. október, kl. 5
síðdegis í Akureyrarkirkju. Rörnin mæti við skólann
15 mínútum fyrir kl. 5.
Allir foreldrar eru velkomnir.
Skólaskyld börn, sem fluit hafa til bæjarins í sumar
og ekki ltafa þegar verið skráð, mæti í skólanum laugar-
daginn 29. sept., kl. 1 síðdegis, og hafi þá með sér ein-
kunnir frá síðasta vorprófi.
Börn rnæti til læknisskoðunar sem hér segir:
Miðvikudaginn 26. sept. mæti allur 4. bekkur.
Fimmtudaginn 27. sept. mæti allur 5. bekkur.
Föstudaginn 28. sept. mæti allur 6. bekkur.
Drengir mæti alla dagana kl. 1 síðdegis, en stúlkur
alla daga kl. 3 síðdegis.
HANNES J. MAGNÚSSON.
Geymið þessa auglýsingu!
ORÐSENDING
til verkamanna og vinnuveitenda
Að marggefnu tilefni vill Verkamannafélag Akur-
eyrarkaupstaðar vekja athygli á því, að samkvæmt lög-
um og reglugerð um orlof, skal orlof tímavinnufólks allt-
af greitt með orlofsmerkjum en ekki í peningum, og
liggja viðurlög við, ef út af er brugðið. Væntir Verka-
mannafélagið þess, að verkamenn gangi ríkt eftir, að
fylgt sé settum reglum í þessu efni, og tilkynni skrifstofu
verkalýðsfélaganna, ef út af er brugðið.
Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar
Frá kartöflugeymslum bæjarins
Kartöflugeymslan í Grófargili verðuropnuð þriðjudag-
inn 25. þ. m. og verður opin framvegis á þriðjudögum
og föstudögum kl. 5—7.
Rangárvallageymslan verður opin kl. 4—7 fimmtudag-
inn 27. þ. m. og fimmtud. 4 okt. á sama tíma, til mót-
töku á útsæði og matarkartöflum til sumarsins.
Kartöflugeymslan í Slökkvistöðinni verður ekki starf-
rækt, nema minnst 50 heimili óski eftir að fá geymslu
þar. Pöntunum á geymsluplássi í Slökkvistöðinni veitt
móttaka í síma 2434. — Síðar verður auglýst um opnun
hennar, ef til kemur.
Þeir, sem ekki hafa greitt leigugjöld fyrir 30. þ. m.,
tapa réttindum ril kartöflukassanna.
GARÐYRKJURÁDUNAUTUR.