Verkamaðurinn - 10.01.1958, Side 1
VERKHlflÐURinn
KOSNIN G ASK RIFSTO FA
ALÞÝÐUBANDALAGSINS
er í Ásgarði, Hafnarsræti
88. - Sími 2497.
XLI. árg.
Akureyri, föstudaginn 10. janúar 1958
1. tbl.
Opin kl. 2-7 og 8.30-10. -
Togararnir landa hér og vinna helst í fryslihúsinu
fyrir atbeina og tillögur Tryggva Helgasonar og vinsamlega fyrirgreiðslu
Lúðvíks Jósefssonar, sjávarutvegsmálaráðherra
Síðustu vikur og mánuði hafa togarar Utgerðarfélags Ak-
ureyringa h.f. siglt með afla sinn til sölu óverkaðan á erlend-
um markaði og öll vinna hjá félaginu hér á Akureyri legið
niðri, frystihúsið nýja staðið ónotað og verkafólkið atvinnu-
laust. — Nú ertt horfur á, að breyting verði á þessu fyrir at-
beina fulltrúa sósíalista í stjóm Utgerðarfélagsins og vinsam-
lega aðstoð sjávarútvegsmálaráðherra.
FRYSTIHÚSIÐ.
Það þarf ekki að rekja það
fyrir Akureyringum, hverjar von
ir voru bundnar við hraðfrysti-
húsið um vaxandi atvinnu í
bænum og þar með betri afkomu
almennings og um leið útgerðar-
innar og bæjarfélagsins.
En þrátt fyrir allar þær björtu
vonir bar fljótt skugga á snemma
á þessum vetri, þegar Útgerðar-
félagið ákvað að láta togarana
hefja siglingar og flutti þannig
atvinnima burtu úr bænum. Það
var skiljanlegt, að hver togari
væri látinn sigla eina ferð til að
afla nauðsynlegra varahluta og
veiðarfæra á hagstæðara verði en
hér heima, en flestum mun hafa
verið með öllu óskiljanlegt, að
ástæða væri til að láta þá sigla
meira eða hagstætt fyrir rekstur-
inn. Hefur það áður verið rakið
hér í blaðinu, en á það má benda,
að stjórn Útgerðarfélagsins mun
sjálf hafa reiknað það út, að
reikna megi með hagnaði af
rekstri frystihússins, allt að 3%
millj. kr. á ári, ef þar sé unninn
mestur hluti af afla togaranna
árið um kring. Hins vegar kostar
það félagið a. m. k. 4000.00 á dag
að láta frystihúsið standa ónotað,
eða 120 þús. á mánuði.
Hvert tap það er bæjarfélaginu
í heild og þeim einstaklingum,
sem hjá félaginu vinna, að at-
vinnan sé lögð niður eða flutt til
annarra landa, getur hver og
einn reynt að reikna út sjálfur,
en það eru stórar upphæðir.
Rannsóknarnefndin
lýkur störfum
Nefnd sú, sem skipuð var á sl.
hausti til að rannsaka rekstur
Útgerðarfélagsins, er nú að ljúka
störfum. Tryggvi Helgason, sem
er einn nefndarmanna tjáði blað-
inu í gærkvöldi, að allar líkur
væru til að hún myndi skila áliti
sínu í dag til stjórnar Útgerðar-
félagsinns. Mun margan fýsa að
kynnast því, hvað sú skýrsla hef-
ur að flytja, en nefndarmenn
hafa til þessa ekki viljað láta
hafa neitt eftir sér. Fullvíst mun
þó, að þar muni ýmislegt ein-
kennilegt koma í ljós, sem al-
menningur hefur ekki áðúr vitað
eða ekki viljað trúa.
SIGLINGUNUM HÆTT.
Á fundi í stjóm Útgerðarfé-
lagsins í þessarri viku bar
Tryggvi Helgason frain þá til-
lögu, að leitað yrði aðstoðar
ríkisvaldsins til að gera það
fært, að skipin legðu upp hér
heima og aflinn yrði unninn í
frystihúsinu. Jafnframt lagði
hann til, að leitað yrði eftir því
við bæjarfélagið, að lánaði eða
ábyrgðist lán annars staðar frá
til Útgerðaríélagsins, sem svar
aði þeim hluta aflaverðmætis
úr hverri veiðiferð, sem bank-
arnir ekki lána út á, en þeir
lána sem næst út á 2/3 af afla-
verðmæti hverrar veiðiferðar.
Bærinn skyldi að sjálfsögðu
hafa veð í aflanum fyrir láni
sínu eða ábyrgð.
Tryggvi tók að sér að ræða
þetta mál við sjávarútvegsmála-
ráðherra og veitti hann félaginu
þegar verulega fyrirgreiðslu, eða
svo að nægja mun til að unnt
verði að halda skipunum gang-
andi eitthvað fyrst um sinn, a. m.
k. ef bærinn hleypur undir bagga
eins og gert var ráð fyrir í til-
lögu Tryggva og ætla má að sam-
þykkt verði, þar sem það á að
vera með öllu áhættulaust fyrir
bæinn. Þeim peningum er ekki
kastað beint og tryggingalaust til
félagsins, eins og verið hefur um
framlög bæjarins að undanförnu,
sem látin hafa verið trygginga-
laust með öllu.
LANDANIR HEFJAST.
Landanir hér heima eru nú
þegar hafnar og tryggt á framan-
greindan hátt, að skipin komist
aftur á veiðar. Svalbakur kom í
gær og hófst þá vinna í frysti-
húsinu. Kaldbakur og Sléttbakur
eru á veiðum og munu báðir
landa hér.
FRAMTÍÐIN.
Þetta er þó engin lausn á vanda
Útgerðarfélagsins, heldur aðeins
bráðabirgðaráðstöfun til að halda
skipunum gangandi og atvinn-
unni í bænum. En þann tíma,
sem gefst á meðan þetta gengur,
verður að nota til þess að taka
ákvarðanir um rekstrarafkomu
togaraútgerðarinnar hér í bæ í
framtíðinni og gera upp skulda-
súpuna og óreiðusukkið hjá Út-
gerðarfélaginu.
Um rekstrarafkomu útgerð-
arinnar ber að vona, að sam-
komulag náist milli vinstri
flokkanna, sem nú eiga í samn-
ingum sín í milli um stjóm
bæjarfélagsins næsta kjörtíma-
bil. Það er skoðun Alþýðu-
bandalagsins, að bæjarútgerð
eigi að koma hér. Segja beri
upp flestum þeim, sem nú
stjóma rekstri Útgerðarfélags-
ins, gera upp skuldasúpuna og
fá þar hreint borð, síðan yfir-
taki bærinn allar eignir félags-
ins og fari í því þá leið, sem
Það mun hafa verið Sósíalista-
flokkurinn, sem fyrst hreyfði því
í bæjarmálastefnuskrá sinni, að
nauðsynlegt væri, bæði vegna
togaraútgerðaiúnnar og atvinnu-
lífsins í bænum, að byggð yrði
hér dráttarbraut sem tekið gæti
upp togara og önnur skip af líkri
stærð. Þessi hugmynd hlaut fljótt
góðen byr meðal bæjarbúa og
munu nú allir flokkar telja sig
málinu fylgjandi, a. m. k. í orði
kveðnu, meira að segja er helzt
að skilja af skrifum íslendings nú
í vetur, að engir séu eða hafi-
verið duglegri baráttumenn í
þessu máíi heldur en Sjálfstæðis-
flokkurinn og fyrrverandi þing-
maður hans.
Staðreyndir málsins eru þó
þær, að ekkert jákvætt var að-
hafst í dráttarbrautarmálinu
fyrr en snemma á sl. ári, er
bæjarstjóm ákvað, að frum-
kvæði Bjöms Jónssonar, að
áætla % millj. kr. framlag
til brautarinnar úr Fram-
kvæmdasjóði. Næst gerðist svo
það, að Bjöm Jónsson og Frið-
jón Skarphéðinsson fluttu við
afgreiðslu fjárlaga tillögu um
ríkisframlag og var samþykkt
dómbærir menn telja léttasta
fjárhagslega fyrir bæjarfélagið
og skattþegnana. Ráðnir verði
tveir vel færir framkvæmda-
stjórar til að veita bæjarútgerð
inni forstöðu og þeir ráði síðan
annað starfsfólk fyrirtækisins.
Sérstakt útgerðarráð verði sett,
sem verði í öllu ábyrgt gagn-
vart bæjarstjóm og geri henni
fært að fylgjast vel með rekstr
inum.
Núverandi rekstrarform hefur
reynzt óheppilegt og þess vegna
verður að breyta um og reyna
aðrar leiðir. Því, sem illa hefur
reynzt, ber að fleygja fyrir borð
og reyna annað nýtt.
við 3. umræðu f járlaga að veita
200 þús. til brautarinnar.
Með þessarri fjárveitingu var
hálfur sigur unninn, er Alþingi
hafði viðurkennt þessa fyrirhug-
uðu framkvæmd, enda fékkst og
um sama leyti viðurkenning vita
málaskrifstofunnar fyrir því að
dráttarbrautin hér væri meðal
þeirra verkefna, sem framkvæma
þyrfti á næstu 1—3 árum.
Á fjárlögum fyrir yfirstandandi
ár fékkst enn jafn mikið framlag
ákveðið og sl. ár, að sjálfsögðu á
þeim grundvelli, að Akureyrar-
bær legði líka eitthvað til fram-
gangs málinu. Kemur það því
nokkuð á óvænt, að við fyrstu
gerð fjárhagsáætlunar þessa árs,
er ekkert framlag ráðgert til
dráttarbrautarinnar, en því verð
ur þó naumast trúað, að ekki
reynist meirihluti fyrir því í bæj-
arstjórn, við lokaafgreiðslu
áætlunarinnar, að Framkvæmda-
sjóður ætli henni nokkurn stuðn-
ing.
A þessu ári ætti handbært fé
til þessarrar nauðsynlegu fram
kvæmdar, að upphæð ca. lVz
milljón, að vera fyrir hendi. —
-Framhald á 6. síðu.)
FRAMBOÐSLISTI
Alþýðubandalagsins
á Akureyri
við bæjarstj ómarkosningarn-
ar 26. janúar 1958
Bjöm Jónsson, alþingismaður, .
form. Verkamfél. Ak.kaupst.
Jón B. Rögnvaldsson, bílstjóri,
form. Fulltrúar. verkalýðsfél.
Jón Ingimarsson, starfsm. verka-
lýðsfél., form. Iðju, fél. verk-
smiðjufólks.
Þorstehm Jónatansson, ritstjóri,
varaform. Verkamannafél. Ak.
Tryggvi Helgason, form. Sjó-
mannafél. Akureyrar.
Guðrún Guðvarðardóttir, frú,
ritari Einingar.
Baldur Svanlaugsson, bifreiða-
smiður.
Gunnar Óskarsson, byggingam.
Jóhann Indriðason, jámsmiður,
form. Sveinafél. járniðnaðarm.
Hjörleifur Hafliðason, iðnverkam
gjaldk. Iðju fél. verksmiólks.
Ólafiur Daníelsson, sjómaður, rit-
ari Sjómannafélags Akureyrar.
Hannes Jóhannsson, verkamaður.
Sverrir Georgsson, verkamaður.
Haraldur Bogason, bílstj., ritari
vörubílstjórafél. Vals.
Jón Hafsteinn Jónsson, meimta-
skólakennari.
Svanlaugur Ólafsson, bifvélavirki
Ingólfur Ámason, rafveitustjóri.
Jóhannes Hermundarson, trésm.,
form. Trésmiðafél. Akureyrar.
Margrét Magnúsdóttir, frú, vara-
form. Einingar.
Rósberg G. Snædal, rithöfundur,
ritari Verkamf. Ak.kaupstaðar.
Stefán Bjarman, framkvæmdastj.
Elísabet Eiríksdóttir, kennari,
form. Einingar.
Aðalfundur Æ.F.A.
Aðalfimdur Æskulýðsfylking-
arinnar á Akureyri verður
haldinn næstkomandi sunnu-
dag, 12. janúar, kL 2 e. h. í
Verkalýðshúsinu. Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf. Þór-
ir Daníelsson talar um stjóra-
málaviðhorfið. Erindreki frá
Æ. F. mætir á fundinum. Allir
félagar fylkingarinnar eru
hvattir til að mæta og taka
með sér nýja meðlimi.
Kvenfél. Hlíf heldur fund
mánud. 13. jan. n.k. kl. 9 e. h. í
Varðborg. — Dagskrá: Kösning
nefnda. Onnur máL Skemmti-
atriði. Konur taki með sér kaffi.
Stjómin. ..
LANDSBUKASAFN
221743
ÍSLANDS
ALLIR ÞEIR,
sem vinna vilja að kosningaundirbúningnum
fyrir Alþýðubandalagið eru beðnir að mæta í
Ásgarði, Hafnarstræti 88, í kvöld kl. 8.30.
ALÞÝÐUBANDALÁGIÐ.
Bygging dráftarbrautar fyrir tog-
ara þarf að hefjast á þessu ári