Verkamaðurinn - 03.10.1958, Blaðsíða 4
4
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 3. október 1958
Er fímabært að fluorbæta
drykkjarvatn Akureyrarbæjar
Talið að það geti stórminnkað tannskemmdir
Asgeir Valdimarsson, bæjarverkfræðingur hefur fyrir
nokkru sent bæjarráði athyglisvert erindi varðandi fluorbæt-
ingu drykkjarvatns. Er erindi þetta nú til athugunar hjá
heilbrigðisnefnd. Greinargerð sú, sem erindinu fylgdi fer
hér á eftir:
Erindi þetta er tilkomið vegna
gagna þeirra er mér hafa borist í
hendur um reynslu Bandaríkja-
manna á fluorbættu drykkjar-
vatni til varnar tannskemmdum
barna og unglinga. Upplýsingar
þessar eru í 17 bæklingum á
ensku, sem fylgja þessu erindi.
Leyfi ég mér að vitna í bæk-
linga þessa, en þeir eru flestir
gefnir út af heilbrigðisyfirvöld-
um Bandaríkjanna eða einstakra
ríkja þeirra.
í skýrslu um fluorbætingu,
sem heilbrigðisyfirvöld New
York borgar létu gera og er 50
síður á lengd segir m.a. að tann-
skemmdir séu nú algengasti sjúk
dómur mannsins, 80% af bömum
yfir 6 ára, hafa skemmdar tenn-
ur og um 95% af fullorðnu fólki.
Fyrstu kynni af áhrifum þeim
er fluor í vatni hefir á tannskemd
ir voru athuganir vísindamanna
á drykkjarvatni á þeim stöðum í
Bandaríkjunum er tannskemmd-
ir voru langt fyrir neðan meðal-
lag. Kom þá í ljós að fluorinni-
hald drykkjarvatns þeirra staða
var margfallt meira en annars-
staðar.
Var þá farið að gera rannsókn
ir á hópum barna og unglinga
með breytilegu magni af fluor í
drykkjarvatni og kom í ljós að
með því að hafa um 1 mg. af
fluor í vatninu minnkuðu tann-
skemmdir um 60% frá því sem
áður var og hefti einnig tann-
skemmdir xmglinga til muna
strax og þeir fóru að neyta fluor-
bætts vatns.
Spurningunni hvort ekki sé
hættulegt að bæta fluor í drykkj
arvatnið, svara heilbrigðisyfir-
völdin algjörlega neitandi og
benda á að hið æskilega magn sé
einungis 1,0 mg. en víða séu um
5—8 mg. af fluor í drykkjarvatni
Bandaríkjamanna, án þess þó að
fundist hafi að heilsu manna
--------------------------j----
- Hjá Enskum
(Framhald af 1. síðu.)
um á komandi vetri, og það
kannski stundum þegar verst eru
veður. Hvað verður gert við þá?
Og það eiga líka margir eftir að
veikjast og slasast um borð í tog-
urunum í vetur. Hvað verður
gert við þá? Ætla Bretar að láta
þá kveljast og jafnvel farast af
illri meðferð, eða kannski þeir
sendi spítalaskip á miðin? Þá fer
útgerðin að verða dýr.
En hvað sem öðru líður, er
hætt við að enskir sjómenn verði
ekki gráðugir í að ráða sig á
skip, sem fiska á íslandsmiðum
við þær aðstæður, sem nú eru og
framundan eru. Þeir hafa ekki
orðið feitir af hlutnum sínum
undanfarið og öryggisleysið mun
ekki hvetja þá. Útgerðin verður
líka dýr fyrir skipafélögin, jafn-
vel þó að herskipin komi í veg
fyrir að greiða þurfi landhelgis-
sektir. Ætli ástandið verði ekki
smáskrítið hjá sumum togurun-
um, þegar kemur fram á þorr-
ann.
væri spillt nema síður væri, þar
sem rannsókn á dauðsföllum í
32 borgum í 16 ríkjum í Banda-
ríkjunum, helmingnum fluor-
snauðum, helmingnum fluorauð-
ugt, sýndi að dauðsföll urðu
færri af hjartasjúkdómum,
krabba o. fl. sjúkdómum í þeim
borgum, sem höfðu fluorauðugt
drykkjarvatn.
Rannsóknir sýna einnig að
fluorbætt vatn hefir engin skað-
leg áhrif á iðnað af neinu tagi.
Ástæðan til þess að farið var að
bæta fluor í drykkjarvatn var
sú að þar fór hvorttveggja saman,
ódýrasta aðferðin og trygging
fyrir því að lækningin yrði al-
menn. Aðrar leiðir, töflur, fluor í
vatns- eða mjólkurflöskum hefðu
orðið dýrari og notkun ekki eins
almenn.
í skýrslu frá heilbrigðisstjórn
Bandaríkjanna sést að árið 1949
neittu um 2 milljónir manna flu-
orbætts vatns en um 33 milljónir
árið 1956.
í bæklingi eftir F.J. Maier er
talað um efni þau sem nota má
til fluorbætingar og er þar helst
notað sodium silicofluoride, sem
er úrgangsefni frá fosfat áburði.
Einnig er þar rætt um áhöld
þau, sem blanda fluorinu í vatn-
ið og talið betra að þynna efnið
út í sérstöku keri með vatni áð-
ur en það fer inn í vatnskerfi
smærri bæja.
í bæklingi um tæknilega út-
færslu á fluorbætingu vatns eftir
F. J. Maier, er þess getið að
ódýrast og bezt sé að eiga við
óhreinsað vatn (lindarvatn). Þar
er áhöldum lýst þannig að telja
má víst að uppsetningarkostn-
aður sé sáralítill.
Rekstrarkostnaður er í flestum
bæklingunum talinn vera um 10
cent á íbúa á ári (frá 5—18 cent).
Með hliðsjón af þeim stuttu til
vitnunum, sem hér að framan
greinir og betur má sjá við lestur
sjálfra bæklinganna og hina öru
útbreiðslu fluorbætts vatns í
Bandaríkjunum er augljóst að
hér er um mál að ræða, sem
miklu varðar allan almenning,
mál sem heilbrigðisyfirvöld ættu
að láta sig varða eigi síður en al-
menna bólusetningu.
Fluorinnihald vatns er mjög
misjafnt hér á landi. Skv. rann-
sóknum Atvinnudeildar Háskól-
ans er fluorinnihald drykkjar-
vatns Akureyrarbæjar aðeins
o,15 mg. eða 0,85 mg. minna en
æskilegt væri. Hveravatn mun
hafa mun meira fluor en vatn á
Vestfjörðum hvað minnst.
Óþarfi mun vera að spyrja
þeirrar spurningar hvort það
borgi sig fyrir bæjarbúa að fluor
bæta vatn sitt en þó skal það
reynt.
Gerum ráð fyrir að helmingur
bæjarbúa láti gera við eina tönn
á ári, sem mun vera vægt reikn-
að og borgi fyrir það 100 kr á
tönn, en það verða 4000 x 100 =
400.000 kr. segi og skrifa 400.000.
Gerum ráð fyrir að tann-
skemmdir minnkuðu um þó ekki
væri meira en þriðjung þ.a.s. um
ca. 120.000 kr. en fyrir það þyrftu
bæjarbúar að borga reksturs-
kostnað fluorbætingar, sem upp-
gefin er í Bandaríkjunum um 10
cent á íbúa þ.e.a.s. hátt reiknað
hér á kr. 3.00 á íbúa þ.e.a.s.
24.000 kr. þá yröi ágóðinn í vasa
bæjarbúa um 95.000 kr. á ári.
reiknaðir eru síðan sársauki, van
líðan og vinnutap. Og hver reikn
ar út ágóða af lýsisgjöf og ljós-
lækningum barnaskólanna sem
eru svo sjálfsögð.
Lýk ég svo greinargerð þessari
með þeirri von að heilbrigðisyf-
irvöld landsins gefi leyfi sitt til
að drykkjarvatn bæjarins verði
fluorbætt, þar sem ganga má að
því vísu að bæjaryfirvöldin sam-
þykki fyrir sitt leyti að láta
börnum og unglingum í té þessa
ódýru og sjálfsögðu lækningu.
Meira en 2000 börn og ungmenni
í skólum á Akureyri
Skólarnir eru nú teknir til
starfa og á hverjum degi ganga
nú á þriðja þúsund börn og ung-
menni með töskur sínar í skólana
hér á Akureyri. Svo er talið, að
um það bil sjötti hver íslending-
ur stundi skólanám á vetrum í
hinum ýmsu skólum þjóðarinn-
ar. Hér mun hlutfallið tiltölulega
KAUPTAXTI
Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar frá 1. okt. 1958.
Fyrir drengi 14—16 ára. 9.28 17.17 25.75 34.34
Ef drengir vinna kola-, salt eða
sementsvinnu eða við af-
greiðslu togara, greiðist þeim
kaup sem fullorðnum.
Almenn vinna
11.81 21.85 32.77 43.70
Fyrir verkamenn í fagvinnu (tré-
smíði, bifvélaviðgerðir, blikk-
smíði, rafvirkjun, pípulagning-
ar og málaravinnu, þar með
tahn málun og ryðhreinsun
bíla), steypuvinnu við að
steypa upp hús og hhðstæð
mannvirki, handlöngun hjá
múrurum ,hjálparvinna í járn-
iðnaði, vélgæzlu á loftpressum,
hreinsun benzín- og olíugeyma
að innan, ryðhreinsun með
handverkfærum, vinna á smur
stöðvum og útskipun á ís,
vinnu í grjótnámi, holræsa-
hreinsun, sorphreinsun, hellu-
lagning og kantlagning............ 12.06 22.31
Fyrir stúfun á fylltum tunnum í
lest, vinnu við loftþrýstitæki,
vélgæzlu á togurum í höfn,
stjóm á hvers konar di’áttar-
og lyftivögnum, tjöruvinnu,
vegþjöppustj., vinnu á steypu-
verkstæðum........................ 12.25
Fyrir kolavinnu, aðra en við
uppskipun, saltvinnu, shppv.
vinnu við að mata grjótmuln-
ingarvélar og vinnu í frystikl.
33.47 44.62
22.66 33.99 45.32
12.84 23.75 35.63
47.50
Fyrir dixilmenn, fláningsmenn
og rotara og vambatökumenn
í sláturhj^sum............. 13.04
Fyrir sementsvinnu (uppskipun
og samfehda pakkhúsvinnu og
mælingu í hrærivél), uppskip-
un á saltfiski, löndirn og ísun
síldar í skip, vinnu við kalk og
krít, uppskipun á kolum, aUa
vinnu við afgreiðslu á togurum
og uppskipun á tjöru- og kar-
bolinbornum staurum ....
24.12 36.18 48.24
13.99 25.88 38.82
51.76
Fyrir stjóm á ýtum, vélskóflum,
vegheflum, vélkrönum og stór-
virkum flutningatækjum og
gæzlu hrærivéla, ryðhreinsun
með rafmagnstækjum, botn-
hreinsun skipa innanborðs,
hreinsun með vítissóda, vinnu
með sandblásturstækjum og
málmhúðun, fullgildir neta-
menn ........................
14.54 26.90 40.35
30.77 46.15
53.80
61.54
hærra. Ef miðað er við íbúatölu
Akureyrar og tölu skólanemenda
í bænum mætti segja, að fjórði
hver Akureyringur væri í skóla,
en þá gleymist það, að í Mennta-
skólanum er margt utanbæjar-
nemenda og einnig eitthvað í
Gagnfræðaskólanum. En senni-
lega er ekki fjarri lagi, að fimmti
hver Akureyringur stundi eitt-
hvert skólanám í vetur.
Skólarnir voru að þessu sinni,
sem oftast, settir fyrstu daga
þessa mánaðar, og mikil ös hefur
síðan verið í bókabúðunum; allir
eru að kaupa kennslubækur, rit-
föng, töskur o. s. frv.
Menntaskólinn var settur 1. þ.
m. Þar verða fleiri nemendur en
nokkru sinni áður, eða milli 360
og 370. Litlar breytingar hafa
orðið á kennaraliði skólans. Þó
kennir Sigurður L. Pálsson ekki
í vetur sakir veikinda, en í stað
hans hefur verið ráðin að skól-
anum Friðrika Gestsdóttir frá
Seyðisfirði, og annar nýr kenn-
ari er Eyjólfur Kolbeins, sem
kennir latínu og dönsku.
Gagnfræðaskólinn var einnig
settur 1. þ. m. Þar verða nem-
endur einnig fleiri en áður, eða
um 420 talsins. Nýr fastakennari
er Þórður Gunnarsson og stunda
kennarar Ingvar Gíslason og Er-
lendur Konráðsson.
Barnaskólarnir voru settir 1.
okt. Nemendur í þeim verða
samtals um 1160. Ca. 800 í gamla
skólanum, 260 í Oddeyrarskól-
anum og 100 í Glerárhverfisskól-
anum. Hjörtur L. Jónsson skóla-
stjóri Glerárhverfisskólans hefur
leyfi frá störfum í vetur, en skóla
stjóri í hans stað verður Árni M.
Rögnvaldsson, sem áður var
skólastjóri á Árskógsströnd. —
Nokkrir nýir kennarar hafa
komið að barnaskólunum.
Iðnskólinn var settur 2. okt. —
Hann verður í vetur til húsa í
Húsmæðraskólanum.
Tónlistarskólinn var einnig
settur 2. okt. Hann verður nú til
húsa í Samkomuhúsi bæjarins, a.
m. k. fyrst um sinn.
Boxa- og katlavinna........... 16.63
Næturvarðm. á skipum skulu hafa kr. 284.90 fyrir 12 st. vöku. — í
kaupinu er innifalin sú upphæð, 1%, sem tímakaupsmönnum ber
til að standa straum af veikindakostnaði. — Kaupgreiðsluvísitalan
er 185 stig. — Orlofsfé skal vera 6% af kaupi.
Verkamannafélag Akureyrarkaupstaðar.
- Nýir samningar
Verkamannafél.
(Framhald af 1. síðu.)
nærri 20%. Ennfremur er hækk-
un á kaupi mánaðarkaupsmanna,
en að vísu eru það aðeins örfáir
menn hér, sem vinna eftir þeim
taxta. Heita má að öll vinna hér
sé greidd með tímakaupi.
Einróma samþykkt.
Á fundi Verkamannafélagsins
á miðvikudagskvöldið, þegar
hinir nýju samningar voru lagð-
ir fram, voru þeir einróma sam-
þykktir og umræðulaust. Virtust
félagsmenn ánægðir með þessa
samningagerð og var stjórn fé-
lagsins þakkað, hversu vel og
skynsamlega hún hefði unnið að
þessum málum.