Verkamaðurinn - 26.02.1960, Side 2
2
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 26. febrúar 1960
Verkamenn á Akureyri mófmæla því, að fluff verði burfu eina at
vinnufyrirtækið, sem ríkið rekur í bænum
Þess hefur áður verið getið hér í blaðinu, að uppi væru
ráðagerðir um að flytja Tunnuverksmiðju ríkisins á Akur-
eyri úr bænum og setja hana upp á Dagverðareyri í húsum
þeim, sem þar standa frá dögum síldarvinnslunnar þar, en
hafa nú verið rúin öllum vélum.
Þess hefur einnig verið getið, að mál þetta kom til um-
ræðu á aða'lfundi Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar,
og fundurinn lagðist ákveðið gegn hugsanlegum flutningi
verksmiðjunnar, en samþykkti svohljóðandi tillögu:
„Aðalfundur Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar,
haldinn 24. janúar 1960, lýsir eindreginni andstöðu við hugs-
anlegan flutning Tunnuverksmiðju ríkisins brott frá Akur-
eyri til Dagverðareyrar.
Felur fundurinn stjórn félagsins að kynna Síldarútvegs-
nefnd þessa skoðun félagsins og þau rök sem til hennar liggja.
Einnig heitir fundurinn á bæjarstjóm Akureyrar að vera
vel á verði um hagsmuni bæjarins þetta varðandi.“
Skömmu eftir fundinn samdi verksmiðjuna ásamt stóru og
stjórn Verkamannafélagsins grein
argerð af félagsins hálfu í sam-
ræmi við framanskráða tillögu og
sendi hana til Síldarútvegsnefnd-
ar, bæjarstjórnar, ráðherra þess,
sem mál Tunnuverksmiðjanna
heyra undir, og nokkurra fleiri
aðila.
Til þess að kynna mönnum al-
mennt skoðun Verkamannafélags-
ins á þessu máli, fer umrædd
greinargerð hér á eftir.
GREINARGERÐ VERKA-
MANNAFÉLAGS AKUR
EYYRARKAUPSTAÐAR.
Um leið og Verkamannafélag
Akureyrarkaupstaðar sendir Síld-
arútvegsnefnd og öðrum viðkom-
andi aðilum mótmæli aðalfundar
félagsins gegn þeirri ráðagerð að
flytja Tunnuverksmiðju ríkisins
frá Akureyri til Dagverðareyrar,
vill félagið gera nánari grein fyrir
þeim ástæðum, sem liggja til
þessarra mótmæla, en þær telur
félagið nauðsynlegt að athugaðar
verði áður en endanleg ákvörðun
verður tekin um flutning verk-
smiðjunnar.
Félagið telur, að saman fari, að
starfræksla tunnuverksmiðju á
Dagverðareyri verði til mikilla
muna óhagkvæmari fyrir verka-
mennina, sem í verksmiðjunni
koma til með að vinna, og einnig
í mörgum greinum óhagstæðlari
fyrir afkomu fyrirtækisins heldur
en að reksturinn verði áfram á
Akureyri og þar búið að verk-
smiðjunni eins og nauðsynlegt er.
Skal nú gerð grein fyrir þessu
áliti, en fyrst sagt í mjög stuttu
máli frá tunnuverksmiðjurekstrin-
um á Akureyri.
Til tunnuverksmiðjureksturs var
stofnað á Akureyri af einstakling-
um (Espholinsbræðrum) um
1923, en 10 árum síðar keypti
Akureyrarbær verksmiðjuna og
rak hana í allmörg ár. Var þá
starfsemi verksmiðjunnar aukin
og komst framleiðslan upp í 50—
60 þús. tunnur á vetri, enda var
tunnusmíði eitt helzta úrræði
bæjarins til varnar atvinnuleysi,
sem var mikið á þeim árum, en
um 50 verkamenn höfðu vetrarat-
vinnu við tunnusmíðina.
Eftir að lög voru sett 1945 um
tunnuverksmiðjur ríkisins á Akur-
eyri og Siglufirði, keypti ríkið
góðu geymsluhúsi fyrir tunnuefni.
-— Var kaupverðið aðeins um
140 þús. kr. Einnig lét bærinn
verksmiðjunni í té stórar lóðir við
verksmiðjuna og sérstök kjör um
hafnargjöld viðkomandi fram-
leiðslu verksmiðjunnar. Einnig
voru framkvæmdar allmiklar end-
urbætur á innstu hafnarbryggj-
unni, eingöngu til afnota fyrir
verksmiðjuna.
Síðan ríkið keypti verksmiðj-
una hafa verið gerðar á henni
allmiklar endurbætur. Þak verk-
smiðjuhússins að mestu endurnýj-
að og byggð ný viðbygging úr
steini fyrir gjarðaframleiðslu o. fl.
Undanfarin ár hefur verksmiðjan
verið starfrækt 4-—6 mánuði á
vetri og hafa 30—35 verkamenn
haft vetraratvinnu við hana.
Þegar nýtt verksmiðjuhús var
keypt fyrir verksmiðjuna á Siglu-
firði (1946), var einnig samið
um kaup á stálgrindahúsi fyrir
verksmiðjuna á Akureyri, sem
átti að rúma 45—50 þús. tunnur.
Kaup á þessu geymsluhúsi fyrir
Akureyrarverksmiðjuna voru aft-
urkölluð, þegar Síldarútvegsnefnd
tók við stjórn verksmiðjunnar,
1947. Hafa því allar tunnur, sem
smíðaðar hafa verið á Akureyri,
verið geymdar úti, og sum árin
hefur hluti þeirra verið óseldur
til næsta árs og stórskemmst við
geymsluna. Tunnurnar frá verk-
smiðjunni hafa verið seldar til
notkunar á Hjalteyri, Dalvík,
Hrísey, Ólafsfirði, Húsavík og
oftast eitthvað á Akureyri, einnig
hefur sum árin eitthvað verið selt
til Austfjarða og jafnvel Suður-
lands.
9
Nú eru uppi ráðagerðir hjá
Síldarútvegsnefnd um að ríkið
kaupi gömlu síldarverksmiðjuhús-
in á Dagverðareyri, flytji vélar
tunnuverksmiðjunnar á Akureyri
þangað og starfræki verksmiðj-
una þar. Við viljum í því sam-
bandi benda á nokkur mjög mikil-
væg atriði, sem mæla gegn því,
að horfið verði að þessu ráði.
1. Dagverðareyri er um 12 km.
frá Akureyri og hluti af leiðinni
er fremur snjóþungur og lokast
oft fyrir bílaumferð. Má því gera
ráð fyrir miklum aukakostnaði
vegna daglegs flutnings verka-
manna til og frá vinnu og þá jafn-
framt meiri og minni kostnaði við
snjómokstur til að halda leiðinni
•opinni. Þá má einnig gera ráð fyr-
ir miklum aukakostnaði til
greiðslu vinnulauna 30—35 verka
manna á leiðinni til og frá verk-
smiðjunni, sem í ótíð gæti orðið
mjög tafsamur flutningur. Þá
verður ennfremur að gera ráð fyr-
ir, að verksmiðjan þyrfti að halda
uppi matreiðslu á staðnum að ein-
hverju leyti með ekki lakari kjör-
um fyrir verkamennina en tíðkast
t. d. við vega- og brúagerð á veg-
um ríkisins. Mundi allt þetta að
sjálfsögðu kosta fyrirtækið mikið
fé. Þá mundi það einnig verða
verkamönnum mikill kostnaðar-
auki að geta ekki farið, eins og nú
er, heim til miðdegisverðar. Þá
verður einnig að gera ráð fyrir, að
vinna falli niður að meira eða
minna Ieyti, þegar stórhríðar
ganga.
2. Gert er ráð fyrir því í áætl-
unum Síldarútvegsnefndar, að
hægt verði að nota gömlu bryggj-
una á Dagverðareyri til að skipa
upp við hana tunnuefninu og tunn-
unum út. Þetta teljum við mikla
bjartsýni. Gera verður ráð fyrir
að íslenzku farmskipin flytji
tunnuefnið til landsins, aðallega
að vetrarlagi. Ekkert skjól er við
bryggjuna á Dagverðareyri í suð-
og austlægari átt, en mörg farm-
skipin allstór (allt að 3 þús. lest-
ir). Bryggjan er gömul tré-
bryggja, sem stórfé mundi kosta
að gera við og styrkja nægilega til
slíkra afnota. Verður því að telja
allvíst, að allt efni til verksmiðj-
unnar yrði að skipast upp á Akur-
eyri og flytjast á bílum til verk-
smiðjunnar. Þegar tunnur yrðu
svo seldar til Austur- eða Suður-
lands, yrði aftur að flytja þær á
bílum til Akureyrar til útskipun-
ar. Allt þetta myndi hafa mikinn
aukakostnað í för með sér frá því,
sem nú er.
3. Síldarverksmiðjuhúsin á Dag-
verðareyri eru þannig, að mikið
fé mundi kosta að gera þau svo
úr garði, að sæmileg vinnuskil-
yrði yrðu þar fyrir tunnusmíði.
Húsin eru einföld og byggð fyrir
sumarstarfsemi. Endurnýja yrði
alla raflagnir. Mikið mætti endur-
bæta verksmiðjuna á Akureyri
fyrir allt það fé, sem í þessar
breytingar yrði að leggja.
Gert er ráð fyrir, að síldar-
þrærnar yrðu notaðar fyrir tunnu-
geymslu, og að byggð yrðu þök
yfir þrærnar, en þessi tunnu-
geymsla er talin aðalástæðan fyr-
ir ráðagerðum um flutning verk-
smiðjunnar. Þó að þarna sé til
staðar gólf og 2—3ja metra háir
timburveggir, álítum við það smá-
vægilegar ástæður til þess að geta
ráðið nokkru um staðsetningu
slíkrar verksmiðju. Vafalaust
kostar miklu minna að byggja
tunungeymsluhús á síldarþrónum
á Dagverðareyri, heldur en að
byggja nýtt frá grunni, en hentug
tunnugeymsla verður þetta ekki.
Gólfið er með miklum halla og
mun fyrirhafnarsamara og dýr-
ara að koma fyrir tunnum þar og
taka þær þaðan, heldur en í húsi,
sem byggt væri með þessa notkun
fyrir augum. En slíkt geymsluhús
er það, sem verksmiðjureksturinn
hefur alltaf vantað öllu öðru
fremur.
4. I tunnuverksmiðjunni eru
nær 20 vélar, sem sumar hverjar
hafa mjög mikinn snúningshraða.
Mjög áríðandi er, að verksmiðjan
hafi greiðan aðgang að viðgerða-
verkstæði, sem mjög oft þarf að
leita til meðan vinnan er í fullum
gangi. Gefur auga leið, hvað slík-
ar viðgerðir yrðu tafsamari og
dýrari en nú er, ef verksmiðjan
yrði flutt.
Margt fleira mætti telja, sem
styður mótmæli félagsins. Er t. d.
fátt eitt nefnt af því óhagræði,
sem verkamenn þeir, sem við
verksmiðjuna vinna, kæmu til
með að hafa af flutningi hennar,
en að sjálfsögðu ber að taka fullt
tillit til þess, þegar um staðsetn-
ingu stórs atvinnufyrirtækis er að
ræða.
Verkamannafélag Akureyrar-
kaupstaðar vill að lokum vænta
þess, að allar aðstæður verði vel
og gaumgæfilega athugaðar áður
en horfið verður að því ráði að
flytja frá Akureyri það eina at-
vinnufyrirtæki, sem ríkið rekur
hér í bæ. Fær félagið ekki séð, að
í slíku efni geti það nokkru ráðið,
að til eru í nágrenni bæjarins
gömul verksmiðjuhús, rúin vélum
og. eigendum sínum arðlaus. Fé-
lagið væntir þess aftur á móti, að
ekki dragist lengur úr hömlu að
byggja við verksmiðjuna hér á
Akuréyri tunnugeymsluhús, og að
betur verði að henni búið á allan
hátt en verið hefur.
SJÓMENN, ATHUGIÐ!
Stórfelld verðlækkun á
SJÓSTÖKKUM
VÖRUHUSIÐ H. F.
Að venju eru
BOLLURNAR
beztar frá Brauðgerð Kr. Jónssonar & Co.
Bolludagurinn er á mánudaginn.
STRIGASKÓR
uppreimaðir.
Ótrúlega lágt verð.
Nr. 31, 32, 33, 34, 35
kr. 32.00.
Nr. 40, 41, 42, 43, 44, 45
Póstsendum.
Nr. 36, 37, 38, 39
kr. 36.00.
kr. 40.00.
TILKYNNING
Athygli innflytjenda og smásöluverzlana er hér með
vakin á tilkynningu um ný verðlagsákvæði, sem birt
verður í Lögbirtingablaðinu í dag.
Reykjavík, 25. febrúar 1960.
Verðlagsstjórinn.