Verkamaðurinn - 26.02.1960, Page 4
4
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 26. febrúar 1960
SAGT OG SKRIFAÐ
Vegna efnahagsráðsfafana ríkisins verð
ur mikill samdrállur verklegra fram-
kvæmda hjá K. E. A.
Frá aðalfundi Akureyrardeildar
Aðalfundur Akureyrardeildar KEA var haldinn á þriðju-
dagskvöldið. Þar flutti Jakob Frímannsson framkvæmdastjóri
yfirlit um verzlunarreksturinn og helztu framkvæmdir kaup-
félagsins á liðnu ári. Ekki kvaðst hann að þessu sinni, fremur
en endranær á þessum tíma, geta gefið fullnægjandi upplýs-
ingar um afkomu félagsins á liðnu ári, en veltan hefði aukizt
minna en áður, og það benti til þess, að afkoman yrði ekki
eins góð og á árinu 1958.
„ALÞÝÐUMAÐURINN“
hneykslast mjög á því nú í vik-
unni, að verkalýðsfélög og ýmis
fleiri samtök manna, skuli hafa
leyft sér þá ósvinnu, að senda
Alþingi mótmæli gegn samþykkt
gengislækkunarfrumvarpsins, og
skuli hafa vogað sér að kveða
upp úr með það, að þessi Iaga-
setning væri ekki hagstæð al-
þýðu manna og ekki líkleg til að
verða þjóðinni í heild til góðs.
Segir blaðið, að rnn svo róttæka
breytingu sé að ræða á efnahags-
kerfi þjóðarinnar, að ógerlegt sé
fyrir almenning að skera úr um
það, hvort breytingin sé hag-
fcþd eða ekki, og atUJLr sjkyni
bornir menn hljóti að sjá, að
„engin íhugun né grimdvölluð
skoðun“ geti legið að baki for-
dæmingarsamþykktunum.
En skín ekki í gegnum þessi
skrif blaðsins, að það, sem við er
átt, er þetta: Verkalýðurinn,
sauðsvartur almúginn, á ekkert
að vera að skipta sér af löggjaf-
arstarfseminni. Hann hefur ekk-
ert vit á þeim málum, það eru
bara alþingismennimir og „sér-
fræðingarnir“, sem vita, hvað er
fyrir beztu. Verkalýðurinn á
bara að taka við því, sem að hon-
um er rétt, en ekki að reyna að
hafa skoðun á málunum og allra
sízt að láta álit sitt í ljósi á op-
inberum vettvangi.
-K
Æ! SKÚTUSTAÐAHREPP-
UR. — Og það eru fleiri en
verkalýðurinn, sem að dómi
þeirra hjá Alþýðuflokknum, eiga
ekki að hafa skoðanir á opinber-
um málum. Bændur eiga líka að
þegja. Almennur fundur bænda
í Skútustaðahreppi samþykkti í
byrjun þessa mánaðar einarðleg
mótmæli gegn gengislækkunar-
frumvarpinu. — Alþýðublaðið
skýrði frá þessarri samþykkt í
smáklausu, og fyrirsögnin var
eitt stórt Æ með háðsmerki á
eftir. Var auðfundið, að Alþýðu-
blaðinu fannst það lítt sæmandi,
að búandkarlar norður í Mý-
vatnssveit skyldu telja sig þess
umkomna að leggja dóm á
stjórnarathafnir háttsettra manna
sunnan fjalla, í sjálfri Reykjavík.
Það var blaðinu aðeins hláturs-
efni.
En minnast mættu þeir þess við
Alþýiðublaðið, að norðan fjalla,
og þá ekki sízt í Þingeyjarsýslu
og Mývatnssveit, hafa alizt upp
og átt heimili sín ýmsir þeir
menn, sem borið hafa gæfu til
að hafa farsælust áhrif á gang
þjóðmálanna og oftar en einu
sinni vísað leiðina þann veg, sem
bezt var að fara.
Og þó að forysta Alþýðu-
flokksins telji sig nú yfir það
hafna að taka mark á bændum
og verkafólki, þá stafar það ekki
af því, að þessar stéttir hafi glat-
að heilbrigðri dómgreind sinni
og hæfileikum til rökréttrar
hugsunar, heldur af því að Al-
þýðuflokkurinn hefur slitið
tengslin við uppruna sinn og er
ekki lengur baráttutæki alþýðu-
stéttanna, heldur verkfæri1
skammsýnna og hugsjóna-
snauðra gróðahyggjumanna.
-K
TVEIR ÞINGMENN Alþýðu-
flokksins lögðu sig einkum fram
um það á Alþingi, að mæla hinni
nýju efnahagslöggjöf bót. Það
voru þeir Gylfi Þ. Gíslason og
Jón Þorsteinsson. Báðir töldu
þeir hina nýju löggjöf hið mesta
þing, en bar þó ekki vel saman
um áhrif hennar, ef marka má
frásögn „Alþm.“ af orðum
þeirra. Samkvæmt þeirri frá-
s‘gn, sagði Gylfi m. a., að „út-
reikningar þessir (þ. e. stjómar-
andstöðunnar) væru alger fjar-
stæða og leiddu alls ekki í Ijós
neinar álögur á þjóðina sem
heild.“ Og ennfremur: „Allt tal
um álögur á þjóðina er því hrein
fjarstæða og blekking.“
En samkvæmt sömu heimild
sagði Jón Þorsteinsson m. a.:
„Það er engum vafa undirorpið,
að þessar efnahagsráðstafanir
hafa í för með sér kjaraskerð-
ingu fyrir þjóðina.“
Þarna bcr þeim illa saman
flokksbræðrunum og forsvars-
mönnum þessarrar ólánslöggjaf-
ar, og fara þó hvorugur rétt
með. Sannleikurinn er sá, að
þessar ráðstafanir fela í sér
miklar álögur og stórfellda kjara
skerðingu fyrir allan almenning,
en sé þjóðin tekin sem heild
verður kjaraskerðingin engin að
svo stöddu, því að þjóðrjrtekj-
urnar verða hinar sömu, þar til
samdrátturinn í atvinnulífinu
fer að segja til sín. Þetta vita
verkamenn á Akureyri og bænd-
ur í Mývatnssveit), að er rétt,
hvað svo sem „spekingamir"
syðra segja. Og þeir vita líka á
Akureyri og í Mývatnssveit, að
það er ekki jafnaðarstefna, sem
nú er verið að framkvæma,
haldur ójafnaðarstcfna. Það á að
auka á misskiptingu teknanna.
-K
HEYRZT HEFUR, að AI-
þýðuflokkurinn muni innan tíð-
ar taka um það formlega ákvörð-
un, að hann telji sig ekki Iengur
verkalýðsflokk og játa það opin-
berlega, að hann sé horfinn frá
öllum sósíalisma og jafnaðar-
stefnu. Flokkurinn mun þó
sennilega halda sama nafni, en
aðallega gefa sig út fyrir að vera
flokkur cmbættismanna og ann-
ars millistéttafólks. Ýmsir af
framámönnum flokksins munu
telja, áð fylgi flokksins meðál
verkafólks sé nú orðið svo lítið,
að ekki svari kostnaði, atkvæða-
lega séð, að hugsa um hagsmuni
þess. En með því, að flokkurinn
gerist sérstakur fulltrúi sívax-
andi embættismannastéttar, telja
framámenn hans líkur til, að
flokkurinn minnki ekki frá því
sem orðið er, og að jafnvel séu
talsverðar líkur til að hann
stækki; gera þeir einkum ráð
fyrir að það yrði þannig, að
Sjálfstæðisflokkurinn klofni og
talsverður hluti hans, sennilega
undir forystu Gunnars Thorodd-
sen, gengi í hinn sérstaka emb-
ættismannaflokk.
Framkvæmdastjórinn kvað um-
setningu félagsins hafa aukizt um
20% árið 1958, en á síðasta ári
væri auknnigin aðeins 5—
10%. í aðalverzlunardeildunum
jókst umsetningin um 10% að
meðaltali, en sumum deildum
varð þó meiri aukning, þannig
jókst sala Stjörnu apóteks um
18%, Raflagnadeildar, Blómabúð-
ar og Skipasmíðastöðvar um 20%,
Þvottahússins Mjallar um 25%
og mest varð aukningin hjá Sápu-
verksmiðjunni Sjöfn, 40%, en
það er framleiðsla málningar, sem
þar veldur mestu um.
Innlendar afurðir.
Framleiðsla landbúnaðarvara
til innleggs hjá félaginu stóð Ým-
ist í stað miðað við fyrra ár eða
drógst nokkuð saman. Þannig var
slátrað hjá félaginu um það bil
5000 fjár færra en 1958 og ullar-
innlegg minnkaði mikið. Fram-
kvæmdastjórinn kvað fækkun
sláturfjár einkum stafa af því, að
bændur hefðu sett fleira fé á vet-
ur en áður vegna hins hagstæða
heyskaparsumars. Framleiðsla
jarðepla og sala var óbreytt. —
Mjólkurinnlegg jókst um 2,1%.
Sala landbúnaðarafurða hefur
gengið mjög vel, svo að birgðir
eru ekki meiri en öruggt má telja
að seljist. Hjá Mjólkursamlaginu
eru nú nær engar birgðir, ekkert
smjör og lítið af ostum ,en undan-
farin ár hafa oft verið miklar
birgðir þessarra vara. En sam-
dráttur í mjólkurframleiðslu
sunnanlands hefur haft þessi
áhrif.
Framkvæmdastjóri gat þess, að
25% af kindakjötsframleiðslu hjá
félaginu seldist sem hangikjöt og
væri það félaginu mjög hagstætt.
Sú fyrirspurn kom fram, hvort
ekki myndi líka unnt að selja
hangikjöt til útlanda, en fram-
kvæmdastjóri var ekki bjartsýnn
á það, taldi að seint myndi ganga
að kenna útlendingum að neyta
þess, jafnvel þó að ýmsum félli
það vel, er þeir brögðuðu það á
ferðalögum hér.
Móttaka sjávarafurða var held-
ur meiri en áður. Mest varð
aukning saltfiskframleiðslu á Ar-
skógsströnd og í Hrísey, en einn-
ig nokkur aukning hjá hrað-
frýstihúsum félagsins í Hrísey og
á Dalvík. Heildarframleiðsla hrað
frystra flaka varð í Hrísey 750
þús. pund og á Dalvík 690 þús.
pund. Saltfiskur, sem félagið fékk
til sölumeðferðar var 736 lonn
og skreið 40 tonn. Framleiðsla
fiskimjöls 400 tonn.
Verklegar framkvæmdir
voru þessar helztar á liðnu ári:
Lokið var við að byggja ofan á
norðurhluta kjötgeymslu fryáti-
hússins á Oddeyrartanga og kom-
ið þar fyrir frystihólfum, sem
leigð eru út. Á Gleráreyrum var
byggð vörugeymsla og frysti-
geymsla á Hauganesi. Þá var
hafin vinna við mikla stækkun
frystihússins á Dalvík og lokið
við undirstöður.
Gerðar voru miklar lagfæring-
ar og endurbætur á Hótel KEA,
Þvottahúsið Mjöll fékk ný og góð
húsakynni, þar sem áður var kar-
töflugeymsla við Skipagötu, en
geymsluklefum í gamla frystihús-
inu var breytt í kartöflugeymslur.
Nú hljóta framkvæmdir að
dragast saman.
I sambandi við framkvæmdir
félagsins á yfirstandandi ári
benti framkvæmdastjórinn á, að
nú yrði óhjákvæmilegt að mikill
samdráttur yrði vegna efnahags-
ráðstafana Alþingis og ríkisstjórn-
ar, nú virtist öllum ætlað að
leggjast í dvala og eyða ekki
neinu, og hvort sem gott þætti
eða ekki, myndi ekki um annað
að gera en gera sér að góðu að
draga saman seglin í bili.
Hann kvað þó ráðið, að hafizt
yrði handa um byggingu útibús í
VANN 90%
Friðrik Olafsson, stórmeistari í
skák, kom hingað til bæjarins á
laugardaginn á vegum Skákfélags
Akureyrar og tefldi fjölskákir og
blindskákir að Lóni á sunnudag-
inn.
Tefldi hann fjölskákir við 41
og samtímis 3 blindskákir.
Urslit fjölskákanna urðu þessi:
Friðrik vann 35, gerði 4 jafn-
tefli, en tapaði 2, eða vann sam-
tals rúmlega 90% skákanna.
Þeir, sem unnu Friðrik, voru:
Jónas Stefónsson og Margeir
Steingrímsson.
Jafntefli gerðu: Anton Sölva-
son, Davíð Gíslason, Ólafur Krist-
jánsson og Randver Karlesson.
Blindskákirnar fóru þannig, að
Friðrik tapaði tveim, en ein varð
jafntefli. Þeir sem unnu voru:
Anton Magnússon og Jón Ingi-
marsson, en Steinþór Helgason
gerði jafntefli.
Glerárhverfi og a. m. k. hafnar
undirbúningsframkvæmdir að
byggingu útibús á Syðri-Brekk-
unni. Einnig hefði félagsstjórnin
áhuga fyrir, að haldið yrði áfram
nýbyggingu frystihússins á Dal-
vík, en óvíst væri þó, hvort svo
gæti orðið.
Akureyrardeild.
Deildarstjóri, Ármann Dal-
mannsson, skýrði svo frá, að fé-
lagsmenn í deildinni hefðu um
áramót verið 2465 og hefði fjölg-
að um 37 á árinu. Séreign deild-
arinnar nam um áramót rúmum
100 þús. kr., en deildarstjórn sam-
þykkti nýlega að gefa úr sjóðnum
kr. 3 þús. til Minningarsjóðs Þor-
steins Þorsteinssonar og 3 þús.
kr. til Matthíasarfélagsins á Ak-
ureyri.
Tryggvi Þorsteinsson og Har-
aldur Þorvaldsson voru endur-
kjörnir í deildarstjórn og Erling-
ur Davíðsson í félagsráð. Þá voru
og kjörnir 83 fulltrúar á aðalfund
KEA.
Ævi Gorkís á kvikmynd
MÍR á Akureyri hefur fengið
til sýningar kvikmynd, eða öllu
heldur myndir, sem gerðar eru
eftir sjálfsævisögu hins fræga,
rússneska rithöfundar, Maxim
Gorkí. Myndirna reru þrjár, og
heitir sú fyrsta Barnæska, önnur
Hjá vandalausum og sú þriðja
Háskólar mínir. Þessar myndir
verða sýndar í Ásgarði næstu þrjá
sunnudaga. Hin fyrsta, Barnæska
Gorkís, á sunnudaginn kl. 4
Myndir þessar þykja sérstaklega
vel gerðar.
Þess má geta, að sjálfsævisaga
Gorkís hefur komið út á íslenzku,
og má ætla, að þeir, sem hana
hafa lesið, hafi ekki sízt óhuga
fyrir að sjá þessar myndir.
- Ályktun A. S í.
Framhald af 1. slðu.
á að leiða til mikils afturkipps
og samdráttar.
Fær miðstjórnin ekki annað
séð, en að með þessu sé atvinnu-
leysinu — geigvænlegasta ógn-
valdi alþýðuheimilanna — boðið
í bæinn, áður en langt um líður.
Miðstjórn Alþýðusambands ís-
lands skorar á Alþingi íslendinga
að fella þetta skaðræðisfrumvarp
og heitir á alla meðlimi samtak-
anna að sameinast í baráttunni,
sem nú hlýtur að hefjast gegn af-
leiðingum þess, en fyrir bættum
lífskjörum hins vinnandi manns.
FILMÍA SÝNIR:
Hinir fordæmdu
Á morgun kl. 3 sýnir Filmía á
Akureyri fræga, franska kvik-
mynd, sem fengin hefur verið sér-
staklega til landsins til að sýna
hana hér, og sýningin hér í Borg-
arbíó á morgun verður eina sýn-
ingin hér á landi.