Verkamaðurinn - 01.04.1960, Side 4
4
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 1. apríl 1960
Furðulegf fómlæti um framkvæmdir í
byggingamálum
Byggir Akureyrarbær engar íbúðir í sumar?
Það er öllum þeim kunnugt,
sem eitthvað fylgjast með störf-
um bæjarstjórnar Akureyrar, að
síðustu árin hefur hvað eftir
annað verið rætt innan bæjar-
ráðs og bæjarstjórnar um þá
þörf, sem á því er, að bæjarfé-
lagið byggi íbúðarhúsnæði fyrir
þá bæjarbúa, sem í verstum
húsakynnum búa og ekki hafa
neina möguleika til að komast í
betra húsnæði af eigin rammleik.
Samþykktir hafa verið gerðar í
bæjarstjórn um framkvæmdir í
þessum málum, en til þessa hef-
ur setið við samþykktirnar ein-
ar. Framkvæmdir hafa engar
orðið. Ekki er fyllilega ljóst,
hvað það er, sem raunverulega
veldur, en full ástæða er til að
ætla, að einungis sé um að kenna
tregðu meirihluta bæjarstjómar
og sumra starfsmanna bæjarins
Saga málsins.
Hér skal í stuttu máli rakið,
hver gangur þessarra mála hefur
verið hjá bæjarstjóminni:
í desember 1958 fluttu bæjar-
fulltrúar Alþýðubandalagsins til
lögu um að hafizt yrði handa um
byggingar íbúða til útrýmingar
heilsuspillandi húsnæði á árinu
1959 og að á fjárhagsáætlun yrði
hálf milljón króna ætluð til
þeirra framkvæmda. Tillögunni
var vísað til bæjarráðs, en í
framhaldi af henni var ákveðið
að kanna, hversu mikil brögð
væru að heilsuspillandi húsnæði
í bænum. Ekki fékkst tekið inn
á fjárhagsáætlun framlag til
byggingaframkvæmda.
Á firndi bæjarrráðs 26. febrúar
var tekin fyrir skýrsla um
heilsuspillandi húsnæði, undir-
rituð af bæjarverkfræðingi,
byggingalfulltrúa, heilbrigðisfull-
trúa og héraðslækni. Þeir höfðu
skoðað 20 íbúðir og töldu 11 af
þeim óíbúðarhæfar og heilsu-
spillandi. Samþykkti bæjarráð
þá að leggja til við bæjarstjóm,
að hún hefði forgöngu um bygg-
ingu 4 til 6 íbúða til útrýmingar
heilsuspillandi húsnæði gegn því,
að aðstoð fengist samkvæmt IV.
kafla laga nr. 42 frá 1957, þ. e.
framlag frá ríkinu, helmingur á
móti framlagi bæjarins.
Á fundi bæjarstjórnar 14. apríl
1959 var svo samþykkt að hefja
þá þegar undirbúning að bygg-
ingu sex íbúða raðhúsa við
Vanabyggð á vegum bæjarins á
grundvelli lagaákvæða um út-
rýmingu heilsuspillandi húsnæð-
is. Byggingafulltrúa og bæjar-
verkfræðingi var falið að ganga
frá teikningum og útboðslýsing-
um og öllum undirbúningi skyldi
hraðað svo, að framkvæmdir
gætu hafizt um vorið.
Fyrir fundi bæjarstjórnar 19.
maí lá bréf frá bæjarverkfræð-
ingi, þar sem hann kveður lítil
líkindi til vegna anna á skrif-
stofunni, að hægt verði að ljúka rétt. Fjölmargar fjölskyldur búa
í tæka tíð undirbúningi að I ennþá í húsakynnum, sem sumir
byggingu raðhúss miðað við að
það yrði byggt um sumarið. Var
þá bæjarstjóra falið að kanna
möguleika á kaupum fokheldra
íbúða í raðhúsum eða annars
konar fjölbýlishúsum, sem byggð
yrðu á annarra vegum en bæjar-
ins.
Eftir þetta var hljótt um mál-
ið í fyrrasumar. Það var ekkert
byggt og ekkert keypt af öðrum.
í byrjun desember þótti bæj-
arfulltrúum Alþýðubandalagsins
tími til kominn að fara aftur að
hreyfa málinu, með það þá fyrir
augum, að hægt yrði að nota vet-
urinn til undirbúnings og síðan
ýrði byggt á komandi sumri. —
Tillaga þeirra var þannig:
„Bæjarstjóm Akureyrar sam-
þykkir að láta nú þegar hefja
undirbúning að íbúðabyggingum
á vegum bæjarins með það fyrir
augum, að á næsta ári verði
byggðar eigi færri en átta íbúðir
til útrýmingar heilsuspillandi
húsnæðL Sérstaklega skal at-
hugað um, hvort ekki muni
heppilegra að byggja þriggja til
fjögurra hæða „bIokkhús“ frem-
ur en raðhús og Ieitað álits
skipulagsnefndar bæjarins um
staðarval fyrir slíkt hús. Skal
þessarri rannsókn hraðað svo sem
framast er unnt, og jafnskjótt og
ákveðið hefur verið, hvers konar
hús verður byggt, skal hæfum
mönnum falið að gera af því
teikningar og verði þær til það
snemma, að hægt verði að hefja
framkvæmdir snemma á næsta
vori.“
Tillögunni fylgdi greinargerð,
þar sem m. a. var bent á, að leita
yrði til annarra en fastra starfs-
manna bæjarins um undirbún-
ing, ef þeir gætu ekki sinnt því
verkefni í tæka tíð.
TSÍlögunni ásamt greinargerð
var vísað til bæjarráðs og hefur
síðan ekki af henni heyrzt.
Þegar gengið var frá fjárhags-
áætlun bæjarins fyrir yfirstand-
andi ár fluttu bæjarfulltrúar Al-
þýðubandalagsins enn tillögu um
að ætlað yrði fé til bygginga
íbúða, en sú tillaga hlaut aðeins
atkvæði þeirra tveggja. Bæjar-
fulltrúar íhalds, krata og Fram-
sóknar greiddu allir gagnat-
kvæði.
Þannig standa málin í dag, og
virðast a. m. k. ekki lengra á veg
komin en á sama tíma í fyrra. —
Ennþá ætti þó að vera tími til að
ljúka nauðsynlegum undirbún-
ingi, ef vilji er fyrir hendi.
Þörfin er ærin.
Stundum heyrist sagt, að svo
mikið hafi verið byggt í bænum
síðustu árin, að það sé alvég
óþarft, að bærinn sé nokkuð að
byggja, það sé til nóg af góðu
húsnæði fyrir alla. En þrátt fyr-
ir allar byggingarnar á undan-
fömum árum, þá er þetta ekki
borgarar bæjarins myndu ekki
geta hugsað sér að dvelja í næt
urlangt, hvað þá lengur. Og
flestar þessar fjölskyldur eru
þannig settar efnalega, að þær
hafa enga möguleika til að kom
ast í betra húsnæði af eigin
rammleik. Þær eru dæmdar til
að vera alltaf í lakasta húsnæð-
inu, nema því aðeins, að bæjar-
félagið komi til aðstoðar eins og
því raunar ber skylda til. Með
því, að svo mikið yrði byggt, að
verulegt framboð yrði á leigu-
húsnæði, væri þó hugsanlegt, að
einnig þessar fjölskyldur gætu
komizt í eitthvað skárra hús-
næði en nú er, en þær verða þó
alltaf í því húsnæði, sem verst
er.
Og svo er á það að líta, að nú
stöðvast næstum allar bygginga-
framkvæmdir á vegum einstakl-
inga. Samt verður að gera ráð
fyrir því, að einhver fólksfjölgun
verði í bænum, og segir það sig
sjálft, að litlar úrbætur verða
með húsakynni, en hins vegar
miklar líkur til að fleiri en nú
verði að sætta sig við híbýli, sem
alls ekki geta talizt boðlegir
mannabústaðir.
Það verður því ennþá meira
knýjandi nú en áður, að bæjar-
félagið taki sér fyrir hendur að
Uyggja yfir þá, sem ekki hafa
sjálfir mögulcika til þess. Eigi
slíkar byggingar á vegum bæjar-
ins eitthvað að komast af stað í
sumar, má ekki lengur dragast,
að hafinn sé undirbúningur, og
ætti bæjarráð að sjá sóma sinn í
því að taka þessi mál til með-
ferðar nú þegar. I Framkvæmda-
sjóði bæjarins eru 500 þús. kr.
frá fyrra ári, sem ekki hefur ver-
ið ráðstafað. Sýnist rétt, að það
fé verði notað til að byrja með.
Frá ríkinu (Húsnæðismálastjóm)
á að fást helmingur kostnaðar-
verðs. I fyrra lá fyrir loforð um
350 til 500 þús. kr. á því ári, og
varla ætti það að verða minna á
þessu ári. Á fjárlögum þessa árs
er gert ráð fyrir ríkisframlagi til
útrýmingar heilsuspillandi hús-
næði að upphæð kr. 3.800.000.00.
Það er að vísu lækkun um kr.
200 þús. frá fyrra ári (samkvæmt
samdráttarstefnunni), en á það
ber að líta, að á undanfömum
árum hefur ekkert af þessu fé
komið hingað og Reykjavík ein
hefur gleypt svo til allt framlag-
ið. Um það höfum við ekki við
neina að sakast nema okkur
vegna þess, að hér hefur bærinn
ekkert gert til þess að geta orðið
aðnjótandi framlags af þessu fé,
en þar sem að við höfum ekkert
af því fengið, ættum við nú að
hafa möguleika til að fá nokkuð
stóran hlut. Og ef svo vel tækist,
að við fengjum meira en 500
þús. kr„ þá á að vera fé í Fram-
kvæmdasjóði, sem hægt væri að
taka til að leggja á móti.
En ef bæjarstjórn lætur þetta
ár einnig líða án þess að nokkúð
verði aðhafst um íbúðarbygging-
ar á vegum bæjarins, þá verður
það meirihluta bæjarstjórnar-
innar til ævarandi skammar og
minnkunar.
Sértrúarflokkurinn Vottar Jehova
Framhald af 1. síðu.
vísu má vera, að lög séu þannig
úr garði gerð, að þeir gætu ekki
fengið læknisréttindi, og von-
andi er svo, því að ella væri
blátt áfram hætta á fjöldamorð-
um vegna þess, að ekki væri
gert það, sem unnt væri að gera
og gert er af venjulegum lækn-
um til að bjarga mannslífum,
sem eru í hættu.
íslendingar eru almennt taldir
í hópi bezt menntuðu og upplýst-
ustu þjóða heims, og af þeirri
ástæðu eru áreiðanlega minni
líkur til þess, en víða annars
staðar, að skoðanir sértrúarhópa
eins og þessarra Votta Jehova
nái að festa rætur hér. En þrátt
fyrir það hafa þó sendiboðar
þessarra safnaða erlendis fundið
hér einhvern jarðveg fyrir skoð-
anir sínar, ella myndu þeir ekki
vera að flækjast hér ár eftir ár.
En svona sértrúargrillur eiga
ekkert skylt við raunverulegan
kristindóm. Boðorð Krists var að
bjarga en ekki að eyða, lækna en
ekki að deyða, enda sækja post-
ular sértrúarsafnaðanna ekki
rök fyrir málflutningi sínum í
orð eða verk Krists heldur vé-
fréttlegar setningar í fornaldar-
bókmenntum Gyðinga.
En í sambandi við þetta alvar-
lega mál, sem hér hefur verið
rætt, vaknar sú spurning, hvort
það sé rétt, að leyft sé hömlu-
laust, að erlendir boðendur slíkra
trúarafbrigða, sem hér hefur ver-
ið getið, fái að dveljast í landinu
og leitast við að telja menn á
sitt mál. Því fylgja hættur, eins
og hér hefur verið bent á, þó að
mikið traust verði að leggja á
það, að íslendingar séu svo skyn-
samir og vel menntaðir, að þeir
leggi ógjarna lag sitt við slíka
trúarboðendur. En það væri
einnig nokkur ástæða til að
leggja hömlur á starfsemi þessa
fólks í landinu, að trúboðar sem
þessir, sem ganga hús úr húsi og
leitast við að troða skoðunum
sínum upp á fólk, eru flestir
hvimleiðir og valda tíðum trufl-
un á heimilisfriði, þegar þeir
fara ekki á brott, þó að enginn
vilji við þá tala. Þetta fólk hefur
ekkert atvinnuleyfi hér á landi
og dvelst hér oft á vafasömum
forsendum, svo að ekki sé meira
sagt. Og fyrir þá trú, sem ekki
setur lífið öðru ofar, höfum við
enga þörf, alls enga.
Til fermingargjafa:
STEINHRINGAR
ARMBÖND
BURSTASETT
ERMAHNAPPAR
ERMAHNAPPAR
m. bindisklemmu
MYN DAVÉLAR
o. fl.
FRANC MICHELSEN
Úra og skartgripaverzlun
Kaupvangsstræti 3 . Sími 2205
Fyrirlestur um skrúðgarða
Þriðjudaginn 5. apríl kl. 8.30 að Hótel KEA flytur ÓLI
VALUR HANSSON, ráðunautur Búnaðarfcl. íslands,
erindi um skrúðgarða og ræðir nreðal annars um skipu-
lag þeirra, ræktun blóma og trjágróðurs og sýnir skugga-
myndir. — Hér gefst unnendum skrúðgarða tækifæri á
að afla sér fróðleiks og leiðbeininga áður en vorstörfin
hefjast. — Frjálsar umræður á eftir.
AUir velikomnir meðan húsrúm leyfir.
Stjórn Fegrunaríelagsins.
Alþýðuhúsið, Akureyri
AÐALFUNDUR
Samkomuhússfélags verkalýðsfélaganna á Ak-
ureyri verður haldinn í Alþýðuhúsinu n. k.
mánudagskvöld, kl. 8.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.