Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 13.04.1960, Blaðsíða 2

Verkamaðurinn - 13.04.1960, Blaðsíða 2
2 VERKAMAÐURINN Miðvikudaginn 13. apríl 1960 TILKYNNING um söluskatt af innlendum viðskiptum samkvæmt lögum nr. 10. 22. marz 1960 I. Frá l. apríl 1960 skal greiða 3% söluskatt af andvirði seldrar vöru og verðmæta og endurgjaldi fyrir hvers konar starfsemi og þjónustu. Til skattskyldra viðskipta telst öll sala eða- af- hending vöru, þar með talin sala pöntunarfélaga, umboðssala, sala við frjáls uppboð, svo og öll vinna og þjónusta, sem látin er í té af iðnaðar- og þjónustufyrirtækjum, einstaklingum eða stofnunum, er stunda hvers konar sjálfstæða starfsemi. Einnig er skattskyld úttekt eiganda úr eigin fyrirtæki, jafnt vara, vinna og þjónusta. i í -J II. Söluskattskyldir eru allir þeir, sem annast söluskattskyld við- skipti, og skiptir ekki máli í því sambandi, hvort hlutaðeig- andi er einstaklingur, firma eða félag, opinber stofnun, fyrir- tæki ríkis eða sveitarfélags, eða aðrir aðilar, þótt undanþegnir séu skattskyldu samkvæmt lögum nr. 46 frá 1954 um tekju- skatt og eignarskatt eða öðrum lögum. Einnig eru umboðs- menn og fyrirsvarsmenn erlendra aðila, sem hafa söluskatt- skylda starfsemi hér á landi, skattskyldir af slíkri starfsemi. III. Skattskylda er almennt bundin við síðasta stig viðskipta. Það er því aðalregla, að sala til neytenda er skattskyld, en sala til endurseljenda skattfrjáls. Neytandi telst sá, sem kaupir vöru, vinnu eða þjónustu til eigin nota eðá neyzlu, endurseljandi sá, sem kaupir vöru eða vinnu til að selja aftur eða notar vöruna sem efni í vöru, sem framleidd er í atvinnuskyni. Þetta gildir þó ekki um óvaranlegar rekstrarvörur og hjálpar- efni til framleiðslustarfsemi, sem ekki mynda efnisþátt fram- leiðslunnar, og skal endurseljandi greiða söluskatt af kaup- verði slíkra vara. IV. Því aðeins er heimilt að selja endurseljanda vöru, vinnu eða þjónustu án söluskatts, að hann hafi tilkynnt skattyfirvöldum um starfsemi sína og sýni skírteini, er sanni að hann hafi heimild til að kaupa viðkomandi vöru án söluskatts sem end- urseljandi. Eyðublöð þessi, ásamt leiðbeiningum, fást hjá skattstofum og skattanefndum. Skulu allir söluskattskyldir aðilar í síð- asta lagi 1. mai nœstk. hafa tilkynnt skattayfirvöldum um at- vinnurekstur sinn eða starfsemi eftir því sem fyrir er mælt og fengið viðurkenningu fyrir móttöku tilkynningar. Gildir sú viðurkenning sem bráðabirgðaheimild til kaupa á vöru án söluskatts. Þeir, sem hefja starfsemi eftir að lögin öðlast gildi, skulu tilkynna það áður en starfsemin hefst. Ef sölu- skattskyldur aðili hættir starfsemi þeirri, sem tilkynnt hefur verið, fellur umrædd heimild úr gildi, og skal tilkynnt um það til skattyfirvalda. V. Eftirfarandi sérákvceði gilda um innheimtu söluskatts af neð- antalinni starfsemi og viðskiptum: a. Seljendur skulu taka söluskatt af verði allrar vöru og þjón- ustu, sem seld er í smásölu, og skiptir þá ekki máli, hvort um er að rasðá sölu til neytenda eða endurseljenda, Þó skal ekki innheimta söluskatt af sölu á timbri, trjávörum, steypustyrktarjárni og sementi til endurseljenda. b. Söluskattur af aðgangseyri að skemmtunum skal innheimt- ur með skemmtanaskatti. c. Af vörum þeim, sem Tóbakseinkasala ríkisins selur, greiða þeir aðilar, sem hafa með höndum smásölu slíkra vara, einkasölunni söluskatt af þeim vörum, um leið og þeir greiða kaupverð varanna, og er skatturinn miðaður við smásöluverð. d. Innflytjendur olíu og benzíns skulu taka söluskatt við sölu eða afhendingu þessara vara til umboðsmanna sinna eða annarra aðila. Skatturinn miðast við smásöluverð. Smásalar og umboðssalar, sem að kvöldi hins 31. marz 1960 eiga óseldar slíkar vörur, skulu innheimta söluskatt af söluverði þeirra og standa skil á honum í ríkissjóð. VI. Skatturinn rniðast við heildarandvirði eða heildarendurgjald vöru, vinnu eða þjónustu, án frádráttar nokkurs kostnaðar. Verð vöru, vinnu eða þjónustu má hækka sem söluskattinum nemur. Vanræki einhver að taka söluskatt af skattskyldum við- skiptum, ber honum eigi að síður að standa skil á skattinum. VII. Undanþegin söluskatti er sala eftirtalinna vara og verðmœta: Vörur seldar úr landi, nýmjólk, nema í veitingasölu, fisk- umbúðir og kjötpokar, fiskinet, fiskilínur, önglar og öngul- taumar (þó ekki sporttæki), salt, annað en í smásöluumbúð- um, grasfræ, fóðurvörur, flugvélaeldsneyti, innlend dagblöð og hliðstæð blöð, svo og tímarit, sem ekki eru gefin út í ágóða- skyni. Ennfremur fasteignir, skip, flugvélar og flugvélavara- hlutir, einnig lausafé, sem seljandi hefur notað í eigin þágu eða við starfsemi sína, enda geti salan ekki talizt til atvinnu- rekstrar. Ekki skal skattlögð heimilisnotkun framleiðenda landbúnaðar- og sjávarafurða á eigin framleiðsluvörum. VIII. Undanþegin söluskatti er eftirtalin starfsemi og þjónusta: a. Vinna við húsbyggingar og aðra mannvirkjagerð eða við endurbætur og viðhald slíkra eigna. Undanþágan tekur þó einvörðungu til þeirrar vinnu, sem unnin er á bygg- ingarstað, en ekki til vinnu að framleiðslu eða að vinnslu byggingarvara í verksmiðju, verkstæði eða starfsstöð. b. Vinna við skipa- og flugvélaviðgerðir, vöruflutningar, enn- fremur fólksflutningar almennra leigubifreiða á stöð. c. Húsaleiga, þó ekki leiga gistihúsa og samkomuhúsa, útfar- arþjónusta, rekstur sjúkrahúsa, fæðingarstofnana, heilsu- hæla og annarra þvílíkra stofnana, sala fasteigna, skipa, flugvéla, verðbréfa og annarra þvílíkra verðmæta. Enn- fremur lækningar, lögfræðistörf og önnur hliðstæð þjón- usta, sala listamanna á eigin verkum, sala neyzluvatns, póst- og símaþjónusta, svo og þjónusta banka og spari- sjóða. IX. Allir söluskattskyldir aðilar skulu senda hlutaðeigandi skatt- yfirvaldi skýrslu um heildarveltu sína hvern ársfjórðung á þar til gerðum eyðublöðum, ásamt upplýsingum um einka- úttekt, skattfrjálsa sölu og annað, sem máli skiptir við ákvörð- un skattsins. Söluskattskýrsla skal hafa borizt skattayfirvöldunum í síð- asta lagi innan 15 daga frá lokum hvers ársfjórðungs. X. Söluskatt skal greiða til innheimtumanns rikissjóðs í siðasta lagi fyrir lok framtalsfrests hvers ársfjórðungs. Hafi einhver, sem greiða skal söluskatt, ekki skilað honum til innheimtumanns ríkissjóðs innan mánaðar frá gjalddaga, skal hann greiða 11/2% í dráttarvexti fyrir hvern byrjaðan mánuð frá gjalddaga. Verði vanskil í greiðslu skattsins, má innheimtumaðurinn láta lögreglustjóra stöðva atvinnurekstur þess, sem eigi hefur staðið í skilum, þar til fullkomin skil eru gerð, með því meðal annars að setja verkstofur, skrifstofur, útsölur, tæki og vörur undir innsigli. Hér eru aðeins rakin höfuðatriði hinna nýju söluskattslaga, og því er nauðsynlegt að allir söluskattskyldir aðilar kynni sér sem bezt lögin í heild og söluskattsreglugerð, sem birt verður síðar. Reykjavík, 30. marz 1960. Skattstjórinn i Reykjavik.

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.