Verkamaðurinn - 27.05.1960, Blaðsíða 1
UERKfflnflDURinn
j HAPPDRÆTTI ÆF.
Þeir, sem hafa fengið miða til
sölu, eru vinsamlegast beðnir
að gera upp eigi síðar en á
fimmtudagskvöld. DREGIÐ
3. JÚNÍ.
XLIII. árg.
Akureyri, föstudaginn 27. maí 1960
21. tbl.
„Viðreisnin" í framkvæmd
Fiskverð lækkar, síldarverð lækkar
Með hverjum degi sem líðurf við að sú lœkkun komi illa við
sannar reynzlan betur en nokkr-
ar áætlanir eða fyrirfram gerðir
útreikningar, hver hin raunveru-
legu áhrif efnahagsráðstafananna
verða. Allt hækkar í verði, sem
til lífsviðurværis þarf, en laun
hækka ekki. Allt hækkar, sem til
framleiðslunnar þarf, nema
vinnan, sem oft er lítill hluti
framleiðslukostnaðarins, en það
verð, sem framleiðendur fá fyrir
vörur sínar hækkar ekki.
Þegar verð á útfluttum fiskaf-
urðum hækkaði að krónutölu við
gengislækkunina, upphófst mikil
deila milli hraðfrystihúsanna og
útgerðarmanna um það, hversu
mikið, eða öllu heldur lítið, út-
gerðin ætti að fá í sinn hlut af
verðhækkuninni. Þeirri deilu
lauk fyrir skömmu með því, að
ákveðið var, að útvegsmenn
skyldu fá kr. 2.53 á kg. fyrir fisk
veiddan á vetrarvertíðinni. Til
þess að hraðfrystihúsin fengjust
til að samþykkja þetta, gaf ríkis-
stjórnin þeim eftir 60 milljónir
króna af áður ákveðinni skatt-
heimtu, og má segja, að þá kæmi
uppbótarkerfið í gang á ný. En
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
heldur fast við það, að þessar 60
milljónir hafi aðeins nægt frysti-
húsunum til að greiða þetta verð
yfir vetrarvertíðina, og hefur nú
tilkynnt, að verðið hafi lækkað
aftiu- frá 20. þ. m. Frá þeim tíma
sé öllum meðlimum SH óheimilt
að greiða meira en kr. 2.20 fyrir
kg. af þorski. Á vertíðinni voru
allir bátar með veiðarfæri, sem
keypt voru fyrir gengislækkun,
og flestar nauðsynjar einnig á
„gamla verðinu“, en hér eftir
verður allt að kaupast á „nýja
verðinu“. Er því fljótséð, hver
áhrif verðlækkunin á fiskinum
hefur fyrir útgerðina.
Verð á bræðslusíld hefur nú
verið ákveðið, og er það kr. 10
lægra fyrir hvert mál en það var
í fyrra, nú kr. 110, en var kr. 120,
og auk þess hefur sjávarútvegs-
málaráðuneytið heimilað ríkis-
verksmiðjunum að ákveða meiri
lækkun á síldarverðinu, ef síldin
er mögur. Þama er um beina
lækkun í krónutölu að ræða frá
því, sem var í fyrra, þrátt fyrir
gengislækkunina og þrátt fyrir
það, að allt, sem til útgerðar
þarf, hefur hækkað í verði um
ca. 50 til 80% og sumt meira.
Enn hafa fleiri framleiðsluvör-
ur sjávarútvegsins lækkað til
muna frá því, sem var á síðasta
ári eða fyrir gengislækkun.
Þannig hefur t. d. verð á humar
Iækkað rnn ca. 25%, og er hætt
Vestmannaeyinga, sem undanfar-
in sumur hafa stundað humar-
veiðar af kappi. Er ekki annað
sennilegra, en mjög dragi úr
þeim veiðum, eins og nú hefur
orðið reyndin með vorsíldveiðina
við Suðurland, sem hefur nær
engin verið þrátt fyrir óvenju-
legt síldarmagn. En sú síld er nú
verðlaus, vegna þess að hún er
óseljanleg innan ramma hinnar
„frjálsu verzlunar“, sem nú hef-
ur verið komið á. Sú „frjálsa
verzlun“ er einnig orsök verð-
fallsins á Norðurlandssíldinni og
fleiri fisktegudum.
Þannig verða afleiðingar „við-
reisnarinnar“ á framleiðsluna
þveröfugar við það, sem boðað
var. í stað aukinnar framleiðslu
og betri afkomu sjávarútvegsins
kemur samdráttur í framleiðsl-
una og lækkað verð á afurðun-
um.
I landbúnaðinum verður það
sama uppi á teningnum, allar
framkvæmdir stöðvast sem og
vélvæðing búskaparins. Afleið-
ingin er stöðnun og síðan kemur
samdráttur. Einstök bú minnka
kannski ekki, en þeim fækkar.
Vegna þess, hve nú kreppir að,
verða sumir bændur að gefast
upp við búskapinn, og engir
treysta sér til að taka við.
Um iðnaðinn þarf ekki að fjöl-
yrða. Það er öllum Ijóst, að um
leið og allar verzlanir verða
fylltar af erlendum varningi sam
hliða því sem kaupmátturinn
Framhald á 4. siðu.
Frá aðalfundi Útgerðarfélags Akureyringa h.f.
Rekstrarafgangur sl. ár 4.7 millj. kr.
Greidd vinnulaun voru 22 millj. kr.
Aðalfundur Útgerðarfélags Akureyringa h.f. var haldinn sl.
mánudagskvöld í Samkomuhúsinu. Formaður félagsstjómar,
Helgi Pálsson, flutti skýrslu um reksturinn á liðnu ári, en
framkvæmdastjórarnir, Gísli Konráðsson og Andrés Péturs-
son, skýrðu reikninga félagsins.
Rekstrarafgangur á árinu varð 4 millj. 769 þúsund krónur
og nægði fyrir eðlilegum afskriftum af öllum eignum félags-
ins. Nettó-hagnaður, þegar afskriftir hafa verið reiknaðar, er
121 þúsund krónur.
Afli og framleiðsla.
Um miðjan janúar birtist hér í
blaðinu nákvæm skýrsla um afla
togaranna á árinu 1959 og ráð-
stöfun aflans. Skal það ekki end-
urtekið nú, en heildaraflamagnið
var 15.214.460 kg. á móti
19.505.388 kg. 1958.
Vegna þess, hve aflinn hefur
minnkað stórlega, er rekstrarút-
koman heldur ekki jafngóð og
1958, framleiðslan hefur minnk-
að. Þannig var framleiðsla hrað-
frystihússins 1959 136.033 kassar,
3.496.460 kg., en 1958 var fram-
leiðslan 152.920 kassar, 3.908.075
kg., en langsamlega mestur hluti
af afla togaranna hefur farið til
vinnslu í hraðfrystihúsinu. —
Skreiðarvinnsla var svipuð og
1958, en saltfiskverkun mun
minni. Úrgangur, seldur Krossa-
nesverksm. varð 8.183.870 kg.,
eða meira en 50% af heildar-
aflamagninu. 1958 var úrgangur-
inn 9.221.954 kg.
Rekstursafkoman.
Samkvæmt aðalrekstrarreikn-
ingi urðu heildartekjur félagsins
NEMENDÁTÓNLEIKAR
Tónlistarskólans á Akureyri
fóru fram í Lóni laugardaginn gáfaðir nemendur, og var mjög
21. maí og sunnudaginn 22. maí
síðastliðinn.
Fyrri daginn komu fram
fimmtán nemendur, byrjendur
og aðrir, sem ekki voru komnir
langt áleiðis, og sýndu getu sína
í píanóleik.
Það leyndi sér ekki, að þessar
ungu nemendur hafa notið góðr-
ar kennslu, en erfitt er enn að
sjá um framtið þeirra. Þó er sitt
hvað, sem bendir til þess, að
rniklir hæfileikar búi hjá sumum
þeirra að minnsta kosti.
Það var óblandin ánægja að
hlýða á píanóleik þessa unga tón-
listarfólks.
Síðari daginn komu fram átta
nemendur í píanóleik, þeir sem
beztir voru í skólanum og lengst
komnir. Þetta eru augljóslega
fróðlegt að veita eftirtekt, hvern-
ig vaxandi og mjög mismunandi
persónuleiki kom fram í flutningi
þeirra á verkefnunum. Meðal
þeirra eru áreiðanlega nokkur
álitleg listamannaefni.
Það er mikið lán, að Tónlistar-
skólinn hefir á að skipa ágætum
kennurum. En ég saknaði þess
mikið, að enginn nemandi í org-
elleik kom fram né í fiðluleik.
Vonandi vaknar áhugi á námi
í orgelleik, þegar hið nýja( og
vandaða pípuorgel kemur í Ak-
ureyrarkirkju. Orgelið hefir
löngum verið nefnt drottning
hljóðfæranna, og víst er það, að
ekkert hljóðfæri túlkar jafn vel
hið fegursta, hæsta og dýpsta
sem tónlistin hefir að bjóða.
Á. S.
á árinu kr. 91.990.496.67, og nettó-
hagnaður, þegar afskriftir hafa
verið reiknaðar kr. 121 þús.
Hraðfrystihúsið sýnir hagnað 2
millj. 12 þús. (afskrift kr. 2 millj
112 þús.). Kaldbakur sýnir halla
kr. 87 þús. (afskrift kr. 381 þús.).
Svalbakur skilar ágóða kr. 447
(afskrift kr. 377 þús.). Harðbak-
ur sýnir halla kr. 607 þús. (af-
skrift kr. 862 þús.). Sléttbakur,
halli kr. 305 þús. (afskrift kr. 570
þús.).
Skreiðarverkunin skilar rúml.
12 þús. kr. hagnaði, netaverk-
stæðið tæpu þúsundi og rekstur
bifreiða kr. 6 þús. 8 hundr.
Á Fiskverkunarstöðinni er tap
kr. 10 þús., tap á útgerð skóla-
skips í fyrrasumar kr. 38 þús.
Vextir af gömlum töpum nema
kr. 1.244.185.87.
Eignir og skuldir .
Eignir félagsins í árslok eru
bókfærðar á kr. 68.3 millj., en
skuldir eru 88.6 millj. Öfugur
höfuðstóll eða skuldir umfram
eignir er þannig 20.3 millj. kr.
Helztu eignir félagsins eru bók-
færðar sem hér segir:
Hraðfrystihúsið með vélum 10
millj. 957 þús. kr., Kaldbakur
983 þús. kr., Svalbakur 1 millj.
485 þús. kr., Harðbakur 5 millj.
959 þús. kr., Sléttbakur 4 millj.
498 þús. kr., Fiskverkunarstöðin
1.5 millj. kr. og Gránufélagsgata
4 kr. 750 þús.
Birgðir eru taldar tæpar 16
millj., kr. og útistandandi skuld-
ir eru 20 millj. kr.
Vinulaun 22 inillj. kr.
Félagið greiddi í vinnulaun á
árinu um 22 millj. kr., og er þá
aðeins það talið, sem fer beint
frá félaginu sem launagreiðslur,
en ótalin er þá margvísleg vinna
í sambandi við rekstur félagsins,
svo sem viðgerðir allar, aðkeypt-
ur akstur og margt fleira, fyrir
utan þá vinnu, sem Krossanes-
verksmiðjan veitir við vinnu úr-
gangsins. Ef öll sú vinna væri til
týnd, sem til fellur í bænum í
sambandi við og vegna starfsemi
Utgerðarfélagsins, myndi þar
verða um ótrúlega háa tölu að
ræða.
Launagreiðslur hraðfrystihúss-
ins eins námu 5.6 millj. kr., en
beinar launagreiðslur til áhafna
allra togaranna námu 11.4 millj.
kr., þar fyrir utan eru greiðslur
í lífeyrissjóði og fæðiskostnaður.
Stjórnarkjör.
Stjórn félagsins var öll endur-
kjörin, en hún er þannig skipuð:
Helgi Pálsson, Jónas G. Rafnar,
Tryggvi Helgason, Jakob Frí-
mannsson og Albert Sölvason.
Endurskoðendur eru Þórir
Daníelsson og Ragnar Steinbergs-
ÞINGSLIT
Tilkynnt hefur verið, að út-
varpsumræður, eldhússdagsum-
ræður, verði á Alþingi á mánu-
dags- og þriðjudagskvöld. Fer þá
sennilega að ljúka þessu þingi,
sem verið hefur eitt hið lengsta
og illvirkasta í sögu landsins.
ÞORSTEINSDAGUR
Á morgun, laugardaginn 28.
maí, er að þessu sinni hinn árlegi
skógræktardagur helgaður minn-
ingu Þorsteins Þorsteinssonar,
hins mikla áhugamanns um skóg-
rækt og fleiri menningar- og
frmfaramál. Eins og undanfarin
ár verður nú farin gróðursetning-
arferð þennan dag að Miðháls-
stöðum í Öxnadal.
Að Miðhálsstöðum hefur oftast
verið mikið fjölmenni við gróð-
ursetningu á Þorsteinsdag, og
svo verður vonandi einnig á
morgun. Með því að fjölmenna í
þessa skógræktarferð gera menn
tvennt í senn, leggja sitt af mörk-
um til eflingar skógræktinni, en
hana vilja allir góðir menn
styðja, og sína virðingu sína
minningu hins ágæta manns, sem
þessi dagur er helgaður.
Þeir, sem taka vilja þátt í ferð-
inni, skulu mæta til brottfarar
við Ferðaskrifst. kl. 2 e: h., en til
þess að tryggt verði, að nægur
farkostur verði fyrir hendi til
að flytja alla og einnig að nóg
verði tekið með af áhöldum, er
æskilegt að þátttaka verði áður
tilkynnt Tryggva Þorsteinssyni
kennara í síma 1281.
SELJUM ALLA MIÐA í HAPPDRÆTTI Æ. F.