Verkamaðurinn - 01.07.1960, Qupperneq 4
4
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn I. júlí 1960
i S AGT OG SKRIFAÐ
Frá bæjarstjórnarfundi
Bæjarstjórnarfundur var haldinn sl. þriðjudag. Helztu sam-
þykktir fundarins voru eftirfarandi:
Kunnugt er af fréttum aS Sigl-
firðingar hafa nú mikinn hug á
að láta smíða fyrir sig nýtízku
togara. Er fyrirhugað að það
verði skuttogari, en það mun nú
almennt hald manna, að smiði
togara, eins og þeir nú gerast hjá
oþkur, muni algerlega hverfa úr
SÖguni og rýma fyrir skuttogur-
um, sem vinni aflann að verulegu
leyti um borð og bjóða upp á allt
önnur og betri skilyrði til starfa.
Þessi góða frétt um framfara-
hug Siglfirðinga á þessum síð-
ustu og verstu tímum hefur orðið
„Degi" tilefni til lélegrar fyndni,
sem Sjávarafurðadeild SÍS er
borin fyrir. Skopast blaðið mjög
að þeirri hugmynd, að starfsskil-
yrði og búnaður íbúða í hinu
nýja skipi eigi að gera mögulegt
fyrir ung hjón að starfa þar sam-
an, ef svo vill verkast.
•
Alþýðumaðurin heldur enn
áfram rógi sínum um Verka-
manafélagið, félagsmenn þess og
stjórn, í þeim augsýnilega til-
gangi að veikja það í rísandi
átökum um launakjörin. En eftir
frásögn blaðsins í þessari viku er
nú svo komið að blaðið verður að
leita til utanflokksmanna til að
fá fregnir af fundum félagsins.
Sýnir það vel hve mikið fylgi Al-
þýðuflokkurinn á nú orðið meðal
verkamanna. En ekki virðist
sanleiksástin íþyngja sögumanni
Alþm. frekar en fyrri daginn, því
að ekki er minnu logið en 60%
um fundarsóknina á síðasta
fundi.
En meðal anarra orða. Því
minnist Alþm. ekki á fundarsókn
í þeim verkalýðsfélögum, sem
kratar stjórna ennþá. Skyldi hún
vera betri en annars staðar?
•
Hér á Akureyri hefur, sem bet-
ur fer, aðeins eitt félag orðið fyr-
ir þeirri ógæfu að vera lengi
undir slíkri stjóm. í því félagi
var enginn fundur haldinn í rúm-
lega tvö ár. Aðalfundur fórst fyr-
ir tvö ár í röð, en ólögieg stjórn
skipaði öllum málum. Þetta félag
hefur í nær áratug látið hjá líða
að gera nokkurn kjarasamning
fyrir félaga sína.
Þetta er lítið dæmi af mörgum
hliðstæðum um „áhuga og dugn-
að“ Alþýðuflokksins í verkalýðs-
málum, en fleiri dæmi mætti
taka, hvenær sem Alþm. kynni
að óska.
Slíkrar stjórnar æskja verka-
menn á Akureyri sér ekki í sínu
félagi og þess vegna er krata-
blaðið fullt af skapillsku þegar
það á í hlut.
Listaverkanefnd.
Kjörin var fjögurra manna
nefnd, er ásamt bæjarstjóra skal
hafa það hlutverk að athuga
möguleika á útvegun og upp-
setningu listaverka frá listasafni
ríkisins hér á Akureyri. í nefnd-
ina voru kosnir:
Steindór Steindórsson,
Einar Helgason,
Gísli Konráðsson og
Ásgeir Jakobsson.
Gjöld sameinuð.
Eftir tillögu bæjargjaldkera var
samþykkt að sameina í einn
gjaldstofn eftirtalin gjöld, sem
heimt eru af nýbyggingum:
Lóðaleiga (fyrsta árs), aukavatns
gjald, byggingaleyfisgjald, hol-
ræsagjald.
Verður hið sameinaða gjald
nefnt byggingaleyfisgjald og
nemur þar kr. 1.50 á rúmmetra
nýbyggingar og greiðist bæj-
argjaldkera um leið og teikn-
ing af samþykktri nýbygingu er
afhent.
Ábýrgðir.
Samþykkt var að veita Valtý
Þorsteinssyni bæjarábyrgð fyrir
600 þús. kr. láni vegna skipa-
kaupa, gegn veði í skipinu og
ennfremur gegn því að bræðslu-
síld sú, sem væntanlegt togskip
(Ólafur Magnússon) veiðir mið-
svæðis norðanlands, verði lögð
upp í Krossanesverksmiðj unni.
Þá var Jóni Hjartarsyni veitt
bæjarábyrgð fyrir 90 þús. kr. láni
hjá Fiskveiðasjóði gegn 1. veð-
rétti í bát hans, Hrönn EA 65.
Öryggismálaráðstefna
Sl. mánudag og þriðjudag var
haldin í Reykjavík norræn ráð-
stefna um öryggiseftirlit á vinnu-
stöðvum og sátu hana 26 fulltr.
frá Norðurlöndunum 5: Dan-
mörku, Finlandi, Noregi, Svíþjóð
og íslandi, auk allmargra gesta.
Þetta er sjötta norræna ráðstefn-
an, sem haldin er um þessi mál.
Á ráðstefnunni var rætt um
nýjungar á þessu sviði og fluttir
fyrirlestrar um einstök atriði
varðandi öryggi á vinnustöðvum.
í fyrradag heimsóttu fulltrúarnir
á ráðstefnunni Hafnarfjörð og
síðan fóru þeir til Þingvalla og
að Soginu. Ennfremur fóru þeir
austur í Hveragerði og að Gull-
fossi pg Geysi.
í fyrradag áttu fréttamenn
stutt viðtal við aðalfulltrúana frá
verju landi. Kom það m. a.fram
í þeim viðræðum, að hér á landi
væri mun minni samvinna á milli
vinnuveitenda og verkalýðssam-
takanna um öryggiseftirlit á
vinnustöðvum heldur en á hin-
um Norðurlöndunum. Einnig
sagði Þórður Runólfsson, örygg-
ismálastjóri, að hér væri það
mikið vandamál, að landbúnaðar-
störf heyrðu ekki undir öryggis-
eftirlit ríkisins, eins og á hinum
Norðurlöndunum, og þyrfti hvort
tveggja úrbóta við.
Heilbrigðisfulltrúi
segir upp.
Upplýst var á fundinum, að
Kristinn Jónsson heilbrigðisfull-
trúi hefur sagt upp því starfi frá
1. júlí þ. á. Segir hann upp starf-
inu vegna vaxandi starfa í þágu
flugmála. Kristinn hefur verið
heilbrigðisfulltrúi í nær 20 ár.
Samkomuhúsið.
Kosnir voru í nefnd til að gera
tillögur um breytingar á Sam-
komuhúsi bæjarins, er miði að
því að bæta aðstöðu samkomu-
hússgesta, þá
Jón Ingimars^on,
Ágúst Kvaran og
Mikael Jóhannesson.
Byggingalóðir.
Eftirtöldum hafa verið veittar
byggingalóðir:
Ármann Sveinsson, Langholt 19.
Jónas Guðmundss., Langholt 20.
Ingólfur Guðmundss., Langholt 2.
Þór Árnason, Langholt 16.
13286
mál til Iírossanes-
verksmiðjunnar
Unnið að bræðslu allan
sólarhringinn.
í gær höfðu borizt til Krossa-
nesverksmiðjunnar 13286 mál
síldar. Þessi skip höfðu þá landað
í verksmiðjuna:
Sigurður Bjarnason . . 3504 mál
Súlan ............... 1360 mál
Björgvin............. 3366 mál
Snæfell ............. 1810 mál
Hafþór NK ............ 801 mál
Sæfari NK............. 485 mál
Björgúlfur .......... 1184 mál
Gunnar SU ............ 776 mál
Unið er nú nótt með degi í
verksmiðjunni.
I RED BOYS. |
I A laugardaginn fá Akureyr- i
i ingar heimsókn frá Luxem- É
I borg. Knattspyrnuliðið Red i
i Boys, sem er annað bezta Uð I
I þar í landi, leikur við ÍBA kl. \
i 5 á laugardag og aftur á mánu =
= daginn kl. 8.30.
rpapDp SÍMI 2500
Frá og með föstudeginum 1. júlí verður símanúmer
okkar 2500, þrjár línur.
Eftir kl. 17 á daginn:
2501 Skrifstofan
2502 Setjarasalur
2503 Forstjóri
Prentverk Odds Björnssonar hi.
AÐVÖRUN
Að marggefnu tilefni er athygli vakin á, að samkvæmt
iðnlögunum er óheimilt að hafa réttindalausa menn
við hvers konar trésmiðavinnu, að viðlögðum sektum.
STJÓRN OG EFTIRLITSNEFND
TRÉSMIÐAFÉLAGS AKUREYRAR.
NÝKOMIÐ:
PILSEFNI
smáköflótt
' VEFNAÐARVÖRUDEILD
Lúðrasveit drengja er ekki gömul í hettunni. En þessi starf-
sem, sem hófst innan Barnaskóla Ak. fyrir um tveim árum,
lofar góðu. Drengirnir eru áhugasamir og sýna undraverðan
árangur í list sinni. — Myndin er frá 17. júní hátíðahöldunum
á Akureyri. Drengahljómsveitin leikur á íþróttavellinum
undir stjórn Jakobs Tryggvasonar.
Verðhækkanirnar æ almennari
/
Með hverjum degi, er líður, færast verðhækkanirnar í
aukana, eftir því sem eldri birgðir þverra og nýjar vörur
koma í verzlanir í staðinn. En kaupgjald lækkar þannig
raunverulega dag frá degi.
Eftirfarandi skrá gefur nokkra hugmynd um hækkan-
ir á erlendri matvöru og nokkrum öðrum almennum
vörutegundum.
Var fyrir Er nú Hækk-
gengisfell. un í %
Smjörlíki kg 8.30 13.40 62%
Haframjöl kg 3.90 6.70 72%
Haframjöl í pökkum pk. . . 7.15 10.80 51%
Hveiti kg 3.85 5.90 53%
Hveiti í 10 Ibs. pokum . . . . 21.55 33.85 57%
Strásykur kg 3.80 5.25 38%
Molasykur kg 6.85 9.25 35%
Cacao Yz lbs 11.30 19.80 75%
Corn Flakes pk 8.25 11.90 32%
Olía til húsa ltr 1.03 ,1.30 27%
Gúmmískófatnaður, hækkun 40—60%
Barnaskór úr leðri, dæmi, . . 131.00 201.00 50%
Kjaraskerðingin verður aðeins 3% sögðu stjórnar-
flokkarnir í vetur!
Við þessa skrá er það að athuga, að verð á kornvönrm,
kaffi og sykri er niðurgreitt, en fjár tif niðurgreiðslanna
er aflað með óbeinum sköttum á aðrar vörur. Hækkun
á olíum erekki öll fram komin enn vegna verðjöfnunar.