Verkamaðurinn - 26.08.1960, Page 3
Föstudaginn 26. ágúst 1960
VERKAMAÐURINN
3
SKORTUR A SLATTUMONNUM
veldur seinagangi á hirðingu lóða hjá
bænum, segir garðyrkjuráðunautur
Á fundi þeim, sem Jb egrunarfé-
lagið héft með fréttamönnum og
ifeirum á sunnudaginn, héit garö
yrkjuráðunautur bæjarins ræðu,
þar sem hann ræddi m. a. um
hirðingu þeirra fóóa og opinna
svæða í bænum, sem bæjaríéiag-
inu ber að annast um hirðingu á.
Tiiefni ræðu garðyrkj uráö unauts
virtist vera greinarkorn eítir
„L.“, sem birtist í síðasta bfaði
Verkamannsins, en grein þá ias
ráðunauturinn upp og svaraði hð
fyrir hð frá hans bæjarhóh séð.
Þar sem f imdin- þessi var f ámenn-
ur, þykir rétt að rekja hér stutt-
lega svör ráðunautsins.
Hann kvað það rétt, að sumt
af auðum svæðum í bænum væri
ennþá óslegið, en kvað óréttmætt
að hann eða aðrir ráðamenn bæj-
arins væru sakaðir um það.
Ástæðan væri einfaldlega sú, að
það væru um það bil 500 dags-
verk að slá ailar þær lóðir, sem
bæjarfélagið yrði að sjá um slátt
á, en aðeins fjórir til fimm menn
fengjust til að sinna þeirri at-
vinnu. Væri þá fljótreiknað, að
það tæki minnst þrjá mánuði að
ljúka þessum siætti og þess
vegna ekki við því að búast, að
honum væri lokið ennþá. Hins
vegar yrði haidið áfram að slá, og
væntanlega ynnist tími til að slá
alit, sem þyrfti. Hann kvað það
hafa flýtt fyrir slætti á undan-
förnrnn árum, að ýmsir hefðu
fengið að slá ákveðin svæði gegn
því að fá heyið ,en nú væri svo
komið, að enginn vildi sinna
slíku, og jafnvel fengjust engir til
að hirða töðuna slegna, þó að hún
væri boðin án endurgjalds, og
bærinn hefði orðið að aka mörg-
um hundruðum hesta af töðu
á öskuhaugana í sumar, því að
ekki borgaði sig að þurrka hana,
þegar htlar sem engar vonir
væru um sölu. Af þessum ástæð-
um kvaðst ráðrmautirrinn kapp-
kosta að bera sem minnst á, og
helzt ekkert, til þess að töðufeng-
urinn yrði sem minnstur. I þessu
sambandi tók hann það einnig
fram, að hann skyldi ekki þá
bændur, sem kepptust um að
bera sem mest á og fá sem mest
hey, en vissu svo eirkert hvað
þeir ættu viö heyin að gera.
Um i'ögrubrekku, sunnan við
íþróttavöllinn tók ráðunauturinn
íram, aö hún kæmi sér ekkert
við. Það væru íþróttafélögin, sem
ættu að hirða um hana.
Þá ræddi ráðunauturinn um
njólann, sem hann sagði, að
margir bæjarbúar hefðu á heil-
anum, en sér virtist njóh fara
minnkandi í bænum. Einstakir
blettir hefðu verið úðaðir með
góðum árangri, en það væri dýrt
og þess vegna hefði það ekki
verið gert í stórum stíl.
Nokkir viðstaddra létu í ljós,
þeir væru ráðimautnum ekki
sammála um, að njólinn væri í
afturíör, þeim virtist hann
blómstra svo vel, að nauðsynlegt
væri að herða sóknina gegn hon-
um, a. m. k. ef Akureyri ætti
áfram að hafa orð fyrir að vera
þrifalegur og vel hirtur bær. Var
m. a. á það bent, að það væri til
lítillar prýði við aðaheið inn í
bæinn, og th lítils sóma fyrir til-
raunastöð í landbúnaði, að hafa
njólagarð eins og þann, sem nú
væri við kúabúið á Galtalæk.
Garðyrkjuráðunauturinn minnt-
ist einnig á margt fleira í ræðu
sinni, svo sem skrúðgarðarækt-
ina. Hann kvað það svo víða er-
lendis, að menntamenn, prestar,
læknar, lögfræðingar o. s. frv.,
ættu fegurstu garðana, en hér
væri þessu öfugt farið. Hér á
landi annað hvort nenntu
menntamenn ekki að fást við
garðrækt eða þættust of fínir til
að láta sjást á sér mold. Sérstak-
lega kvað hann hérlenda presta
htla garðyrkjumenn. Einnig tók
hann dæmi af menntaskólakenn-
urum hér í bæ og sagði að eigin-
lega væri ekki nema einn þeirra,
sem sinnti garðræktinni.
Þá gat ráðunauturinn þess, að
honum hefði ekki verið fahð að
gera neitt til fegrunar bæjarins,
og þeir peningar, sem í því skyni
væru ætlaðir á fjárhagsáætlun
bæjarins, færu til þess að kosta
slátt og önnur útgjöld við hey-
vinnuna.
Minningarathöfn um son minn,
BJÖRGVIN ARNASON,
Hafnarstræti 81, sem andaðist 30. júlí sl., fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju laugardaginn 27. ágúst kl. 1.30 e. h.
Elísabet Jakobsdóttir.
ÚTSALAN
er í fullum gangi
í dag bætist við mikið af KÁPUM og einnig
DRAGTIR. — Komið og gerið góð kaup.
VERZLUN B. LAXDAL
Réft athugað
í „Alþm“ á þriðjudaginn má
lesa þetta:
„Það væri þannig mikilsvert,
að verkalýðsfélögm vönduðu vel
val fuiltrúa sinna á komandi Al-
þýðusambandsþing, kysu sér
hvort tveggja í senn varfærna
menn og þó fasthenta á réttindi
og kjör umbjóðenda sinna, menn
sem krefðust vissulega þess, sem
verkalýðnum ber af þjóðartekj-
unum, en gættu þess á hinu leit-
inu að krefjast einskis þess, sem
þjóðarheildinni er óhagfellt.“
Verkamaðurinn tekur eindreg-
ið undir þessi orð og væntir þess,
að sem flestir hafi þau að leiðar-
ljósi, en að því kemur að velja
fulltrúa á Alþýðusambandsþing.
En jEifnframt vill blaðið benda á
það, að verkalýðsstéttin er lang-
fjölmeimasta stéttin í landinu og
þess vegna fara hagsmunir þjóð-
arheildarinnar og verkalýðsstétt-
arinnar meira saman en hags-
munir nokkurrar annarrar stétt-
ar í landinu. Það er því alveg
óþarft að hafa áhyggjur af því,
að verkalýðurinn geri meiri kröf-
ur en þjóðarheildinni er hag-
kvæmt. Hins vegar þarf að vera
vel á verði gagnvart ýmsum fá-
mennari stéttum og hagsmuna-
hópum, og væri ekki óeðlilegt að
„Alþm.“ varaði fremur við þeim,
sem hætta stafar en þeim, sem
hættulausir eru, nema hann sé af
ásettu ráði að leiða athyglina frá
ræningjunum.
1700
Utsvarsskrá Reykjavíkurbæjar
var lögð fram fyrir fáum dögum.
Sanjkvæmt henni ber Vilhjálmi
Þór, fyrrverandi aðalbankastjóra,
að greiða kr. 1700.00 í útsvar á
þessu ári.
Það má merkilegt heita, að
maðurinn skyldi ekki vera löngu
búinn að segja upp þessu banka-
stjórastarfi og leita sér arðbærari
atvinnu. Með slík sultarlaun sem
útsvarið bendir til að Vilhjálmur
hafi haft myndu víst fæstir hafa
beðið eftir því að verða reknir.
Berjaferð Iðju. Iðja fer berja-
ferð á sunnudaginn að Yzta-
hvammi í Aðaldal. Lagt verður
af stað kl. 8 f. h. frá BSA. Far-
miðar fást hjá trúnaðarmönnum
á vinnustöðum og á skrifstofu
verkalýðsfélaganna. Félagar ættu
fjölmenna í þessa ferð.
Fargjaldið verður aðeins sjötíu
krónur fyrir manninn.
I
I
1
* <3
I V
i
Innilega þakka ég öllum þeim, sem sýndu mér sœmd ^
og vináttu með hlýjum orðum, gjöfum og heillaskeyt- ^
um á 75 ára afmœli mínu. ^
Karl M. Guðmundsson. t
AÐVÖRUN
um stöðvun atvinnurekstrar vegna van-
skila á söluskatti og útflutningssjóðsgjaldi.
Samkvæmt heimild í lögum nr.10 22. marz 1960 verður
atvinnurekstur þeirra fyrirtækja hér í umdæminu, sem
enn skulda söluskatt II. ársfjórðungs 1960, svo og eldri
söluskatt og útflutningssjóðsgjald stöðvaður, þar til þau
hafa gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum ásamt
áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði.
Þeir sem vilja komast hjá stöðvun verða að gera full
skil til skrifstofu minnar eigi síðar en miðvikudaginn
31. þ. m.
Bæjarfógeti.
RÚSÍNUR
Kr. 22,00 kílóið
NÝLENDUVÖRUDEILD OG ÚTIBÚIN
Frá barnaskólum Akureyrar
Skólarnir taka til starfa þiiðjudaginn 6. september
næstk. kl. 10 árd.
Mæti þá öll börn fædd 1951, 1952 og 1953.
Tilkynna þarf forföll.
Glerárskólinn tekur þó ekki til starfa að sinni vegna
viðgerða á skólahúsinu.
SKÓLAST T ÓR ARNIR.
- --r -
TILKYNNING
Það starfsfólk, sem undanfarin haust hefur unnið á
sláturhúsi voru á Oddeyri og hugsar sér að vinna þar
í sláturtíðinni í haust, er vinsamlega beðið að gefa
sig fram við sláturhússtjórann hið allra fyrsta. Gerum
ráð fyrir að þurfa nýtt fólk til viðbótar í haust.
Sláturhús K.E.A. - Sími 1108.
MJALLHVÍT TILKYNNIR
Höfum opnað nýtt þvottahús að Hólabraut 18.
- Reynið viðskiptin.
MJALLHVÍT - SÍMI 2580