Verkamaðurinn - 09.09.1960, Síða 1
VEHHnmnÐURinn
I Ritstj.: Þorsteinn Jónatansson.
Útg.: Sósialistafélag Akureyrar.
Skrifstofa Hafnarstræti 88.
S.’mi 1516.
í Áskrifiarverð kr. 50.00 árg.
1 Frentverk Odds Björnssonar n.f.
XLIII. árg.
Akureyri, föstudaginn 9. september 1960
30. tbl.
Vorvindar blása
í dag gerist þýðingarmikill og sögulegur atburður með
þjóð vorri. Á hinum fornhelga þingstað þjóðarinnár, Þing-
völlunr við Öxará, hefst landsfundur herstöðvaandstæðinga. í
dag koma þar saman til fundar kjörnir fulltrúar frá flestum
byggðarlögum á landinu. Verkefni þeirra er að skipuleggja
landssamtök lil baráttu gegn liersetunni og fyrir hlutleysi
landsins og ákveða um baráttuaðferðir. Á morgun hefst svo
almennur fundur allra þeirra, sem vilja og tækifæri hafa til að
koma á Þingvöll þann dag, taka þar þátt í fundarstörfum og
undirstrika með komu sinni ákveðna andstöðu við setu hers-
ins í landinu, alla herstöðvasamninga og þátttöku íslands í
hernaðarbandalögum.
Undanfarnar vikur hafa fundir verið haldnir víðs vegar um
landið til undirbúnings landsfundinum á Þingvöllum. Alls
hafa þannig verið haldnir 60 undirbúningsfundir og héraðs-
nefndum herstöðvaandstæðinga komið á fót í flestum byggð-
arlögum. Alls staðar hefur komið í ljós ótvíræður og vaxandi
vilji með þjóðinni til að samstilla krafta sína til stórátaka
með það fyrir augum, að hinu erlenda herliði verði í eitt
skipti fyrir öll vísað úr landi með vígvélar sínar og morðtól.
Öllum er ljóst orðið, að af dvöl herliðs í landinu stafar þjóð-
inni aðeins illt eitt, hættunum er boðið heim, en verndin ei
engin og getur ekki orðið neiu.
Stjórnarvöld landsins hafa í lengri tíma ekkert reynt nerna
síðar sé tif að losa land og þjóð við þá srnán og svívirðu, sem
hersetan er. Þess vegna hefur fólkið sjálft, karlar og konur
livervetna um byggðir landsins, tekið höndum saman um að
hrinda af sér ófögnuði þessum. Og þetta er hægt að gera, ef
samtökin eru nógu traust og hiklaus. Ef þjóðin fylkir sér ein-
huga um að koma þessu máli í framkvæmd, þá verða stjórnar-
völdin að fylgja á eftir, þau geta ekki til lengdar þverskallast
við einhuga og ákveðnum óskum og kröfum þjóðarinnar.
Et' til vill er þjóðin ekki nógu einhuga ennþá. Hersetan á
ennþá formælendur, þó að þeir gerist nú fáir. En augljóst er,
að fólkið hefur þjappað sér vel saman síðustu vikurnar, og sá
stormur er í nánd, sem ekkert fært staðizt. 'Það munu hinir
fáu herstöðva- og hernaðarsinnar, sem ennþá finnast í land-
inu, fljótlega finna, að jafnvel þó að þeim finnist baráttan
gegn hersetunni og fyrir hlutleysi íslands aðeins goluþytur
enn sem komið er, þá hvessir senn. Sá stormur er í nánd, sem
er þess megnugur að feykja á brott því hrófatildri og þeim
vígvélum, sem hlaðið hefur verið niður hér á okkar kæra landi
öllum til óþurftar.
Allir heiðarlegir og sannir íslendingar fagna Þingvalla-
fundinum og senda þangað beztu kveðjur og óskir. Þó að nú
sé að hausta í ríki veðráttunnar, þá er Þingvallafundurinn
augljóst merki þess, að það er vor í huga íslenzku þjóðarinn-
ar. Og þeir vorvindar, sem frá Þingvöllum munu blása, verða
þess megnugir að hreinsa burtu verstu smán þjc>ðarinnar.
Þingvallafundur hernámsandstæðinga
hefst í dag
A morgun verður útisamkoma á bakka
Almannagjár
Þingvallafundurinn, sem að undanförnu hefur verið undir-
búinn með samkomuhaldi og skipun héraðsnefnda um land
allt, hófst í Valhöll á Þingvöllum í morgun. í dag og fyrri
hluta dagsins á morgun verður fulltrúafundur og gert er ráð
fyrir, að þar verði skipulögð og stofnuð landssamtök hernáms-
andstæðinga.
Gert er ráð fyrir að á fulltrúa- menn útisamkoma á vestri bakka
fundinum mæti um 200 manns
eða jafnvel fleiri. Hver hreppur
hefur rétt til að senda einn full-
trúa þangað og kaupstaðirnir
einn fulltrúa fyrir hverja þús-
und íbúa, og vitað er að víðast
hvar hafa fulltrúar verið kjörnir
til að mæta á þessum þýðingar-
mikla fundi.
Áætlað er, að fulltrúafundin-
um ljúki um miðjan dag á morg-
un, en þá hefst, kl. 3 e. h., al-
Almannagjár. Þar flytja þeir
Sverrir Kristjánsson og Gils
Guðmundsson ræður og flutt
verða ávörp frá hverjum lands-
fjórðungi. Fyrir Norðlendinga
talar Hjörtur Eldjám Þórarins-
son, bóndi á Tjörn í Svarfaðar-
dal, fyrir Austfirðinga Sigurður
Blöndal, skógarvörður á Hall-
ormsstað, fyrir Vestlendinga
Guðmundur Ingi Kristjánsson,
skáld á Kirkjubóli, og fyrir
Björgunarafrek
Síðdegis á mánudag vildi það
til hér við höfnina, er tveir átta
ára drengir voru á gangi eftir
hafnarbakkanum, að öðrum
drengnum var hrint í sjóinn af
ÞRJÁR UMSÓKNIR
i
Til þessa hafa borizt þrjár um-
sóknir um prestsembætti það,
sem laust er á Akureyri. Það eru
■ Sigurður Haukur Guðjónsson,
| prestur á Hálsi, Birgir Snæ-
. björnsson, prestur í Laufási, og
' Jón Hnefill Aðalsteinsson. Um-
i
sóknarfrestur er til 20. þ. m. —
Kosningaáróðurinn er þegar í
fullum gangi í bænum.
Engar rafvæðingarframkvæmdir í NorS-
ur-Þingeyjarsýslu innan ramma 10 ára
áætlunarinnar frá 1954
F ramf ærsluf ulltrúi
Á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar á þriðjudaginn var Björn
Guðmundsson varðstjóri kjörinn
framfærslufulltrúi bæjarins. —
Hann hlaut atkvæði 6 bæjarfull-
trúa, en Rafn Hjaltalín hlaut
fimm atkvæði. Alls voru um-
sóknir um starf þetta 11.
Þá samþykkti bæjarstjórn enn-
fremur, að sameinuð yrðu störf
framfærslufulltrúa og heilbrigð-
isfulltrúa. Hinn nýkjörni fram-
færslufulltrúi verður því einnig
heilbrigðisfulltrúi. Því starfi
gegndi áður Kristinn Jónsson
fulltrúi, en sagði því lausu á sl.
vori.
Á að svíkja gefin fyrirheit í þessum efnum?
Raforkumálanefnd Norður-
Þingeyjarsýslu, sem skipuð er
fulltrúum úr öllum hreppum
„Fundur raforkumálanefndar
Norður-Þingeyjarsýslu, haldinn
að Kópaskeri þann 10. ágúst
sýslunnar, að Hólsfjallahreppi [ 1960, telur að Alþingi og ríkis-
undanskildum, kom saman til stjóm hafi enn ekki sýnt lit á að
fundar 10. fyrra mánaðar og
uppfylla, að neinu leyti, að því
ræddi útlit og ráðagerðir um raf- er Norður-Þingeyjarsýslu varðar,
væðingu í sýslunni, en helzt virð-
ast horfur á, áð nú sé ætlunin að
Norður-Þingeyingar verði alveg
settir utangarðs við rafvæðingu
á næstunni.
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt í einu hljóði:
þau fyrirheit, sem gefin voru,
með samþykkt hinnar svokölluðu
tíu ára áætlunar, sem Alþingi
samþykkti árið 1954, um rafvæð-
ingu landsins, frá vatnsaflsvirkj-
unum ríkisins, þar sem Norður-
(Framhald á 4. síðu.)
stærri dreng, er þar var einnig á
ferð. Sá hljóp þó þegar á burtu
og hugði ekki eftir afleiðingum
af gerðum sínum. En félagi þess,
sem í sjóinn féll, varð ekki ráða-
laus. Hann fann bjarghring í
nærliggjandi bát, kastaði honum
til þess, er í sjónum var, og dró
hann síðan upp. Drengurinn, sem
í sjóinn féll, var lítt syndur, en
gat þó haldið sér uppi, þar til
hinn hafði náð í bjarghringinn.
Engir aðrir voru þama nær-
staddir, og er því óhætt að full-
yrða, að þarna hefði farið illa, ef
sá, sem eftir var á þurru, hefði
ekki reynzt svo snarráður, sem
raun ber vitni. En lítill verður
sómi þess, sem drengnum hratt í
sjóinn og hljóp síðan brott við
svo búið.
Drengurinn, sem björgunaraf-
rekið vann heitir Magnús Garð-
arsson, Eyrarandsvegi 27.
SKEMMDARVARGAR
Talsvert hefur borið á því að
undanförnu, að skemmdarvargar
hafi lagt leið sína í smábáta-
kvína hjá Slippnum . Ymsu hef-
ur verið stolið úr bátunum og
annað skemmt. Vélar hafa jafn-
vel verið gerðar óhæfar til notk-
unar og stundum nær eyðilagðar.
Hafa surpir smábátaeigendur
orðið fyrir verulegu tjóni af þess-
um sökum. Nauðsynlegt er, að
bátaeigendur gangi sem bezt frá
bátum sínum, læsi því sem hægt
er og láti ekki lausamuni liggja
á glámbekk. Þá ættu og allir,
sem þarna eiga leið um og sjá til
grunsamlegra mannaferða, að
gera lögreglunni aðvart.
Sunnlendinga Sigríður Árnadótt-
ir, húsfreyja í Arnarbæli. Leikar-
arnir Þorsteinn Ö. Stephensen og
Anna Stína Þórarinsdóttir lesa
kvæði eftir Einar Benediktsson _
og Jakobínu Sigurðardóttur, Al-
þýðukórinn í Reykjavík syngur
undir stjórn Sigursveins D. Krist
inssonar og einnig verður al-
mennur söngur.
Á sunnudaginn er ráðgerð sam-
koma í Reykjavík.
Merki Þingvallafundar.
Gerð hafa verið sérstök merki
í tilefni Þingvallafundarins og
verða þau seld um allt land dag-
ana sem fundurinn stendur. Til-
gangurinn með sölu merkjanna
er tvíþættur: Annars vegar að
gefa mönnum tækifæri til að
sýna hug sinn til herstöðvabar-
áttunnar með því að bera merki
fundarins á meðan hann stendur,
og hins vegar að afla fjár til að
standa straum af þeim mikla
kostnaði, sem fundarhaldið,
ásamt undirbúningi þess, hefur í
för með sér.
Þessi merki verða seld hér á
götum bæjarins, og vonandi
leggja allir hernámsandstæðing-
ar í það metnað sinn að bera þau
næstu daga, þó að þeir ekki hafi
haft aðstöðu til að sækja firnd-
inn að Þingvöllum. Einnig verður
ritið Þingvallafundurinn selt á
götunum til styrktar sama mál-
efni.
Nýtt skólahús - Nýr
skólastjóri
Húsavík 7. sept.
Nýja skólahúsið verður tekið í
notkun í haust og verða skólarn-
ir, þ. e. Barnaskólinn og Gagn-
fræðaskólinn, báðir þar til húsa.
Skólahúsið er með þvi fullkomn-
asta, sem þekkist hér á landi, sér-
staklega er aðstaða til verknáms
og íþróttaiðkana fullkomin.
Sigurður Gunnarsson, sem ver-
ið hefur skólastjóri Barnaskól-
ans, lætur nú af því starfi, og
hefur Kári Arnórsson verið ráð-
inn skólastjóri í hans stað, en
hann hefur undanfarið verið
kennari í Hafnarfirði. Ingimund-
ur Jónsson, sem verið hefur
kennari við Barnaskólann, kenn-
ir nú við Gagnfræðaskólann, en
frú Anna Jeppesen hefur verið
ráðin kennari við Bamaskólann.
Ný sundlaug var tekin í nótk-
un 7. ágúst sl. Vatnið í laugina
er tekið úr 32 gráðu heitum laug-
um í fjörunni sunnan undir
Höfðanum, og er því dælt í laug-
ina. Aðsókn að lauginni hefur
verið mjög góð. Sundlaugarvörð-
ur er Vilhjálmur Pálsson, íþrótta
kennari, og annast hann og kona
has, Védís Bjarnadóttir, sund-
kennslu.