Verkamaðurinn - 23.09.1960, Blaðsíða 1
UERKfflnflDUmnn
Ritstj.: Þorsteinn Jónatansson.
Útg.: Sósíalistafélag Akureyrar.
Skrifstofa Hafnarstræti 88.
Sími 1516.
Áskriftarverð kr. 50.00 árg.
Prenfverk Odds Björnssonar h.f.
XLIII. árg.
Akureyri, föstudaginn 23. september 1960
32. tbl.
Sjálfkjörið í Iðju og Einingu
Tvö af verkalýðsfélögunum á
Akureyri hafa þegar kosið full-
trúa sína á Alþýðusambandsþing,
Iðja og Eining.
Iðja auglýsti eftir listum til
allsherjaratkvæðagreiðslu, en að-
eins einn listi barst og varð hann
því sjálfkjörinn. Sá listi var bor-
inn fram af stjórn og trúnaðar-
ráði félagsins og þannig skipaður:
Jón Ingimarsson,
Hallgrímur Jónsson,
Arnfinnur Arnfinnsson,
Ingiberg Jóhannesson,
Sigurður Karlsson og
Hjörleifur Hafliðason.
Verkakvennafél. Eining kaus
á fundi á sunnudaginn, og þar
hlutu einróma kosningu:
Margrét Magnúsdóttir,
Margrét Steindórsdóttir og
Freyja Eiríksdóttir.
Á fundi Einingar var ennfrem-
ur rætt um kjaramálin og vænt-
anlegar kröfur félagsins til at-
vinnurekenda um kauphækkanir.
Voru fundarkonur á einu máli
um, að ná yrði meira samræmi í
kaupgjaldi miðað við karlmenn
og þess vegna skyldi lögð áherzla
á að færa sem flesta liði, einkum
fiskvinnu, upp, þannig að þeir
yrðu greiddir konum með sama
kaupi og karlar hafa.
Verkamannafélag Akureyrar-
Kynningarmessur
Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson messar í Akur-
eyrarprestakalll á sunnudaginn,
sem hér segir: í Akureyrar-
kirkju kl. 10.30 árd. Sálmar nr.
223 — 23 — 447 — 203 — 232.
— í Lögmannshlíðarkirkju kl.
2 e. h. Sálmar nr.: 17 — 370
304 — 401 — 530. — í barna-
skólanum í Glerárþorpi kl. 5 e.
h.. Sálmar nr.: 572 — 687 — 318
304 — 401 — 530. Strætisvagna-
ferðir frá gatnamótum í Glerár-
hverfi kl. 1.30 og yztu leið
að Lögmannshlíð.
kaupstaðar og Bílstjórafélag Ak-
ureyrar hafa auglýst eftir listum
til allsherjaratkvæðagreiðslu. —
Skal framboðslistum hjá Verka-
mannafélaginu skilað fyrir há-
degi á morgun, en í Bílstjórafé-
laginu fyrir kl. 18 á mánudag. —
Um kosningar í öðrum félögum á
Akureyri er blaðinu ekki kunn-
ugt ennþá, hvort kosið verður á
fundum eða að viðhafðri alls-
herjaratkvæðagreiðslu, en þau
félög eru: Sjómannafélag Akur-
eyrar, Sveinafélag járniðnaðar-
manna, Vélstjórafélag Akureyrar
og Félags verzlunar- og skrif-
stofufólks á Akureyri.
Það er kosið um kaup og kjör
verkafólks á Islandi
Okuslys á Tjörnesi
Á mánudaginn varð það slys
við Breiðuvík á Tjörnesi, að
fólksbíll, sem var á leið til Rauf-
arhafnar, kastaðist út af vegin-
um og valt á hliðina. Tveir menn
voru í bílnum. Sá, er sat undir
stýri, er slysið varð, slapp að
mestu ómeiddur, en hinn, Ang-
antýr Einarsson frá Akureyri,
hlaut alvarleg meiðsl innvortis
og var hann fluttur í Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Hann er
nú talinn úr lífshættu, en mun
verða alllengi á sjúkrahúsinu.
Kjörin í framkvæmdanefnd
Samtaka hernámsandstæðinga
Miðnefnd hinna nýstofnuðu
Samtaka hernámsandstæðinga
hélt fyrsta fund sinn á mánudag-
inn. Var þar rætt um framtíð-
arstörf samtakanna og kjörin
framkvæmdanefnd. Var nefndin
kjörin samhljóða og er þannig
skipuð:
Guðni Jónsson, prófessor,
Jónas Árnason, rithöfundur,
Kjartan Ólafsson, framkvæmda1
stjóri Samtaka hernámsand-
stæðinga.
Stefán Jónsson, fréttamaður,
Valborg Bentsdóttir, skrifstofu-
stjóri,
Þorvarður Ornólfsson, kennari,
Þóroddur Guðmundsson, rithöf-
undur.
Umsóknarfrestur um prests-
embættið, sem laust er á Akur-
eyri, er nú útrunninn. Umsækj-
endur eru aðeins þrír: Sigurður
Haukur Guðjónsson prestur að
Hálsi, Birgir Snæbjörnsson
prestur í Laufási og Bjartmar
Kristjánsson prestur að Mæli-
felli.
Varamenn voru kjörnir, einnig
samhljóða: Ásta Ottesen, hús-
freyja, Einar Bragi Sigurðsson,
rithöfundur, og Ragnar Arnalds,
ritstjóri.
í þeim kosningum, sem nú fara fram til
Alþýðusambandsþings
Þær kosningar til Alþýðusambandsþings, sem nú standa yf-
ir, verða örlagaríkar fyrir alþýðu manna á íslandi. Það er
ekki aðeins verið að kjósa um það hverjir stjóma eigi heildar-
samtökum verkalýðsins næstu tvö ár, heldur er ekki síður um
það kosið, hvort verkafólkið skuli taka höndum saman um að
rétta við kjör sín eða hvort núverandi valdhöfum í landinu á
áfram að líðast að traðka á rétti launþega.
Það er víst oft búið að staglast ] fram til Alþýðusambandsþings,
á því í ræðum og rituðu máli fyr-
ir kosningar til Alþýðusambands
þings, eins og reyndar fyrir allar
kosningar, að nú ríði á, að rétt
sé kosið, að réttir menn nái sæti
á því þingi, sem í það og það
skiptið er verið að kjósa til. Þessi
setning skal ekki endurtekin hér,
og enginn dómur á það lagður,
hvort nú ríður meira á því en
einhvern tíma áður, að rétt sé
kosið.
En kosningar þær, sem nú fara
Mikill samdráttur í byggingum
Frá byggingafulltrúanum á
Akureyri hefur blaðinu borizt
eftirfarandi yfirlit um húsa-
byggingar í bænum, það sem af
er þessu ári;
„Frá byrjun ársins 1960 til 15.
sept. er hafin bygging 19 íbúð-
arhúsa á Akureyri. í þessum
húsum eru alls 28 íbúðir.
Auk þess eru enn, frá fyrra
ári, 84 íbúðarhús í smíðum með
samtals 118 íbúðum.
Hús þau, sem byrjað var á
fyrir sl. áramót, voru mjög mis-
langt á veg komin, er útivinna
við byggingar hófst á þessu ári,
þannig að búast má við að íbúð-
arhús með 52 íbúðum verði gerð
fokheld fyrir veturinn, þar eru
fslendingar hafa löngum fjölmennt til rétta, þegar féð er heimt af fjalli á haustin. Það var að vísu all-
margt fé í rétt hjá Akureyringum á laugardaginn, en mannfólkið var litlu færra.
26 hús með 37 íbúðum, sem
byrjað var á fyrir sl. áramót.
Breytingar og viðbyggingar
við eldri hús eru 7.
Þann 15. sept. sl. voru því í
byggingu hér á Akureyri sam-
tals 103 íbúðarhús með 146
íbúðum.
Auk framangreindra íbúðar-
húsa er unnið við byggingu all-
margra annarra húsa ,og ber nú
mun meira á byggingu stærri
húsa, en gert hefur imdanfarin
ár. Má t. d. nefna, að hafin er
bygging elliheimilis ofan Þór-
unnarstrætis, norðan Golfvall-
arins. Við Glerárgötu norðan-
verða eru í byggingu hús fyrir
Valbjörk h.f., Tómas Björnsson
h.f. og Byggingarvöruverzlun
Akureyrar h.f., Kaupfél. Eyfirð-
inga reisir útibú í Glerárhverfi
og Niðursuðuverksmiðja K.
Jónsson & Co. hefur byggt nýja
niðursuðuverksmiðju og endur-
bætt eldra húsnæði verksmiðj-
unnar.
Unnið er jafnframt við Flug-
stöðvarbygginguna, rishæð
Slökkvistöð bæjarins er í smíð-
um, Amaro h.f. byggir 6. hæð-
ina við Hafnarstræti 99 og unn-
ið er við rishæð á Súkkulaði-
verksmiðjuna Lindu h.f. við
Hvannavelli 10.
Leó Sigurðsson hefur byggt
fiskvinnsluhús við Eyrarveg,
Þórshamar h.f. hefur tekið í
notkun nýtt málningarverk-
stæði, Möl & Sandur s.f. byggir
steypuverkstæði á athafnasvæði
sínu við Glerá og Frystihús
KEA eykur við húsnæði sitt.“
eru mikilsverðar. Á úrslitum
þeirra, þ. e. a. s. á fulltrúum
þeim, sem valdir verða til setu á
þessu þingi, veltur það öðru
fremur, hver verður framvindan
kaupgjalds- og kjaramálum
verkalýðsins á næstunni. Þar
verða án efa lagðar línurnar ‘um
baráttu verkalýðsins í þeim mál-
um, og valin sú forysta fyrir
heildarsamtökin, sem fulltrúam-
ir bezt treysta.
ENGA STJÓRNARSINNA.
Það, sem barizt er um í þessum
kosningum, er hvort verkafólkið
að ieggja til atlögu við at-
vinnurekendavaldið, og þá um
leið núverandi ríkisstjórn, til
æss að ná aftur viðunandi lífs-
kjörum, því kaupi fyrir átta
stunda vinnudag, að unnt sé að
framfleyta með því meðalfjöl-
(Framhald á 4. síðu.)
Róðrarmót
íslandsmót í róðri fór fram á
Akureyri dagana 17. og 18. sept.
sl. Keppendur voru frá Róðrar-
klúbb Æ. F. A. K., karlasveit og
drengjasveit.
Laugardag 17. fór fram keppni
í 2000 m. róðri og sigraði karla-
sveitin á 7.24.3 mín. Drengjasveit-
in réri á 7.39.6 mín.
Sunnudag 18. var keppt í 1000
m. róðri og 500 m. róðri. 500 m.
inn karlasveitin á 2.25.9 mín.
Drengjasveitin réri á 2.45.2 mín.
1 1000 m. róðri réri karlasveit-
in á 4.50.3 mín.
Drengjameistaramót íslands
fór einnig fram, og var keppt í
1000 m. róðri, og réru drengirnir
á 5.01.5 mín.
Íslandsmeiatarar í róðrt 1960
eru þessir menn:
Gísli Lórenzson, stýrim.,
Knútur Valmundsson,.
Jón Gíslason,
Róbert Árnason,
Stefán Árnason.
Drengjameistarar í róðri 1960
eru þessir:
Axel Gíslason, stýrim.,
Óli Jóhannsson,
Börkur Eiríksson,
Pétur Jónsson,
Aðalsteinn Júlíusson.