Verkamaðurinn - 02.12.1960, Page 4
4
VERKAMAÐURINN
Föstudaginn 2. des. 1960
Um bækur og menn
Aldamótamenn
Á fyrra ári hóf Bókaforlag
Odds Bjömssonar á Akureyri að
gefa út æfisöguþætti eftir Jónas
Jónsson frá Hriflu undir sam-
heitinu Aldamótamenn. Nú eru
komin út tvö bindi þessara þátta,
en ráðgert að ritverkinu ljúki
með þriðja bindinu, sem koma á
út næsta ár.
I öðru bindinu, sem nú er ný-
komið á markaðinn, eru þættir
af 22 mönnum, en alls verða í
bindunum þremur æfisöguágrip
um það bil 70 karla og kvenna,
sem á einn eða annan hátt hafa
verið áberandi eða haft veruleg
áhrif á íslenzkt þjóðlíf á síðasta
hluta nítjándu aldar eða fyrsta
hluta tuttugustu aldarinnar. —
Þetta eru sögur af þeim, er for-
yztu höfðu um eða eftir aldamót-
in.
Þættir þessir eru ritaðir af
hinni kunnu ritsnilld Jónasar
Jónssonar, en hann er án alls efa
ein hinn snjallasti skriffinnur,
sem uppi hefur verið með þjóð
okkar á þessari öld. Það má
segja, að sama sé um hvað Jónas
skrifar, það er alltaf skemmtilegt
að lesa það, sem frá honum kem-
ur. Honum er það lagið að geta í
stuttu máh sagt mikla sögu. Og
hann er flestum snjallari að
greina aðalatriðin frá aukaatrið-
um. Jónas er einnig flestum
mönnum sögufróðari, ekki sízt
um síðari tíma sögu okkar.
Þannig hjálpast allt að því að
gera þætti þessa aðgengilega og
gimilega til lesturs. Þeir bæta
einnig að nokkru úr brýnni þörf,
þar sem engin samfelld saga
þjóðarinnar er til yfir tímabilið
frá 1874.
Það er erfiðara að rita samtíð-
arsögu eða sögu þeirra, sem ný-
lega eru horfnir af sjónarsviðinu,
svo að hlutdrægnislaust verði,
heldur en sögu löngu liðinna at-
burða*. Þess vegna má svo fara,
að ýmsir verði Jónasi ekki að
fullu sammála í dómum hans
um einstaka menn, þýðingu lífs
þeirra og starfs fyrir þjóðina. En
svo mundi farið hafa, hver sem
tekið hefði sér fyrir hendur að
rita viðlíka þætti. Þegar frá líð-
ur og betri yfirsýn fæst yfir lið-
inn tíma, má gera ráð fyrir, að
myndir einstakra manna breytist
allverulega, en við því er ekkert
að segja. Slíkt gerist með alla
söguritun. Síðari tíma sagnrit-
arar verða að vinza úr því, sem
nú er skráð, og niðurstaða þeirra
verður kannski dálítið önnur á
stundum en sú niðurstaða, sem
Jónas fær nú.
En það breytir engu um gildi
þess verks, sem Jónas nú hefur
unnið og er að vinna. Ritverkið
um „aldamótamennina“ er með
merkustu bókum, er út hafa
komið á sviði sagnfræði þessi ár-
in, og með því er unnið gott og
gagnlegt starf, bæði til að varð-
veita minningu viðkomandi
manna og þátt þeirra í þjóðar-
söguiini og til að auðvelda ungu
fólki að kynna sér sögu þeirra
miklu umbrota-, breytinga- og
framfaratíma, sem verið hafa
með þjóðinni frá því fyrir síð-
ustu aidamót. Bókin er hollur
lestur ungum íslendingum, og
þeir, sem komnir eru á efri ár
eða yfir miðjan aldur munu einn-
ig hafa bæði gagn og ánægju af
að rifja upp minningar sínar um
þá menn, sem Jónas fjallar um.
Höfundi ber því að þakka fyrir
þetta ritverk og sömuleiðis út-
gefanda fyrir sinn hlut, enda eru
bækumar vandaðar að öllum
frágangi og prentaðar á góðan
pappír. Myndir fylgja af þeim
einstaklingum, sem um er fjallað.
Salómon svarti
heitir mjög skemmtileg bók eft-
ir Hjört Gíslason, verkamann á
Akureyri.
Þessi bók segir frá honum Saló-
mon, sem missti móður sína um
leið og hann fæddist, en var al-
inn upp hjá tveimur ungum
drengjum. Hann varð augnayndi
þeirra og góður vinur allra barna
í kaupstaðnum, þar sem hann
átti heima. Hann var einnig dáð-
ur og elskaður af mörgum full-
orðnum, en einnig hataður af
nokkrum. Engum var jafnilla við
hann og lögreglu staðarins, enda
framkvæmdi Salómon ýmislegt,
sem ekki var eftir forskrift né
anda laganna. En Salómon gekk
með sigur af hólmi í öllum við-
skiptum sínum við Láka löggu,
og jafnvel sýslumaðurinn hló ó-
spart að þeirri útreið, sem lögg-
an fékk. Og jafnvel þó að Saló-
mon væri grafinn lifandi eða
dæmdur til dauða, þá lifði hann
samt og lék sér.
Hann Salómon var hrútur,
venjulegur heimaalningur Sag-
an, sem Hjörtur hefur skrifað af
honum, er einhver bezta bama-
bók, sem lengi hefur komið út.
Hún hefur þann kost allra góðra
bamabóka, að jafnt fullorðnir
sem böm veltast um af hlátri við
lestur hennar. Og Hjörtur skrif-
ar gott mál, svo að ekki þarf að
forðast bókina málsins vegna.
Bókaforlag Odds Björnssonar
hefur verið mjög heppið með að
fá til útgáfu bækur snjallra
bamabókahöfunda. Það hefur
haft Ármann Kr. Einarsson á sín-
um snærum, fyrir tveimur árum
kom út fyrsta bókin eftir Vigfús
Björnsson (Gest Hannson), og
nú bætist Hjörtur Gíslason í hóp-
inn. Líklega getur ekkert forlag
á landinu lengur keppt við Bóka-
forlag Odds Bjömssonar um út-
gáfu skemmtilegra barnabóka.
Bókin hans Hjartar um Salómon
svarta er þegar komin á markað-
inn, og væntanlegar munu á
næstunni bækur eftir þá Vigfús
og Ármann. Þeim má mikið hafa
hrakað frá fyrra ári, ef það verða
ekki líka skemmtilegar bækur.
„Krakkar mínir, krakkar mínir,
hver er Salómon?
Salómon er hrútur,
svartur labbakútur.
Látið ekki lengi bíða
að lesa um Salómon!“
Þ.
Messað í Akureyrarkirkju á
simnudaginn kemur, 2. simnud.
í Aðventu. — Sálmar nr.
572, 207, 475, 137, 675. — Séra
Björn O. Björnsson messar. —
Eftir messu verður aðalsafnað-
arfundur.
Messað á sunnudaginn kem-
ur í Lögmannshlíð kl. 2 e. h.
Sálmar nr. 4, 201, 114, 207, 203.
Stutt bamamessa á eftir. — Al-
mennur safnaðarfundur að
loknum messum.
Frá M.F.Í.K. — Félagsfundur
í Akureyrardeild Menningar-
og friðarsamtaka íslenzkra
kvenna verður haldinn mánu-
daginn 5. des. kl. 8.30 e. h. í
Rotary-sal Hótel KEA.
Stjómin.
Bókamarkaður Máls og menn-
ingar og Heimskringlu er í Ás-
garði. Opið daglega frá 1 til 10
e. h. Fyrsti dagur á morgun.
Frá bæjarfógetaskrifstofunni.
Skrifstofan er opin á föstudög-
um til 16. þ. m., auk venjulegs
afgreiðslutíma, kl. 16—19 til
móttöku á þinggjöldum.
Slysavamarfélagskonur, Ak-
ureyri. Jólafundur verður hald-
inn að Bjargi, þriðjudaginn 6.
des. Fyrir telpurnar kl. 4.30 e.
h., og hinar kl. 8.30. — Konur,
takið með ykkur kaffi. Stjómin.
Minningarspjöld Krabba-
meinsfélagsins fást á pósthús-
inu.
Jólamerki Framtíðarinnar em
seld á Pósthúsinu. Ágóði renn-
ur til elliheimilisbyggingarinn-
ar.
ÆFA ÆFA
FÉLAGSFUNDUR
verður haldinn kl. 8.30 í
kvöld í Ásgarði.
Á fundinum sýnir Eyjólf-
ur Árnason kvikmynd og
skuggamyndir frá Eystra-
saltsvikunni i sumar.
Félagar ættu að fjölmenna
til að sjá þessar skemmti-
legu myndir.
Stjórn
Æskulýðsfylkingarinnar.
NÝKOMIÐ:
Eldhússloppar,
nýjar gerðir, kr. 195.00
Náttföt,
kr. 89.00
Telpnaundirföt,
kr. 75.00
MARKAÐURINN
Sími 1261
BARNAKJÓLAR
Verð: kr. 48.00.
VERZL. ÁSBYRGI
VINNINGUR
Fokheld íbúð í |b wd •
Stóragerði 8, Reykjavík, ©K
að verðmæti kr. 180.000.00
æ
Aukavinnmgur
5000.00 króna vöru- 5 úttekt fyrir næsta W
númer fyrir ofan og
næsta númer fyrir
neðan vinningsnúmerið.
íbúðin P
er um 93 fermetrar O*
auk stigahúss, geymslu ps
og sameignar í þvotta-
húsi, reiðhjóla- og barna-
vagnageymslu, göngum &
o. þ. h. í kjallara. ■ts
Ibuðin er með vatnsgeislahitalöng.
8
Dregið 23. desember. þmd •
Þjóðviljinn frestar ekki
happdrætti. • 'W
Miðinn kostar 20 krónur. O* O*
Aðalumboð á Akureyri e:
er hjá afgreiðslu Verka
mannsins, Hafnarstræti 88. ans
Nú eru efnin í JÓLAKJÓLANA komin
57 tegundir, falleg og vönduð, verð frá kr. 89.00 m.
---o---
ÚRVAL AF FALLEGUM KÁPUM, stærðir 36-48
---o---
Enn eru til NYLONSOKKAR og SOKKABUXUR
á gamla verðinu.
---o---
Vönduð SNYRTIVESKI (handa körlum og konum)
TIL JÓLAGJAFA:
MORGUNSLOPPAR, LANGSJÖL, TREFLAR,
margs konar, SAMKVÆMISTÖSKUR og VESKI og
ILMVÖTN Á GAMLA VERÐINU.
VERZLUN B. LAXDAL
TELPU-MILLIPILS
Verð: kr. 68.80.
VERZL. ÁSBYRGI
Sokkabandabelti
Margar gerðir.
VERZL. ÁSBYRGI