Verkamaðurinn - 06.12.1963, Blaðsíða 2
A sjónskífunni
♦---------------------
Getið bóka.
Ýmsir spyrja: Eftir hvaða regl-
um skrifið þið um bækur á jóla-
markaði? Þessu er fljótsvarað.
Við reynum að geta allra þeirra
bóka, sem blaöinu eru sendar til
umsagnar, eða okkur sjálfum.
Það fer eftir ýmsu hversu ræki-
lega þessara bóka er getið, þó
skipa frumsamin verk íslenzk
venjulega stórt rúm, einnig þýdd-
ar bækur, ef þær teljast merkar
og heppilegar til varðveizlu.
Ljóða yrði getið rækilega, ef þau
bærust og væru þess virði — að
okkar dómi.
Allt orkar tvímælis. Það er
vandasamt og ábirgðarmikið að
skrifa um bækur. Það kostar þó
mest það, sem minnst er af, tíma
til að lesa þær nógu vel og ræki-
lega. Allar bækur koma út á ein-
um og sama mánuöi, svo að segja,
þann mánuð er einnig hlaðið á
nokkuð miklu starfi öðru, sem
fylgir jólahaldi.
Ég held að enginn geti ætlast
til, að blaðamenn fari að kaupa
bækur til að skrifa um, þó kemur
það fyrir, að maður eignast bók,
sem manni þykir eiga það mikið
erindi til almennings, að rétt sé
að vekja á því athygli. Von okkar
er að lesendur blaðsins geti haft
af því einhvern stuðning við bóka-
val, hvað sagt er um þær hér. En
hitt skal játað, að maður hneigist
til miskunnsemi. Það er ekki gam-
an að skamma mikið höfunda,
sem kannski eru að byrja að
skrifa. Manni hættir til að leita
fremur þess sem jákvætt er. En
þó fyrst og fremst reynir maður
að fylgja sannfæringu sinni í
þessum dómum sem öðru.
Lögberg-Heimskringla.
Það er gefið út blað í Vestur-
heimi á íslenzku. Eftirfarandi
„perlur“ eru nappaðar þaðan:
„Óskum við að verði
— sem vandlátir erum,
álíka stjórn
í öllum löndum.
Á íslandi
er hún fyrir,
frá fornöld á leið
til fullkomnunar.“
x.
„Kvenfélag Fyrsta lúterska
--------------—-------«
safnaðarins efnir til sölu á blóð-
mör og lifrarpylsu í neðri sal
kirkjunnar eftir hádegi miðviku-
daginn 27. september.“
Gægzt ó glugga.
Venjan er sú, að um 1. desem-
ber vaknar maður við það, að
bærinn hefur breytt um svip, er
kominn í jólaklæðin. Nú í ár ber
minna á þessu en venjulega,
hvort sem það stafar af seinlæti
eða ekkert eigi að gera. Víða er
þó kominn jólasvipur á sýningar-
glugga. Bezt að gægjast á þá. —
Eðlilegt að byrja á neðrihæÖ
Brekkugötu 5 og halda suður.
Drangey: Fjölbreytt úrvalt af
listmunum, skrautvörum og leik-
föngum, sem seint er upptalið.
Gullsmiðir, Sigtryggur og Pét-
ur. Hér glampar á gull, silfur,
demanta, plett, dýra bauga og
men. Hefði Agli Skallagrímssyni
þótt gott að leiöa glugg þenna
augum. Myndavélar og allt til-
heyrandi, meir að segja vélar til
að sýna í skugga- og kvikmyndir.
Skreyting einföld og smekkleg.
Bóka- og blaðasalan: Erlendar
bækur, frímerkjavörur, hljóðfæri,
jólakort, gestabækur, skjalatösk-
ur, barnabækur, litir, litabækur,
silfurskeiðar með mynd af Akur-
eyrarkirkju á skafti, glasabakkar
frá 100 ára afmæli bæjarins, já,
og reiknivélar.
Verzlunin Hlín: Hér er mest
hugsað um börn. Fatnaður,
snyrtivörur, barnavagnar og kerr-
ur. Það mun barnelskt hér. En
hér eru líka íslenzkir munir af
sérgráðu. Handofnir reflar, gær-
ur, skinnhúfur, skinnpúðar. Þetta
er handa foreldrum barnanna.
Brekkugata 3:
Bókaverzlun Jónasar Jóhanns-
sonar: Bækur allskonar,! tímarit,
ritföng, kort, jólamerki. Hér
liggja saman hlið við hlið Skálda-
tími og Skálda, afmælisdagabókin
sérkennilega, og Hjúkrunarnem-
inn með dáindis-„hjúkku“ á
kápu — næst. Lokaðar leiðir.
Barinn: Freistingar, lít undan.
Brekkugata 1:
Sparisjóður Akureyrar. Ðregið
fyrir, engir bankaseðlar sjáanleg-
ir. Hvaða vandræði.
Kjörbúð KEA. Efni í jólabakst-
urinn í grenilundi og líking vind-
myllu. Hinsvegar kall í timbur-
húsi með fangið fullt af heimsins
bezta sælgæti.
Útvegsbankahúsið:
Vísir, glugginn fullur af barna-
leikföngum.
Anna og Freyja: Kvenundirföt,
töskur. Skreyting: blómskreytt
tré.
Utvegsbankagluggar: Tómir,
ekki svo mikið sem víxileyðu-
blað.
Hafnarstræti 103:
Ragnh. O. Björnsson: íslenzka
kvensilfrið, danskir j óladúkar,
ullarvörur, garn. Hér sé ég einnig
jólakort, sem eru sérstæð. Þau
eru gerð af Fríðu Knudsen og er
þurrkuö, íslenzk jurt límd á þau
í stað myndar, furðu margar teg-
undir. Munnþurrkur eru þarna
líka eins skreyttar. Hún Ragn-
heiður hefur auga fyrir því list-
ræna og þjóðlega.
Næsti gluggi: Brauð, meira
brauð.
Skóverzlun Lyngdals. Smekkleg
skreyting. Blikar á skó fyrir bæði
kyn.
Drífa: Einföld, falleg skreyting,
kvenpeysur og barnafatnaður. —
Jólastjarnan lýsir yfir Hafnar-
stræti. En ég verð að snúa við í
dag.
Gluggagægir.
Minjasafnið.
Muna Akureyringar og gestir í
bænum eftir Minjasafninu? Það
er opið á sunnudögum milli kl.
2 og 5. Það borgar sig að ganga
þangað og sjá fortíðina, annað
slagið, og bera saman tækni henn-
ar og nútímans. Þar er mikill
munur á. En eru menn þeim mun
hamingjusamari nú sem tæknin
er meiri? Hafa kennarar fjöl-
mennt þangað með nemendur
sína og tengt þá þannig sögu
sinni?
Látum það vera, tíminn er tak-
markaöur hjá fólki. En gleymiÖ
ekki Minjasafninu þegar þið rek-
ist á gamla muni í rusli. Hendið
aldrei gömlum hlut án þess að
hugsa: Er þetta ekki betur geymt,
en gleymt?
Gamall skápur, skatthol, askur,
rúmfjöl. Allt er þetta helgaö af
liðnum kynslóðum, kapítuli í
sögu þjóðarinnar.
VERKAMAÐURINN
fæst í Reykjavík í Bókabúð
KRON og Söluturninum,
Austurstræti 18.
Á Húsavík í Bóka- og blaöa-
sölunni.
2) Verkamaðurinn
SEXTUGUR:
alþingismaður.
Gísli Guðmundsson alþingis- j
maður varð sextugur 2. desember,
síðastliðinn. Gísli er Norður- j
Þingeyingur að ætt, fæddur að
Hóli á Langanesi. Hann dvaldist í
föðurhúsum og þar í nágrenni til
ársins 1923, nema þann tíma, er
hann var við nám í Gagnfræöa-
skóla Akureyrar. Þá um haustið
hóf hann nám við Menntaskólann
í Reykjavík og lauk stúdentsprófi
árið 1926. Eftir það las hann ís-
lenzk fræði við Háskólann um
nokkurt skeið. Árið 1930 tók
hann við ritstjórn Timans og
hafði það starf á hendi til ársins
1940.
Gísli vár kosinn þingmaður
Norður-Þingeyinga árið 1934 og
hefur verið það síðan, að frá-
dregnum þremur árum, er hann
lá rúmfastur.
Auk þingstarfanna hefur Gísli
haft með höndum margháttuð
trúnaðarstörf og stundaö ritstörf
í hjáverkum.
j Árið 1935 kvæntist Gísli
, Margrétu Árnadóttur, sem er ætt-
j uð úr Þistilfirði og hin ágætasta
kona. Þau eignuöust eina dóttur,
Kristnu, sem er læknir að mennt-
un. Heimili þeirra hjóna hefur
verið með miklum myndarbrag
og löngum hefur verið þar gest-
kvæmt af Noröur-Þingeyingum,
sem alltaf eiga þar góðu að mæta;
rausnarlegum viöurgj örningi,
gistingu og hverri þeirri fyrir-
greiðslu, sem þörf er á í þann
svipinn. Hefur þá aldrei verið
spurt um stjórnmálaskoðanir eða
mannvirðingar, enda nær vina- og
kunningj ahópur þeirra hjóna
langt út fyrir raðir flokkslegra
kjósenda.
Gísli er góðum gáfum gæddur,
vel máli farinn, ritfær í bezta
lagi og fróður um þjóðlegar
menntir. í persónulegri kynningu
er hann glaðvær, viðmótshlýr og
drengur góður.
E. K.
SEXTUGUR:
Þorsteinn Valdimarsson
hreppstjóri.
Þorsteinn Valdemarsson, hrepp-
stjóri, oddviti, sýslunefndarmað-
ur, símstöðvarstj óri, póstmeistari,
ÁFENGISSALAN
1. júlí til 30. sept. 1963
Heildarsala:
Selt í og frá Reykjavík kr.
58.055.280.00, Akureyri 10.256.-
403.00, ísafirði 2.040.521.00,
Siglufirði 2.599.402.00, Seyðis-
firði 3.776.640.00. Samtals kr.
76.728.246.00.
Á sama tíma 1962 var salan,
eins og hér segir:
Selt í og frá Reykjavík kr.
48.833.791.00, Akureyri 7.788,-
744.00, ísafirði 2.025.472.00,
Siglufirði 3.540.823.00, Seyðis-
firði 4.418.264.00. Samtals kr.
66.607.094.00.
Fyrstu níu mánuði þessa árs
nam sala áfengis frá Áfengis- og
tóbaksverzlun ríkisins samtals kr.
200.425.080.00, en var sömu mán-
uði 1962 kr. 168.700.824.00. Sölu-
aukning um 18%.
bóksali og margt, margt meira, í
Hrísey, varð sextugur að árum
hinn 3. þ. m.
Þorsteinn er framúrskarandi
vinsæll maður, greindur, frjáls-
lyndur og hrókur alls fagnaðar,
bæði heima og að heiman. Á hann
hefur hlaðist slíkt farg af trúnað-
arstöðum í hans litla eyríki, að
slíkt er með fádæmum. Sýnir það
bezt það traust, sem til hans er
borið og hefur hann staðið vel í
ístaðinu um langt árabil.
Til hans streyma um þessar
mundir kveÖjur og heillaóskir
hvaðanæfa.
011 er harla fræg þín för,
fyrnist varla yfir.
Enn má karlinn ýta úr vör,
Eyjarjarlinn lifir.
R. G. Sn.
Eg myndi verða ósköp glaður
yrði ég seinna framlífsmaður.
Og ekki síður ég vildi vona,
að vífið mitt yrði framlífskona.
Aðsent í ábyrgð.
Föstudagur €. desember 1963