Verkamaðurinn - 06.12.1963, Blaðsíða 3
Catt
i
tá
Enn verður þættinum gott til
fanga. Þessar skáldlegu vísur um
þröstinn bárust okkur austan að,
yfir fjöll og dali:
Kveða má, en hvað er á seiði,
kæri, smái þröstur minn?
Ut í bláu himin-heiði
heyri og dái ég sönginn þinn.
*
Situr að völdum söngur þinn
sumarkvöld og nætur.
Þung eru gjöldin, þröstur minn,
þegar fjöldinn grætur.
*
Góðum vini mæta má
mánaskin á förnum vegi.
Ættarhlynur, þú átt þrá,
þegar hinir fagna degi.
*
Þú mátt kvaka, krílið mitt,
kveða og vaka bjartar nætur.
Vængjablakið þekki ég þitt,
þegar stakan rís á fætur.
G.
*
Þessi veðurlýsing barst nafn-
laus til okkar að morgni 4. des.:
Veðrið kl. 8 í morgun.
Akureyri—Húsavík:
Sundið fagurbláa biður
bárurnar að stíga dans.
Greiðir hár á herðar niður
heimasæta kvöldroðans.
*
Til konu:
Allar syndir sigra má,
samvizkunni hlýnar,
er ég tilli tánum á
tilfinningar þínar.
G.
*
Kaldsamt í Kinn
Sbr. frétt í „Degi“ 26. f. m.
Nú bera menn brandinn í
sliðri,
Baldur er daufur á ný.
„í Kinn liggur kvennafar
niðri“,
kuldarnir valda því.
R.
„Viðreisn í Kinn.
Austur í sveitum hækkar
hagurinn,
hlakkar í mönnum. —
Baldur grípur símann:
Byrjar nú aftur kvennafar
í Kinn,
komin er hláka undir
fengitímann.
R.
40 en ekki 4 prósent
ÞAÐ er undarlegt fyrirbœri
sú ríkisstjórn, sem við nú höf-
um hér í landi. Nú, þegar
samningafundir standa dag
hvern með fulltrúum verka-
fólks og atvinnurekenda, leyfir
þessi stjórnarnefna sér að
leggja fram sérstakar tillögur
um lausn ágreiningsmálanna
og byrjar á því að auglýsa þær
í útvarpi.
Flestum myndi hafa orðið
fyrst fyrir að tilkynna samn-
ingsaðilum tillögurnar, sem
bendingu um lausn deilumála,
en þessi stjórn hefur annan
hátt á: Henni er kunnugt um
gildi auglýsinga og byrjar því
á auglýsingastarfsemi. En þótt
máttur auglýsinga sé mikill, þá
er ekki sama hvað auglýst er.
Og það urðu víst fáir stór-
hrifnir á þriðjudaginn, þegar
ríkísstjórnin auglýsti sitt sátta-
boð: 4—8 prósent kauphœkk-
un til handa þeim lœgst laun-
uðu í þjóðfélaginu, þegar þeir
hœst launuðu hafa fyrir fám
mánuðum fengið allt af 100
prósent. Og jafnframt voru
taldar upp ýmsar verðhœkkan-
ir, sem óhjákvœmilega hlytu að
koma til framkvœmda alveg á
nœstunni.
Það er sagt, að hver sé sín-
um gjöfum líkastur. Sé það
rétt, er núverandi ríkisstjórn
lítt velviljuð þeim þegnum
þjóðfélagsins, sem að fram-
leiðslunni vinna. Þeim er œtl-
að að taka við kauphœkkun-
um, sem svo óverulegar eru,
að þœr verða étnar upp strax
á nœstu vikum. En embœttis-
mönnum ríkisins þótti henni
ekki mikið til koma að veita
margfaldar hœkkanir; hœkk-
anir, sem endast munu um
mörg ár. Það er ekki sama,
hvort í hlut eiga verkamenn
eða „höfðingjar“.
Hitt er önnur saga, en þó
saga, sem „höfðingjarnir“
verða að gera sér grein fyrir,
að það eru ekki bara þeir, sem
þurfa að lifa. Enda myndi
verða lítt höfðinglegt þeirra
líf, þegar þeir vœru búnir að
útrýma öllum þeim, sem að
framleiðslunni vinna.
Verkafólk þarf að fá 40%
hœkkun á sín laun, en ekki
4%, eins og rkisstjórnin býð-
ur. Og jafnframt þarf að fá
tryggingu fyrir, að sú launa-
hœkkun verði varanleg. Þ.
Frestið ekki að kaupa
jóleskóne n börnín
Nýjar tegundir fró Iðunni af barnaskóm fyrir
telpur og drengi.
Karlmannaskór, gott úrval.
Karlmanna kuldaskór, leður kr. 370.00
Karlmanna kuldaskór, gaberdine kr. 280.00
Unglingastærðir ---- kr. 255.00
Karlmanna skóhlífar, kanadískar og tékkn.
Karlmanna bomsur úr nylon og gúmmí
Inniskór í miklu úrvafi fyrir alla fjölskylduna
Skóbnft
Htsmeiísmdlastjírn
hefur samþykkt varðandi lánshæfni umsókna um
íbúðalán:
1. Frá 1. janúar 1964 verða allar umsóknir um
íbúðalán að hafa hlotið samþykki húsnæðismála-
stofnunarinnar, áður en framkvæmdir við byggingu
hússins eru hafnar og afrit af teikningu (í tvíriti)
þess, samþykkt af viðkomandi byggingayfirvöld-
um, að hafa áður verið viðurkennt með stimpli og
uppáskrift stofnunarinnar.
2. Þeir umsækjendur um lán, er hafa í hyggju að
kaupa íbúðir í húsum, sem eru í smíðum, verða á
sama hátt að tryggja sér samþykki húsnæðismála-
stofnunarinnar áður en gengið er frá kaupunum.
JÁRN OG GLERVÖRUDEILD
Ef þér viljið gefa skemmti-
lega
JÓLAGJÖF
þó fæst hún í HEBU.
Nýjar vörur ó hverjum
degi.
Gerið svo vel að líta inn.
Verzlunin HEBA
Ný sending
Silfur-skartmunir
fró Höskuldi Árnasyni.
Verzl. Ragnheiðar
0. Björnsson
Brehkubúar athugið!
Nýkomin mjög ódýr
BARNANÁTTFÖT
Stærðir fró nr. 2—8.
Verð kr. 53.00—71.50.
*
Leikföng
*
Konfekt í úrvali
*
Nýir óvextir
Niðursoðnir óvextir
Hreinlætisvörur
*
Matvörur
*
Nýtt brauð daglega
Verziunin BREKKA
Byggðáveg 114, sími 1400.
Markaðurinn
hefur fengið mikið af
fallegum og góðum
vörum til jólagjafa.
Gerið svo vel að líta
inn.
Markaðurinn
Sími 1261
töstudagur 29. nóvember 1963
Verkamaðurinn (3