Verkamaðurinn - 06.12.1963, Qupperneq 7
DM BÆKUR OG MENH
SKRJÁF
í SKRÆÐUM
Smalabúningur um aldamót.
,,Ekki man ég, hve gömut ég
var, er ég fór fyrst aS sitja hjá
ánum, liklega á níunda eða tí-
unda árinu. Held ég að nútíma-
fólk gæti vart trúað, hvernig bún-
ingur minn var í hjásetunni. Eg
var í pilsgopa, sem saumaður var
úr strigapoka, ekkert hald var á
því, en dregið saman með snæri
í mittið. Að ofan var ég í gamalli
reiðtreyju af Kristrúnu, sem var
stór kona, en ég lítil eftir aldri.
Þar utan yfir kom svo gríðarstór
treyja af karlmanni og náði hún
niður á hæla. Á höfðinu hafði ég
gamlan reiðhatt, en kollinn vant-
aði að mestu. Þá var fótabúnað-
urinn ekki síðri. Allir skór til sum-
arsins voru gerðir fyrir fráfærur,
var það oft stór kippa, sem hengd
var upp í eldhúsi og tekið af jafn-
óðum og nota þurfti. Flestir gengu
á leðurskóm, venjulega voru þeir
bryddir og með hæl- og ristar-
böndum. Eg sleit miklu af skóm,
og kom það oft fyrir, að ég var
(Framhald af 3. síSu.)
nærfærum höndum farið um
viðkvæmt efni. Þá er fögur og
skemmtileg sagan af tilhugalífi
hjónanna í Presthvammi, Helgu
og Gísla: Ofar skýjum og aftur
niðri á jörð. Og ekki er skömm
að sögunni um Snjólaugu á
Laxamýri og gamla heyið, sem
hvarf, eða minningu Áslaugar
Torfadóttur.
Sagan um söngvarann á sér
vafalaust einhverjar forsendur,
eins og aðrar sögur Jóns, þótt
þeirra sé þarna, af eðlilegri til-
litssemi, ekki getið. Og þeir hafa
líka margir verið „söngvararn-
ir“, sem fyrst hafa heilsað
„kaupfélagsstj óranum“ og síð-
an móður sinni. Sterk saga með
undirspili sannra mannlegra
tilfinninga.
Þá er sagan, Á fremstu nöf,
sem gefur góða hugmynd af mis-
munandi viðhorfum manna eftir
þeim aðstæðum, sem umhverfið
skapar. Réttlætið verður svo
mismunandi eftir því hvaðan á
það er horft. Mættu fleiri en
gera hugleiða það.
Og loks er sagan Nýjar sveit-
ir. Þar kemur kímnigáfa höf-
undarins glöggt í ljós, er hann
lýsir þurradrambsmanninum,
sem af takmörkuðum verðleik-
um vildi hefja sig upp yfir aðra.
Það hefur löngum orðið vafa-
samur vinningur að tilla sér á
tá til að sýnast hærri en aðrir.
Jón Haraldsson hefur verið
skyggn maður á kosti annarra
og jafnframt hið broslega í fari
þeirra. Hafi hann látið eftir sig
fleira gull en það, sem fram
kemur í þessari bók, þá má ekki
láta það fúna og gleymast.
Þökk fyrir góða bók.
Þ.
Bækur frá Fróða
me8 þrenna skó í einu, voru þeir
yztu þá að jafnaði af Olafi (hús-
bóndanum) .Allt voru þetta garm-
ar, og sagði Kristrún, að gott væri
að láta mig slíta þeim út, þegar
ekki borgaði sig að bæta þá handa
fullorðna fólkinu. Það mæddi á
mergðinni, og ekki man ég eftir
að ég gengi á berum fótum, en
þungir voru allir þessir garmar.
I hjásetunni hafði ég með mér
nestisbita handa mér og hundin-
um. Bar ég nestið í peysuermi,
sem bundin var yfir aðra öxlina.
Handa mér var nestið tíðum
brauðbiti og skánir ofan af flóaðri
mjólk, en súrar garnir og kjötbein
handa hundinum."
— Eg vitja þín æska —
eftir Olínu Jónasdóttur.
ísltiitir
njlonsohhar
Á þessu ári munu 25 ár liðin
frá því fyrstu nylon-sokkarnir
komu á markaðinn, en snemma
á næsta ári munu fyrstu íslenzku
nylonsokkarnir koma á markað.
Munu þeir bera verksmiðj umerk-
ið EVA og verða framleiddir af
Sokkaverksmiðjunni Evu á Akra-
nesi.
Þessa dagana er verið að setja
niður vélar hinnar nýju verk-
smiðju, en þær eru keyptar frá
Tékkóslóvakíu.
Áætlað er, að ársframleiðsla
sokkaverksmiðjunnar verði 450
þúsund pör.
SKYGGNA KONAN, II. bindi,
um dulsýnir og andlegar lækn-
ingar Margrétar frá Öxnafelli.
Eiríkur Sigurðsson skólastjóri
tók saman. — Það væri vöntun
í myndina af íslenzku þjóðlífi,
ef ekki kæmu út bækur um dul-
fræði, svo ríkur þáttur er hún í
þjóðarsálinni, enda þarf ekki
að kvarta. Árlega eru dulfræði-
bækur stór þáttur í útgáfu. Þetta
er ágæt viðbót, því Margrét er
udramanneskj a og mikill fjöldi
vottorða frá fólki, sem hún hefur
hjálpað, gefur sitt til kynna.
Bókin er 228 bls. snotur að
gerð og þarf ekki meðmæli.
Fyrra bindið seldist upp um leið
og það kom út, önnur útgáfa
einnig.
Ýmsar dulsýnir Margrétar,
sem frá er sagt hér, af Snæfells-
nesi, gefa tilefni til að endur-
skoða álit manna á sannsögli
séra Árna Þórarinssonar. Þarna
mun vera furðuveröld beggja
heima.
SAKLAUSA DÚFAN eftir Má
Kristjónsson. Þetta er fyrsta bók
höfundar, sem mun vera reyk-
vískur sjómaður og ýmsu kunn-
ur. Hér eru mikil sálræn átök
og efniviður bókar góður. Aðal-
persónur eru íslenzkur sjómað-
ur og gleðikona í erlendu, ó-
hugnanlegu umhverfi. íslend-
ingurinn heillast af fegurð og
þokka stúlkunnar og sezt að
hjá henni um tíma. Ástir, vín
og afbrýði, þetta er mikið efni
úr að vinna. En höfundur er
byrjandi og þyrfti að athuga vel
stílbrögð sín og orðaval, áður
en hann skrifar næstu bók. Það
er efni í höfundinum. Bókin er
319 bls.
VIÐ ÓKUM SUÐUR HÖF. Jens
Kruuse, þýðandi Andrés Krist-
jánsson. Þetta er ferðasaga höf.,
konu hans og dóttur, svo og
Einars Sigfússonar fiðluleikara
og konu hans, og skrifar Einar
sðasta kaflann. Þetta er létt og
bráðskemmtileg frásögn af æf-
intýrum þessa vinafólks suður
um Evrópu á eigin bíl. Kruuse
er fyndinn, eins og Danir einir
geta orðið og þýðingin er ágæt.
Engum leiðist þessi bók og af
henni má nokkuð læra fyrir þá,
sem kynnu að ferðast á sömu
slóðir. Bókin er 236 bls.
k.
NÝKOMIÐ
Danskar peysur
Danskar blússur
Verzl. Ásbyrgi h.f.
Snyrtítöshor
sérstaklega fallegar.
r
Verzl. Asbyrgi h.f.
í STUTTU MÁLI
27. nóv. ■— Allmikið öskufall í
Vestmannaeyjum síðustu tvo
daga. Gosið enn allmikið, en mis-
jafnara þó en verið hefur.
8. nóv. — Samið hefur verið
um, að á næsta ári kaupi íslend-
ingar frá Sovétríkjunum 100.000
tonn af fuelolíu, 210.000 tonn af
gasolíu og 48.000 tonn af benzíni.
29. nóv. — Fregnir frá Bret-
landi herma, að innan skamms
muni brezka stjórnin lýsa yfir 12
mílna landhelgi við Bretlandseyj-
ar.
29. nóv. — Vélbáturinn Hólm-
ar frá Sandgerði, 48 tonn að
stærð, fórst með allri áhöfn fyrir
sunnan land. Báturinn var að tog-
veiðum. Hann hljóp af stokkun-
um í Skipasmíðastöð Njarðvík-
inga sl. vor.
Með Hólmari fórust 5 menn,
flestir á aldrinum milli 20 og 30
ára.
2. des. — Kom til landsins nýtt
vöruflutningaskip, Selá, eign Haf-
skips h.f. Brúttóstærð 1745 tonn
en burðarmagn 1057 tonn. Skipið
er smíðað í Vestur-Þýzkalandi.
Áhöfn 12 menn.
3. des. — Hljóp af stokkunum
í Noregi nýtt flutningaskip, sem
byggt er fyrir Samband íslenzkra
samvinnufélaga. Var því gefið
nafnið Mælifell og Sauðárkrókur
telst heimahöfn. Burðarmagn á-
ætlað 2750 tonn. — Sérstaklega
byggt til flutnings farma einnar
tegundar.
4. des. — Guðmundur I. Guð-
mundsson utanrkisráðherra lýsti
því yfir á Alþingi, að ríkisstjórn-
in hefði heimild til að semja við
Bandaríkjamenn eða NATO um
afhendingu hvaða landsvæðis sem
væri án þess að leita samþykkis
Alþingis.
4. des. —- Samkvæmt upplýs-
ingum Fiskideildar Atvinnudeild-
ar Háskóla íslands (myndarlegt
nafn) gefa rannsóknir á dýralífi
í nánd við gosstaðinn sunnan
Vestmannaeyja ekki til kynna, að
gosið hafi haft nein áhrif á dýra-
lífið í sjónum.
RITVERK KILJANS
Hann er enn milli tanna
manna.
34 fyrstu bækur hans
eru til sölu.
Uppl. síma 1516.
Kringsjá
vikunnar
Messað verður í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 2 e. h.
Sálmar: 377, 475, 470, 114, 232.
P. S.
Bazar og kaffisala Sjálfs-
bjargar verður að Bjargi
sunnudaginn 8. des. kl. 3 e.h.
Ýpj Styðjið gott málefni. Komið
KvenfélagiS FramtíSin heldur jóla-
fund að Hótel Varðborg mánudaginn
9. des. kl. 8.30 s. d. Ánægjulegt að sem
flestir mæti. -— Stjórnin.
AustfirSingafélagiS á Akureyri held-
ur aðalfund sinn sunnudaginn 8. des.
næstk. kl. 4 síðdegis í Hótel Varðborg.
Félagsmenn eru beðnir að fjölmenna
og koma með nýja félaga. Stjórnin.
SkíSi. — Þeim, sem gleymt hafa
skíði sín í Skíðahótelinu, er bent á, að
þau hafa verið flutt niður í Iþrótta-
vallarhús, og eru viðkomandi beðnir að
sækja þau þangað hið allra fyrsta. —
Opið kl. 3—5 á daginn.
Hjúkrunarkonur. — Munið fram-
haldsstofnfund Hjúkrunarkvennafélags
Akureyrar að Hótel KEA mánudaginn
9. des. kl. 21.
HappdrœttismiSar Styrktarfélags van-
gefinna fást í Bókabúð Rikku. Frjáls
sala.
Jólamerki Framtíðarinnar til ágóða
fyrir Elliheimilið fást á pósthúsinu á
Akureyri.
MinjasafniS er opið kl. 2—5 e. h. á
sunnudögum.
AmtsbókasafniS er opið alla virka
daga kl. 4—7 e. h.
NáttúrugripasajniS, Hafnarstræti 81,
4. hæð. — (Gengið inn að austan). —
í vetur verður safnið opið almenningi
á sunnudögum kl. 14—16. Þeir sem
vilja skoða safnið á öðrum tímum hafi
samband við safnvörð, Helga Hallgríms-
son, í síma 2983.
Skrifstofur Akureyrarbæjar eru auk
venjulegs skrifstofutíma opnar frá kl.
5—7 e. h. á föstudögum til móttöku á
bæjargjöldum.
Jólakort Sumarbúðanna við Vest-
mannsvatn eru komin í bókabúðir. —
Æ.S.K.
Léreftstuskur
hreinar og góðar
kaupum við hæsta verði.
Prentsmiðja
Björns Jónssonar h.f.
Verkamaðurinn (7
Föstudagur 6. desember 1963