Verkamaðurinn - 29.05.1964, Síða 4
Frd listahdtíð Bandalags
íslenzhra listamanna
Verkamaðurinn
Opinbert uppboð
verður haldið í Hótel Akureyri, Hafnarstræti 98 hér í bæ,
föstudaginn 5. júní, laugardaginn 6. júní, þriðjudaginn 9.
júní og miðvikudaginn 10. júní n.k. og hefst alla dagana kl.
14.00.
Seldir verða eftirfarandi munir tilheyrandi þrotabúi Brynj-
ólfs Brynj ólfssonar, veitingamanns:
Á föstudag og laugardag verður boðið upp innbú í Hótel
Akureyri, svo sein: Hita- og kæliborð 7 m. langt, sjálftrekkj-
andi rafmagnskaffikanna fyrir sj álfsafgreiðslu, mjólkurkæli-
vél, búðarpeningakassi, Westinghouse kæliskápur, tvísettur
kæliskápur, mj ólkurísvél, mjólkurhristivélar, áleggsvélar, stór
rafmagnseldavél, stór hrærivél (Hobart), rafmagnssteikar-
panna, stór rafmagnshakkavél, stórar þvottahúsvélar -—
þvottavél, þeytivinda, tvær strauvélar og þurrkvél, — búðar-
vog, reiknivélar, ritvél, peningaskápur, penir.gakassar, stál-
vaskaborð af mörgum stærðum, skjalaskápur úr málmi, stórt
skrifborð, hansahillur, sófasett, borð, sófar og stólar úr veit-
ingasal og herbergjum, rúmstæði, svefnsófar, skrifborð, rúm-
fatnaður, ýmis konar matreiðslu- og mataráhöld, s. s. borð-
búnaður, leirtau og stálkönnur, ljósatæki af mörgum gerðum,
bollabakkar fyrir sjálfsafgreiðslu, slökkvitæki og ýmislegt
fleira tilheyrandi hótelbúnaði.
Einnig verður boðinn upp flygill.
A þriðjudag og miðvikudag verður boðinn upp verzlunar-
varningur s. s. ýmis búsáhöld, matvörur, hreinlætisvörur,
fatnaður, leikföng o. fl.
Greiðsla fer fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn á Akureyri, og
sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu,
28. maí 1964.
NÝKOMIÐ
HOLLENZKAR KÁPUR OG DRAKTSR
NINOFLEX HATTAR
sem þola regn og samanbrot.
VERZL. BERNHARÐS LAXDAL
Öllum þeim, sem sýndu mér samúð og hluttekningu við andlát
og jarðarför mannsins míns.
BJARNA ÞORBERGSSONAR,
smiðs.
þakka ég af alhug.
Guðrún Guðmundsdóttir.
Eins og þegar hefur verið
skýrt frá í Ríkisútvarpinu og
Reykj avíkurblöðunum gengst
Bandalag íslenzkra listamanna
fyrir fjölbreyttri listahátíð í
næsta mánuði í sambandi við
tuttugu ára afmæli lýðveldisins.
Það er að sjálfsögðu áhuga-
mál listamanna, að sem mest af
því efni, sem flutt verður á lista-
hátíðinni, nái til sem flestra
landsmanna, og hefur Ríkisút-
varpið góðfúslega heitið sam-
vinnu í því efni. Nú hefur Flug-
félag íslands tekið upp sérstök
Listahátíðarfargj öld, sem gilda
frá öllum viðkomustöðum Flug-
félagsins innanlands til Reykja-
víkur á tímabilinu frá 5.—15.
júní. Afsláttur sá, sem Flug-
félagið veitir vegna hátíðarinn-
ar, er rúm 20%, og munar þetta
t. d. því að Listahátíðarfargj ald
frá Akureyri til Reykjavíkur og
til baka er 1073 krónur, en
venjulegur farseðill kostar 1358
krónur. Listahátíðarfargjaldið
er bundið þeim skilyrðum, að
hámarksviðstaða í höfuðborg-
inni sé 10 dagar, og að keyptur
sé aðgöngumiði að a. m. k. einu
atriði hátíðarinnar. Farseðlar
verða seldir í umboðsskrifstof-
um Flugfélags íslands úti á landi,
og þær selja einnig aðgöngu-
miðaávísanir á Listahátíðina,
bæði heildarmiða og einstaka
miða.
Dagskrá listahátíðarinnar er í
stórum dráttum á þessa leið:
Sunnud. 7. júní: Setningar-
athöfn í samkomuhúsi Háskól-
ans. Ræða: Halldór Laxness.
Tónlist eftir Jón Leifs og Pál
ísólfsson; Sinfóníuhlj ómsveit
íslands, söngsveitin Fílharmonía
og Fóstbræður flytja, stjórnandi
Igor Buketoff. — Að kvöldi
sama dags: Hátíðasýning í Þjóð-
leikhúsinu á óperettunni Sardas-
furstinnan.
Mánud. 8. júní: Sameiginlegir
tónleikar Yladimirs Asjkenazys
og Kristins Hallssonar óperu-
söngvara.
Þriðjud. og miðvikud. 9. og
10. júní: Leikfélag Reykjavíkur
'------------------------------
VfSA VIKUNNAR
Andagift mín er: orðin tóm,
ég ýmist græt eða hlæ.
Lífið er eins og litið blóm,
sem lifnar og deyr í maí.
x
sýnir nýtt leikrit, Brunnir Kol-
skógar, eftir Einar Pálsson.
Fimmtud. 11. júní: Þjóðleik-
húsið frumsýnir leikritið Kröfu-
hafa eftir Strindberg.
Föstud. 12. júní: Tónleikar:
Islenzk tónlist.
Laugard. 13. júní: Ruth Little
heldur ljóðakvöld. Við hljóð-
færið Guðrún Kristinsdóttir.
Sunnud. 14. júní síðdegis:
Musica nova kynnir ný íslenzk
tónverk og frumflytur Tríó eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson. —
Um kvöldið: Bókmenntakvöld.
Upplestrar og leikrit í einum
þætti, Amelía, eftir Odd Björns-
son. Tilraunaleikhúsið Gríma.
Mánud. 15. júní: Ballettsýn-
ing, kammerópera og hljóm-
sveitartónleikar í Þjóðleikhús-
inu.
Þriðjud. 16. júní: Myndabók
úr Fjallkirkju Gunnars Gunnars-
sonar, sett á svið af Lárusi Páls-
syni.
Listahátíðin efnir ekki til
mannfagnaðar á þjóðhátíðar-
daignn 17. júní, enda mun þjóð-
hátíðarnefnd sjá vel fyrir
skemmtanaþörf jafnt gesta sem
heimamanna í höfuðborginni
þann dag. — Listahátíðinni lýk-
ur með samkvæmi að Hótel Sögu
föstudaginn 19. júní.
Allan þann tíma, sem lista-
hátíðin stendur yfir, verða opnar
þrjár sýningar, sem haldnar eru
í sambandi við hana: Mynd-
listarsýning í Listasafni íslands,
bókasýning í bogasal Þjóðminja-
safnsins og sýning á byggingar-
list í húsakynnum Byggingar-
þjónustunnar, Laugavegi 26.
Fyrirvari er hafður um það,
að breytingar geti orðið á ein-
stökum liðum hátíðadagskrár-
innar.
HRINGINGUM HÆTT
Áður en Flugfélag íslands hóf
reglulegt áætlunarflug milli
staða innanlands, en flugvélar
félagsins héldu uppi flugi er
flutningsþörf gaf tilefni til og
veður ekki hamlaði, komst á sú
venja, að símað væri til allra
væntanlegra farþega og þeim til-
kynntur brottfarartími og enn-
fremur, hvenær ætti að mæta á
flugvelli.
Eftir að áætlunarflug var tek-
ið upp hélzt þessi siður og hefur
svo verið síðan.
Með bættum tækjum hefur á
síðari árum gengið æ betur að
halda uppi áætluðum flugferð-
um á fyrirfram ákveðnum tím-
um og þykir því ekki ástæða til
að halda lengur uppi hinum
gamla sið frumbýlisáranna, að
hringja sérstaklega í farþegana,
heldur að þeir mæti á flugvelli
samkvæmt áætlun, þ. e. í innan-
landsflugi hálfri klukkustund
fyrir brottför.
Ef brottför breytist frá því
sem segir í áætlun, mun hins
vegar verða hringt til væntan-
legra farþega.
GLERÁRSKÓLANUM
SLITIÐ
Glerárskólanum var slitið 15.
þ.m. Hjörtur L. Jónsson skóla-
stjóri skýrði frá störfum skólans
á árinu. — í skólanum voru 106
börn í 5 deildum. Fastir kennar-
ar eru 3, með skólastjóra, og 2
stundakennarar.
Barnaprófi luku 17 börn.
Hæstu einkunn hlaut Svanhildur
Guðmundsdóttir 9,27 og hlaut
hún ásamt tveim öðrum telpum
bókaverðlaun fyrir góðan náms-
árangur.
Sparifj ársöfnun barnanna
nam 4000 krónum, sem er aðeins
minni upphæð en í fyrra.
í dag fara barnaprófsbörnin í
ferðalag um Skagafjörð og
Húnavatnssýslur.
Amtsbókasafnið er opið alla virka
daga nema laugardaga kl. 4—7
e. h.
HJARTAGARN
5 stærðir, fjöldi lita.
Verzl. Ragnheiðar
0. Bjömsson
[ PERUTZ ]
litfifmur
Gullsmiðir
Sigtryggur og Pétur
Brekkugötu 5 — Sími 1524
Húsmnðurí
Það eru vinsamleg tilmæli vor, að þér gjörið
innkaupin til helgarinnar
Það léttir á laugardagsösinni og styttir biðina
fyrir yður.
NÝLENDU VÖRUDEILD