Verkamaðurinn - 04.09.1964, Side 1
Verkamaðurinn
LANDSFUNDUR
hernámsandstœðinga
Landsfundur sá, sem Samtök hernámsandstæðinga hafa
boðað til í Mývatnssveit, hefst í Skjólbrekku klukkan tvö á
morgun með setningarræðu Steingríms Baldvinssonar bónda
að Nesi í Aðaldal. Þá mun Ragnar Arnalds alþingismaður
flytja skýrslu miðnefndar um störf samtakanna, og ávörp
flytja þeir Magnús Torfi Ólafsson, Reykjavík, Guðmundur
Ingi Kristjánsson, Kirkjubóli, Þórarinn Haraldsson, Laufási,
og Þorsteinn frá Hamri, Kópavogi. Að ávörpunum loknum
munu hefjast almennar umræður.
Á sunnudaginn munu nefndir skila störfum, kjörin verður
landsnefnd samtakanna og fundinum að lokum slitið með
sameiginlegu borðhaldi fulltrúa, en við það tækifæri flytur
Þóroddur Guðmundsson frá Sandi íæðu.
Skrij Geðmandar Mdkonarsomir
tg Wðranim leiðrétt
Yfirlýsing frá fromtalsnefnd Húsavíkur:
Þátttaka Akureyringa
og Eyfirðinga
Héraðsráðstefna var haldin á
Akureyri á mánudagskvöldið til
undirbúnings landsfundinum.
Var ráðstefnan haldin í Bjargi.
Þar fluttu ávörp þeir Jón skáld
frá Pálmholti, Rósberg G. Snæ-
dal rithöfundur og Rögnvaldur
Hannesson stud. jur. — Eiður
Guðmundsson hreppstj óri á
Þúfnavöllum setti ráðstefnuna
með stuttri ræðu, en Björn Hall-
dórsson var fundarstjóri.
Rætt var um ýmis atriði und-
irbúnings og kjörin fimm
manna nefnd til að halda undir-
húningsstöríum áfram fram að
landsfundinum. Allir þeir, sem
á einhverjum upplýsingum
þurfa að halda í sambandi við
landsfundinn eða fyrirgreiðslu,
s. s. í sambandi við ferðir, geta
snúið sér til einhvers nefndar-
manna, en þeir eru: Björn Hall-
dórsson lögfræðingur Syðra-
Brennihóli, Kristinn J óhannes-
son, Dalvík, Rósberg G. Snædal,
Akureyri, Óttar Ketilsson og
Rögnvaldur Rögnvaldsson, Ak-
ureyri.
Rétt er að benda á, að ekki að-
eins þeir, sem kjörnir eru full-
trúar á landsfundinn, hafa rétt
til fundarsetu, heldur og allir
hernámsandstæðingar, svo lengi
sem húsrúm leyfir. Er mjög
æskilegt, að þarna verði fjöl-
menni mikið og allar horfur á,
að svo muni verða.
Undirbúningsnefndin á Akur-
eyr,i og í Eyjafirði mun, sem
áður segir, hafa fyrirgreiðslu í
sambandi við ferðir til Mývatns-
sveitar og munu landsfundarfull-
trúar fá ferðir þangað með áætl-
unarbifreiðum á mun lægra
verði en almennt gerist.
Akureyringar aftur
í 1. deild
Síðastliðinn sunnudag var
háður í Reykjavík úrslitaleikur-
inn í knattspyrnukeppni 2. deild-
ar. Sem flestir minnast féll lið
Akureyringa í fyrra úr 1. deild
í 2. deild. Þeirri deild er skipt í
tvo riðla til keppni, og sigruðu
Akureyringar með yfirburðum í
sínum riðli, en í hinum riðlin-
um sigruðu Vestmannaeyingar,
einnig með yfirburðum.
Er þessi tvö lið mættust svo í
Reykjavík til úrslitakeppni um
það, hvort þeirra skyldi færast
upp í 1. deild, lauk svo, að Ak-
ureyringar báru sigur úr být-
um með 2 mörkum gegn einu.
Knattspyrnudómurum syðra ber
saman um, að sigur Akureyring-
anna hafi verið verðskuldaður,
og markamunur hefði mátt vera
meiri. Sigurmarkið var þó skor-
að úr vítaspyrnu, sem nokkurri
gagnrýni hefur sætt.
Lið Akureyrar, sem færði sig-
urinn heim, var þannig skipað:
Páll Jónsson, Kári Árnason, Val-
steinn Jónsson, Jón Stefánsson
(fyrirliði), Samúel Jóhannsson,
Númi Friðriksson, Magnús
Jónatansson, SkúLi Ágústsson,
Steingrímur Björnsson, Ævar
Jónsson og Guðni Jónsson.
Akureyringar munu allir sam-
einast um þá ósk, að liði þeirra
megi vel vegna á næsta sumri og
það standi sig með sóma í 1.
deildinni, en frumskilyrði þess,
að svo megi verða, er v.ilji leik-
mannanna sjálfra, aðstaða, geta
og dugnaður við æfingar, ekki
aðeins, þegar aftur vorar heldur
og í vetur.
„Vegna greinar G. H. í Al-
þýðumanninum 27. ágúst s.l.,
þar sem sagt er frá útsvarsnið-
urjöfnim á Húsavík, óskar fram-
talsnefnd Húsavíkur þess, að þér
birlið eftirfarandi í blaði yðar:
í nefndri grein er sagt orð-
rétt: „Hér var lagt á bætur al-
mannatrygginga, og sj ómanna-
frádráttur ekki veittur, og auk
þess voru gamalmennum engar
ívilnanir gefnar.“
I reglum sem prentaðar eru
með útsvarsskrá gerir Framtals-
nefnd m. a. grein fyrir álagn-
ingunni á þessa leið: „Undan-
þegnar útsvarsálagningu voru
þessar bætur: elli- og örorkulíf-
eyrir, sjúkrabætur, mæðralaun
og sj úkradagpeningar. Auk þess
voru útsvör elli- og örorkulíf-
eyrisþega lækkuð verulega. Hjá
einstaka gjaldendum var tekið
tillit til sjúkrakostnaðar, skertr-
ar greiðslugetu vegna dauðsfalla
og slysa, og vegna menntunar-
kostnaðar barna eldri en 16
ára.“ Ennfremur segir: „Vikið
var frá ákvæðum skattalaga um
aukafrádrátt sjómanna.“
Samkvæmt framansögðu var
t. d. dreginn frá tekjum þeirra
30 ellilífeyrisþega, sem útsvör
voru lögð á, allur ellilífeyrir
þeirra að upphæð samtals kr.
684.500.00, sem svarar til þess
að útsvör þeirra hafa verið lækk-
uð um kr. 185.000.00 — 190.-
000.00. Auk þess voru útsvör
þeirra lækkuð um kr. 52.000.00.
Þessar tölur eiga eins og fram
29. þing ASÍ í nóvember
Samkvæmt lögum Alþýðusam-
bands íslands verður þing þess,
hið 29. í röðinni haldið í nóv-
embermánuði næstkomandi.
Miðstjórn AÍþýðUSjambajnds-
ins hefur ákveðið og boðað öll-
um sambandsfélögum, að heim-
ilt skuli að hefja kosningar til
þingsins hinn 19. þ. m., en lokið
skal þeim vera að kvöldi hins
11. október. — Búizt er við, að
kjömir fulltrúar á þinginu verði
hátt á fjórða hundrað talsins.
Oft hafa verið hörð átök um
fulltrúakjör á þing Alþýðusam-
bandsins, og verður svo vafa-
lítið enn að þessu sinni. Ótrú-
legt verður þó að teljast, að
stuðningsmenn ríkisstjórnar-
flokkanna eigi vaxandi fylgi að
fagna innan verkalýðshreyfing-
arinnar, svo mjög sem þeir
flokkar hafa á undanförnum ár-
um lagt sig fram um að níðast á
verkalýðsstéttinni.
kemur, aðeins við þá ellilífeyris-
þega, sem greiða útsvör, en stór
hópur þeirra verður útsvarslaus
við þessar aðstæður.
Sjómannafrádráttur, annar en
aukafrádráttur, er leyfður til
frádráttar að fullu, en það er
fæðisfrádráttur sjómanna og
hlífðarfatafrádráttur.
Af 143 gjaldendum njóta t. d.
49 alls þess sj ómannafrádráttar,
sem heimilaður er samkvæmt
skattalögunum.
Húsavík, 31. ágúst 1964.
FRAMTALSNEFND
HÚSAVÍKUR.
Jóhann Hermannsson,
Jónas G. Jónsson,
Ingimundur Jónsson.“
Eins og fram kcmur í yfirlýsingu
framtalsnefndar Húsavíkur, hefur
einn bæjarfulltrúi staðarins, alþýðu-
flokksmaðurinn Guðmundur Húkon-
arson, fundið hjó sér hvatir til að
fara með ósannindi, um útsvars-
ólagninguna í Húsavík.
Menn velto að sjúlfsögðu fyrir
sér, af hvaða ústæðum hann gerir
þetta, hvort þetta eigi að heita ein-
hvers konar vörn gegn skattrúns-
stefnu stjúrnarinnar í landinu, og
eigi að sýna, oð ekki væri betra, að
andstöðuflokkar núverandi ríkis-
stjúrnar kæmust til valda, eða að
þetta sé úvitahúttur, samonber
manninn (Alþýðuf lokksf rambjóð-
anda frú Húsavik), sem taldi í
umræðum, sem útvarpað var frú
Skjaldarvik, fyrir síðustu alþingis-
kosningar, að lausnin í skattamúl-
um fælist í þvi, AÐ LEGGJA Á
ÓBEINA SKATTA EFTIR EFNUM
OG ÁSTÆÐUM.
Hins vegar velta menn þvi ekkert
fyrir sér, og eru ekkert hissa ú, að
þetta skuli birtast í Alþýðumann-
inum.
HEYRT
Á GÖTUNNI
AÐ vænkast hafi vonir Broga
um bankastjóraembætti.
AÐ Brynjólfur veitingamaður ú
Hótel Akureyri og fyrrum
hótelstjóri ú Hótel KEA hafi
í undirbúningi að stofnsetja
sælgætisverksmiðju.
AÐ hænur Brynka, er seldar
voru ú uppboði, neiti að
verpa hinum nýju eigendum.
AÐ okrarar Reykjavikur séu að
undirbúa fagnaðarhútíð í til-
efni af unnum sigri.
SVEFNBEKKIR
SVEFNBEKKIR
Hinir yönduðu Héðinsbekkir. Tilvaldir fyrir
skólafólk.
Óbreytt verð.