Verkamaðurinn - 01.07.1966, Blaðsíða 5
Kristján frá
Framhald af bls. 4.
bilið milli kynslóðanna. Þau
báru þjóðarsöguná' fram til
barna-barnanna, því pabbinn og
mamman standa jafnan í önn
lífsbaráttunnar, og mega ekki
vera að því að tala v.ið börn sín
um 'horfna tíð.
A slíkum tímum sem þessum,
er það því ekki bara meinlaust
dundur sérvitringa að safna og
varðveita gamla muni og minj-
ar. — Það er þjóðernisleg lífs-
nauðsyn. — Og inn á þjóðminja
söfnin á að leiða ungu kynslóð-
ina til fræðslu um fortíðina. —
Hún fæst hvergi betri en þar.
Það kann að þykja broslegt
á Suðurnesjum, að Akureyring-
ar hafa hug á að vernda gamlar
byggingar í innbænum — og
hús skálda sinna: Nonna, Matt-
híasar og Davíðs. — En sá hlær
bezt, sem síðast hlær.
Þetta er ekki dýrkun dauðra
muna, heldur þjóðernislegt varn-
arstarf. — Af þjóðmenningunni
er tungan höfuðatriði. Hún geym
ir í tímans sjóði, trú og vonir
landsins sona. Hana verðum við
að verja og vernda framar öllu
öðru. Að henni sækja lævís öfl
og seinþreytt. Aðalhættan ligg-
ur þó ekki í erlendum slangur-
yrðum, eins og margir halda.
Miklu fremur í vaxandi van-
trausti langskólamanna á tján-
ingarhæfni málsins — og hinu,
hve margir virðast bókstaflega
farnir að hugsa t. d. á ensku.
Málfar slíkra verður alltaf klúð-
ur, ekki íslenzka. Uggvekjandi
er einnig slagarasöngur æskulýðs
á engilsaxnes'ku. Og hættan ligg-
ur ekki í auknum samskiptum
við aðrar þjóðir, heldur í and-
legri leti, — og þjóðernislausum
sóðaskap.
— Látum þá bara hlæja að
ferskeytludýrkun okkar Norð-
lendinga. — Að'tryggð okkar
við stuðla og rím. Og þökk sé
þeim, sem flengir málsóðanna í
fimm mínútur á hverju kvöldi í
Ríkisútvarpinu.
Góðir tilheyrendur. — Mér
hefur orðið tíðrætt um það, sem
margir munu kalla aukaatriði í
sambandi við hinn 17. júní. En
margt smátt gerir eitt stórt. —
Mér hefur orðið tíðræddara um
vernd en vörn, en hugtökin eru
náskyld.
Vitanlega er þátttaka okkar í
hernaðarbandalagi, og þar með
samsekt í ægiverkum, erlendur
her í landinu, einhliða amerískt
sjónvarp og stórfelldar erlendar
fjárfestingar — dimmustu skugg
arnir, sem hvíla yfir hinu litla
húsi okkar, fullveldinu. En ég ör-
vænti þó ekki, ef þjóðin man
fortíð sína og varðveitir þjóðar-
metnaðinn.
Djupalæk:
Við eigum trúa menn á verði
vítt um land, sem ég treysti í
þessu varnarstríði. Við eigum
æsku, sem er höfði hærri að
vexti feðrum sínum. Einnig að
menntun og víðsýni. Við eigum
sjómenn, sem heyja harðari bar-
áttu fyrir lífsbjörg þjóðar sinn-
ar en nokkur annar starfshópur
um víða veröld. Við eigum menn
á heimsmælikvarða í list og
menntum og tugi skálda, sem ég
treysti. Já, ykkur öll, hina ónafn-
greindu Islendinga.
Fyrlr tveim öldum, jafnvel
einni öld, var Reykjavík dansk-
ur bær, og Akureyri danskur
bær. Tungunni var hætt. — En
Fjölnismenn komu fram, og við
tölum öll íslenzkt mál í dag, því
þeir fundu hljómgrunn. Fólkið,
sem byggði útskaga og afdal,
var íslendingar, gullmunnar nor-
rænnar tungu.
Þannig skulum við vita það,
að meðan til eru í landinu brenn
andi hugsjónahópar, þó dreifir
standi, þá gengur kristmennið
alltaf fram, þegar þörfin er brýn-
ust, og safnar hinu sundraða
undir merki sitt. Merki sigursins.
— Leiðtoginn getur heitið Jón
Sigurðsson á íslandi, einhverju
álíka algengu nafni í öðrum lönd
um. En sé lýðurinn reiðubúinn,
þarf hann ekki að bíða lausnar-
ans. Os hlýtur ekki — Sómi ís-
lands, sverð og skjöldur, -— að
vera að spíra í brjósti einhvers
í hinum mannvænlega hópi æsku
lýðs, sem setur svip sinn á þessi
hátíðahöld í dag? Allt frá ný-
útskrifuðum stúdentum, niður í
kornabarnið?
Og ef þú og ég, hver einstakl-
ingur, reynum hvern dag að leika
af beztu getu það litla hlutverk,
sem okkur er fengið, þá er öllu
óhætt.
Það er tjón fyrir allan heim-
inn, ef hið alþjóðlega filmbros
nær að storkna á vör hinnar sér-
stæðu, fornu menningar okkar.
Varðveizla hennar er meir en
okkar sigur. Það er sigur alls
heimsins. Það ætti að efla vernd
arhvötina — að vita þetta.
K RIN € SJA
VIKUNNAR
Messað í Akureyrarkirkju á sunnu
daginn kemur kl. 10,30 árdegis. —
Sálmar nr. 534, 15, 359, 30, 582.
P. S.
Hinar vinsælu kvöldferðir í 01-
afsfjarðarmúla hefjast n. k. laugar-
dagskvöld kl. 20,00. — Ferðaskrif-
stofan Saga.
Rakarastofur okkar eru lokaðar
á laugardögum sumarmánuðina. —
Sigtr. Júlíusson, Valdi, Ingvi og
Halli.
ÉJ-i Frá Sjálfsbjörg. Fundur
verður haldinn í Bjargi
rutl mánudaginn 4. júlí kl.
333] 8.30 e. h., en ekki fimmtu
daginn 30. júní eins og sagt er í
Degi. Fulltrúar skýra frá samþykkt-
um 8. þingsins. Mætið vel og stund-
víslega. — Stjórnin.
Minningarsjóður Jakobs Jakobs-
sonar. — Minningarspjöld fást í
Verzluninni Ásbyrgi h.f., og Bóka-
verzlun Jóhanns Valdimarssonar.
Nonnahús er opið í sumar alla
daga vikunnar kl. 2—4 e. h.
Uppl.símar 11396, 11574, 12777.
+++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++++
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
Avarp
til félaga og almennings vegna Norrænu
sundkeppninnar
Frá 15. maí til 15. september fer fram Norræn sundkeppni.
Aðaltilgangur hennar er að fá sem flesta til þess að iðka sund
og reyna sundgetu sína með því að synda 200 metra án við-
stöðu.
Iðulega gerast hér þeir atburðir, sein sýna nauðsyn góðrar
sundkunnáttu.
Vilduð þér með aðild félags yðar leggja því lið að sem
flestir íslendingar séu vel syndir og að þeir fullvissi sjálfa sig
um sundfærni sína með því að synda „200 metrana“?
— Ef svo, fáið félaga yðar nú um hásumarið til þess að
iðka sund og synda „200 metrana.“
Nú er sá tími, sem allar sundlaugar eru starfræktar, veður
bezt og því hentugast öllum að njóta sunds, loft- og sólbaða.
Takmarkið er að 58 þús. íslendingar hafi fyrir 15. sept-
ember sýnt, að þeir hafi sundfærni til þess að synda „200
metrana“.
Með virðingu og kærri kveðju.
LANDSNEFND SUNDSAMBANDS ÍSLANDS
¥
-¥■
¥
¥
¥
¥■
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
AKUREYRI — NESKAUPSTAÐUR
AKUREYRI
FLJÚGIÐ MEÐ FLUGSÝN
Á miðviku- og föstudögum til Norðfjarðar
með FLUGSÝN H.F.
AFGREIÐSLA Á AKUREYRI:
Ferðaskrifstofan SAGA
Skipagöta 13, Akureyri. —- Sími 1-29-50
Sérleyfisferiir - Hópferðir
Höfum afgreiðslu fyrir effirfalin sérleyfi:
NORÐURLEIÐ H.F.
Akureyri — Dalvík
Akureyri — Hjalteyri
Akureyri — Húsavík
Akureyri — Austurland
Akureyri — Raufarhöfn
Akureyri — Siglufjörður
LEIGJUM BÍLA TIL HÓPFERÐA
Stœrðir 14 til 50 manna.
Kappkostum góða og örugga þjónustu.
FERÐASKRIFSTOFA
SKIPAGÖTU 13
SÍMI 1-29-50
TILKYNNING
fró skaffsfjóra Norðurlandsumdæmis eysfra.
Skattskrá 1966, ásamt skrá um iðnaðargjald og skrá um
álagðan söluskatt 1965, liggja frammi í Skattstofu umdæmis-
ins að Strandgötu 1, Akureyri og hjá umboðsmönnum skatt-
sljóra frá 20. júní til 3. júlí n.k. að báðum dögum meðtöldum.
í skránni eru eftirtalin gjöld:
Tekjuskattur
Eignarskattur
N ámsbókagj ald
Almannatryggingarsj óðsgj ald
Slysatryggingargj ald atvinnurekenda
Lífeyristryggingargj ald atvinnurekenda.
Atvinnuleysistryggingargj ald
Launaskattur
I ðnlán as j óðsg j ald
Kærufrestur er til 3. júlí rt.k. Skulu kærur vera skriflegar og
skal þeim skilað til skattstjóra eða umboðsmanns fyrir lok
kærufrests.
Akureyri, 20. júní 1966.
HALLUR SIGURBJÖRNSSON
skattstjóri.
Föstudagur 1. júli 1966.
VerkamaSurinn — (5