Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 20.01.1967, Qupperneq 2

Verkamaðurinn - 20.01.1967, Qupperneq 2
Orð I belg: mnnwnnnnnnnnnMmnwwi Skammstöfunin HGH auglýsti sig með miklum lúðrablœstri og bumbubarsmíði fyrir meira en ári síðan. — HERFERÐ GEGN HUNGRI skyldi liafin hér á ís- landi, með fjársöfnun úr vösum okkar, sjálfra velferðarþegnanna — og framlagi okkar dreift milli hungraðra og þyrstra í hinum svokölluðu þróunarríkjum, þar sem allsleysið drottnar og dauð- inn einn hlœr við börnunum. — Okkur var þá sagt, að við vœr- um aflögufærir, enda fáar þjóð- ir duglegri að framleiða aburð úr matvœlum en mörlandinn. — Og IIGH var vel tekið. Við vild- um gjarna láta eitthvað af mörk- um við fátækar fiskimannafjöl- skyldur suður á Madagaskar, sem vantaði bœði báta og snæri til að fiska í vatninu sínu, því enn eru okkur tímar Jóns heit- ins Hreggviðssonar það nœrri, að við skiljum snœra- og færa- skort. Við sendum forystumönn- um HGH rúmlega 9 millj. kr. með hraði og báðum þá að kaupa fyrir þessa peninga báta og veiðarfæri handa brœðrum okkar við Alaotravatn, Síðan höfum. við talið víst, að þeim þarna á Madagaskar gengi skár við veiðarnar og hefðu betur í sig og á en áður. Það styrkti líka góða trú, að Andri sálfrœð- ingur lsaksson var á sl. sumri sendur út af örkinni, alla leið til Madagskar og látinn segja okk- ur frá þeirri för sinni í útvarpi. Og enn fer HGH af stað í haust eða byrjun vetrar og skor- ar nú á alla, frá kornbörnum til kararmanna, að gefa eins og tíu krónur hvert til nýrrar söfnun- ar. Nú skyldi fénu varið til að halda lífinu í hrjáðu og hröktu flóttafólki frá Tíbet, sem leitað hefur hœlis í Indlandi, því lang- soltna landi. Af lyktum þeirrar söfnunar hefur lítið heyrzt, en áreiðanlega hefur hún gengið bœrilega. Er þess að vœnta, að aurarnir séu nú komnir til Tíbet- fólksins í formi matvœla og klæðnaðar, þótt enginn sálfrœð- ingur hafi enn verið sendur til tjaldbúða þess. En því eru þessar línur ritað- ar, að höfundi þeirra kom það mjög spanskt fyrir sjónir, þegar forsvarsmaður HGH varð eins og af tilviljun að játa það í einu dagblaðanna í Reykjavík nú um jólin, að meginmagn þess fjár, sem gefið var til fiskimannanna á Madagaskar fyrir meira en ári síðan, eða 6.9 millj. króna, væru enn „geymdar á lokuðum reikn- ingi í Landsbanka fslands og Búnaðarbanka íslands.“ — Til Madagaskar höfðu aðeins farið 2.2 millj., og er að skilja á for- svarsmanninum, að FAO (Mat- vœla- og landbúnáðarstofnun Sþ) hafi ekki getað tekið við meira fé, vegna einnhverrar A- ÆTLUNAR. Allt fer nú fram samkvœmt áætlun, eins og allir vita, einnig hungurdauðinn. En þrátt fyrir allar áœtlanir FAO og HGH, er hitt víst, að hrekklaus almenningur, sem skaut saman 9.1 millj. kr. til Madagaskar-söfn unarinnar í fyrra, œtlaðist til að hungraðir hlytu fyrir þœr mat, en ekki hins, að þœr yrðu lok- aðar inni í frystikistum íslenzku bankanna um tíma eða eilífð. Aldrei hafa bankarnir rétt svelt- andi barni bein, svo vitað sé. „Þar sem fjársjóður þinn er, þar mun líka hjarta þitt vera,“ var einu sinni sagt. HGIl-mennirnir þurfa að gera hreinna fyrir sín- um dyrum, ef við eigum ekki að trúa því, að þeim séu bankahólf- in hugstœðari en hungurlýður Afríku og Asíu. Eða hvar er þá fátœkt og hungur í heimi hér, ef HGH getur hvergi fundið þörf fyrir þessar afgangsmillj- ónir sínar? Vœri ekki reynandi að auglýsa. — z. Skipt um starf NÝTT HÚSNÆÐI . . . Framhald af 1. síðu að vín var ekki á boðstólum, og það eitt út af fyrir sig lofar góðu um, að þessir ungu menn séu sumum þeim eldri færari og hyggnari í starfi, enda eru þeir allir bindindismenn. Blaðið óskar Byggingarvöru- verzlun Akureyrar, eigendum hennar, forstj óra og starfsmönn um, góðs gengis í framtíðinni og viðskiptavinum hennar góðr- ar fyrirgreiðslu eftirleiðis sem hingað til. ! HVAÐ GERIR ÍS- ! 1 LENZKA KIRKJAN? ! \ Utvarpsfréttir þessa dagana \ \ herma, að bandaríkjamenn í \ \ Vietnam hafi tekið upp þó að- i j Ferð að eyða þorp og drepa í- \ \ búana eða flytja þó í fanga- \ búðir. 1 Hér er um að ræSa hliðstæð \ verk og þau verstu, sem þýzku \ nazistarnir gerðu sig seka um á 1 striðsórunum. \ Æ viðar heyrist, að kristin J kirkja taki afstöðu gegn þessu \ villimannlega framferði. 1 Tókst Morgunblaðinu að \ Flengja allan manndóm úr Sig- \ urbirni, núverandi biskupi, eftir * Stokkhólmsóvarpið forðum doga? Blaðið hefur fregnað, að 2 norðlenzkir forstjórar og athafna menn í fiskiðnaði séu ráðnir til starfa hjá hinni erlendu stór- iðju, annar í gúrinn, hinn í ál- inn. Menn þessir eru Vésteinn Guðmundsson, Hjalteyri, og Vernharður Bjarnason, Húsav. Það eitt, út af fyrir sig, að menn skipti um starf á miðjum aldri, er ekki frétt. En það er stór frétt og miður góð, þegar vinsælir dugnaðarmenn hverfa frá nyt- sömum ábyrgðarstörfum, til þess að bræða innflutt grjót og þurrka leir fyrir erlenda, á sama tíma og þeirra þarf við í upp- byggingu íslenzks fiskiðnaðar. Það virðist töluvert bogið við þróun atvinnumála í landinu, þegar svona hlutir geta gerzt, og væri vel þess virði, að hinn al- menni borgari ígrundaði það nokkuð, hvað hér er að gerast, því þessir tveir menn eru ekki og verða ekki þeir einu hér að norðan, sem axla sín skinn og fela erlendum sína forsjá á næstu misserum, þó Norðurlands áætlunin geri ef til vill ekki beint ráð fyrir því. Ltboð Leitað er tilboða í að mála húsnæði það, sem sjálfvirka sím- stöðin er í, ásamt stigahúsi, í húsi Landsíma Islands á Akur- eyri. Utboðsgagna má vitja á skrifstofu landssímans á Akureyri. Tilboðum sé skilað þangað fyrir 1. febrúar 1967. Póit- og símamólasfjórinn. Verður dregið úr framkvœmdum? I sambandi við ákvörðun á fiskverði, tók ríkisstjórnin upp nýtt uppbótakerfi, í viðbót við þœr fjölþœttu uppbœtur, sem fyrir eru. Verða greiddar úr ríkissjóði 5—11% uppbœtur á fisk, eða sem svarar 8% uppbótum að meðaltali, en kostnaðurinn af þeim greiðsl- um er áœtlaður nœr 100 milljónir króna á ári. Ríkisstjórnin er nú að ræða ráðstafanir til þess að afla þessa fjár, og er aðallega rætt um eftirtalin úrræði: — Greiðslur til syeitarfélaga úr Jöfnunarsjóði verði skornar niður um 10%. — Verklegar framkvæmdir ó vegum ríkisins verði skornar niður um 10%. — Lagður verði ó sérstakur eignaskattur. — Tekinn verði skattur af farmiðum til útlanda. Sú skattheimta var rædd í fyrra en fallið fró henni þó. Ráðstafanir eins og lækkun á greiðslum úr Jöfnunarsjóði og tak- mörkun verklegra framkvæmda myndu hafa mjög alvarlegar af- leiðingar. Sveitarfélögin hafa flest mjög þrönga afkomu og eru háð greiðslunum úr Jöfnunarsjóði og hafa að sjálfsögðu reiknað með þeim. Hætt er við, að lækkun á þeiin greiðslum ásamt samdrætti á verklegum fram'kvæmdum ríkisins, mundi bitna fyrst og sárast á framkvæmdum eins og skólum, og fer þá að verða tímabært að spyrja, hvort næst muni ekki óhjákvæmilegt að takmarka fræðslu- kerfið sjálft. Takmörkun á framkvæmdum sveitarfélaga og ríkisins hefur auð- vitað ekki aðeins þann tilgang að spara fé í niðurgreiðsluhítina, heldur þarf nú einnig að takmarka atvinnuna, svo að nægilegt vinnu- afl verði tiltækt til alúmínframkvæmda, eins og ra'kið var í skýrslu Efnahagsstofnunarinnar. Álit Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins: Glerdrdolur er ehhi ofbeittur Á bæjarráðsfundi 5. jan. sl. var lögð fram skýrsla frá Rannsóknarstofnun landbún- aðarins um rannsókn á gróð- urfari og beitarþoli afréttar- lands Glerárdals, ásamt upp- drætti í mælikvarða 1:40.000. Voru rannsóknir þessar framkvæmdar að beiðni Akur eyrarbæjar samkv. samþykkt bæjarstjórnar 9. nóv. 1965. Heildarflatarmál hins gróna lands er 3418 ha. Hæfilegur fjárfjöldi á hinu kortlagða afréttarlandi í 90 daga í júní til sept., er 2100—2300 ær. Talið er að á vetrarfóðrum séu um 2200 fjár í lögsagnar- umdæmi Akureyrar, og talið er að um 1800—1900 fjár auk iamba muni ganga á dalnum næsta sumar. Frá liöfiiiniii 13. jan. kom Belly Baagö og tók síldarmjöl til útflutnings frá Krossanesi, um 350 tonn. — 14. jan. kom Harðbakur úr söluferð frá Englandi, fór á veiðar 19. — 15. jan. kom strandferðaskipið Blikur með allskonar vörur, þar á meðal sykur, er blotnaði mjög verulega í stórrigningunni á sunnudaginn; þörf væri á stærri byrgðaskemmu hér við höfnina. — 16. jan. kom Helgafell með 700 tonn af fóðurvöru. — 17. jan. komu 2 skip af síldveiðum, og eru bæði hætt þeim veiðum; Þórður Jónasson fór í slipp., en Akraborgin varð fyrir því ó- happi að tapa nótinni úti á hafi, lenti nótin í skrúfunni, svo að Þórður Jónasson varð að draga hana inn til Norðfjarðar, þar sem skrúfan var hreinsuð; Val- týr Þorsteinsson á bæði þessi skip. 19. jan. kom Kaldbakur af veiðum með 150—160 tonn, sigldi strax til Englands með afl- ann. EFTIR bæjarstjórnarkosningar í sumar sagði blað Framsóknar- manna: „Nú hlýtur Framsóknar flokkurinn að taka forustuna í bæjarmálum.“ — Jú, hann hefur gert það, en al menningur segir, að aldrei hafi jafnmikill ræfildómur, ómennska og ringulreið ríkt í þeim efnum sem nú. 2) Verkamaðurinn Föstudagur 20. janúar 1967.

x

Verkamaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.