Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 16.02.1968, Síða 4

Verkamaðurinn - 16.02.1968, Síða 4
YIíBMíjnn [ ÚTGEFANDI: [ ALÞÝÐUBANDALAGID í NORÐURLANDSKJÖRDÆMI EYSTRA RITSTJÓRI: | ÞORSTEINN JÓNATANSSON i AFGREIÐSLA: BREKKUGÖTU 5 - AKUREYRI - SÍMI 1-15-16 i PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR H.F. - AKUREYRI Lágmarkskrafa ÞAÐ mun öllum ljóst, er um vilja hugsa, að svo mikill samdráttur hefur orðið í atvinnulífinu á síðasta ári og alveg sérstaklega á síðustu mánuðum, að tekjur verkafólks almennt hafa minnkað svo, að þær eru ekki sambærilegar við það, sem var fyrir fáum árum síðan. Yfirvinna er víðast úr sögunni, og enda þótt því sé ekki bót mælandi, að fólk þurfi að þræla hálfan sólar- hringinn til að hafa sæmilega í sig og á, þá er heldur ekki hægt að neita því, að yfirvinnan hefur bjargað fjölda fólks frá því að komast í algerar þrengingar með sitt lifibrauð. Dagvinnulaunin hafa alls ekki nægt til framfærslu, en með mikilli aukavinnu, sem löngum stóð til boða, hefur flestum tekizt að bjargast sæmilega. Nú, þegar yfirvinnan er úr sögunni, horfa málin öðru- vísi við. Þau einu viðbrögð, sem að gagni geta komið, eru að krefjast stórhækkaðs kaups fyrir dagvinnuna, og fyrsta og sjálfsagðasta krafan er þá auðvitað sú, að í engu séu skertar þær vísitölubætur á laun, sem tíðkast hafa og miðaðar eru við framfærsluvísitölu hverju sinni. Þær fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar að fella niður vísitölugreiðslur á sama tíma og tekjur hinna lægst launuðu hafa stórminnkað, eru svo fjarstæðukenndar og ófyrirleitnar, að engu tali tekur. Nær liefði verið, að almenn hækkun lægstu launa hefði verið fyrirskip- uð með lögum. Vitaskuld er ríkið sjálft og einnig fjöldi atvinnurek- enda í hinum mestu krögum. En þær kröggur eru ekki tilkomnar af því, að laun verkafólks séu há. Það er allt annað, sem þar um ræður, eins og greinilega var bent á hér í síðasta blaði. Og atvinnulífið verður ekki reist við með því að svelta verkafólk. Er og sízt ástæða til þess, að þeir séu sveltir, sem grundvöllinn leggja að allri tekjuöflun þjóðarinnar. Krafa launþegasamtakanna um fullar vísitölubætur 1. marz næstkomandi og framvegis er því alger lág- markskrafa og á fyllstu rökum reist. Aðalkrafan, og sú, sem fast verður að standa á þar til hún verður að raunveruleika í framkvæmd, er, að laun fyrir átta stunda dagvinnu nægi öllum til framfærslu meðalfjöl- skyldu. En til þess að svo megi verða þurfa laun al- mennra verkamanna, sjómanna og bænda, að hækka um eigi minna en 50%. Aftur á móti væri vel hugsan- legt að lækka laun ýmissa annarra stétta, þeirra, er nú hafa margföld laun á við þá, sem hér að framan hafa verið nefndir. Allt launakerfið í þjóðfélaginu þarf að taka til end- urskoðunar, og sú endurskoðun og framkvæmdir í sam- bandi við hana, verður að miða að meiri launa- og tekjujöfnuði í þjóðfélaginu en nú er. Hún verður að miða að því, að störf við framleiðsluatvinnuvegina verði ekki aðeins jafnvel launuð og ýmis þjónustu- og milliliðastörf, heldur betur, þannig að þessar atvinnu- greinar verði eftirsóttar af nýju vinnuafli, Grundvöllur allrar velgengni er, að undirstaðan sé traust, og því að- eins er undirstaða okkar þjóðarbúskapar traust, að við sjávarútveg og landbúnað vinni fólk, sem vel kann sín störf, er fært um að leysa þau af hendi, og er það vel launað, að það uni sínum hag. Þingvallastræti 14. Verkalýðsfélaginu Einingu var gefið þetta hús fyrir nokkrum órum. Félagar í Einingu 1100 VERKFALLSHEIMILD SAMÞYKKT Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Einingar var haldinn á sunnudaginn var. I upphafi fundar minntist formaður félagsins, Björn Jónsson, þeirra félagsmanna, er látizt höfðu á liðnu ári. En því næst var gengið til aðal- fUndarstarfa. í skýrslu stjórnar um störfin á liðnu ári kom m. a. fram, að félagatalan er nú orðin 1100 manns, en aukningin stafar að veru- legu leyti af því, að á árinu gengu verka- lýðsfélögin á Dalvík og í Hrísey inn í félag- ið sem deildir. Nú er til umræðu, að félagið í Olafsfirði, sem lítið hefur starfað um skeið, gerist einnig deild í Einingu. Bókfærðar eignir félagsins voru við ára- mót kr. 5.424.000.00, og höfðu aukizt nokk- uð á árinu. Félagið hefur fest kaup á þrem- ur þeirra orlofshúsa, sem í byggingu eru að Illugastöðum. 100 félagar nutu á árinu einhvers styrks frá sjúkrasjóði félagsins, samtals að upp- hæð um hálf milljón króna. Félagsfundir voru fjórir á árinu, trúnað- armannaráðsfundir þrír og stjórnarfundir fjórtán. Nóftúrugripasafnið. - í vetur vería sýningartimar fyrir almenning að venju ó sunnudögum kl. 2—4 siðd. Auk þess verður safnið opið siðdegis ú lougardögum, og eru þeir tímar einkum ætlaðir úhuga fólki í núttúrufræði. Ahugamenn, utanbæjarmenn og skólohópor geta fengið oð skoða safnið ó öðrum tímum eftir núnara sam- komulagi. - Sími safnsins er 1-29-83 en að jafnoði verður aðeins svaroð í hann siðdegis ú virkum dögum. Heimasími safn- varðar er 6-11-11, Vikurbakki. Verkfallsboðun Á fundinum var einróma samþykkt hein1' ild til verkfallsboðunar, ef ekki nást öðru móti samningar um fullar vísitölubæ*' ur á laun. Samþykkt fundarins var þannig1 „Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Eining' ar, haldinn 11. febrúar 1960, lýsir fyll=ta stuðningi félagsins við einróma ályktatn1 30. þings ASI og 3. þings VerkamannasaH1' bands íslands í kjara- og atvinnumáluifl’ þar sem m. a. er heitið á verkalýðsfélÖg111 að vera viðbúin til átaka 1. marz næstkon1' andi til að knýja fram kröfu samtakan113 um áframhaldandi verðlagsbætur á laun> ^ Samþykkir fundurinn heimild til han<Þ trúnaðarmannaráði til að boða vinnustöð'", un af hálfu þess í samráði við önnur verkJ' lýðsfélög, reynist slíkt nauðsynlegt til að ll3 fram þessarri meginkröfu verkalýðshrey^' ingarinnar í kjaramálum. E’undurinn samþykkir, að 15 mannal nefnd ASÍ annist viðræður við atvinnurek'l endur um verðlagsbætur á laun.“ I Stjórnarkjöri var lýst á fundinum, e’l| stjórnin varð sjálfkjörin, eins og áður hefníl verið skýrt frá hér í blaðinu, þar sem aðeill5l einn listi kom fram. I þorrngleði bafa átthagafélög Húnvetninga og Skagfirðinga á Akureyri að Hótel KEA laugardaginn 24. febr. Hefst klukkan 8 síðdegis með kaffidrykkju. Ýms skcmmtiatriði. Aðgöngumiðar verða afgreiddir á hótelinu á fimmtudaginn og föstudaginn (í næstu viku) kl. 7—10 e. h. Borð tekin frá um leið. Stjórnir félaganna. 4) Verkamaðurinn

x

Verkamaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.