Verslunarblað Íslands - 01.09.1908, Blaðsíða 1

Verslunarblað Íslands - 01.09.1908, Blaðsíða 1
-4 vV'/,\‘V N A 11 II/ í 8 L A N D S '/j 13. B L A I) SEPTBB. 1908. I. ARG. Ásgeir Sigurðsson, kaupmaður og breskur vice-konsúll i Reykjavík. Það þótti eigi all-litlum tíðindum sæta, þeg- ar það fréttist fyrir nokkrum árum, að kaup- maður einn í Reykjavík borg- aðiöllvinnulaun manna þeirra, er hjá honum unnu, og keypti vörur af hverjum er liafa vildi fyrir »peninga út í hönd« eins og menn nefndu það. Ivvað svo ramman að undrun sumra yfir þessu óvenjulega peninga- örlæti að þeir höfðu orð á því við kaupmenn og sögðu: »að hann þyrfti nú ekki að vera að borga alt með peningum, þeir gætu ósköp vel tekið út á nokkuð af því«. En kaupmað- ur sat við sinn keyp. Ivvaðsl greiða þeim vinnulaun þeirra og vörur með peningum og fyrir þá ættu þeir svo að kaupa sér nauðsynjar sinar, annað- hvort hjá sér eða öðrum. Kaupmaður þessi var As- geir Sigurðsson, forstöðumaður verzlunarinnar Edinborg. Aiúð 1895 stofnaði Asgeir verzlunina Edinborg hér í Reykjavík með félaginu Copland & Rerrie í Leith og lók þegar upp þá reglu að láta hönd selja hendi, selja og kaupa vörur einungis gegn peningum. Almenn- ingur fann brátt, að verzlunin var fnun heppi- legri en sú, er þeir áttu að venjast. Fjölgaði því brátt viðskiftamönnum verzlunarinnar og það svo mjög, að hinir stærri kaupmenn bæjarins sáu, að við svo búið mátti ekki standa. Annað- hvort urðu þeir líka að breyta til og kaupa og selja vörurnar fyrir peninga eða þeir áttu það á hættu, að Ásgeir tæki alla viðskifta- mennina frá þeim, en þá vildu þeir ekki missa og tóku því npp sömu aðferðina og Edinborg. Árangurinn af þessari byrjun Ásgeirs Sigurðssonar er sá, að hér í höfuðstaðnum þekkist nú naumast annað en peninga- verzlun, og í mörgum kaup- túnum landsins er peningaverzl- unin komin á góðan veg. Eins og menn vita, hafa d a n s k i r u m b o ð s m e n n til skamms tíma haft því nær alla verzlun landsmanna í sínum höndum, bæði kaup á útlend- um vörum og sölu á íslenzk- um afurðum. Og allir vitum við það, að lítill þritnaður hef- ir hinni íslenzku þjóð staðið af því sambandi. Er það líka of- ur eðlilegt, því þjóðirnar eru mjög ólíkar. Og þegar þar við bætist megn vanþekking á ís- lenzkum atvinnuvegum og ís- lenzkri verzlun, þá er ekki að undra, þó að margt hafi aflaga farið. I3egar Ásgeir Sigurðsson fyrir 10—11 árum siðan byrjaði á því að kaupa saltfisk fyrir pen- ínga, þá sá hann strax, að það mundi verða til hins mesta gagns ef hægt væri að komast i beint samband við verzlunarhús þau á Spáni og Ítalíu er verzla með fiskinn, Honum hepnaðist líka að koma því þannig fyrir, að Edinborg fekk þá strax umboð frá nokkrum spönskum og seinna ÁSGEIR SIGURÐSSON.

x

Verslunarblað Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunarblað Íslands
https://timarit.is/publication/217

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.