Verslunarblað Íslands - 01.09.1908, Blaðsíða 6

Verslunarblað Íslands - 01.09.1908, Blaðsíða 6
40 VERZLUNARBLAÐ ÍSLANDS an sig í hendur réttvísinni fyrir margra ára skjalafals og þjófnað. Eftir því, er síðustu blöð skýra frá, hefir hann leikið þessa list síðan 1891. Maður sá, er fengin hefir verið rannsókn málsins i hendur, heitir Schou og er dómari við 7. sakamáladeild (Kriminalkammer). Hefir hann látið flytja allar föggur Albertis til lögreglustöðv- anna og er nú unnið kappsamlega að því að rannsaka skjöl og skrif hans, og hefir meðal annars fundist, að Alberti hefir tapað stórfé á kauphallargróðabralli (Börsspekulationer) i Lund- únum. Álitið er, að mest af því fé (kringum 6 millíónir) muni hann hafa tapað á bralli með gullnámahlutabréf. En peninga þá er hann hef- ir brallað með þar í Lundúnum, kvað hann hafa tekið frá »Smöreksportforeningen« og það fé- lag muni tapa alt að 3—4 millíónum króna við fall hans. Fyrrverandi landbúnaðarráðherra Ole Han- sen er fyrir nokkrum vikum var gerður að ein- um af forstöðumönnum þjóðbankans danska, hefir nú sagt þeim starfa lausum. Hann var, eins og kunnugt er, varaformaður í »Den sjæl- landske Bondestands Sparekasse« og hefði verið það í mörg ár. í ýmsum löndum er mjög mikið talað um þetta Albertihneixli og mælist það alstaðar illa fyrir og þykir þjóðarskömm fyrir Dani. Hversu víðtæk áhrif þetta Albertismál kann að hafa í Danmörku er ekki unnt að segja neitt um að sve stöddu. En áreiðanlegt er það, að landbúnaðurinn danski J)ýður stórhnekld. Bú AU)ertis hefir nú verið tekið til þrota- búsmeðferðar og heitir sá Bulow er um það á að Ijalla og er hæstaréttarmálaflutningsmaður. En hvað sem öllu liður, er vonandi að sliaðsemdaráhrifin liomist ekki nálægt peninga- stofnunum olvkai’. GullfVamleiðslan í Kbodesíu. Úr gullnám- unum i Bhodesiu voru unnar í síðastl. júlímán. 57,271 Unzur, er metnar voru 228,151 Lst. En í júní 1907 voru unnar 57,426 U. og í júlí 54,271. Alls hafa verið unnar á þessu ári 358,746 Unzur, en í fyrra nam öll framleiðslan 346,046 U. Verzlnn Siberiu utanlands. Innfluttar vörur til Siberiu 1907 hafa numið 70,582,32 Dinara, stórum meira en nokkru sinni fyr. Iinnfl. baðm- ullarþráður fyrir 6 milljónir dinara. Unnin baðmull nálægt 7 millj. Prentpappír 713,151. Þurkaður, reyktur og saltaður fiskur 139,122. Postulínsvarningur 162,629. Útfluttar vörur svo sem blóm og allskonar korntegundir námu milli 30—40 millj., miklu meira en nokkru sinni áður. Eldsvoði. í Núgata i Japan, kom upp óg- urlegur eldsvoði fyrir skemstu, 4000 hús brunnu, ógrynni IV)lks i hræðilegustu vandræðum. Landbúnaðarbanki í Mexikó. Nýlega lxefir hlutafé landbúnaðarhankans í Mexikó verið auk- ið um 10 millj. króna. hluta þessa fjár tek- ur stjórnin til að koma í framkvæmd ýmsum landbúnaðar og vatnsveitu fyrirtækjum, en % hluta fjárins notar banldnn; en að sögn kvað stór hluti þess vera eign kaþólsku kirkjunnar. Námuvinna heimsins. Sagt er að nú á tim- um vinni alt að 5,350,000 manns að námugreftri. Fullkominn helmingur af þessu fólki vinnur í kolanámum. í kolanámum á Englandi vinna 867,000 manns og er það meira en í nokkru öðru landi. Samt sem áður framleiðir England ekki eins mikið af kolum og Bandaríkin, en þar vinna ekki nema 641,000 í kolanámum. í Þýzkalandi vinna 569,000 manna við kolanámur, í Frakk- landi 178,000, í Belgíu 139,000, í Austurríki 121,- 000 og á Indlandi, þar sem þó er skortur á fólki til þessarar vinnu svo að það stendur námugreftr- inum fyrir þrifum, vinna þó framt að 99,000 manns íkolanámum. — Árið 1906 var kolafram- leiðsla heimsins 1,013 millj. smálestir og aðpen- ingaverði 344 milliona sterlingspunda. Sama ár vargullframleiðsla heimsins 598,636 Ivg. og að verðmæli talið 82 millio nir sterlingspuna virði. Þar af framleiddi Bietaveldi ca 61°/o og Banda- ríkin 233/<°/o. Tranzvaal er nú mesta gullland heimsins. Þaðan koma c. 30°/o af gullframleiðslunni, þá Ástralia með c. 18% og Ivanada, Indland, N}Tja- Sjáland og Bhodesia með til samans kringum 11 proc. I járnframleiðslunni ern Bandaríkin liæzt á blaði. Árið 1906 var framleiðsla þeirra af járn- málmi nálægl 258A millíónir smálesta. Næst þeim var Þýzkaland með 7 millíónum smálesta.

x

Verslunarblað Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verslunarblað Íslands
https://timarit.is/publication/217

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.