Vínland - 01.04.1906, Blaðsíða 5

Vínland - 01.04.1906, Blaðsíða 5
V í N L A N D. 13 t>ýfi „ísafoldar". í nóvemberblaði ,,Vínlands“ (1905) var ritstjórnarffrein um „Loftritun í Bandaríkj- um“. Grein pessa liafa — að J>ví er oss er kunnugt — tvö blöð á Islandi tekið eftir Vín- landi. Hón birtist J>ar fyrst í blaðinu „Reykja- vík“ (3. feb. [>. á.) og pað blað flytur liana orðrétt og skyrir rétt fríi hvaðan hi'in sé tek- in, eins og siður er allra heiðvirðra blaða, er taka greinar eftir öðrum. Svo kemur „Isafold“ meðsöinu greinina löngu seinna (10. marz p. á.),og getur pess hvergi að hún sé tekin eftir Vínlandi, en seg- ir að hún sé tekin eftir Bandaríkjablaði, og ritstjórinn hnytir við hana [>essari athugas.: „Grein pessi heíir ísafold verið send of- an úr sveit af manni, sem fengið hefir hið amer. blað og íslenzkað hana [>aðan“. ,,ísafold“ segir með berum orðum að grein þessi sé p/dd úr (ensku) blaði, sem út sé gefið hér í Bandaríkjum. Ef svo væri }>á lægi pað í augum u]>pi að Vínland hefði haft hana eftir sama blaðinu og pá, að sjálfsögðu, stolið henni [>aðan; [>ví [>ess er hvergi getið í Vínlandi, að greinin sé [>ydd eða tokin eftir öðru blaði, af [>eim eðlilegu ástæðum að hún var að öllu leyti frumsamin, eða að svo miklu leyti semnokkur grein getur heitið frumsam- in, pegar hún er um efni, sem áður er marg- rætt. Dað er bersynileg l/gi, að grein pessi sé pydd úr Bandaríkjablaði. Hún hefir aldrei verið á öðru máli rituð en íslenzku, oo- var í engum öðrum blöðum ]>rentuð en Vínlandi (og eftir pví í ,,Reykjavík“). ísafold hefir pví stolið greininni þaðan, en lætur sér ekki nægja með pað, heldur dróttar hún jafnframt pjófn- aði að Vínlandi í þokkabót. Fram hjá [>ví óþokkabragði getum vér ekki gengið alveg pegjandi. Vér nefndum engin heimildarrit og gerð- um enga grein fyrir hvaðan vér höfðum neitt af pví, er vér sögðutn frá í grein pessari, af pví oss pótti óþarft að geta þess, og hugðum alpyðu myndj fremur [>ykja [>að spilla en bæta, ef með henni hefði fylgt löng runa af nöfnum allra þeirra heimilda, er vér höfðum notað. Vér fórum sem minst eftirfrásögn frétta- blaða, pví oss er vel kunnugt hvei'su varasamt er að hafa pess háttar fróðleik [>aðan. Frétta- blöðsegja sjaldan svo frá loftritun eða nokkru öðru, rafmagni viðvíkjandi, að ekki sé eitt- hvað ranghermt. En }>6 tókum vér pað, sem sagt er um loftskeytið, er barst frá herskip- um Bandamanna til Washington, D. C., eftir frásögn um pað í blaðinu „The Chicago Re- cord-Herald“ og sömuleiðis um loftskeytið er barst frá Key West til Colon. Annað var ekki tekið i grein pessa eftir frásögn neinna frétta- blaða. Aðalefni hennar, sem er um tilrauna- stöðvar stjórnarinnar, gátum vér ekki ritað eftir pví, sem um pað hafði verið sagt í hér- lendum blöðum, pví oss var vel kunnugt að par var ekki rétt sagt frá öllu, og um pað gátum vér fengið aðrar nákvæmari og betri skýrslur, sem eru til í sérstökum ritgerðum um pað efni. Til dæmis um pað, að sumar heimildir pær, er vér studdumst við, eru ekki í alpýðu höndum hér í landi — hvað pá heldur á fs- landi — skulum vér nefna eina ritgerð, ervér höfðum til hliðsjónar: „The present state of wireless telegraphy“, by Prof. J. A. Fleming, University College, London*), sem gefin var út á kostnað sýningarstjórnarinnar í St. ]>ouis, sérprentuð, og hefir aldrei verið prentuð í neinu fréttablaði eða alpýðu-tímariti. En úr ritum peim, er vér fórum eftir, tók- um vér að eins efni, en pýddum ekkert nema eitt stutt loftskeyti (sjö orð), og pað er í grein vorri auðkent með gæsalöppum. „Isafold“ hefir slept köflum úr grein vorri, breytt víða orðum og setningum, og skotið inn í hana orðum á nokkrum stöðum; en að mestu leyti er greinin hjá henni orðrétt eins og hún er í ,,Vínlandi“. En breytingar pær, sem par eru gerðar, eru pjófamark svo glögt, að pað tekuruf all- an efa um vísvitandi pjófnaðartilraun af ásetn- ingi gerða. Dað er eldgamalt bragð hinna auðvirði- legustu ritpjófa, að reyna að klóra yfir pýfið með pví að breyta einstökum orðum ogorða- röðinni. Detta vantar heldur ekki í þessari greiu „ísafoldar'1. Vér viljum nefna að eins fá dæmi: „I landi“ fyrir „á landi“; „inn um land“ fyrir „innanlands“; ,,fáar að tiltölu“ fyrir „til- tölulega fáar“; „með austurströnd landsinsog sunnan“ fyrir „á austur- og suður-ströndinni“ o. s. frv. Svona breytingar hefir þjófnum tekist bezt með, því þær raska lítið meining- unni. En víða verða pó vitleysur samfara orðabreytingunni; t. d. þar sem hann nefnir „skipstjóra“ (rangt) fyrir „skipverja"; „frá Colon“ (vitleysa) fyrir „til Colon“ o. fl. af sama tagi; eða þar sem liann segir frá „eim- skipalínum, sem fara um Atlanzhaf“ (fyrir „eiraskipalínum á Atlanzhafi“). Þess má geta í sambandi við þetta, að í greininni í Vínlandi er sú ósamkvæmni í rit- hætti, að á einum stað er ritað ,,gufuskip“ en annara altaf ,,eimskip“. Detta var pjófnum o f æ 11 u n að lagfæra; hann hefir pað e f t i r o r ð r é 11. Fáfræði ogheimska er vanalegt einkenni n n ritpjófa, og að pví leyti stendur þessi sínum likum ekki að baki, því næstum hvert orð, sem er viðbót frá honum sjálfum, er ranghermi eða vitleysa. Hann segir t. d. að Portland (á að vera Portland, Me.) sé nyrzt í Bandaríkj- um, pó sá bær sé næstum syðst í Maine-ríki og paðan um 300 mílurtil nyrztu landamæra. S^ma segir hann um Bellingham, en seturpar *) „A paper presented at the International Electrical Congress of St. Louis, 1904“. við spurningarmerki; —- hefir auðsjáanlega enga hugmynd um það haft hvar sá bær er. í Vínlandi stendur á tveim stöðum bæjar- nafnið: San Juan (Porto Rico); á öðrum-staðn- um hefir þjófurinn það rétt eftir, en á hinum staðnum nefnir hann „San Juan (á Cuba)“, sem er ranghermt, pví Bandaríkjastjórn á par ekki loftritastöð, og svo nefnir hann Porto Rico sem loftritastöð, en nefnir ekki Guanta- namo (á Cuba), — Darna hefir hann pózt fær um að breyta en hvorki vitað upp né niður og ruglast alveg í nöfnunum. I Vínlandi segir svo frá: „Eins og kunnugt er fór Roosevelt for- seti sjóleið heim aftur úr suðurför sinni í haust“. Dað hefir þjófurinn orðrétt eftir. En því næst kemur pessi setning í Vínlandi: „Hann fór á foringjaskipinu West Virginia alla leið frá New Orleans til Norfolk, Va.“ Dar hefir pjófurinn ætlað að ná sér niðri, því hér víkur hann mest frá orðum Vínlands og segir svo frá: „Hann fór kynnisför pá til suðurríkjanna á foringjaskipinu West Vir- ginia alla leið frá New Orleans til Norfolk, suður um Floridaskaga o. s. frv.“ Heppilegt er fyrir pjófinn að hann endar parna með „o. s. frv.“, pví alt, sem hann hefir áður sagt, er hlægileg vitleysa. Eins og hvert heilvita mannsbarn hér í landi veit, fór Roosevelt landveg suður en ekki sjóleið. Hvert einasta fréttablað hér í landi hafði um pað leyti svo mikið um pá landferð að segja, að flestum er enn minnisslætt; en hann fór heim aftur sjó- leið, eins og segir í Vínlandi, og sigldi pá norður um (en eklci „suður um“) Floridaskaga o. s. frv. Olíklegt er að „ísafold“ hafi séð sér neinn hag í að stela grein pessari, en hitt erauðsætt, að hér bauðst pjófnum gott tækifæri til að stela svo ekki yrði uppvíst; pví eðlilega get- urenginn maður á íslandihaft neina vitneskju um pað, hvort grein pessi hefir áður verið prentuð í einhverju ensku blaði í Bandaríkj- unum eða ekki. En peim þjóf er vaila sjálf- rátt, sem stelur eingöngu til pess að nota tækifærið, án alls tillits til eigin hagsmuna. Og ef til vill, er ,,ísafold“ eklci sjálfrátt. Dað er að eins áf tilviljun,að vér sjáum pað blað stöku sinnum, og þess vegna erum vér pví yfir höfuð litt kunnugir. En nú vill svo til, aö vér höfum í höndum 17. tölublaðið afyfirstandandiárgangipess,— nýkomið vest- ur hingað, — og um sumt, sem par erritaf ,má með réttu segja, að svo líti út sem vitfirring stari par út úr liverri linu; að minsta kosti verður vissulega ekkitil pess ætlast, aðsú rit- stjórn, er lætur pess háttar frá sér fara, geti fyllilega borið siðferðisloga ábyrgð á gerð- um sínum. Af peim ástæðum er skiljanlegt, að „ísa- fold“ geti leikið sér að því að stela o. s. frv.

x

Vínland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vínland
https://timarit.is/publication/219

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.