Voröld - 09.04.1918, Page 4
Bls. 4
VORÖLD
Winnipeg, 9. apríl, 1918.
GIGTVEIKI
Vér læknum öll tilfelii, þar sem
liöirnir eru ekki allareiðu eydd
ir, með vorum sameinuðu að-
ferðum.
Taugaveiklun.
Vér höfum verið sérlega hepn-
ir að lækna ýmsa taugaveikl-
un; mörg tilfelli voru álitin
vonlaus, sem oss hepnaðist að
bæta og þar með bæta mörg-
um árum við æfi þeirra sem
þjáðust af gigtinni.
Gylliniæð
Vér ábyrgjumst að lækna til
fullnustu öll tilfelli af Gyllini-
æð, án hnífs eða svæfingar.
Vér bjóðum öllum gestum,
sem til bæjarins koma, að
heimsækja oss.
MineralSprings
Sanitarium
Winnipeg, Man.
Ef þú getur ekki komið, þá
skrifa eftir myndabæklingi og
öllum upplýsingum.
Nefnið “Voröld” þegar þér farið
eftir þessari auglýsingu.
Uv JBænum
Séra Albert Kristjánsson frá
Lundar var staddur hér í bænum
í vikunni sem leið.
B. B. Olson frá Gimli var í
bænum um miðja vikuna sem
leið.
Jón Runólfsson, kennari, frá
Laufási, kom til bæjarins snögga
ferð á miðvikudaginn var.
Minnesota Mascot getur þess
að látinn sé Benjamín Þorgrims-
son, maður um sjötugt þar í bygð
inni. Hann var einn af land-
nemum Lincoln héraðs; kom til
Vesturheims 1879. Fyrri kona
hans var dóttir Magnúsar Strand
og konu hans; áttu þau saman 7
böm sem eru á lífi. Ámi, Magn-
ús, Jón, Karl, Pétur, Kristinn og
Leslie. Seinni kona Benjamíns
var Sigurbjörg Vilhjálmsson og
lifir hún mann sinn. Séra K.K.
Olafsson jarðsöng hinn látna að
viðstöddu fjölmenni.
Lilja Olson frá Gimli sem hér
hefir verið um tíma á verzlunar-
skóla fór heimleiðis aftur á laug-
ardaginn.
Tryggvi Arason frá Cypress
River var í bænum um miðja
vikuna sem leið, fór aftur heim-
leiðis á föstudaginn.
Bjarni Björnsson skopleikari,
heldur kveldskemtun í Good-
templarahúsinu, 11. apríl, kl.
8.30 e.h.
Aðalsteinn Kristjánsson er ný-
kominn til bæjarins. Hann er
fyrir skömmu kominn heiman
frá íslandi.
A. S. Sigurðsson frá Piney, og
G. B. Arnason frá Pembina, N.D.
voru á ferð hér í bænum um
miðja vikuna sem leið.
Úr bréfi:—Á mínu heimili eru
engin börn, samt lítu mvið fyrst
í “Sólöld” þegar blaðið kemur.
Svona höfum við stóru börnin
gaman af “Sólöld”
F.E.G.N.—Leslie.
Vigfús Guðmundsson úr Borg-
arfirði vestra, sem dvalið hefir
hér að undanfömu að kynna sér
háttu manna og helzt sauðíjár-
rækt, kom til bæjarins í vikunni
fyrir helgina; hafði hann unnið
við fiskiveiðar hjá Gísla Jónssyni
við Siglunes og lætur af hið
bezta. Vigfús hugsar til heim-
ferðar þegar færi gefst.
Séra Guttormur Guttormsson
hefir sagt upp söfnuðum smum
í Þingvallanýlendum og hefir
tekið köllun til Minnesota. Hann
flytur þangað í sumar.
Bjarni Björnsson, skopleikari,
kom til bæjarins nýlega eftir
nokkurra mánaða dvöl í Chicago.
Bjarni er annálaður heima á ætt-
jörðu vorri fyrir þá einkennilega
miklu hæfileika sem hann hefir
til þess að leika skop og herma
eftir.
Séra Hjörtur J. Leo þjónar
söfnuðum í Gimli héraði fram að
kirkjuþingi, fyrst um sinn. Séra
Carl J. Olson flytur bráðlega
vestur til Saskatchewan.
fslenzkur maður óskar eftir
vinnu hjá bóndæsem hefir kúabú
þar sem hann hefir góðan viður-
gjörning og þjónustu, og getur
fengið nóga mjólk og áfir að
drekka.
Upplýsingar á skrifstofu Vor-
aldar.
EINI
íslenzki gamanvísnasöngvarinn
AUSTANHAFS
Nýlega er látinn í Wynyard,
Bjarni Bergmann, sonur þeirra
hjóna Sigfúsar Bergmanns bæj-
arstjóra og konu hans. Bjarni
sál. hafði legið alliengi veikur og
er þetta nýtt sár þeim foreldrum
ofan á mörg eldri; þau hafa áður
mist mörg börn. Bjami var
velgefinn piltur og siðprúður
eins og hann átti kyn til. Hann
var jarðaður í vikunni sem leið.
Flutti séra Haraldur Sigmar
ræðu á ensku, en séra Jakob
Kristinsson á íslenzku.
íslenzki barnaskólinn byrjar
aftur í þessari viku—á laugar-
daginn, kl. 2 Minnið börnin á að
koma.
G. J. Jónasson frá Lundar var
í bænum um helgina.
Sér Runólfur Marteinsson flyt-
ur fyrirlestur í Fyrstu lútersku
kirkjunni á fimtudaginn. Efnið
er “íslenzk æska”; er aðgangur
ókeypis en samskot tekin; ó-
þarft ætti að vera að minna fólk
á að sækja þennan fyrirlestur.
Efnið er slíkt að það ætti að laða
þangað alla sanna íslendinga og
maðurinn sem fyrirlesturinn
flytur er svo vinsæll og svo þekt-
ur að umhyggju sinni fyrir “ís-
lenzkri æsku” að öllum ætti að
vera Ijúft að hlusta á hann.
Verkamannafélhgið heldur
fund á föstudaginn í “Labor
Temple” á James stræti. Verk-
veitendur eru að halda fund um
þetta leyti og ætti ekki að þurfa
að hvetja verkamenn til þess að
sækja þennan sinn eiginn fund,
því aðeins geta þeir vænst nokk-
urra nmbóta á kjörum sínum að
þeir taki saman hö.ndum og van-
ræki hvorki fundarsókn né aðra
þáttöku í málefnum sínum.
Josef Normann frá FoamLake
kom til bæjarins fyrir helgina og
fór heimleiðis aftur á mánudag-
inn.
Oskar Olson frá Churchbridge
og kona hans voru á ferð í bæn-
um í vikunni sem leið.
Thomas Ryan og George Mc-
Kay fóru nýlega til Toronto Mon-
treal og New York og annara
staða þar eystra.
Hans Sveinsson fóstursonur
séra Friðriks Friðrikssonar og
Guðrún Davíðsson voru gefin
saman í hjónaband á laugardag-
inn.
Bjarni skopleikari Björnsson,
sem auglýsir skemtun á fimtu-
daginn hefir aldrei skemt í
Reykjavík án þess að þar væri
troðfult hús.
Hann er annálaður fyrir það
hversu vel hann leiki og hermi
eftir, og býðst fólki alveg ný
skemtun hér vestra, þar sem
hann kemur fram. Beztu með-
mli með honum eru þau að
skemtanir hans hafa verið eftir
því betur sóttar sem hann hefir
haldið þær oftar.
Th. Sigfússon frá Wynyard er
staddur hér í bænum.
Jónas Hall frá Gardar kom
fyrir helgina vestan frá Alberta;
hafði dvalið í vikutíma hjá fjalla-
skáldinu og fleiri vinum.
Ásbjörn Pálsson lyfjasali frá
Arborg kom vestan frá Wynyard
á mánudaginn.
Hver sem vita kynni um ein-
hvern — mann eða konu — sem
bráðlega færi til San Fransisco,
gjöri svo vel að láta ritstjóra
Voraldar vita.
Sveinn Björnsson, kaupmaður
frá Gimli er staddur hér í bæn-
um. Hann kom til þess að vera
á Voraldarfundi og skólaráðs-
fundi.
Margt verður að bíða næsta
blaðs, þar á meðal minningarorð
eftir Mrs. Davíð Jónasson.
Stórhuga.
Maður sem er aðeins 20 ára
að aldri og William Spivak heitir
hefir verið kærður fyrir f jársvik.
Hann hefir um síðastliðin tvö ár
verzlað með nautgripi og hafði
áunni sér svo mikið traust að
enginn hikaði við að skoða ávís-
anir hans góðar og gildar þótt
þær væru $10,000—$12,000.
Þessi piltur byrjaði félaus
fyrir tveimur árum, en hefir í
nokkra síðastliðna mánuði verzl-
að fyrir $100,000.
Nú er hann kærður um það að
hafa falsað ávísanir og haft svik
í frammi; hafði hann verið of
stórhuga til þess að binda við-
skifti sín innan þeirra takmarka
sem honum voru viðráðanleg.
Lögregluþjónn
myrtur.
Einn hinna bezt þektu lögreg-
luþjóna í Winnipeg, Bernhard
W. Snowden að nafni var myrt-
ur aðfaranótt laugardagsins í
búð á aðalstrætinu. Fanst hann
á laugardagsmorguninn örendur
í búðinni með skot í gegn um
hjartað og auk þess var höfuð-
kúpan brotin. Ekki er enn
orðið uppvíst um það hver morð-
inginn hafi verið.
3elen3har bcekur
LjóðaoókH. Hafsteins, ó.b. $3.00
b. $4.00
“Ú't um vötn og velli” Kristinn
Stefánsson, b. $1.75.
“Drottningin í Algeirsborg” Sig-
fús Blöndahl, b. $1.80; o.b.
$1.40
“Tvær {.: mlar sögur” Jón
1 rausti, ó.b. $1 20
“Ströndin” saga, Gunnar Gunn-
iV'-.-on, D. $2.15
‘ Vargur í Vjeum” Gunnar Gur:n
arsson, b. $1.80
“Sálin vaknar” saga, Einar H.
Kvaran, b. $1.50
“Líf og dauði” eftir Einar H.
Kvaran ó.b. 75c.
“Morðið” saga, Conan Doyle 35c
“Dularfulla eyjan” saga, Jules
Verne, 30c.
“Austur i blámóðu fjalla” ferða-
saga, Aðalst. Kristjánsson,
$1.75
“Um berklaveiki” eftir Sig.
Magnússon, lækni, 40c.
“Ritsafn Lögréttu” fyrsta hefti
40c.
Mynd af “örafa jökli” eftir Ásg.
Jónsson, málara, 75c.
Þessar bækur fást nú í bóka-
verzlun Hjálmars Gíslasonar, 506
Newton Ave. Skrifið eða símið
St. John 724. Einnig fást þar
blöðin “Oðinn” og “Lögrétta”
kemur fram
I FYRSTA SKIFTI
VESTANHAFS
Fimtudagskvöldið, 11. þ.m., kl. 8.30 í Goodtemplarahúsinu.
Aðgöngumiðar seldir hjá O. S. Thorgeirssyni og H. S.
Bardal og við innganginn.
EIMSKIPAFELAGS HLUTABREFIN
Undirskrifaður dvelur hér í bænum eitthvað fram yfir 20.
apríl og kaupir hlutabréf í Eimskipafélagi íslands, eins
og að undanförnu.
Stefán Stefánsson
656 Toronto Street, Winnipeg
Phone Sh. 2151 Heimili S. 2765
AUTO SUPPLY & ELECTRIC
CO., Ltd.
Starting & Lighting Batteries
Charged, Stored and Repaired
Speedometers of all makes
Tested and Repaired.
Tire Vuncalizing.
W. N. MacNeil, Ráðsmaður
469 Portage Ave., Winnipeg
J. J SWANSON & CO. .
Verzla með fasteignir. Sjá
um leigu á húsum. Annast
lán og eldsábyrgðir o. fl.
504 The Kensington, Cor.
Portage & Smith
Phone Main 2507.
ELGIN MOTOR SALES CO.,
Ltd.
Elgin and Brisco Cars
Komið og talið við oss eða
skrifið oss og biðjið um verð-
skrár með myndum.
Talsimi Main 1520
417 Portage Ave., Winnipeg.
“Voröld” og “Sólöld” koma
út á hverjum þriðjudegi, og
kosta $2.00 um árið í Canada,
Bandaríkjunum og á fslandi.
Allar borganir og auglýsing-
ar sendist ráðsmanni blaðsins.
Skrifstofa:
Rialto Blk., 482 /i Main Street
Winnipeg.
NEVV VAMPING CARD
Vi/ír \"7 NO TEACHfR NEEDED — SUR-
prisingly simple system
Persons havlng neglected their Mupicnl Edncation need not de-
kuair, forwltb the atd of our newVAMPING CAKD, yóu canat once
Vmmp tway U> thouAinda oí Sonpa. Ballads. Waltsca. Rajt Time, et«., ete., equal
a Professlonal Wualrian. No knowledpe of muaie Js requlred. Agerusfn^lta
1 knowledae of mi
om wui De aoie to oispenae wTth the a
r 15 cla. poatpuld.
ROPE SPLICING ESÍS,-
A most practica I handbook givine complete and simple
♦lirerlions íor making all Ihe m *t us. lul knot*. hltches.
splices rieelnes. etc O^ei JOö lllnstrstions. All about
wire rope nttachments. lashine. blocks, tackles. etc. 37
Heraldic Knots jllustratrd Worth many times its cost to
mechnmcs. riirirers. cnnipers. boatmen. farmers.—anyone
U*inir rope Prlce 2Sc postpaid
Bók meö myndum af ýmsum smá
skrautmunum og blómafræi fæst
ókeypis ef um er beðið.
ALVIN SALES COMPANY
Dept. 24, P.O. Box 56
Winnipeg, Man.
Iðjuleysingja lög.i
Sambandsstjórnin í Ottawa
hefir gefið út þá yfirlýsingu að
allir—bæði menn og konur—sem
heima eiga í Canada, skuli stunda
einhverja nauðsynlega atvinnu.
Gildir þetta ákvæði um þá sem
eru eldri en 16 ára og yngri en
60.
Finnist einhver iðjulaus sem
er heill heilsu, skal hann sæta
$100 sekt eða sex mánaða ein-
föld fangelsi, eða hann skal tek-
inn og látinn vinna fyrir fylkið,
ríkið eða sveitahérað það sem
hann heyrir ti'..
Er j etta sv .pað letigaröslög-
unuin i Kaupmannahöfn. Þessi
ákvæði eru ágæt og stjórnin á
þakkir skyldar f /rir þau, ef Km
lætur framfylgja þeim hlutdræg-
nislaust.
Talsími Main 3775
Dag og nótt og sunnudaga.
THE “KING” FLORIST
Gullfiskar, Fuglar
Notið hraðskeyta samband við
oss; blóm send hvert sem er.
Vandaðasta blómgerð er
sérfræði vor.
270 Hargrave St., Winnipeg.
A. S. BARDAL
843 Sherbrooke Street
Selur líkkistur og annast um
útfarir. Allur útbunaður hinn
bezti. Ennfremur selur hann
allskonar minnisvarða og leg-
steina.
Heimilis Tals - Garry 2151
Skrifstofu Tals. G. 300, 375
New Tires and Tubes
CENTRAL VULCANIZING
H. A. Fraser, Prop.
Expert Tire Repairing
Fljót afgreiðsla óbyrgst.
543 Portage Avenue Winnipeg
Phone M. 3013
ALFRED U. LEBEL
Lögfræðingur
10 Banque d’Hochelaga
431 Main Street, - Winnipeg
Lloyd’s Auto Express
(áður Central Auto Express)
Fluttir böglar og flutningur.
Srstakt verð fyrir heildsölu
flutning.
Talsimi Garry 3676
H. Lloyd, eigandi
Skrifstofa: 44 Adelaide, Str.
Winnipeg
Tilkynning um tannlækningar.
DR. W. H. BARBER
leyfir sér að tilkynna að hann hefir tekið undir
sína umsjón algjörlega lækningastofu Dr. Marian
F. Smith’s sáluga, á horninu á
MAIN STREET OG SELKIRK AVENUE
Winnipeg.
Lækningum sint að kveldinu.
Miðvikudag og fimtudag—THE TRADE—Mariam Cooper.
VENGEANCE AND THE WOMAN, No. 1—Carol Holloæey
and William Duncan—MUTT AND JEFF COMEDY.
Föstudag og laugardag—MASTER OF HIS HOME—William
Desmond—ASH CAN ALLEY—L Ko Comedy—
WEEKLY GAZETTE
Mánudag og þriðjudag—TIDES OF FATE—Alexander Carlisle
VENGEANCE AND THE WOMAN No. 2—MUTT AND
JEFF COMEDY