Voröld


Voröld - 16.04.1918, Blaðsíða 2

Voröld - 16.04.1918, Blaðsíða 2
Bls. 2 VORÖLD Winnipeg, 16. apríl, 1918. □ □ Ritstjóri: Sig. Júl. Jóhannesson Ráðsmaður: Jón G. Hjaltalín Skrifstofa: 4821/2 Main St., Rialto Block, Winnipeg Blátt áfram. Til eru þau málefni sem ekki þykir s;ema aö ræða blátt á- fram: málefni sem ekki er talið vogandi að snerta meö penna né tungu nema laust og hikandi. Eitt slíkra málefna er sambúð manns og konu að því er afkvæmi þeirra snertir. Nú er það vitanlegt að ekkert málefni er til sem dýpra snertir við rótum mannfélagsins en einmitt þetta; ekkert sem meiri þátt á í örlögum komandi kynslóðar en það hvernig nú- lifandi kynslóð hegði sér í þessu efni. Stjórnir landa, bæja og sveitahéraða verja ógrynni fjár til þess að bæta kyn allra skepna og alls jarðargróða. Off jár er t.d. varið hér í landi til að bæta kyn svína og full- komna þau. Kynbætur hesta, nauta og sauðfjár eru fyrir löngu við- urkendar sem ein aðalstoð máttar og tryggingar góðs land- búnaðar. Kartöflur, kál, epli, hveiti; yfir höfuð allur jarðargróði er kynbættur og fullkomnaður. En un mannkynið sjálft, sem er áendanlega æðra og mikils- verðara en alt þetta er lítið hugsað. Það er talið stórvægilegt atriði að undirbúa svo foreldri svínshvolpanna, kálfanna—jafnvel hvolpanna og ketlinganna að heilsa þeirra og þroski geti náð sem mestri fullkomnun. En það er svo að segja látið slampast og reka á reiðanum hvernig búið sé í hag fyrir börnin að þessu leyti. Læknir var einu sinni hér í Winnipeg sem Ferguson hét— frægur skurðlæknir, síðar í Chicago. Hann kom einhverju sinni fram á Jæknaþingi með fyrirlestur um kynbætur á fólki og talaði þar blátt áfram. En einmitt sökum þess að hann talaði blátt áfram var komið í veg fyrir það að ræða hans birtist almenningi. f sumum TÍlrinTYl T-»Q'nrlQ YÍ O-nno VíQ-f O 1'nl/nai* lxoxiaxíí fx-o,x ix sem fyrir kynbótum fólks hafa barist, og svo óvinsælt sem það starf hefir verið hefir þeim þó orðið allmikið ágengt. Aðalatriðið í þessu tilliti er það að ríkið banni hjónaband nema eftir læknisskoðun beggja brúðhjónaefnanna. Það hefir þráfaldlega komið í Ijós hér í álfu að börn hafa fæðst af sjúkum foreldrum og veikin verið þess eðlis að heilsu barnsins var óhjákvæmilega stofnað í voða. Stundum er þessari veiki þannig háttað að hvorugt foreldr- anna veit af henni en oftast er það þó svo að hún er öðru þeirra kunn en hulin hinu. Kynferðis sjúkdómar sem aðallega eru tvennskonar eru afar algengir hér í landi. Eðli þeirra sjúkdóma er slíkt að lífi og heilsu afkvæmis hinna veiku er stórkostleg hætta búin. Veikin er aðallega tvennskonar; orsakast hvortveggja af sótt- kveikjum og er afar næm og hættuleg. Nú á þessum tímum er þúsund sinnum meiri þörf á að tala blátt áfram um svona mál en nokkru sinni fyr. Það er algengt hér í landi að siðferðishrein og saklaus stúlka giftist manni, sem hefir kynferðissjúkdóm, og veit ekkert um það fyr en það er orðið of seint. Hún grunaði ekki elskhuga sinn um neitt é>hreint og síst af öllu þetta. Eftir nokkurn tíma verður hún veik sjálf, og læirri veiki er margt samfara. Líkamlegar þjáningar, sálar angist og sorg. Þessari sýktu saklausu konu fæðist barn og veikin hefir innsiglað það með dauðamerki sínu. Það er satt að konur geta einnig átt og eiga oft sams- konar ásökun skylda og menn í þessum efnum, en þó sýna það dæmi og órækar skýrslur að hitt er oftar. Þessi orð eru blátt áfram stíluð til íslenzkra manna og kvenna. Það er heilög skylda blaðanna að vera á verði og gæta heillar þjóðarinnar, og þessi hætta sem hér er gerð að umtalsefni liggur eins á vegum vor íslendinga—manna og kvenna—eins og annara þjóðbrota. Til þess eru íslenzk blöð gefin út hér í landi að þau mættu í sem flestu benda þjóðbroti voru á réttar brautir og hreinar, og vara það við öllu því er saurgað gæti og seinkað fullkomnun. Og hvernig stendur á því að meiri þörf er nú en ella á að- vörum í þessa átt? Þegar aðrar eins byltingar eiga sér stað og nú gerast; þegar öll þjóðfélagsskipun virðist vera gengin úr öllum liðum; þegar djúp og óvenjuleg trylling gagntekur þjóðina; þegar hún verður drukkin af einhverju æsandi, þá er hættan mest í þessu efni. Nú sem stendur og framvegis um alllangan tíma verður plága kynferðis sjúkdómanna eins og svört hönd við hverjar dyr—leynileg en ægileg og eyðileggjandi. Á því er þörf að blátt áfram sé talað, og fólk varað við áhrifum þessarar kolsvörtu handar. Og það ekki einu sinni, heldur oft—hvað eftir annað. Undirstöður. Hvers vegna skammar “Voröld” ekki stjórnina? Hvers vegan flettir “Voröld” ekki ofan af svívirðingunum ? Hvers vegna stíngur “Voröld” ekki á kaununum? Þannig lagaðar spurningar höfum vér fengið frá fáeinum mönnum—já, örfáum. Svo að segja allir skilja kringumstæð- urnar betur en svo að þeim komi til hugar að spyrja á þessa leið. Flestir vita að vér lifum á tímum hervalds, þegar ekki er hverjum leyfilegt að segja hvað sem honum kann að detta í hug, jafnvel þótt honum finnist hann hafa á réttu að standa, og að hann gæti gefið ráð til þjóðþrifa. Ritstjóri “Voraldar” lýsir því yfir óhikað og í einlægni að hann þorir ekki nú sem stendur að segja ýmislegt er hann á- lítur nauðsynlegt, og mundi segja á öðrum tímum. “Voröld” er aöallega til þess stofnuð að vera reiðubúin til öruggrar baráttu þegar ritfrelsi kemst aftur á hér í landi og stríðið er um garð gengið. Vér vitum að hvorugt hinna blaðanna er líklegt til þess að tala þá máli fólksins, heldur auðfélaganna og hinna háu, vold- ugu og fáu. Nú sem stendur er það stefna “Voraldar” að festa rætur í þjóðlífi íslendinga; komast inn á sem flest heimili; ná þar hylli og verða við þeirri félagsmála baráttu og þeim pólitísku orustum búin sem þá hljóta að verða uppi. Frjálslyndi flokkurinn hefir fagra stefnuskrá, þótt inn í hann hafi komist menn með miklum völdum sem ekki reyndust trúir köllun sinni heldur sviku fólkið í trygðum. Málefni verkamanna og bænda fer svo að segja nákvæm- lega saman við stefnu frjálslynda flokksins, og það verður hlut- verk “Voraldar” að vinna á móti öllu afturhaldi og fletta gær- unni af öllum úlfum sem svikist hafa inn í hjörð hinna frjáls- lyndu manna. Stefnuskrá—hvctsu góö og fögur sem hún er—veröur að litlum noturn ef hun > r sl.ekt og snúin. fyrirlitin og fótuni lro‘.- in af þeim sjálfum er hana smíðuðu þegar hagur fólksins þykir koma í bága við þeirra eiginn hag. “Voröld” mun þvi—þegar hún þorir að tala—verða frjáls- Iynt blað, ekki einungis í orði, heldur einnig á borði; ekki ein- ungis þegar það er hagkvæmt eða ábatasamt, heldur einnig þá þegar til þess kemur að leggja eitthvað i sölurnar. Lesendur “Voraldar” eru því vinsamlega beðnir að hafa það i huga að nú sem stendur leyfist ekki að segja ýmislegt það sem þörf verður að ræða síðar. Enn, á það eru menn einnig mintir, að þessi tími er til þess hentugur að búast svo um að hægt verði síðar með góðum árangri og krafti að taka þátt í hinum sönnu velferðar málum þjóðarinnar. Þess vegna er almennur stuðningur nauðsyn- legur á meðan blaðið er að ná sér tryggri fótfestu. yi i|i yi Andróður. “Voröld” hefir átt meiri vinsældum að fagna en við var búist í upphafi. Þó hefir ýmislegt verið gert til þess að setja fyrir hana fótinn, af einstöku manni; helzt á bak við tjöldin. Þannig var reynt að koma ritstjóranum i fangelsi með því að smíða þá sögu að hann hefði fengið peninga frá Þýzka- landi til þess að gefa út blaðið. Sú saga er með alvarlegustu skálkapörum sem unnin hafa verið vor á meðal, en þó svo hlægileg á aðra röndina að fátt jafnast við. , Sumstaðar hefir verið unnið á móti því að blaðið fengi aug- lýsingar og reynt að telja auglýsendum trú um að ,‘Voröld” væri landráðablað. Aðal erfiðleikinn eða það eina sem nokkuð hefir hamlað blaðinu er þó það að póstréttindi hafa ekki fengist fyllilega. Eru ýmsar reglur sem fylgja verður til þess að fá þau rétt- indi og útheimta þær langan tíma. J. A. Adamsson, lögmaður, hefir tekið að sér málefni blaðsins að því er lögfræðis hjálp snertir, og sér hann því um póstréttindin eða útvegun þeirra og hefir hann fulla vissu fyrir að þau fáist óskert um mánaðarmótin. Á meðan póstréttindi fást ekki, verður að senda blaðið í slumpum til einstrakra manna og biðja þá að útbýta því meðal kaupenda. Væri blaðið sent póstréttindalaust til hvers og eins mundi aukakostnaður við það nema um $100 á mánuðí, en slíkt væri að fleygja út fé fyrir alls ekki neitt.. Aðal óþægindin eru þó í því fólgin að ekki má skrifa nöfn kaupenda á blöðin sjálf innan i pökkunum; póstlögin banna það fyr en póstleyfi er fengið. Af þessu hefir allvíði leitt það að vanskil hafa orðið á blaðinu. Sumir póstmeistararnir—þótt fáir séu—hafa notað sér þetta og hindrað útbýting blaðsins, eða að minsta kosti gætt þess vandlega að greiða ekki götu þess. Einn þeirra fór svo langt að hann bannaði útsölumannin- um að standa í pósthúsinu á meðan hann útbýtti “Voröld”. Færði hánn sig þá út á stéttina, en póstmeistari fyrirbauð honum einnig að standa þar; varð hann þá að fara út á götu meðan hann útbýtti blaðinu. Þetta ofstæki póstmeistarans ávann “Voröld” þrjá nýja kaupendur; erum vér honum því þakklátir fyrir, þótt ekki væri tilgangur hans sá að auka vinsældir blaðs vors. Af þessu og ýmsu öðru geta menn séð hvílíkum brögðum hefir verið beitt og hversu erfitt Voraldarmönnum hefir verið gert með átsendinguna. Þessir erfiöleika tímar eru þó svo að segja liðnir og mun auðveldara hér eftir að yfirstíga hvern þann stein er í götu blaðsins verður lagður. yi yt yi Enginn Meðalvegur. Oft hefir verið deilt um það meðal vor fslendinga hvort vér ættum að halda við þjóðerni voru og tungu eða hvort vér ættum að hverfa eins og dropi í sjóinn. í þessu efni sem öðru einkennir það stefnu margra að þeir fara út í öfgar og lenda í ógöngum. Hvort sem menn fylgja gjöreyðingar stefnunni eða viðhalds- stefnunni—hvort sem menn vildu að vér hirfum sem fyrst eða lifðum sem lengst, þá ættu þeir í einu tilliti að geta mæzt á einum sameiginlegum grundvelli og hann er sá að ræða í ró og stillingu möguleika þess að haldast við og erfjðleikana sem því fylgja, og jafnframt ómöguleika þess að hverfa tafarlaust og þær afleiðingar sem það hlyti að hafa í för með sér að flýta því of mikið. Vér trúum á framtíð íslands og Islendinga heima á ætt- jörðu vorri; vér trúum því að íslendingar séu einhver merki- legasta og lífseigasta þjóðin sem konungur lífsins hafi gefið fjör og tilveru. Vér trúum því að jafnvel engin önnur þjóð hefði lifað af allar þær hörmungar sem þjóð vor hefir brotist í gegn um og vér trúum því að erfiðleikarnir hafi styrkt hana og stælt svo að hún sé nú orðin með öllu ódrepandi. Og vér trúum því að hún hafi'flutt með sér hingaö vestur stóran skerf af þessari meðfæddu og áunnu lífseigju og þess vegna sé það meira en meðal mannsverk að ganga henni á milli bols og höfuðs jafnvel hér. En vér getum ekki lokað augum vorum fyrir því hinsvegar aðenginn má við margnum og að hið stærra gleipir venjulega hið minna þegar tímar líða fram ef það blandast saman. Vér getum ekki lokað augum vorum fyrir því að íslend- ingar hljóti að hverfa hér í landi í framtíðinni sem sérstök þjóð. Vér höfum þá skoðun að hér sé að myndast og her hljóti að myndast ein allsherjar þjóð — canadisk þjóð — þar sem enginn sé talinn útlendingur og enginn hafi hærri rétt sökum þess að hann sé borinn og barnfæddur í einu landi fremur en öðru. Svo faramarlega sem ekki verður þröngvað svo kosti hinna svokölluðu útlendinga í þessu landi að þeir verði neyddir til varnarsambands gegn hinum sem hér búa, þá er það rétt og heillavænlegt að hér renni allir saman í eina heild. En vér teljum það ekki æskilegt að þessu sé flýtt meira en góðu hófi gegni. Þetta verk; þessi þjóöbrotasamsuða hlýtur að fara fram og á móti því verður ekki unnið, og starf í gagnstæða átt væri óholt hinu Canadiska þjóðlífi. En sá sem vill afklæðast öllum íslenzkum flíkum í einni svipan fer jafn villur vegar og hinn sem alls ekki vill semja sig að siðum þessa lands. Einangrunarstefnan hefir verið ríkjandi vor á meðal; nú eru að rísa upp menn sem fylgja gjöreyðingarstefnunni að því er þjóð vora snertir. Hvemig stendur á einangrunarstefnunni ? Hvers vegna fylgja menn henni? Hvað hefir hún ilt í för með sér? f hverju er hún fólgin? Til hvers leiðir hún? Hvernig stendur hins vegar á gjöreýðingarstefnunni ? Hvaða afleiðingar hlyti hún að hafa ? Hvers vegna hafa menn risið upp er henni fylgja? f þriðja lagi mætti spyrja: Er ekki hugsanleg þriðja stefnan ? Er ekki meðalhóf til í þessu efni ? Förum vér ekki of langt í báðar áttirnar? Hafa ekki báðir flokkar mikið til síns máls ? Geta þeir ekki mæst á miöri leið ? Eru ekki ein- mitt nú tímamót hentug til þess að ræða þetta mál—þjóðernis- málið— og taka í því ákveðna stefnu ? 4|i m m BITAR Gróa á Leiti: “Osköp er hún Sigríður nágrannakona mín vit- laus í fjármálum; svei mér ef hún eyddi ekki tíu dölum til læknisins bara til þess að láta hann ná einu centi sem krakkinn hennar gleypti.” Ritstjóri Lögbergs segir að heill skóli í sambandi við kirkju- félagið hafi orðið að hætta vegna þess að hann varð að taka við ritstjórn blaðsins—og samt var það tilvinnandi að reka ritstjór- ann sem áður var. “Laurier er óeigingjarnasti stjórnmálamaðurinn sem Canada hefir átt og fer eftir samvizku sinni og sannfæringu hvað sem á móti blæs”—Free Press 1911. “Laurier hefir ávalt verið maður sem hagaði seglum eftir vindi i eigin hagsmuna skyni”— Free Press 1918. Eftir því sem eitthvert mál- efni er meira virði, eftir því er sjálfsagðara að fólkið skeri úr því með atkvæðum sínum”—Tri- bune, 1914. “Þetta mál er svo mikilsvert að það væri heimska að láta fólk- ið greiða atkvæði um það.—Tri- bune 1917. Ekki vantar samkvæmina hjá þeim blessuðum. í öllum stríðslöndunum nema Canada hafa járnbrautarflögin afhent brautir sínar þjóðunum til að nota meðan stríðið stendur yfir. En hér hefur þjóðin verið afhent járnbrautarfélögunum. Hvenær verður henni skilað aftur?

x

Voröld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Voröld
https://timarit.is/publication/221

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.