Voröld - 19.11.1918, Qupperneq 2
Wjl 2
VORÖLD
Winnipeg, 19. nóvember, 1918
í----------------------------
SUBBER STAMPS, STENO-
ILS, SEALS, OATTLE
EAR BXJTTONS, Etc.
pegar þíð þurfið stimpla insigli,
elgnet o.s.frv. skrifið til hins undir-
ritaða.
Sendið eftir ókeypis sýnishomi
af Gripa Eyma Hnöppum.
Canadian Stamp Co.
S. O. BJERRINO
Sími, Garry 2176.
S30 Donald St. Winnipeg
BÚJÖRD TIL SÖLU
Einn landsfjórðungur til sölu
nálœgt Lundar í Manitoba. Land-
ið er inngirt. Uppsprettulind ná-
lægt einu liominu. Verð $2,400.
Landið er S. W. qr. 10, 20, 4 W.
principal meridian.
Héraðið umhverfis Lundar er
ágætt gripaland, og einnig til yrk-
ingar. Gott vatn. Landið yfir
höfuð slétt með miklu af góðum
sldiviðarskógi (poplar).
Skilmálar: $500 út í hönd.
Sanngjam tími á það sem eftir
stendur.
Snúið yður til auglýsendans að
902 Confederation Life Building,
Winnipeg.
f >
Stofnað 18663. Talsíml G. 1671
pegar þér œtllð að kaupa árelð-
anlegt úr þá komlð og flnnið oss.
Vér gefum skrifaða ábyrgð með
Bllu sem keypt er af oss.
Mitcheli & Co., Ltd.
Glmstelnakaupmenn f Stórum eg
Smáum Stíl.
486 Main Str. Wlnnlpeg.
V_______________________________J
HEYRID GÖDU FR6TTIRNAR.
Enginn heymarlaus
þarf að örvænta hver-
su margt sem þú hefir
reynt og hversu marg-
ra sem þú hefir leitað
árangurslaust, þá er
snginn ástæða fyrir
þig tll Irvæntingar.
The Megga-Ear-Phons
hefir oft gert krafta*
verk þegar þeir hafa
&tt I hlut sem heyrn-
arlansir voru og allir k-IEGA-E/MÍ-
töldu ólseknandi. PHOHB
Hveraig sem heymarleysl þitt er;
á hvaða alöri sem þú ert og hversu
oft sem lsekning hefir misteklst á þér,
H verður hann þér að liði. Semdu taf-
arlaust eftlr bekllngi með myndum.
Umboðssalar f Canada:
ALVIN SALES CO., DEPT. 24
P. O. Box 66, VVinnipeg, Man.
Verð f Canada $12.50; póstgjald borg-
að af oss.
f.---------------------------N
WheatCityTanneryLtd
BRANDON, MAN.
ELTISKINNS IÐNAOUR.
Láttu elta nauta og hrossahúð-
imar yðar fyrir Feldi “Rawhide”
eða "Lace Leather” hjá “WHEAT
CITY TANNERY” félaginu.
Elsta og stærsta eltiskinns iðnað-
ar framleiðslu félag í Vestur-
Canada. Kaupa húðir og loðskinn
með hæðsta verðo. Góð skil.
Spyrjið eftir verðlista Utaná-
skrift vor er Brandon, Man.
k____________________________/
BIGN MED MATJURTA-"
GÖRDUM TIL SÖLU
Vlð Por+age Avenue, nálægt
Murray skemtigarðinum. Jarð-
vegurinn er annélaður í hin-
am fræga Rauðárdal. Hátt
land og þurt. Lækur rennur í
gegn um cignina. Gömul kona
& þessa eign og getur hún ekki
stundað hana eins og vera ber.
Skrifið oss eða talsímið.
Áritan vor er:
902 Confederaticn Building
; Sími Main 2391. Winnipeg
k______________________________j
Business Course
■«r heróp nútímans—Aliir keppast vlð
að hafa melri eða minnl þekklngu á
verzlunarmálum.
TÆKIFÆRIN VIDA
Alstaðar skortir menn og stúlkur með
reynslu og þekkingu, þó hvergi elns
og f verzlunarhúsum og á skrlfstofum
GÖDAR STÖDUR BIDA
þess sem aðeins undirbýr slg.
Marga langar til að fara á verzlunar
skóla, sem eiga við erfiðlelka að
stríða. peim býður “Voröld”
FYRST—10 prósent afslátt af sex
mánaða námsgjaldl á einhverjum
af þremur beztu verzlunarskólunum
hér f Winnipeg.
ANNAD—paegilega borgunar skll-
mála.
pRIDJA—Tækifæri til að vinna af
sér námsgjaldið.
SXRÍFID TIL V0RALDAR
petta er aðeins fyrir áskrifendur.
FRIDUR
pær fréttir sem nú berast daglega
frá orustuvöllunum gefa manni vonir
um að stríðinu muni nú bráðum lokið.
pessi dýrðlega friðarvon skín nú í gegn
um dagblöðin sem svo margar sorgar
fregnir hafa flutt okkur á þessum
hörmunga árum. Blöðin sem við höf-
um svo oft tekið upp með kvíða og lagt
frá okkur með viðbjóði, eftir að hafa
lesið um hryðju verkin og hörmung-
arnar.
pessi síðast liðnu ár munu vera ein-
hver skugglegustu árin í sögu mann-
kynsins. pessi hildarleikur stórbrotn-
ari og víðtækari en nokkur annar.
pó ekki hafi verið barist hér í landi
hefir hingað borist bergmál skelfing-
anna.
pað hefir þrengt sér inn í sálirn'ar
og skyggt á fegurð fífsins.
pegar maður hefir vaknað við sól-
skin og yl að morni hefir gleðin verið
skammvinn; sorti og blóðlitur hefir
gægst upp úr djúpi meðvitundarinnar.
pegar maður hefir litið daggvota
blómknappa hafa þeir mint á tárvot
syrgjandi augu og blæðandi hjörtu.
Sumarblærinn hefir borið að eyi'um
manns fjarlspg andvörp, stunur og
dauða vein.
Prumu brakið og stormgnýrinn hefir
bergmálað illverk og heiftaræði afvega
leiddrar menningar.
Helst hefir það verið kveldkyrðin,
sem fært hefir sálunni frið.
Nóttin þögul og alvörugefin hefir
leitt fram úr djúpi sínu blikandi stjörn-
ur; þessir sklnandi ijósheimar í fjar-
lægðinni sem skærast blika þegar
dimmast er í kring, hafa þá haldið
vörð um framtíðar vonirnar og bægt á
burt illum draumum.
En þó friðar vonin færi sálunni gleði
og sælu þá eru þó stríðsúrslitin mörg-
um áhyggjuefni. Margur liggur nú yk
spurning fyrir sjálfan sig: Verður
þe3si friður varanlegur? Eða verður
þetta aðeins vopnahlé um nokkurra
ára skeið, meðan þjóðirnar safna kröft
um fyrir aðra rtlögu, sem verður að
því skapi hryllilegri sem hyggjuvit
mannanna verður þroskaðra? Verða
friðarskilmálar nú byggðir á hinum
sanna friðar grundvelli: frelsi, rétt-
læti og kærleika?
Menn tala nú um ýmsar leiðir til að
afstýra stríði í framtíðinni. Svo sem
takmörkun herútbúnaðar, stofnun al-
þjóða gerðardóms, eða réttara sagt
nokkurskonar alþjóða samhandsstjórn
sem varveiti réttindi þjóðanna á líkan
hátt og hvert þjóðfélag nú gætir rétt-
inda sinna borgara. Aðrir tala um af-
nám allr'a tollgarða og hindrana, sem
nú eru á viðskifta lífinu.
En framtíðin ein fær úr því skorið
hvað heppilegast reynist.
Eitt er þó víst. pessi friður sem nú er
í nánd, er orðin mannkyninu dýrkeypt-
ur. Og það verður einnig vandi að
varðveita hann.
Éf alþýða manna fellur í sama hugs-
unarleysis mókið aftur eins og hún var
í fyrir stríðið. Ef fjármálamenn og
stjórnfræðngar * verða látnip afskifta-
lausir meðan þeir leggja sína leyni-
þræði og byggja sínar svikamyllur, þá
verður þetta ekki síðasta sinni sem
þeir láta herlúðrana gjalla, með ein-
hvern hugstórann harðsljóra í broddi
fylkingar sem hyggst að leggja undir
sig heiminn. pá verður- þetta ekki
síðasta sinn, sem peðum, hi'ókum, ridd-
urum og hiskupum verður leikið fram
á borðið, til varnar sinum kóngum og
drottningum.
Framtíðar friðurinn stendur eða fell-
ur, eftir því hvernig sálarástand fólks-
ins verður, eftir því hve glöggan skiln-
ing menn öðlast á þeim grurydvallar at-
riðum, spm friðurinn hvílir á, frelsinu,
réttlætinu og kærleikanum.
Fáfræðin verður ætíð leiðitöm. peg-
ar taumarnir eru í höndum slúnginna
foringja má teyma hvert sem vill.
Hugsunarlausar sálir má leiða' á handi
æstra og öfugra tilfinninga út í hinar
ömurlegustu ógöngu^.
Menn hafa á umliðnum Öldum verið
látnir fremja hin viðbjóðslegustu ill-
virki til dýrðar guðum sínum, sem þó
hafa átt að vera algóðir.
Vonandi ber nú framtíðin friðsæla
og betri daga í skauti sínu.
pessi grein var skrifuð áður en
vopnahlé samningar voru samþyktir.
Átti að birtast í síðasta blaði.
Ágrip af stíðinu
28. júni 1914 voru hortoginn af Aust-
urríki Francis Joseph og kona hans
myrt í Saraje- e í Bosníu 23. |ú!i
sendi Austurríki skeyti til Serbíu og
setti henni níu kosti. Tók Serbía átfa
af þeim en neiíaði þeim níunda, er var
sá að Serbía seldi Austurriki í hendur
rannsókn á málinu.
Serbía kvaðst skyldi rannsaka málið
sjálf I viðurvist Austurrískra fulltrúa
eða skýrskota málinu til Hague. pessu
neitaði Austurríki 25. júlí og sagði
þeim stríð á hendur þann 28. júlí
1 friðarsamningi er gjörður var niilli
pjóðverja, Frakka, Breta, Austurrikis-
manna og Rússa var samþykt að hvert
þessara stórvelda verndaði Belgíu ef
strið yrði háð.
2. ágúst krafðist pý?ksland að fá að
fara gegnum Belgíu; bauðst til að
borga kostnað og bæta upp allan skaða
Belgía neitaði að leyfa þeim að fara
gegnum land sitt.
3. ágúst sögðu pjóðverjar Frökkum
stríð á hendur, kváðu þá hafa sent
loftbáta inn á pýzkaland.
4. ágúst, 1914, sendu pjóðverjar her
inn á Belgíu og tóku Liege.
4. ágúst, 1914, sögðu Bretar og pjóð-
verjar hvor öðrum stríð á hendur, og
Bretar og Austurríki sömuleiðis. ítalía
og Roumania fóru í lið með Banda-
mönnum, og Bulgaría og Tyrkir með
Miðveldunum.
Síðan stríðið byrjaði hafa í alt 25
þjóðir tekið þátt í því á hlið banda-
manna. Sjö þjóðir hafa verið hlutlaus-
ar.
Rússar og Rvimenar hafa gefist upp.
Cezcho-Slovaks hafa verið viðurkendir
sem sjálfstæð þjóð í liði Bandamanna
mót Austurríki og Ungverjalandi.
Bulgarar gáfust upp 30. sept. 1918,
skilmálalaust.
Tyrkir gáfust upp mánuði seinna, 31.
okt. Austurríki 4. nóv.
Yfirgefnir álgerlega af sambandl-
mönnum sínum urðu pjóðverja að
gefast upp 11. nóv.
Á aðra hlið voru pjóðverjar, Austur-
ríki, Bulgaria, og Tyrkir; á hina Belgía
Serbía, Frakkland, Bretland, ftálía,
Svartfellingar, Grykkland, Brazilíá
Japan, Kína, Cuba, Portugal, Síam,
Rúmenía, Rússland, Bandaríkin, Nicar-
agua, Uruguay, Guatamala, Costa Rica
Honduras og Haiti!
Belgía, Serbía, ’og Svartfjallaland
töpuðu nærri öllum sínum landeignum.
Peru, Ecuador, Bolivia og Argentina
slitu samband sitt við Miðveldin, en
tóku engan þátt í stríðinu.
Aðal óháðir þjóðir voru Noregur,
Svíþjóð, Spán og Mexico, og fáein smá
ríki í Asíu og Suður Ameríku.
pjóðverjar gefa nú upp Alsace-Lorr-
aine til Frakka. Tóku þeir það fra
Frökkiyn árið 1871. Pólland verður
sjálfstætt ríki. Austurríki gefur upp
Trcntino til ítalíu. Sczechs og Slovalt
og Slavar, er Austurríki'áður ríkti yfir
ráða framvegis sinu eigin stjórnar fyr-
irkomulagi.
Palestine, ‘ er tekið var frá Tyrkjuui
verður líklegast undir umráði Gyðinga.
Arabia, er fyrrum var, undir Tyrkjum,
verður sjálfstætt ríki. Rússar eru enn
ekki komnir undir fasta stjórn.
Belgíumenn héldu Pjóðverjum til
baka á vígvöllunum við Liege í næst-
uin tvær vikur. A meðan komst her
Breta til Belgíu þeim til hjálpar.
pjóðverjar höfðu þá eyðilagt Namur,
tekið Brusseis, Mons, Maubeuge, Ost-
end og Zeebrugge.
Pann 26. ágúst byrjaði undanha Id
Bandamanna, og endaði við Marne-
fljótið 6. sept. 1914.
• Frá ágúst 1914 til marz, 1915, tóku
Rússar mest alla Galicíu.
Japanir tóku Tsing-Tao í Kína, er
pjóðverjar höfðu tekið 1897.
Bretar tóku Egyptaland til umráða.
Tyrkir fóru í lið með Pjóðverjum í
feb. 1914. Höfðu þeir þá umráð yfir
Hellusundi. Paðan gátu þeir farið yfir
Miðjarðarhafið til Dauðahafsins, og
þar með stöðvað flutning frá Rússlandi
Tyrkir héldu Sýrlandi, Palestine,
Mesopotamíu, Arabíu og Armeníu.
Krafðist Tyrkja Soldánin þess að
allir Múhameðstrúarmonn dræpu alla
þá kAstnu menn er þeir gætu.
f maí 1915 foru ítalir í lið með
Bandamönnum.
Árið 1911-12 höfðu þeir tekið Tripoli
frá Tyrkjum, vantaði þá einnig land
það er Austurríki réði yfir þar sem
latneskir þjóðflakkar bjuggu.
Fyrsti stór bardagi það árið var við
Ypres. par notuðu þjóðverjar fyrst
eiturgas sitt.
Sliipinu Luaitania með 1,154 farþeg-
um sökt.
Rússar gjörðu áhlaup á Austur Prúss
land, en voru hraktir tii baka„ tóku
Pjóðverjar þá Warsaw og Rússneska
Pólland. Töpuðu Rússar einnig allri
Galicíu. Höfðu þeir ónógar vistir og
skotfæri.
Okt. 1915 sagði Bulgaría Serbum
stríð á hendur. Var Serbía yfirf unnín
á tvcimur mánuðum.
1916
Bardaginn við Verdun stóð yfir í
fimm mánuði. Frá júlí til nóv. stóð
yfir annar stór bardagi við Somme-
fljótið.
9. marz, sagði Portugal þjóðverjum
stríð á hendur og 27. ágúst sagði Rúm-
enía Austurríki stríð á hendur.
Tapaði Rúmenía miklum komforða og
öllum öíiu brunnum sinum.
Bretar unnu stóran sigur við strend-
ur Jótlands.
Herforingin Townsend beið algjöran
ósigur við Kut-el-Amara nálægt Bag-
dad á Tyrklandi. yarð hann að gef-
ast upp með allan her sinn.
frar gjöra uppreist. Sir Roger
Casement, aðajieiðtogi þeirra líflátinn.
pjóðverjar bjóða frið.
1917.
pann 15. marz lagði Nikúlás, Rússa-
keisari niður völdin, og Alexander
Kerensky gjörðist stjórnarformaður
lýðveldisins. Var honum steypt af
Bolsheviki flokknum. Voru formenn
hans Nikolai Leniné og Leon Trotzky.
1917
Constantinus, Grykkja konungi vikið
frá völdum og sonur hans tók við.
Bágdad tekin af Bandamönnum.
Undir stjórn Edmund Allenby’s tóku
Bandamenn hálfa Palestínu og Jerusal-
em. 1 Höfðu þeir bygt járnbraut frá
Cairo til Jerusalem.
pjóðverjar létu undan á svæðinu
milli Arras og Soissons. Tóku Banda-
menn Arras, Vimy Ridge, Messines
Ridge, Cambrai og Passchendaele.
Bandaríkin fara í lið með Banda-
mönnum; einnig Brazilia, Cuba, Pana-
ma, Liberia og Kína.
Rússar semja frið í Brest-Litovsk.
1918
f byrjún ársins virtust Bandamenn
ætla að tapa. í hræðilegum bardaga
er byrjað 21. marz. Brutust pjóðverj-
ar gegnum Brezka herinn og komust
40 mílur á leið til Amiens. Voru þeir
nærri búnir að taka Parísarborg.
Foch gjörður aðalforingi Banda-
manna.
15. júli gjörðu Bandamenn atrennu,
er nú, á fjórum mánuðum hefir rekið
pjóðverjar úr öllu Frakklandi.
Strið þetta hefir kostað miljónir
mannslifa og biljónir dollara—þó ekki
séu talin tárin og hvalirnar, því hver
mun geta talið eða mælt það?
Heil lönd hafa verið lögð í eyði. En
ef þettað strið hefir verið til þess að
breyta fyrirkomulaginu í heiminum,
þá er máské bætt fyrir fórnirnar.
Sólarlitlir dagar
Mig minnir að eg hafi lesið í gömlu
íslenzku þjóðsögunum um mann(Arna)
í Botni held eg það hafi verlð) sem sá
ekki sólina þó hún skyni í lieiðríki, og
sagði því: “petta eru sólarlitlir dag-
ar.” Ef eg man rétt, þá var aumingja
maðurinn svo sokkinn niður í synd og
spillinguu að það var þess vegna að
hann sá ekki hina tflessuðu sólargeisla
og fann ekki hinn vermandi og hress-
andi yl frá þcim mikla líf^jafa—sól-
inni.
pað hefir verið eitthvað líkt ástatt
fyrir heiminum um undanfarin fjögur
ár og var fyrir þessum manni.—pað
hafa verið sólaríitlir dagar.
Sólarlitlir dagar hljóta síðastliðiu
fjögur ár að hafa verið fyrir mæðumar
sem hafa mænt með tárvotum augum
yfir hafið í áttina þangað sem drengir-
nir þeirra voru augliti til auglitis við
dauðann 7
Sólarlitlir dagar hljóta það að hal’a
verið /yrir heimilin, og hafa þau verið
mörg, sem skeyti hafa fengið um það
að drengurinn þeirra kæmi aldrei aftur
Sólarlitlir dagar hafa það verið fyrir
skyldmennin er vissu af drengjunum
sínum liggjai-di flakandi í sárum á
sjúkrahúsum langt frá öllum vinum og
vandamönnum.
Sólarlitlir dagar hafa það verið fyrir
fólkið í Beláíu og hinum öðrum stríðs-
löndunum.
Og sólarlitlir dagar hafa það víst
verið fyrir drengina í skotgröfunum,
langt frá öllum vinum sínum, vinnandi
það verk er hlýtur að vera ógeðfelt
hverjum sönnum manni; en sem skyld-
an og föðurlands- og frelsis ástin knúði
þá til að vinna.
Sólarlitlir dagar eru þessir síðustu
dagar hér í þessu landi, þegar, ofan á
allar aðrar hörmungar sem þjáð hafa
land og lýð, kemur landfarssótt sem
með ótrúlega miklum lnaða kippir burt
vinum og vandamönnum.
Já, vér getum öll tekið undir með
mann aumingjanum forðum og sagt:
“petta eru sólarlitlir dagar.”
En vinur—-
Einhversstaðar hefi eg einnig lesið
vísu, eg veit ekki eftir hvern, og er
hún svona:
“pó í dag sé voðrið vott,—
veikist manna hugur;
á morgun kann að gefa gott-
guð. minn almáttugur.”
Petta er hugsunin sem ætti að vera
í hverju sönnu hjarta nú á dögum.
pó að oss nú virðist dimt, og þó að
skýin séu svört, og þó dagarnir séu
sólarlitlir, þá verðum við ætíð að hafa
það hugfast, að það er ekki til svo
svart ský að sólin finnist ekki á bak
við það, og þó að sólin sjáist ekki nú
sem stendur, þá á hún eftir að skína—
að guð almáttugur kann—já, mun—
gefa gott á morgun.
Móðirin sem mænt hefir yfir h'afið
eftir drengnum sínum, hlýtur að sjá
Ijós fyrir aftan skýin í þeiríi hugsun
að drengurinn hennar er að vinna hið
göfugásta verk sem nokkur maður get-
ur unnið, reiðubúinn að leggja heilsu
og líf í sölurnar fyrir frelsi og einstak-
lings réttindi.
Huggun er það, og sólargeisli, mitt í
sorginni, fyrir þau heímili sem mist
hafa drengina sína í þessari voða styr-
jöld, að þeir hafa fallið með heiðíi og
sóma í bardaga fyrir því, sem þeir á-
litu háleitt og göfugt mál.
Hughreysting er það fyrir þá, sem
eiga skyldmenni, særða og sjúka, á
einhverju sjúkrahúsi, langt í burtu
hinu megin við hafið, að þeir eru enn
þá lifandi, og að hann, sem öll sár
græðir, mun á sínum tíma leiða þá
heim aftur, ef það er hans vilji.
Stríðslöndin sjá sólargeislan í þeirri
hugsun að, eftir lok stríðsins, muni
bæjir þeirra og bygðir rísa upp, seiu
fuglinn, Phænix, af ösku sinni, sterkari
og blómlegri enn áður fyrir hörmung-
arnar sem íbúar þeirra hafa gengið í
gegn.
Og í gegn um allar hörmungarnar í
skotgröfunum hafa drengirnir okkar
séð sólína—í gegnum þá vissu að fólk-
ið sem heima sat, stóð sem einn maður
í þéttri fylkingu að baki þeim, reiðu-
búið að leggja alt í sölurnar þeim til
vellýðanar og máli þeirra til stuðnings
Og þótt nú þjái oss drepsótt sem
læknar vorir sýnast lítt ráða við, þá
fekín oss sólin í gegn um myrkrið i
þeirri hugsun að hann, sem frelsar oss
frá “drepsóttinni er reikar í dimmunni
og sýkinni er geisar um hádegið'’ ef
vér aðeins treystum honum, mun láta
sólina skína aftur, og mun birta henn-
ar verða enn þá skýrari vegna dimm-
unnar sem á undan er gengin. pví
allir örðugleikar eru aðeins til að gera
oss sterkari ef vér erum sannir menn
og konur. *
Kvíðum því ekki dimmunni sem nú
vofar yfir, heldur segjum með höfundi
vísunnar:
“Pó í dag sé veðrið vott
veikist manna hugur,
á morgun kann að gefa gott
guð minn almáttugur.”
G. J.
Stríðskostnaður Canada
t flugriti nokkru er útbýtt hefir ver-
ið nýlega er rætt um hvert Pjóðverjar
ættu að borga stríðskostnað Canada.
Stríðið mun kosta Canada $1,500,000-
000; hermenn þeir er hafa fallið, særst
og orðið ófærir til vinnu munu verða
um 250,000. Eftirlaun þeirra eða á-
hangendum þcirra mun nema um $50,-
000,000.
Bandamenn skiljá eliki fyllilega
hvað Canada hefir lagt i sölurnar. Frá
200,000 til 500,000 manns hafa árlega
flutt úr gömlu löndunum í sein-
ustu hundrað árin án þess að löndin
liðu neinn baga af, en Canada má ekki
við að missa 25,000 af fólkstölu sinni
án þess að hafa alvarleg áhrif á vel-
megun og framtíð landsins.
f þessu stríði höfum vér mist um
250,000, og er ekkert útlit fyrir að það
verði bætt upp með innflutningi frá
öðrum löndum, þó svo hafi oft verið
sagt, þar sem hin löndin þurfa á öllum
sinum vinnukrafti að lialda.
Sextíu þúsundir Canadískra drengja
i hafa látið lífið í stríðinu. Canada
I
sækist ekki eftir löndum. En hún er
of fátæk og fámenn til að borga slíkan
kostnað er stríð þetta hefir í för ineð
sér.
England fær Egyptaland.
Frakkiand fær Alsace-Lorraine.
ítalía fær þann part af Austurríki er
ftalir byggja. England, Frakkland og
ftalia fær Landið Helga til umráða;
landamæx-i Grykklands verða færð í
Macedóníu og Sýrlandi; Indland fær
dómsvald í Mesopotamíu; Japanir
munu halda Kaichow; Ástralía og Nýja
! Sjáland munu halda eyjum þeim er
þeir jfii'i'unnu í Kyrrahafinu; Suður
J Afríka hefir þýzka hlutann af vestur
] Afríku; landamæri Rúmeníu verða
j færð út; Belgíu og Serbíu vei'öa bcrg-
aðar skaðabætui'.
pjóðirnar yfir höfuð fá siglingafrelsi'
í Hellusundinu,. Bosphorus og Svarta
hafinu.
“Ætla fulltrúar þjóðar vorrar að sjá
um að Canada fái eitthvað meira cn
eintóman kostnaðinn?” spyr W.T.R.
Preston, höfundur ritsins að endingu.
í
ONE GAR-SCOTT 25 H. P.
Samsett dráttvél og sjálffermari og blástursvél, fyrir !
$3,500. Skilmálar $500 út í hönd og sanngjrn tími fyrir það É
sem eftir er.
SnúiS yður til auglýsendans að
902 CONFEDERATION LIFE BUIT.DING, WINNIPEG
C. S. MACDONELL LUMBER CO. j
Bæði Stranda og Fjallaviður
3
pakspónn úr Kauðum sítrus-viði.
Sívalir og kantaðir staurar. Eldiviður
SKRIFID EFTIR UPPLÝSINGUM UM VERD
346 SOMERSET BLOCK WINNIPEG
3
É
►<o
j
RJOMI
SÆTUR OG SÚR
Keyptur
Vér borgum undantekningar-
laust hæsta verð. Flutninga-
brúsar lagðir til fyrir heildsölu
verð.
Fljót afgreiðsla, góð skil og
kurteis framkoma er trygð með I
því að verzla við
DOMINION CREAMERIES
j
| ASHERN, MAN.
og
WINNIPEG, MAN. j
KOL! KOL!
Vér getum afgreitt fljótt og vel bæði HÖRÐ og LIN kol.
y
Beztu tegundir. Ef þér hafið ekki byrgt yður upp nú þegar,
þá komið og sjáið oss. Vér getum gert yður ánægða.
Talsími Garry 2620
D.D.Wood & Sons Ltd.
Office og Yards: Ross Ave., homi Árlington Str.
II
Vér mótmælum allir
—Jón Sigurðsson.
Afl í Jiijóðlífi Vestur-íslendinga, er Voröld
óneitanlega orðin—heilnæmt afl, sem reynir að
beita sér fyrir öllu því bezta og drengilegasta sem
til er í þjóðlífinu.
Undiröldur sálarlífsins, hinn forni, horræni
hugsunarháttur (blossar þar upp. Tilfinningin
sem knúði forsetann til að segja “Vér mótmælum
allir.’’—Sem knýr oss til að endurtaka það hárri
raustu, “Vér mótmælum allir!” þegar reynt er að
s^vifta Vestur-íslendinga rétti þeirra og frelsi.
Skrifa þig fyrir Voröld,—ger svo í dag. Kostar
aðeins $2.00 um árið. Fæst enn þá frá byrjun.
llilllllllil!