Voröld - 03.12.1918, Blaðsíða 1
VOLTAIC ELECTRIC INSOLES
pægilegir og heilnæmir, varna kulda
og kvefi; lækna gigtarþrautir, halda
fótunum mátulega heitum, bæði sumar
og vetur og örfa blóðrásina. Allir ættu
að hafa þá.
Verð fyrir beztu tegund 50 cent parið
Skýrið frá því hvaða stærð þér þurfið.
PEOPLE’S SPECIALTIES CO., LTD.
P.O. Box 1836 Dept. 23 Winnipeg
HEY! HEY!
Sendið heyið ykkar til íslenzta k*y-
kaupmannanna, og fáið hæðsta ver®,
einnig fljóta afgreiðslu. Peningar lán-
aðir á “kör“ send beint til okkar.
Vér ábyrgjumst að gera yður &-
nægða.
THE NORTHERN HAY CO.
408 Chambers of Commerce
Talsími G. 2209. Nætur taisími S. 3247
Winnipeg, - Man.
1. ÁRGANGUR
WINNIPEG, MANITOUA, 3. DESEMBER, 1918.
NÚMER 43.
FYRSTA KULAN HITTIR MARKID
Nœsta skot fer í gegnum hjarta skrímslisins.
Eftir þriðju hríðina liggur það dautt.
Bœjarstjórnar kosningar eru íyrirboði
stórra tíðinda og góðra.
Lauriermenn koma saman fyrir kosningarnar og
ákváðu í einu hljóði að vera á móti David-
son vegna þess að hann neitaði að fylgja
frjálslyndu stefnunni í fyrra; og á móti Vopna
vegna þess að blað hans brást frjáisíynda
flokknum.
VERKAMANNAFLOKKURINN GERÐI J)AÐ SAMA. AFLEIÐ-
INGARFNAR URÐU pÆR SEM ATKVÆÐIN SÝNA.
SAMA AÐFERÐ VERÐUR HÖFÐ VIÐ NÆSTU SAMBANDS-
KOSNINGAR OG NÆSTU FYLKISKOSNINGAR, OG ÓEFAÐ
MEÐ SAMA ÁRANGRI.
ALMENNAR FRETTIR.
FYRSTA KÚLAN HITTI MARKIÐ, HVERT SKOTIÐ FYLGIR SVO
ÖÐRU AF BYSSU HINS ÓHINDRAÐA pJóÐVILJA.
DAGAR HINS UNDIROKANDA OFBELDISSKRÍMSLIS ERU
TALDIR. HINIR FÁU—póTT STERKIR SEU—VERÐA AÐ
GEFAST UPP FYRIR RETTMÆTUM KRÖFUM FÓLKSINS.
pEIR SEM SVIKU ANDA BEINNAR LÖGGJAFAR HAFA
pEGAR DRUKKIÐ EINN SOPA AF BIKAR RÉTTLÁTRA
HEFNDA OG EKKI VERDUR FYR HÆTT EN SA BIKAR ER
TÆMDUR í GRUNN. HER EFTIR SKAL GUÐ HNEFA-
RÉTTARINS VÍKJA EN DROTTINN RETTLÆTISINS RfKJA.
ÖM
V
“If you can keep your head when
all about you”
(Pýðing)
• .'i.
Ef þú ert sá sem geng-ur ekki af göflum
1 geipi múgs, sem kennir þér um slys—
Ef þér er vantreyst, veizt af þínum öflum
Og vegna hvers þau hafast fyrir gis —
Ef langreynd von þín velli kann að halda—
Ef varast fals, þó liggir undir róg—
Ert stórmennskari en hatri hatur gjalda—
En hygst ei snjall né alt of góður þó—
Ef gengur ei í draum’ með draum þinn háan—
Við djúpskygnt rýn ef sezt’ ei verklaus heim—
Ef tekur sigri og sviftir vona á hann
Með sömu staðlund—bragðarefum þeim!
Átt þol, að heyra sannleik þeim er sagðir
f snöru á flón af níðingunum beitt—
Sjá starfi hnekt, sem líf þitt í þú lagðir—
pví lyfta á ný, með sérhvert tækið eytt—
Ef vogar æfi-vinningTmum þínum
Að varpa í hlut á góðs máls tenings-kast,
Og tapa þeim—En byrja á sömu brýnum
Á bili næsta, og forsmá tjón og last—
Ef átt það vald á hjarta, trú og taugum,
Að týna ei móð hjá óska þinna val,
En stendur djarfur, fyrir allra augum,
Með eina liðið, viljann þinn: Eg skal!
Með einurð fulla úr kjassi lýðs ef kemstu,
Úr konungs-boði sveitunginn, sem fyr—
Slapst heill frá vin, sem féndum þínum fremstu,
Né fyrirleist, ne sigldir allra byr—
Ef út þú telur arðsæl, nota-geymin,
öll augnablik sín hverri stund er rann:
pá fær þú sigrað bæði “hold og heiminn”—
öll heill sé með þér! pú ert efni í mann.
Stephan G. -
!
*
KO
Uin 45,154 hermenn, sem nú eru í
skotgröfunum munu verða atvinnu-
lausir þegar þeir koma til balta, eftir
skýrslum stjórnarinnar.
Tvö vagnhlöss af smjöri voru send
frá Saskatchewan handa hermönnum
þeim er eiga að fara til Síberíu. Er
það fyrsta smjör er sent hefir verið
úr því fylki til Rússlands.
Dáið hafa úr spönsku veikinni í Al-
berta 1,550 manns.
Ellevu dögum áður en vopnahlé
komst á voru fallnir 34,877 Canada-
menn; dánir úr sárum eða veikindum,
15,457; særðir, 152,779; álitnir fallnir,
týndir eða fangaðir 8,2(45; alls, 211,-
358.
í Hamilton, Ont., voru skólar kirkj-
ur og leikhús opnuð, varð þá spanska
veikin svo skæð að það varð að setja
bannið á aftur. Fle.iri slík tilfelli
hafa komið fyrir.
Menn voru sendir þann 27. nóvemb-
er, frá Dawson til Indíána og Eski-
móa. Fóru þeir með meðöl, andlits-
hlífar og aðrar nauðsynjar til varnar
spönsku veikinni. peir ferðast á hund-
um; ferðinni er heitið til Fort. Mac-
ipherson.
pýsk vopnaforðalest sprakk í loft
upp í Belgíu í fyrri viku, meiddust
1,500 og 150 dóu. Sagt er að börn
hafi verið að leika sér að kveikja upp
eld og eldurinn hafi komist að lestinni
Ástandið þar kvað vera voðalegt.
Fjogur þúsund Canada hermenn
komu til Canada þann 28. nóvember
með skipinu Aquitania.
peir sem eiga að sjá hermönnum
fyrir atvinnu, vilja léta dragast sem
lengst að uppleysa herinn því ómögu-
legt muni vera að útvega öllum vinnu
þegar í stað.
Um 10,000,000 manns, Belgiskra og
Frakkneskir þurfa að fá mat frá
öðrum löndum. Næsta ár verður að
senda yfir Atlanshafið til þeirra:
Bushels.
Hveiti, bygg, rúg og korn,
fyrir brauð ............. 42,500,000
Baunir ..................... 2,200,000
Grjón....................... 3,300,000
Pund.
Niðursoðið kjöt ........... 26,400,000
Svfnakjöt ............ ....277,200,000
Sápu...................... 66,000,000
Kaffi...................... 26,000,000
Kókó.................;..... 18,000,008
Niðursoðnamjólk............ 55,000,000
Sykur ..................... 40,000,000
Kostnaður mun verða í það minsta
$280,000,000.
Rauða Kross félagið heldur áfram
að starfa í það minsta eitt ár enn þá.
Svo lengi sem til eru veikir eða særð-
ir hermenn sem ekki eru komnir úr
hernum og heim til sín, kveðst það
muni halda áfram að hlúa að þeim.
Herskyldaðir menn sem ekki
gengdu kallinu munu verða gerðir út
lægir í tuttugu ár ef þeim verður náð,
bæði í Canada og Bandarikjunum. En
það er hætt að leita að þeim, hefir
mönnum þeim er þann starfa böfðu á
liendi verið veitt lausn frá embætti.
Ákveðið hefir verið að halda friðar-
þingið í París í stað Versailles.
Menn þeir er tilheyra Síberíu her-
deildinni munu fara til Rússlands. Ef
einhver æskir eftir lausn úr henni
mun honum veitt hún eitt ár frá þeim
tíma er vopnahlés skilmálamir komust
á. Nánari ráðstafanir munu' verða
gjörðar síðar eftir því hvernig alt.
gengur.
BM
M)4—»()-W»-()-—K>-—»<)•—►()•—►» — O-—><)■
Georg Fjölner Lindal
pegar Canada fór í stríðið 4. ágúst,
1914 þá haíði hún 3,000 hermenn óg
6600 )nenn i sjóliðinu. pegar stríðið
endaði 11. nóvember, 1918, þá hafði
Canada sent yfir 418,980 hermenn.
Bardagar er Canada menn tóku þátt
í: 1915, Ypres, apríl og mgí. 1916, St.
Eloi, 3., og 19. april; Sanctuary Wood,
2. og(3. júní; Hooge, 5., 6., 13. og 14.
jní; bardagann við Somme sept., okt.
og nóvember. 1917, Vimy Ridge 9. til
13 ápríl; Arleux og Fresnoy, 28. til 29
apríl og 3. maí; Lens, júní; Hill 70,
15. ágúst; Passchendaele, 25 október
og 10. nóvembei-. 1918, annar bar,
dagi við Somme, april og maí; Amiens,
12. ágúst; Monche-le.Preux tekið 26.,
27. og 28. ágúst; Queant Drocourt lin-
an rofin 3. og 4. september.
Bandamenn fóru yfir Canal Du Nord
og Bourbon Wood, 27. til 29. septem-
ber; Douai tekin 19. október; Denan
tekin 20 október; Valenciennes, 25.
október til 2. nóvember; Mons tekin 7.
til .11 nóvember.
*' ■>; .. .. ... _
Bandarikin gjöra sex sinnum meiri
verslun við fsland nú en að undan-
förnu og hefir það vakið talsverða eft-
irtekt. Meir en $2,400,000 virði af
vörum hafa verið fluttar frá Ameríku
til íslands og Færeyja árið 1917,
nemur það um $2,000,000 meira en árið
þar áður. Um tíu þúsund dollara
virði af bifreiðum hefir verið sent
þangað, um $25,000 virði af álnavöru.
Einnig mikið af silfurborðbúnaði, gim-
steinum, ilmefni, loðskinnum, hreifi-
myndum, gleri liljóðritum og skóm.
Meir en 1,000 ton af frosnum hval
hefir verið sent frá Kyrrahafströnd-
inni til Boston í sumar. Victoria
Whaling Co. í Victoria, B.C., býst við
að hafa milli 30,000 til 50,000 kassa af
niðursoðnum hvölum í haust í niður-
suðu húsi sínu í Kyuquot. Hvaiír
veiddir í Kyrrahafinu gefa af sér frá
þremur til tólf ton af ágætis kjöti. Er
það soðið niður eða látið frjósa.
Ekkert af því er notað til matar fyr
en eftir 24 klukkutíma frá því þeir eru
veiddir. Hvala kjöt hefir ekki ver-
iðfnotað mikið enn þá £ þessu landi.
Mest hefir verið sent til Samoa og
Fiji.
Nýlega hefir fundist £ Afriku . ný
tegund af fílum og hefir verið farið
með þá til Englands til sýnis þar.
peir verða um 5% til 6 fet á hæð. Víg-
tannir þeirra eru mjög dökkar ög
bera merki um að hafa verið notaðar
mjög mikið og að þeir hafi verið í
blautum plássum. Tennurnar í
kvendýrinu eru mjög litlar og vikta
um pund hver og í karldýrínu um 3%
pund hver. í vanalegum fullvöxnum
fíl vikta þær um 110 pund.
Wilson forseti, leggur af stað á frið-
arfundinn eftir annan desember.
Hann mun verða kominn til Parisar
um tólfta desember.
Verið er að gjöra ráðstafanir til
undirbúnings undir móttöku hans og
þeirra sem munu heimsækja Parísar-
borg í desember.
Georg og Mary konungshjónin frá
Englandi, Albert og Elízabet frá
Belgíu munu koma þangað um 5.
desember.
Búist er við að Wilson forseti muni
halda kröftugar ræður á móti Bolshe-
víkum. Hefir hann ráðgjört að halda
ræður bæði á Englandi og Frakklandi.
Rússar vilja senda fulltrúa á þingið,
kveðast þeir hafa fasta stjórn.
prjú hundruð þúsund konur munu
greiða atkvæði í Chicago við kosning-
arnar í vor. Búist er við að þær
muni útnefna konu sem umsækjenda
fyrir bæjarstjórastöðu í Chicago.
Fæddur í Winnipeg, Man., 6. marz, 1889. Sex mánaða
ganiall fluttist hann með foreldruni sínum til Grrunnavatns-
bygðar; ólst hann þar upp og stundaði nám við Markland
skóla. Lögaldra tók hann sér heimilisréttarland skamt frá
Markland P.O., og vann ötullega að jarðyrkju, þangað til
hann leigði landið bróðir sínum, L. M. Líndal, og byrjaði
sjálfur að stunda vélafræði hjá C.N.R. félaginu, og var
hann farinn að vinna á brautuin félagsins þeg'ar hann var
kallaður í herinn 7. februar, 1918, og fór til Quebee og heíir
hann verið þar síðan.
Oeorg er hár maður vexti, yfir 6 fet á hæð, og minnir
mann á víkingana gömlu.
Foreldrar haus eru þau Björn Lindal, póstmeistari að
Markland og Svava kona lians.
Utaná skrift hans er: Pte. G. F. Lindal, No. 2380475
Ð. C.O. 5, C. G. R., Quebec.
O-MB-O-aBft ()^M)»»()'a»0«»()*Bft'()*»ft()'M»O«»ll*V()*i
i
ELDGOSIN HEIMA
Voröld flytur fyrst greinilegar fréttir af þeim
úr bréfi frá húsfrú Tr. Athelston héðan úr
bœnum sem nú er stödd á œttjörð vorri.
Gosið byrjaði 12. okt. Frá Reykja-
vík bar gossúlan hátt við loft, ofan til
gufa og aska, en neðan stanslausar
eldingar. Sagt er að gassúlan hafi
verið 12. þúsund metrar á hæð. f
byrjun voru töluverðir landskjálftar,
einkum í nærliggjandi sveitum, en
fanst litið í Reykjavík. Meðan gosið
var sem ákafast, gerði það mikla trufl-
un á símasambandi, svo að loftskeyti
heyrðust ekki. öskufall mikið, eink-
um í nærliggjandi sveitum. Á Rang-
árvöllum og í Landeyjum, varð alveg
haglaust vegna ösku. Og i Vestur
Skaptafellssýslu var aska og vikur-
sandur í skóvarp. Til Reykjavíkur
barst einnig all mikið af ösku og var
áætlað, að frá byrjun og til 18 okt, eða
á 6 til 7 dögum, hafi fallið 56 smá-
lestir niður í borgina. Hinn 13 okt.,
þegar gosið var sem ákafast, var tæp-
lega lesbjart á Rangarvöllum og
skammdegisbirta í Reykjavík. Að
líkindum hefir aska borist um mest alt
landið, þó ekki séu fengnar fregnir um
það enn þá. Tvisvar hefir fallið
aska í Seyðisfirði, 13. og 20. okt.
Vatnsflóðið og jökulhlaupið var feyki-
lega mikið. Jakarnir bárust út á
sjó. pað er áætlað, að skarðið sem
kom í jökulinn hafi verið 2,000 metra
langt, 600 metra breitt og 150 metra
djúpt. Vatsflóð og jökulhlaup ólgaði
fram Mýrdalssand og austur um Alpta-
ver og Meðalland. Og þegar vátns-
flóðið rénaði vóru íshrannir eftir.
í Álftaveri og Meðallandi gerði
hlaupið afar mikið tjón. Fólk flýði
úr bæjunum og bjargaðist alt. En
töluvert fórst af sauðfé og hrossum,
Á Meðallandi eyddust þessir bæir:
Sandar, Sandasel, Rofabær Og Mel-
hóll. Bæjarhúsin standa þó eftir,
nema á Söndum, þar er bærinn gjör-
eyðilagður. f þessum sveitum áttu
flestir eftir að fara kaupstaðarferðir,
og er mikill skortur á nauðsynjavörum,
en það á að reyna að koma flutnings
bát með vörur upp að söndunum.
Eftir fyrstu 2. til 3. dagana fór gos-
ið smá þverrandi, þangað til 21. okt.,
þá byrjaði nýtt gos, miklu ákafara en
áður. pá bárust mörg himdruð feta
háir jakar út á Mýrdalssand. 24. okt.
var myrkur í Vík í Mýrdal vegna ösku.
Sagt að gassúlan hafi verið 30 þúsund
metra á hæð í þessu seinna gosi.
Katla hefir áður gosið 12 sinnum
sem sögur fara af, en talið líklegt a?
það sé miklu oftar. Siðast gaus hún
1860, vægt gos og stóð aðeins 3 vikur.
SÍÐUSTU FRÉTTIR FRA ÍSLANDI.
STJÓRNIN SENDI SKIPIÐ GEIR TIL BJARGAR Á JARÐ-
SK J ÁLFT AS VÆÐINU, EN pAÐ KOMST HVERGI AÐ
STRÖNDINNI VEGNA JARÐSKJÁLFTA OG GOSA.
OKTÓBER VAR ÖSKUFALLIÐ OG ELDGOSIÐ AFSKAP3LEGT
—BJART A NÓTTUM AF ELDI EN DIMT UM DAGA AF
ÖSKUFALLI.
26