Voröld - 18.03.1919, Side 1

Voröld - 18.03.1919, Side 1
r \ HEY! HEY! Sendið heyið ykkar til Islenzku h*y- kaupmannanna, og fáið hæðsta verB, einnig fljóta afgreiðslu. Peningar l&n- aðir á “kör“ send beint til okkar. Vér ábyrgjumst að gera yður á- nægða. THE NORTHERN HAY CO. 408 Chambers of Commerce Talsími G. 2209. Naetur talsími S. 3147 Winnipeg, - Man. II. ÁRGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, 18. MARZ, 1919 Nr. 7. ISLANDS FRETTIR Um mánaðarmótin janúar og febrúar fórst bátur frá Eyrarsveit í Snæfellsnessýslu og druknuðu 5. manns af sjö. Meðal þeirra sem druknuðu var Ásmundur hrepp- stjóri á Bár. íslenzka síldin segja Svíar að sé sú bezta sem þangað hafi verið flutt í síðastliðin 20 ár. Öndvegis tíð á íslandi í allan vetur. Fiskiverzlun íslendinga við Eng lendinga hefir gengið illa að und- anförnu vegna verkfalla á Eng- lándi. 14. febr. lézt í Brautarholti á Kjalarnesi frú Guðrún Guðmunds- dóttir, 87 ára að aldri. Iíún var tengdamóðir Jóhanns Eyjólfsson- ar frá Sveinatungu (frv. alþm.) Bandamenn hafa afsalað sér 4,- 000 smálestum af fiski sem þeir höfðu kauparétt á. Danir hafa þegar keypt af því 1,000 smálestir fyrir 325 kr. skippundið. Jakob J. Smári hefir verið val- inn til þess að halda áfram starf- inu við orðabókina íslenzku. Skálda og listamannastyrk hafa þessir fengið: Einar Hjörleifsson 2,400 kr. Einar Jónsson 1,500 kr. Guðm. Guðmundsson, 1,500 kr. Jóhann Sigurjónsson, 1,000 kr. Brynjólfur pórðarson, málari, 1,- 000 kr. Yaldimar Briem, 800 kr. Jakob porarensen, 600 kr. Nína Sæmundsson myndhöggvari 600 kr. Ríkharður Jónsson, 800 kr. Arngrímur Ólafsson, málari, 600 kr. Ásgrímúr Jónsson 500 ltr. Jó- hannes Kjarval, 500 kr. Sigurður Heiðdal 500 kr. Hjálmar Lárus- son, málari, 400 kr. Ben p Gröndal 300 kr. Fossanefndin hefir klofr jornsson, Jón porláksson, e onsson og Einar Amórssor ram eignarrétti þjóðfélags Guðmundur Eggerz og Sve afsson eru á móti því. Verið er að stofna vei’: félag milli Svía og ísler Heitir sá N. Unneras er heii frá Svíþjóð þessu máli til búnings. 14. febr. lézt séra Jakob Björns- son í Saurbæ í Eyjafirði 82. ára að aldri. Jón Jónsson sagnfræðingur, hef- ir fengið 200 kr. verðlaun úr sjóði Jóns Sigurðssonar fyrir ritgerð urn verzlunarsögu Islands. Guð- brandur Jónsson 500 kr. fyrir rit- gerð um íslenzkar miðalda kirkj- ur og séra Magnús Jónsson 300 kr. fyrir ritgerð um siðaskiftin. Séra Magnús Andrésson á Gils- bakka hætti prestskap í vor eftir 37 ára þjónustu. Var honum haldin skilnaðar- og þakklætis- hátíð og afhentur sjóður að upp- hæð 1,085 kr. til ráðstofnunar til minningar um látna konu hans. Halldór skáld Helgason á Ásbjarn- arstöðum afhenti honum sjóðinn ásamt gullfallegu kvæði er hann hafði ort. par í eru þessar snild- arvísur: “Oft er komið undir því afl í giftumálum hvemig tekst með ítök í annara manna sálum. m Við höfum fundið vinarmál varpa gróðrarfræi yfir þroska og' unglingssál inn í kirkju og bæi. Aftangeisli að ending skín uppi á hæsta felli; svæfillinn og sængin þín sé þé.r guð—í elli. B. M. Olsen hafði skipað svo fyrir að engin ræða skyldi flutt við útför hans og var því hlýtt. “Lögrétta” skýrir frá því að samanborið við fiskiverð sem G. Copeland nú.borgi hafi Englend- ingar tekið af fslendingum 10,000- 000 (tíu miljónir) króna á þeim fiski og lýsi sem þeir keyptu. Látinn er á Hiisavík Jakob Hálfdánarson fyrrum kaupfélags- stjóri á Húsavík. Á Akureyri er nýdáinn Sumar- liði póstur. Söngflokkur er nýlega stofnað- ur í Reykjavík undir umsjón Sig- fúsar Einarssonar. Ætlar flokk- urinn að fara til Danmerkur og Noregs í sumar. I Að leggja auðinn í hendur á amlóðum” ! Árinn sagði: “ Ef þú vilt mér lúta Allan heiminn skal eg gefa þér.” —Aldrei hefir myndarleg-ri múta Manni boðist, svo sem kunnug-t er. Efnahag sinn slysaleg'a slöku Slær sá við, sem neitar svona heilli köku. Enginn kostur. Kristur við hann skildi. Kveðjan hans var óhagvís, og sú: “Gæti hundrað heima, ef eg vildi, haft með sama laginu og þú. Hefi næga greind til það að gera Gæti eg þýðst, að slíku kominn eins að vera.” Stephan G. Ranga “hyllan”! Kunni ei neitt til hnjóðs um hann, En hljóp í þetta dæmi: “Vissir þú nokkum nýtan mann Frá Nazaret sem kæmi?” Stephan G. Forsætisráðherrann fékk skeyti 31. janúar frá kirkju og kenslu- málaráðaneytinu í Noregi til minn ingar á 200 ára dánardegi por- móðar Torfasonar, sagnaritara, sem helgað hafi sögu Noregs líf sitt og starf. Jón Jóhannesson læknir hefir tekið sér skrípanafnið “Norland” Barðstrendingar hafa nýlega gefið Guðmundi Björnssyni sýslu- manni vandað gullúr með gullfesti Hann er nú sýslumaður Mýra- manna og Borgfirðinga. Lögrétta frá 12. febr. segir hita og blíðu daglega um alt land, og snjólaust í öllum sveitum. Ágæt aflabrögð segir sama blað bæði á Suður og Norðurlandi. 5. febr. fórst bátur frá Vest- mannaeyjum í lending við Land- eyjasand. Fimm menn fórust: IFalldór Árnason frá Hvammi í Mýrdal, Páll Jónsson frá Kirkju- læk, Ágúst frá Deild í Fljótshlíð, Jónas Benediktsson úr Reykjafirði og Harald Norman, norskur maður Mennirnir sem fórust af bátnum í^Eyrarsveit sem um er getið voru: Ásmundur Sigurðsson, oddviti í Suður Bár, Guðmundur Magnús- son í Tjarnarbúð, Jón Elíasson' í Norður-Bár og sonur hans og son- ur Kjartans Olafssonar á Akur- stöðum. Tómas pórðarson frá Sumarliða bæ á Eyrarbakka varð undir véla- bát 5. fe.br. og varð það honum að bana. Hann var bróðir Jóns FJjótshlíðarskálds. Konungurinn hefir ráðgert að heimsækja íslendinga í sumar. Kirk, verkfræðingur og G. Illíð- dal hafa verið ráðnir til þess að sjá um bygging rafmagns stöðvar- innar og verður byrjað á henni innan skamms. Brynj ólfur. Sigurðsson frá Flat- ey hefir fengið veitingu fyrir for- stöðu gasstöðvarinnar. Séra Pétri Jónssyni á Kálfafells stað og konu hans var haldið heið- urssamsæti 22. sept. í haust á 25 ára prests afmæli lians. Nýlega er komin út ein skáld- sagan enn eftir Gunnar Gunnars- son. Sagan heitir “Fóstbræður” og er gefin út af Gyldendals bóka- verzlun. Er það söguleg skáld- saga frá landnáms árum Ingólfs og Hjörleifs, eru þeir fóstbræðurn- ir. Árni Palsson sagnfræðingur er orðin 1. bókavörður, en Hallgr. Hallgrímsson sagnfræðingur að- stoðar bókavörður, 8. febr. andaðist Kristín, elzta dóttir Sigurbj. Á. Gíslasonar og Guðrúnar Lárusdóttur, konu hans Nýtt leikrit er verið að leika heima; það heitir “skuggar” og er höfundurinn Páll Steingrímsson 21.febrúar andaðist Oddur ög- mundsson faðir Jóhanns Ögm. Oddssonar kaupmanns. Meiri afl í Vestmannaeyjum en dæmi séu til; sumir bátar fengið 15,000—16,000 af þorski á einum mánuði. í Vestmannaeyjum er Játinn Jó- hatmes Hannesson vörkstjóri frá Miðhúsum, rúmlega þrítugur. 11. febr. andaðist Sigurður Stefán, sonur Ásgeirs Sigurðsson- ar. Mikið segja heiman blöðin að kveði að saurlifnaði í Reykjavík, og hefir þegar verið hafin rann- sólm í sambandi við það. 19. febrúar andaðist Jóhannes Zoega trésmiður í Reykjavík. Allmikið frost var heima þegar síðustu blöð komu út er vér höf- um séð (22. febr.) Ur bænum Friðrik Abrahamsson frá Cresc- ent Man. var á ferðinni um síðast liðna helgi og var liann á leið til Kristnes, Saslv. þar sem hann hefir í ltyggju að setjast að. Safnaðarfund heldur Tjaldbúðar- söfnuður í neðri sal Goodtemplara hússins, mánudagskveldið 24. þ. m. kl. 8. Áríðandi málefni til um- ræðu. í umboði fulltrúarnefndarinnar E. Sumarliðason ritari Spanska sýkin er að breiðast út í Nýja íslandi og í Árgyle. Til minnis Hermanna skrifstofa Voraldar opin kl. 11. f.h. til kl. 1. e.h. á hverjum virkum degi. Fundur í Sluild á hverjum mið- vikudegi kl. 8. e.h. Fundur í Heklu á hverjum föst- udegi, ld. 8 e.h. BITARl —o—o—c— Hvenær ætli stjórnin hugsi sér að rannsaka þjófnaðar kærumáilð hans Flavelles? Fleygir gróða fíknin staf, fækka rjóðar kinnar, dregur lúóð með “Bíldi” af búld þjóðarinnar. Á. B. Áfturhaldsstjórnin er víst búin að nota vinnumennina sem hún fékk í fyrra; hún vill nú skila þeim aftur en enginn vill hafa þá. Bezt er vistin Borden hjá, Bergur komst að raun um: það er hægt að auðgast á umboðssöluJaunum. Á.B. Manitobastjórnin hefir setið að völdum í 4 ár, en ætlar samt ekki að hafa kosningar. pað er venju- lega aðeins þegar stjórn er viss um ósigur að hún notar sér fimta árið, sem í raun réttri er ósæmi- legt að gera. Sofðu í friði Friðrik minn, fall þó nálgist Tjaldbúðin, drottinn flytur út, en inn aftur á móti leitar hinn. á. B. Setningin sem birtist nýlega í Voröld með nafni Jóns Runólfs- sonar undir var orðrétt sögð af honum. Vill liann bera á móti því % Sönnunin er til ef hann æsldr. Einu sinni lenti maður í áflog- um; hann var stór vexti en hug- laus; hann var hræddur við mót- stöðumann sinn og til þess að forða sjálfum sér tók hann svolít- inn drenghnoklía og varði sig með honum. pessi maður datt oss í liug þegar Jón annar beitti fyrir sig Jóni þriðja. Sömu mennirnir, sem fyrir fáum árum svívirtu ViJhjálm Stefánsson gætu nú sleikt duftið af skónum hans. Jóni Runólfssyni hefir enn ekki hægst; komi liægðirnar ekki í næsta Lögbergi þá nennir Voröld eldd að bíða lengur, heldur mun liún þá senda honum ltveðju guðs og sína. Orpheum “Tlie Reckless Eve” verður að- alatriðið á Orpheum á mánudag- inn 24. þ.m. og svo alla vikuna. 1 sýningunni eru 25 manns alls. Bók in er rituð af Will M. Hough hins fræga skopleika höfundi en lögin við söngvana hefir samið William B. Friedlander. “Á Child of Childs” er önnur sýning sérlega aðlaðandi. Sömuleiðis “A Little of This and a Little of That” Wonderland prent verður það sem sýnt verð- ur merkilegt á Wonderland þessa viku, en á fimtudaginn og föstu- daginn er það Jangmerkast og á miðvikudaginn er það einnig sér- lega aðlaðandi. Alt verður mjög margbreytt þessa viku; ástamál, hermál, fjármál, stjórnmál, svik, sorgir og gleði. Myndir og minningar Baldurs Kristjánssonar, G. V. Hannah, Ingibjargar Helgadóttur og Friðriku Jósephson koma allar í næsta blaði. Hlutaðeigendur beðnir afsökunar á drættinum. Séra Halldór Jónsson að Leslie Sask. liggur veikur í inflúenzu. Hann er samt ekki sagður í neinni hættu. Raddir almennings um minnis- i varða málið birtast í þessu blaði; 1 margar óbirtar enn. Fólkið svo í að segja alstaðar á móti mynda- styttu nema í Selkirk. Frézt hefir að frú Margrét Tliorvaldsson kona Sveins kaup- manns á Riverton sé látin. Maður hennar var suður í Chicago þegar hún lézt. Agnes Jónasson. 2. apríl 1915 — 16. nóv. 1918 ! Tileinkað með vinsemd, Finnboga bónda á Finnbogastöðum, afa litlu stúlkunnar. Hver barnsrödd, er svanarins söngmál skært, er sálinni móður hún hljómar. Hvert leikfang, sem ástinni litlu var kært það lífs verða helgir dómar. I auga þess eilífð ljómar. Hver ómur þess vonir rómar. Hvert bam myndar heim, og í heiminum þeim á hásætið móðirin góða. Svo áttir þú, barnið gott, ungan heim unz ólíf snart vangann þinn rjóða. En móðir þín hugum—hl jóða nú hugsar um smá-perlu fljóða: Er hækkandi sólin á himni skín að hjarta mér geislamir streyma. peir minna á þig, Agnes, elskan mín — á árin þín fáu, sem geyma það líf, sem er ljúfast að dreyma. í ljósinu áttu nú heima. “En langt varð mér haust, er hið liðna ár tók líf þitt úr faðminum mínum. Og enn er þín burtför sem opið sár í endurskins myndunum þínum, sem birtast í brosmjúkum línum frá barasljúfa heiminum sínum. “Er veturinn hverfur og vorlífið hlýtt alt vekur með fagnandi rómi. Við foreldrar minnumst þín munarblítt, en milt er sem blævarinn ómi: að vorið þau lífskifti ljómi, sem lífsins er æðsti blómi.” P. P- P• o 7 r—i »0«M()«»{)«»()«()«»()»»()»»{|»»t!»»i)4»: p Móðurminning Stansaðu, gyðja, lijá leiðinu lága, lauga það geislum og frjóvgaðu mold; yljaðu rætur og reynviðinn smáa, roðskreyttu jökul og kulnaða fold. Mamma, þú unnir svo öllu sem lifir, —og engum sem þarfnaðist burtu þú hrast— að vinina smáu sem vaka þér yfir veit eg þú elskar, því trygð við þá bast, En sofirðu og sjáir ei blómin, er sólgeislar yngja; sofirðu’ og lieyrir ei hljóminn, er liimnarnir syngja; ■ sofirðu’ og litöidur ljósa lengur ei sjáir: eg á þá einnig að frjósal og ekkert mig þjáir. Hádags úr tárunum sól hefir sogið sviðann; nú hallar að kvöldmörkum skjótt; dýrasta vorblómið fölnað og flogið með fallhröðum árum og brátt verður hljótt'. En margt þó að virðast við hér að stríða og veröldin lami livern framsóknar hug: ef að þú vakir er engu að kvíða. —Við endurfund tjöldunum svift mun á bug. Egill Erlendsson

x

Voröld

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Voröld
https://timarit.is/publication/221

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.