Voröld - 29.04.1919, Side 5
Winnipeg, 29. apríl, 1919
VORÖLD.
Bls. 5
“Hlaðafli í Vestmannaeyjum um
langan tíma aS undanförnu” segir
Frón 22. febr. og fiskurinn uppi
undir land.
Einmunatíð á norðurlandi fram
undir febrúarlok.
Agætur afli á Eyrarbakka eftir
'pví sem Frón segir 22. febr.
Skipið “Harry” eign Natans og
Olson’s strandaði nýlega í Vest-
mannaeyjum og skemdist allmikið
Ekkert manntjón.
Nýlega kviknáði út frá steinolíu
ofni í geymsluskúr í Bergstaða-
stræti í Reykjavík. Hafði maður
haft hann þar til áfengisgerðar og
fundust þar ýms áhöld til þess fall-
ega starfa.
Póstþjófnaður hefir orðið upp-
vís á bréfum og peningum frá Pat-
reksfirði. • Ekki komið upp hver
valdur sé að.
Látinn er
á Húsavík.
Jakob Hálfdánarsson
þau Hannes S. Blöndal, skáld og
Soffía kona hans áttu silfur brúð-
kaup 24. marz.
Verið er að byggja brú yfir
tjörnina í Reykjavík.
Færeyingar eru að stofna Eim-
skipafélag líkt og Islendingar. Er
Andreas Zika formaður hins nýja
félags staddur á Islandi að leita
sér þar upplýsinga uin ihálið.
Bæjarstjórnin í Reykjavík hefir
heitið þremur verðlaunum fyrir
beztu tillögUr um fyrirkomulag á
Austurvelli. Verlaunin eru 250 kr.
150 kr. og 100 kr.
Vísir frá 26. marz segir skæða
kvefsótt í börnum hafa gengið í
Reykjavík. Veikin snýst upp í
lungnabólgu og hafa nokkur börn
dáið.
Nýtt blað sem heitir “Ljós” og
sannleikur” er stofnað í Reykja-
vík. Ritstjórinn er Páll Jónsson,
prestur og trúboði.
Snjófljóð hafa komið á stöku
stað Austanlands. 17. marz eyði-
lagðist íbúðarhús Kristjáns Eyj-
ólfssonar á Strönd í Reyðarfirði,
og dóttir Kristjáns beið bana. Á
Eskifirði tók snjóflóð hlöðu og
fjós Friðgeirs Hallgrímssonar;
nokkrar skepnur fórust. þá skemd-
ist einnig hús Vilhelms Jensens.
A Svínaskálastekk éyðilagði flóð-
ið sjóhús með ýmsum áhöldum og
drap einn hest. Á Fáskrúðsfirði
urðu nokkrar smáskemdir.
15. marz voru þrumur og elding-
ar í Reykjavík. Svo kvað mikið
að einni þrumunni að alt hrystist
í bænum. Kviknaði út af rafljós-
um, símavélar hringdu af sjálfs-
dáðum og alt ætlaði af göflum að
ganga. Skemdir urðu þó ekki
teljandi.
22. marz segir Frón að sé góð-
viðri og vorlegt en rigningar en
stórvirðri hafði verið skömmu áð-
ur.
Frú Katrín Briem kona Eggerts
óðal bónda í Víðey fanst örend í
flæðarmálinu í Hafarfirði 18.
marz. Hún var dóttir Péturs Thor-
steinssonar, kaupmanns í Reykja-
vík, einkar vel gefin kona.
8. marz segir Frón einstaka veð-
urblíðu um alt land þangað til þá
fyrir tveim dögum; þá gekk í
hörku og norðan átt og lagði höfn-
ina í Reykjavík.
Látin er í Reykjavík ekkjan, frú
Sigríður Thordarsen, tengdamóðir
Hannesar Hafsteins.
Maður sektaður í Reykjavík um
300 kr. fyrir það að taka of háa
húsaleigu.
ÚR bœnum
Munið eftir útsölunni í Skjald-
borg.
Samþykt er að taka 1 y% miljón
króna lán til flóaáveitunnar.
Látinn er í Reykjavík
Guðmundsson skipstjóri.
Sigurður skáld Heiðdal hefir
samið kvikmyndaleik sem innan
skamms verður sýndur í Ameríku.
Guðm. 'segir félagið sem leikinn keypti,
[ að bygging hans sé meistaraleg.
Mikið er sagt að verði um húsa- j Nokkrir vinir Guðmundar sál.
byggingar í Reykjavík í sumar. Hjaltasonar færðu ekkju hans ný-
lega. 1,000 kr.
Nýlega er látinn í Reykjavík
Oddur Ögmundsson frá Oddgeirs-
hólum.
Jón Sigurjónsson, ^erzlunarmað
ur á Blönduósi hefir tekið sér
skrípanafnið “Baldurs”
Ivonungur hefir gefið 5,000 kr.
til útbýtingar þeim er harðast hafa
orðið iiti af völdum inflúenzunnar
Neftóbaksleysi svo mikið í Reyk
javík að einn kaupmaður seldi
pundið á 20—30 kr. og annar seldi
kvintið af skornu tóbaki á 1 kr.
eða 100 kr. pundið.
Bæjarstjórnin í Reykjavík hefir
ákveðið að gera tjörustræti (asph-
alt) þar í borginni.
Heim til íslands koma í sumar
14 íþróttamenn frá Danmörku, eru
þeir gestir íþróttasambands Is-
lands.
Landburður af fiski er við alt
Suður- og Austurland um mánað
armótin marz og apríl.
Maður sem Eyjólfur þorbjörns-
son hét frá Hafnarfirði druknaði
nýlega af “Snorra goða. ”
þeir í Wynyard og grendinni
sem eiga óborgað fyrir II. árgang
Voraldar eru vinsamlegast beðnir
að borga undirrituðum fyrir 1.
maí næstkomandi.
14. apríl, 1919.
Ásgeir I. Blöndahl.
ATHUGIÐ
Sökum þess að eg hefi tekið
köllun sem umboðsma^ur Biblíu-
félagsins í Manitoba og Sask., þá
bið eg alla sem' framvegis þurfa að
hafa viðtal við mig af undanförn-
um viðskiftum að gera það bréf-
lega og senda cil ‘The Bible House’
184 Alexander Ave. East, Winni-
peg.
G. P. Thordarson.
Allur þorri Canad'amanna hefir
viljað hjálpa og hlú að hinum
særðu, heimkomnu hermönnum
úr stríðinu mikla, og til þess að
gleðja þá, hafa flestir þjóðflokkar
landsins og félög ýms skotið sam-
an peningum til þess að kaupa ‘pí-
ano’ til þess að skemta hermönn-
unum, einkum á hinum ýmsu deild
um spítálanna.
Eg undirritaður hefi tekið að
mér að safna til samskota á meðal
Islendinga, og skal fyrir pening-
ana keyp't ‘piano’ fyrir Ward B.
Tuxedo Ilospital, Winnipeg, þar
sem særðir hermenn eru, og geta
notið skemtunar af gjöf þessai’i.
Eg treysti því, að málefni þetta
fái góðan byr meðal landa minna
Bankastjóri T. E. Thorsteinsson,
hefir góðfúslega lofað að taka á
móti gjöfunum og auglýsa þær
jafnóðum og þær koma inn, 'í ís-
lenzku blöðunum.
Eg treysti því að landar mínir
taki vel og skjótlega þessu fegra
málefni. Ætlast er til að á hljóð-
færið verði settur skjöldur og letr-
að á skjöldinn að þetta sé gjöf frá
fslendingum til hinna særðu her-
manna.
Gjörið svo vel og sendið gjafir
til hra. T. E. Thorsteinssonar, ‘ The
Royal Bank’ Cor. Williani Ave. og
Sherbrooke St., Winnipeg.
Virðingarfylst,
Árni Tliorlacius
TIL MINNIS
Skrifstofa ritara íslendingafél-
agshis er að 482y2 Main St. Winn-
peg.
Hermanna skrifstofa Voraldar
opin kl. 11. f.h. til kl. 1. e.h. á
hverjum virkum degi.
Fundur í Skuld á hverjum mið-
vikudegi kl. 8. e.h.
udegi, kl. 8 e.h.
St. Hekla heldur fund á hverj-
um föstudegi, kl. 8 e.h-
Listi yfir innkomnar gjafir fyrir
hið fyrirhugaða ‘“Piano” fyrir
Ward “B” Tuxedo Hospital, Win-
nipeg.
Féllu úr síðasta lista:
Stefán Johnson
rr
1.00
Mrs. Guðrún Búason........ 2.00
Mrs. Inga Johnson......... 1.00
B. D. Johnsön............. 2.00
Björn Hallson............/... 2.00
Jónas Pálsson........... 2.00
R. Davidson............... 1.00
Miss G. Friðrikson........ 1.00
Mrs. L. Benson.......\.... 1.00
S. Eymundsson............ 1.00
G. Magnússon.............. 1.00
S. Jóhannsson............. 1.00
G. Johnson.....x.......... 1.00
Vinur hermanna ........... 1.00
Sveinn Sigurðsson......... 1.00
Hjálmar Gíslason.......... 1.00
Ónefndur ................ .50
M. Peterson............... 2.00
G. H. Hjaltalín........... 1.00
Samtals.........$208.00
T. E. Thorsteinsson.
Jón J. Vopni ...._ ... $5:00
S. D. B. Stephansson .... 5.00
Áður auglýst $109.50
Albert Johnson, Winnipeg Ónefndur _.... 5.00 2.00
S. F. Olafsson 5.00
S. O. Bjerring 2.00
Ilalldor Sigurðsson 5.00
Dr. J. G. Snidal 5.00
N. Ottenson 5.00
H. M. Hannesson 5.00
H. H. Halldorsson 5.00
I/. J. Hallgrimsson 5.00
Ilannes J. Lindal 5.00
J. G. Hjaltálín 2.00
M. Paulson 1.00
Friend. ....„ 50
F. Johnson .._. M. J. Skaftason 1.00
1.00
G. K. Stephenson 2.00
II. G. Hinrikson 3.00
Gísli Goodman 2.00
J. J. Swanson 1.00
Th. Johnson 50
Mi’s. E. J. Olafson 2.00
H. F. Bjering 2.00
P. J. Thomson 2.00
íslendingur í We,st Seíkirk 1.00
J. G. Thorgeirson 2.00
G. Eggertson & Son 3.00
WALKER
“Pollyanna” verður leikin þar
alla vikuna sem byrjar 5. maí.
Pollyanna er saga sem íslengum er
kunn; hún birtist í Lögbergi þeg-
ar núverandi ritstjóri Voraldar
stjórnaði því. það er þess vegna
óþarfi að lýsa þeim leik; hann
færir yl og sólskin og lífsgleði inn
í hverja sál sem sér hann og gerir
alla að betri mönnum.
Pollyanna er leikur sem allir ís-
lendingar ættu að sjá.
Andremma
STAFAR AF MELTINGAR-
SLEPPU.
Laxcarin töflur laga það og eyða
andremmunni.
Laxcarin töflur sem eiga engar
sína líka láta innýflin vinna þægi-
lega.
þeir sem hafa andremmu fá þess
bót með Laxcarin töflum. Hinar
ljúffengu sukkulaði þaktar töflur
eru notaðar af öllum sem þekkja
þær, ekki aðeins við andremmunni
sjálfri, heldur við orsökinni að
andremmunni, sem er oftast melt-
ingarleysi, magasúr, o.s.frv. Við
þessu eru Laxcarin töflur góðar,
og einnig við hægðarleysi, hvort
sem það er stutt eða langvarandi.
Laxcarin veitir hægðir og eyðir
eitri; Laxcarin veitir lifrinni og
innýflunum þrótt, hreinsar blóðið
og öll líffæri, án nokkurrar hættu
og án allra eftirkasta, sem oft eru
með öðrum meðulum.
Engin óþægindi sem önnur hægð
ameðul veita fylgja Laxcarin.
Samsetning Laxcarin tafla er
ekkert leyndarmál, sömu forskrift-
ir eru notaðar af þúsundum lækna
öllum löndum. það eru reyndar
forskriftir af beztu og fremstu
mönnum.
Laxcarin er jurta lyf. þegar þú
hefir reynt þær vilt þú aldrei vera
án þeirra. þær eru ágætar til
hægða. Bezt er að panta nóg í einu
eða sex öskjur fyrir $5.00, því eft-
irspurnin er svo mikil að dráttur
getur orðið á afgreiðslu pantana.
Ein askja kostar aðeins einn dal,
en er möigum sinnum meira virði
til þeirra sem líða. Sent og flutn-
ingsgjald borgað þegar pantað er
frá:
jjaxcarin Products Co., Dept. 17
Pittsburgh, Pa.
LEIÐRETTING
Dr. Sig. Júl. Jóhannesson
Herra ritfetjóri: — Viltu gjöra
svo vel og ljá þessum eftirfylgj-
andi línum rúm í blaði þínu. þó
þér þyki eg taka kannske djúpt á
árinni, ertu frjálslyndur og leyfir
málfrelsi og ritfrelsi.
1 minningarorðum eftir Halldór
Tryggva Johnson sem eg birti
Voröld 1. apríl, s.l. liafa slæðgt inn
þessar meinlegar villur, sem eg hér
með bið leiðréttingar á. Fyrst er
sagt að Tryggvi heitinn sé fæddur
1906 en er þó 22 ára gamall. Ilann
var fæddur 1896 á TyrðiLmýri á
Snæfjallaströnd, en ekki á Fyrðil
mýri eins og er í blaðinu. 115 línu
stendur heimskautshaugnum en
vitaskuld. að vera “heimskauts-
baugnum” Seinna í æfiminning-
unni er þessi klausa: Um vorið
fékk eg 100% í lestri, en vegna
þess að framförin hafði verið svo
góð þá lét hún mig hafa það. 1
handritinu var það svcna: “Um
vorið fékk eg 100% i þremur greín
um nefnilega reikningi landafræði
og lestri; kennari minn sagði mér
að enginn gæti fengið 100%í lestri
en vegna þess að framförin liefði
verið svo góð léti hún mig hafa
það.”
Fleiri smávillur eru sem lesnar
verða í málið. Svona lagaður stíl-
setningur og prófarkalestur er ó-
skiljanlegur og lýsir ófyrirgefan-
legri óvandvirkni og skeytingar-
leysi, og þar sem þetta er ekki
undantekning, heldur daglegir við
burðir í íslenzku blaðamenskunni
hér, væri ekki að furða þótt unga
kynslóðin yrði ekki hrifin af þeim
íslenzka prentvillu graut, en blöð-
in verða þó sterkasta meðalið til
viðhalds íslcnzkunni. þessvegna
þarf að vanda málið og rétt ritun-
ina. Prentvillurnar eru á yfir-
standandi tíma langmestar og
meinlegastar í Voröld. þar er
verk til að vinna að endurbæta
það.
G. J. Oleson
3M
Vorold og Sólöld
mxxh
<9
a>-—IIIIIM I
Hérmeð birtist listi af útsölumönnum “Voraldar” í ýmsum bygð-
um íslendinga, og eru áskrifendur blaðanna “Sólöld” og “Voröld '
vinsamlega beðnir að snúa sér til þeirra.
WONDERLAND
“The Testing of Mildred Vane”
verður sýnt þar á miðvikudaginn
og fimtudaginn. það er ástasaga
leyndardóms-og gleðisaga. Sól-
skin lífsins kalla margir hana og
það með réttu. “The Little White
Savage” heitir myndin sem sýnd
verður á föstudaginn og laugar-
daginn. það er óstjórnleg saga ó-
stjórnlegrar konu.
Munið eftir skemtisamkomu
stúkunnar Heklu; hún er auglýst
á öðrum stað í blaðinu. Ilekla hef-
ir aldrei haldið samkomu án þess
að hún færi myndarlega fram.
Sama verður nú.
Giftingar framkvæmdar af séra
Runólfi Marteinssyni
þorsteinn Stanley þorsteinsson,
frá Wynyard. og Helga Lauretta
Goodman frá Winnipeg gefin sam-
an 23. apríl að 866 Sherburn Str.
Julíus Alfred frá Winnipeg og '
Carólína Tómasson frá Langruth,
gefin saman 26. apríl að 493 Lipt-
on Street.
þau hjónin Paul 'Clemens og
Laufey kona hans urðu fyrir þeirri
sorg nýlega að missa 9 ára gamlan
pilt, einkar efnile'gan er Thorkell
George hét. .Ilann dó úr skarlats-
sótt. Tvö önnur börn þeirra
veiktust einnig hættulega, en eru
orðin allhress.
G. J. Jónsson frá Gimli og fjöl-
skylda hans eru nýflutt út til Glad
stone.
Gestur Oddleifsson.................Arborg, Man.
A. C. Orr,..................... Amaranth, Man.
B. Methusalems .................. Ashern, Man.
Hrólfur Sigurðsson ................. Arnes, Man.
Agúst Sædal.......................Baldur, Man.
G. O. Einarson..........................Bifrost, Man.
Sigurjón Bergvinsson-....................Brown, Man.
Jón Loptson..........................Beckville, Man.
S. G. Johnson...............Cypress River, Man.
Gunnar Gunnarsson............... Caliento, Man.
B. C. Hafstein.....—...........Clarkleigh, Man.
B. Jónsson...................Cold Springs, Man.
Einar Jónsson............................Cayer, Man.
J. K. Jónasson.................Dog Creek, Man.
O. Thorlacius __............... Dolly Bay, Man.
Hinrik Johnson.......................Ebor, Man.
Oddur H. Oddson .................Fairford, Man.
Tryggvi Ingjaldson................Framnes, Man.
Timoteus Böðvarson.................Geysir, Man.
Sveinn Bjömsson.....................Gimli, Man.
J. J. Anderson.............— — Glenboro, Man.
Kr. Pétursson ....... ...........Hayland, Man.
Guðmundur Olson .....................Hecla, Man..
M. M. Magnusson ...................Hnausa, Man.
A. J. Skagfeld......................Ilove, Man.
Armann Jónasson...............Ilowardville, Man.
Björn Hjörleifsson .............. Húsavík, Man.
Kristján Jónsson..................Isafold, Man.
C. F. Lindal....................Langruth, Man.
Sveinn Johnson....................Lundar, Man.
Jón Sigurðsson..................Mary Hill, Man.
Sveinn.Björnsson..................Neepawa, Man.
Jóhann Jónatansson.....................Nes, Man.
V. J. Guttormsson..............Oak Pðint, Man.
Guðbrandur Jörundsson.............. Otto, Man.
Guðm. Thordarson--------------------Piney, Man.
S. V. Holm____________________Poplar Park, Man.
Ingimundur Erlendsson .. .....Reykjavík, Man.
Gísli Einarsson------------------Riverton, Mart.
Clemens Jónason ........ ......... Selldrk, Man.
Framar Eyford....................Siglunes, Man.
Björn Th. Jónason..............Silver Bay, Man.
Ásmundur Johnson.................Sinclair, Man.
Jón Stefánsson................Steep Rock, Man.
G. Jörundsson................. Stony IIill, Man.
Halldór Egilson...............Swan River, Man.
Gisli Johnson-------- -------The Narrows, Man.
Bjöm I. Sigvaldason —------_._......Vidir, Man.
Sigurður Sölvason..............Westbourne, Man.
Finnbogi Thorgilsson.............Westfold, Man.
• Jóhann A. Jóhannesspn............Wild Oak, Man.
Björn Hjörleifsson.......Winnipeg Beach, Man.
Finnbogi Iljalmarson .......Wlnnipegosis, Man.
Christnn J. Abrahamsson............Antler, Sask.
H. O. Loptson.................Bredenbury, Sask.
S. Loptson...................Churchbridge, Sask.
Jón Jónsson, frá Mýri —.. Dafoe, Sask.
Ungfrú þrúða Jaekson — — — — .— Elfros, Sask.
Jón Einarson...................Foam Lake, Sask.
Valdimar Gíslason.....*...................Gerald, Sask.
Ungfrú Margrét Stefánsson .......... ílolar, Sask.
Jón Jónsson frá Mýri — ..........Kandahar, Sask.
T. F. Björnsson....1...............„...Kristnes, Sask.
J. Olafson....................... Leslie, Sask.
Ólafur Andréésson................ Lögberg, Sask.
M. Ingimarsson ......— — ..........Merod, Sask.
Snorri Kristjánsson.._.._................Mozart, Sask.
Snorri Jónsson___________________Tantallon, Sask.
Asgeir I. Blöndahl.......................Wynyard, Sask.
Arni Backman ..._ ................ Yarbo, Sask.
S. S. Reykjalín, Ste. 1 Carson Blk., Calgary, Alta.
Th. Iljálmarsson, Room 3, Tremont, Edmonton, Alta
Jónas J. Hunford_____________________Markerville, Alta.
Mrs. S. Grímsson, R. R. 1 — — — Red Deer, Alta.
Kristján Kristjánsson..............Alta Vista, B. C.
Frú J. Gíslason ...... ..... __. __ __ Bella Bella, B. C.
Wm. Anderson, 1456 Argyle Place, Vancouver, B. C.
J. Ásg. J. Lindal, 3412 “S” St-----.Victoria, B. C.
G. B. Olgeirsson, R. 3 —
Gamaliel Thorleifsson ..
H. H. Reykjalín.........
Victor Sturlaugsson.....
.......Edinburg, N. D.
...... Gárdar, N. D.
.........Mountain N. D.
...... Svold, N. D.
J. P. Isdal............................Blaine, Wash
Ingvar Goodman_________________Point Roberts, Wash.
Th. Anderson .................So. Bellingham, Wash.
John Berg, 1544 W. 52 St. _.... „...Seattle, Wash.
Sigurbjörn Jóhannesson,
— Sayerville, N. J.
N.
Ungfrú Helga Johnson, Tarrytown on Hudson, N.Y.
Steingr. Arason, 550 Park Ave..New York, N. Y.
J. A. Johnson, 32 Ord St. ...San Francisco, Cal.
Eiríkur J. Vigfússon, 2729 W. Wasliington Blk.
Chicago, 111.
OM