Voröld - 02.12.1919, Blaðsíða 8

Voröld - 02.12.1919, Blaðsíða 8
Bls-í* VOBÖLD. Winnipe,g 2 desemíiei;, 1919 VERÐLAUNASKRA VERÐMÆTRA MUNA ROYAL CROWN SOAP LTD Prófessor Sveinbjömsson hélt söng- og hljómleikasamkomu í jfyrstu lútersku kirkju á þriðju- ! dagskvöldið. Samkomunnar verð- p j ur getið í næsta blaði. 1554 Main Street Winnipegl Kristján N. Júlíus (K.N.) skáld var staddur í bænum fyrir helg- ina; fór norður til Gimli á mánu- daginn með Bjarna bróður sinn. Hin margumrædda útsal.a Jóns Sigurðssonar féiagsins verður hald in í Liggets lyfjabúðinni, Har- grave og Portiage Ave. á fimtu- daginn og föstudaginn í þessari viku, 4. og 5. des., og byrjar kl. 11. f.h. á fimtudaginn: par verða á boðstólum margir nytsamir og gimilegir hlutir af ýmsu tagí, i#em of lagt væri upp að telja hér. Veitingar verða seldar og fólki skemt með hljóðfæraslætti og sön g. Einnig verður tækifæri fy*r- ir þá sem þess óska, að skygnast inn í forlög síft. Forstöðukonurnar eru í óða önn að safna að sér munum, og kepp- ir hver um sig, að hafa sína deild sem fullkomnasta. Nöfn þeirra eru Hannyrðadeild: Frú Hanson, 393 Graham Ave. — F. Johnson, 668 McDermont Svuntudeild: Frú Th. Johnson, 324 Maryland St Matardeild: Frú P. S. Pálsson, 666 Lipton St. — Borgfjörð, 832 Broadway Veitingar: Frú J. Thorpe, 42 Purcell Ave. — Bildfell, 2106 por,tage Ave. Fiskidráttur: Ungfrú H. Johnson, 900 Lipton St — Eydal, Alverstone St. Nýkominn er hingað á markað- inn ailstór og merk bók eftir ung- frú Hólmfríoi Ámadóttur. Bókm er á ensku og heitir “þegar eg var stúlka á Isiandi”. Útgáfan er fremur vönduð í bandi ineð mörg um góðum myndum. Bókarinnar verður nánar getið síðar; hún er til sölu hjá Finni Jónssyni bók- sala að Sargent Ave. Jólakort ljómandi úrval, með íslenzkum og enzkum heillaóskum. Nöfn og heimilisfang prentað á þau. Komið og skoðið. Bóka- og pappírsverzlun ÓLAFS TORGEIRSSONAR 674 Sargent Ave. Wpg. Ungfrú María Móesdóttir hjúkr- unarkona leggur af stað vestur til Wynyard um næstu lielgi og verð ur þar við sjúkrahúsið. Fundur verður í pjóðfélags- deildinni Frón, næstkomandi mán- udagskvöld, þann 8. þ.m. Auk félagsmála verður til fróðleiks og skemtana upplestur, hra. Svein- bjöm Ámason, upplestur hra. jArngrímur Johnson, ræða og þrí- Isöngur Frú Dalman, ungfrú Krist- Ijánsson og ungfrú Hörgdak. Matthías porsteinsson og ung- frú Soffía Bjarnason hér í bænum v'ora gefin samian í hjónaband af séra lí. Martemssyni á föstudag- inn. Matthías er bróðir frú Soff- íu konu riastjóra Lögbergs, en Soffía er stjúpdóttir Jóhannesar Bjarnasona- I"* a v'i lijómn löigðu af stað suður til Californ- ia og verða þar í v&tur. I ___ - Grímur Laxdals lyfjasali frá Árborg er staddur hér í bænum. Hann sótti samsöng próf. Svein- bjömssonar á þriðjudaginn. Jóns Sigurðssonar félagið lét leika “Æfintýri á gönguför” tvo daga í vikunni sem leið. Vel er Iátið aí leiknum, erf því miður gát umvér ekki verið þar sökum anna I Á síðasta íundi pjóðræknisfél- ! agsdenaarmnar ivron voru þau frú Finnur Johnson og hra. Árai Eggertsson kosm í stjórnarneínd deudarinnar, frú Johnson gjald- heri í stað hra. Gunnars J. Good- | mundssonar, sem fer til vetrar- dvalar suður til Califomíu, og hra Eggertsson vara forseti í stað séria liunólfs Marteinssonar, sem eigi gat gegnt því sakir annríkis. Jónas Stephenssen frá Mozart, kom til bæjarins á þriðjudaginn. Sagði góða líðan. Látin er 26. nóv. Sigvaldi Há- konarson á sjúkrahúsinu í Winni peg. Benedikt Jónasson frá Silver Bay .kom vestan frá Dafoe í vik- unni sem leið; hefir dvalið þar um ,tíma . J. II. Gíslason íor norður tii Nýja íslands á þriðjudaginn í verzlunarerindum. Jón Árnason málari frá Hove, Man, var á ferð í bænum 1 dag. Er ha.nn á leið norður til Gimli, þar sem hann ætlar að dvelja um tíma. Sigurður Guðmundsson frá El- fros kom hingað til bæjarins ný- lega, var hann veikur og lagðist hér á sjúkrahúsið undir umsjón Dr. Brandssonar. Ungfrú Aðal- björg Bardal hjúkrunarkona frá Wynyard kom með honum. Jóhannes Sigurðsson kaupmaO- ur frá Gimli lagði af stað á mánu- daginn ásamt fjölskyldu sinni. suður til Florida og dvelur þar vetrarlangt. Jakob Benediktsson frá Moun- tain í N.D. er nýlega kominn hing að til bæjarins á leið vestan frá Wynyard. Ungfrú Gyðríður Gíslason frá Leslie kom til bæjarins á mánu- daginn; fór hún norður til Nýja íslands að heimsækja foreldra sína þar. Davíð Valdimarsson frá Big Point andaðist 13. nóvember. 20. nóv. andaðist- að Gimli frú Guðbjörg Guðmundsdóttir. NÝÚTKOMIN BÓK Sögur Breiðablika nrv C* •• iiu Sogur pýddar af síra Friðrik Berkmarm Sögurnar heita: Litli Kroppinibakurinn. Eftir Henri Conti. Harmsaga listarinnar. Eftir Henri A. Ilorwood. Síðasta kenslustundin. Eftir Alphonse Daudet. Lúganó-æfintýrið. Eftir Antonio Fogassaro. Sigríður stórráða. Eftir Selmu Lagerlöf. Síðasta ferð læknisins. Eftir lan Maclaren. Óhappa-óskin. Eftir Catulle Mendés. Jankó og fiðlan. Eftir Henryk Sienkiewcs. Gestur töframannsins. Eftir ókunnan höfund. / Kjörsonurinn. Eítir Guy de Maupassant. Fyrir jólin, sem nú fara í hönd, hlýtur þessi bók að verða mörgum kærkomin og vel valin jólagjöf fyrir yngri og eldri. Sögurnar eru hver annari fegurri að innihaldi, og era eftir frægustu höfunda ýmsra þjóða og þýddar á snildar- mál, og mega því óhætt teljast hreinustu ,gimsteinar í bók- mentunum. Bókin er í gyltu bandi og að öðra leyti með góð um frágangi. KOSTAR $1.25. Jólagjöfin bezta! pessi bók er ágætlega valin jólagjöf og ætti að vera keypt á hverju heimili, og lesin. — Sendið eftir bókinni í dag Bókin er ódýr, miðað við verð á íslenzkum bókum, og er itil sölu hjá öllum íslenzku bóksölunum hér í landi. Áðal-útsala í Bókaverzlun 0. S. Thorgeirssonar < 674 Sargent Ave., Winnipeg peir, sem kaupa 5 bækur og fleiri, fá sérstakan afslátt með því að snúa sér til útgefandans. Til sölu Ein bújörð í Nýja Islandi Fjórar bújarðir úti í Lundarbygð Tvær bújarðir úti í Narrowsbygðinni Landblettur skamt frá Winnipeg Ein bújörð skamt frá Ashem Nokkrar ekrur af landi vestur í Vatnabygðum með ágætum byggingum á fyrirtaksstað. Ritstjóri veitir upplýsingar. Frú Fanney Johnson frá Wyn- jyard er nýflutt til borgarinnar. Sigvaldi Hákonarson andaðist á sjúkrahúsinu hér í borginni þann 26. nóv. — Ilann skyldi eftir erfða skrá til bróður síns Páls Hákonar sonar í Voncouver B. C.. Ef ein- hver sem þetta sér skyldi vita ut anáskrift Páls, er sá vinsamlega beðinn að senda hana til A. S. Bardal, 843 Sherbrooke St. Winni peg. íslenzkunám I pjóðræknisfélags deildin Frón hefir ráðið hra. Guðmund Sigur- ! jónsson sem fasita starfsmann sinn lyfir veturinn, til íslenzku kennslu | Frí kennsla fyrir unglinga og j börn er hvem laugardag frá kl. 3 jtil 4 1 Goodtemplara húsinu, en íþess utan er völ á kenslu gegn mjög lágu endurgjaldi, fyrir full- j orðna sem börn. peir nemeendur j geta hvort sem þeir vilja heldur fengið kennarann heim til sín eða j gengið heim til hans. peir sem kynnu að vilja nota þessa lcenslu eru beðnir að gjöra svo vel og snúa sér itil kennarans sjálfs, hra I Guðmundar Sigurjónssonar, 634 Toronto St. Talsími Garry 4953. Sitúdentaféiagsfundur verður haldinn í neðri sal fyrstu lút. kirkjunnar laugardagskvóldið 6. des. kl. 8.15. Á síðasta fundi var kosið í stjórnarnefnd félagsins sem fylgir: Ritari ungfrú Ásta Austrnan, B.A. 1. vara-foresti, enn eklti kosinn 2. vara-forseti, Steinn Thompson Féhirðir, E. Baldvvinsson, vara-féh. ungfrú S. Stefánsson, Ritarí unfrú Ásta Austmann, B.A. vara-ritari, Árni Eggertsson, Jr. Ritstjómarnefnd: un gfrú S. Hall- dórsson, B. A., Bergþór Jóhnson, Wilhelm Kritsjánsson. — Á næsta fundi verður byrjuð kappræða samkepnin um Dr. Brandson’s bik arinn. 1 þetta skifti verður um- ræðuefnið: “Ákveðið að latína skuli iTera skildugrein við fylkis- háskólann” Neitandi hlið halda fram þeir Angantýr Árnason og Haraldur Stevenson frá Jóns Bjamasonar skóla, og þeir Wil- helm Kristjánsson og Björgvin Yopni tala með latínunni. ITeiðurs gestur fundarins séra Kjartan Helgáson talar nokkur orð til stúdentanna. Prógram og kaffi. Frú Anna Matthíasson frá Gull Lake kom til bæjarins nýlega að j heimsækja bróður sinn Kristján 'Sigúrðsson, fyrverandi ritsitjóra , Lögbergs og Elínu systur sína. |Hún fór einnig norður til Gimli að finna Elínu Scheving frænd- konu sína og Láru dóttur hennar. Með Önnu var 5 ára gömul dóttir hennar Guðrún. Munið eftir því að hann Iljálm- ar Gíslason Verður staddur á skrif stofu Voraldar á laugardaginn og hefir þar bækur jil sölu. Fiú Gyðríður Anderson frá Leslie kom til bæjarins á mánu- j daginn og dvelur hér um tíma. Geirfinnur kaupmaður frá Ash- em var á ferð í bænum í vikunni sem leið í verzlunarerindum. Krjstján Sigurðsson fór norður til Gimli á mánudaginn með Önnu systur sinni. Annað hefti Fífla er ný komið út. VERÐ 35 CENT Sendið pantanir til útg. porsteins jp. porsteinssonar, 732 McGee St. Wpg og Hjálmars Gíslasonar, 506 Newton Ave., Elmwood, Wpg. pettg, hefti hefir ini að halda j yfir 20 frumsamdar og þýddar sög ,ur og ísl. þjóðsagnir til skemtunar og er selt með mjög lágu verði til þess að útbreiðslan verði þess meiri. Til sölu hjá útsölumöimum útgefendanna; r ÞAÐ B0RGAR SIG áð koma í Búðina hans Sv. Björnssonar á Gimli. Hann gerir sér far um að hafa þar ýmislegt á boðstólum sem óvíða fæst annarsstaðar, og selur alt með sanngjömn verði. Nýkomnar íslenzkar bækur hefir hann1 ætíð til sölu. NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ FYRIR JÓLIN i annarsstaðar, og selur alt með sanngjömn verðí. í Nýkomnar íslenzkar bækur hefir hanrf ætíð til sölu. NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ FYRIR JÓLIN | ( Sv. Björnsson’s Handy Store j _ GIMLI, MAN, Lögberg-25c. Geysir 25c. Drangey 25c. Goðafoss 25 Jólaspjöld Handlituð mynd 50c 50c 50c 50c JÓLAKORT: Lögberg og Goð^foss..........................— 50c Geysir og Drangey_______________________________ 50c Lögberg, Geysir, Drangey og Goðafoss___________ 85c Stærð 7X9 þuml. Bæði á spjöldunum og kortunum eru jóla- og nýjársóskir handdregnar og prentaðar ásamt vísum í skrautlitum. Og á hverju spjaldi og korti era kveðjumar meira og minna hand málaðar. Gleymið ekki vinunum á Islandi þegar þið gleðjið vinina hér. — Umslög fylgja. Nú eru þessi spjöld og kort tilbúin og fást keypt hjá út- sölumönnunum í íslenzku bygðunum og hjá útgefanda, 732 McGee St. — Winnipeg. Einar Einarsson liéðan úr bæn- nm lagði af stað út til Argyie á mánudaginn; hann verður í vetnr þar ytra hjá Stefáni Johnssyni á Hólmi. Sveinbjörn, prófessor Svein- bjömsson á heiina að 712 Lipton St. Krisitján Júlíus er staddur hér í bænum, glaður og skarphreifinn að venju. Nýlega er komin út bók seni O. S. Thorgeirsson hefir prentað. pað eru sögur endurprentaðar úr “Breiðablikum” allar þýddar af séra F. J. Bergman. Sögurnar era góðar og verður þeirra getið síðar Bókin er eiguleg, í góðu bandi. Ritstjóri Vonaldar talaði í ensku lýðkirkjunni í 'Elmwodd á sunnu- daginn var. par er svo vel unnið að félagsmálum að sunnudaga- skóli hefir verið stofnaður og hann sækja 200 böm. Söfnuður- inn er að undirbúa kirkjubygg- ingu. O. A. Eggertsson lagði iaf stað suður til Rochester á þriðjudag- inn. Fór hann þangað með un,g- frú Jórunni Mýrman og bróðut* hennar. Hún er að leita sér lækn inga hjá Mayo bræðrum; hefir v,erið veik um langan itíma. Björn Sigvaldason frá Vídi var | á ferð í bænum í vikunni sem leið Hann kvað bændaverzlunina þar nyrðra vera í hlóma o,g menn að vaknia, yfir höfnð,- til meðvitundar um nauðsyn á samtökum og siam- vinnu. Ritstjóri Voraldar var kosinn til þess að fara til Ottawa á laug- ardaginn í því skyni að mætia á fulltrúarfundi þar sem sjö nianns áttu að koma saman úr hverju fylki á skrifsitofu McKenzie Kíng á mánudaginn og þriðjudaiginn, en sökum anna var honum ómögu- legt að fara. pessir sjö menn úr liverju fylki eða 54 talls eiga að mynda nokkurskonar miðstjórn í frjálslynda flokknum. • S. S. Bergman bæjiarstjóri frá Wynyard var á ferð í bænurti fyr- ir helgina. Nýlega er látimi hér í bænum Ingibjörg Ámason, að Agnes St., gömul einsetukona. Að öllu forfallalausn messar séra Kjartan, prófessor Ilelgason í Skjaldborgarkirkju, sunnudag- inn, 7. þ.m. klukkan 7. e.h. Allir velkomnir. ' Fegursta jóiagjö! sem hægt er að senda vinum o g frændum, er Farfuglar Fást hjá útgefendum að 906 BANNING ST., WINMIFEG og bóksölum víðsvegar Guðmundur Jónsson frá Siglu- nesi v,ar á ferð í bænum fyrir helg ina. Kosningafundur á föstudaginn kemur þann 5 þ.m. pá verða, kosnir 9 fulltrúar fyrir St. Heklu o.g Skuld til næsita árs í byggingar nefndina (Trastees). Allir með- limir stúknanna yfir 18 ána hafa atkvæði. Minnist þess og komið. Fer fram að kveldmu frá kl. 8 til 10 í Goodtemplara húsinu. TIL SÖLU N.E.1/4 24-19-12 W. Ist, nálægt Glenella við C.N.R. hrautinia. 26 ekrur ræktaðar, 30 ekrur girtar, 30 ekrar engi, bjálkahús, 2 brann- ar, góður jarðvegur, alt broitland. Verð $1,850. Upplýsingar fást hjá Voröld. SYRPA síðari heftið af 7. úrgang er í þann veginn fullprentað og verður sent kaupendunum str,ax og út kemur. Innihald: 1. Undir kvöldstjörnunni, saga 2. t Rauðárdalnum, eftir J. M. Bjarnason. 3. James bræðurnir, járnbraut ara>fintýrið. 4. íslenzkar sagnir frá Stefáni Ólafssyni sterka eftir S. M. Long. 5. Gamlárskvöld eftir síra L. Th. 6. Frumbýlið, saga. 7. Merkilegir atburðir í Eþi ópín. 8. St. Pierre eyjarnar. 9. Gretna Gleen. 10. Fróðleiks- molar úr stríðinu mikla. 11. Til rntinni: Hverjir búa til bómullartvinnan— Náttúru-undur — Skoðanir Andrcw Carnegies & auðnum og notkun hans Eftirtelitarverð lexía—Sfinx-gátan, Skeggin heilög—Hljóðpípan, smá saga—Bandríkja centin—Gull og silfurpeninga-virði—Katanosdýrið. HeftiS 50 cent Kaupendur sem skift hafa um bú- stað geri aðvart strax. » ÓLAFUR S. THORGEIRSSON 674 Sarent Ave., Wpg. I 1 m cni 1 t Mjólknr-bú rétt hjá Winnipeg með öllu tilheyrandi úthaldi; einnig byggingum og landi, með mjög lágu verði. \ semjið við G. J [. < Qoodmundsson Garry 2205 696 Simcoe stræti ÍSLENZKAR HLJÓMPLÖTUR Sungið af E. HjaltesteS: Ólafur reið með björgum fraan og Vorgyðjan, Björt mey og hrein og Rósin / Fíolin Solo: Sólskríkjan, Jón Laxdal (Sú rödd var svo föguv Samspil: Jeg vil fá mér kærustu. (Söngur Skrifta-Hans) SUNGIÐ Á DÖNSKU: Hvað er svo glatt, og Den gang jeg drog af sted VERÐ 90 CENTS t ■ J * Swan Manufacturing Co., H. METHUSALEMS Phone: Sherbrook 805 676 Sargent Ave. ....... " -. i A. E. GILLINGS Skósmiður ALT VERK FLJÓTT OG VEL AF HENDI LEYST. SENDUM OG SÆKJUM HEIM TIL VIÐSKIFTAVINA 660 Notre Dame Ave. rétt fyrir vestan Skerbrook Str.

x

Voröld

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Voröld
https://timarit.is/publication/221

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.