Þjóðhvellur - 01.01.1908, Side 2

Þjóðhvellur - 01.01.1908, Side 2
70 Þjóðhvellur Úrsmíðavinnustofa Carls Bartels, Laugaveg 5. Telefón 137. til pess, að nú eru flestir að heimil- um sínum, og Iangmest fjölmenni í bænum. Hefur röskur helmingur allra kjósenda kosið, og er pað sannarlega lítt til sæmdar þeim, er heima sátu og hrærðust hverg'i. Og veilir eru peir menn, er viljandi bera rétt sinn fyrir borð í borgaralegu félagi. _ Reykviskir verkamem og bœjarráðskosn ingin. Ekki verður því með rökum neitað, að býsna barnaleg var hún framkoma megininþorra verkamanna hér i bæ við hinar nýafstöðnu bæjarstjórnar- kosningar. Hún er í raun og sann’eik bláttáfram grátleg. Hugsið ykkur! Verkmannaflokkarnir— alþýðan svo- kallaða — er vitanlega langfjölmennasti flokkurinn, er til kosninga gengur hér í bænum. En þrátt fyrir það, er sam- komulag þeirra og samtök svo frá- munalega léleg —• allur undirbúning- ur þeirra fyrir kosningar þessar svo hræmulega ófullkominn, að ekki einn einasti maður úr þeirra hóp nær sæti í bæjarstjórninni. Hvað sýnir ljósar, en einmitt þetta, að í verkmannafélögunum hér er hver liöndin uppi á móti annari, enginn þáttur i félagsskap þeirra tryggur. Að hugsa sér þá minkun, sem í því felst, að »Dagsbrún«, »Báran« og »Verk- mannasambandið« — þessi fjölmennu félög, er eiga í sér fólgið svo mikið lifandi afl og atorku — skuli ekki eiga eitt einasta atkvæði, engan einn úr sínum eigin hóp í bæjarstjórninni nú — það ,er hart. Og þó er þetta kjarninn úr höfuð- staðarþjóðinni, aðalmáttarstoðin, sem hver einasta lífshreyflng bæjarins i framkvæmdaáttina byggist á. Bað er sýnilegt, að þessir menn eru ekki langt gengnir til góðs götuna fram eftir veg — í málefnum sínum. Og svo eru verkamenn sjálfir, sumir hverjir, að spyrja, hversvegna enginn þ e i r r a manna hafi náð kosningu — alveg eins og þeir hafi enga hugmynd um, hvað því veldur. Hérerþó sann- arlega ekki um vafasamar rúnir að ráða fyrir þá. Síður en svo. Sannleikurinn og svarið er, að for- Lífsábyrgðarfélagið »Standard«, Klapparstíg 1. Reykjavík. sjá og samvinnu, í ítrustu nauðsyn, eiga verkmannaflokkarnir hérna, enn sem komið er, alls e n g a til. Lað er banameinið. Félagsskapar-ósamkomulagið er orð- ið svo rótgróið, að stórvandræði hljót- ast al þrásinnis, innbyrðis í félögunum. — Lau klofna og margklofna — og deyja svo loks, eins og dæmin sýna. — Venjulega eiga »pólitiskar pillur« mestan þáttinn í. Við skulum athuga þetta svolítið nánar. Við höfum hag af því. Hvernig mundi nú hafa farið, hefði vit og vilji verið með iverki og»Dags- brún«, »Báran« og »Verkm.samb.« sam- einað sig' um einn og sama lista, með ráði og dáð ? Engan veginn öðruvísi enþannig, að þessum félögum hefði veríð í lófa lag- ið að koma, að minsta kosti, 4 eða 5 mönnum að úr sinum eigin flokki. — Þá hefðu atkvæði félagsmanna að sjálf- sögðu dreifst svo langsamlega miklu minna. Það leiðir af sjálfu sér. Lítum nú til Bárufélagsins. Hvaða vit var í því fyrir félagið, að gera það glappaskot, að sameina sig »01dunni« og samþykkja með þvi þann mann efstan á lista, er sýnilegt var löngu fyrirfram, að svo sáralítið fylgi mundi hafa? Var það ekki beinlínis banatilræði við eiginn mátt? En hefði nú t. d. »Báran« sameinað sig Verkmannasambands-listanum og Ottó Borláksson komið þar i stað Hannesar ritstjóra (þvi H. hafði ekk- ert fylgi), þá hefðu áreiðarlega 2, ef ekki 3, komist að af B-listanum, því þá var hver maðurinn öðrum betri niður að fjórum, er svo fjöldmargir hefðu kosið og meira að segja sótst eftir. Fyrsti maður á J-listanum og sá ann- ar á B-listanum voru blátt áfram »þyrn- ar milli rósa«, ef svo mætti að orði kveða, er fjöldmarga gerðu fráhverfa þeim listum. Og reyndar voru allir listarnir meira og minna með því marki brendir, nema kvennalistinn. En vist er um það, að með góðri sam- vinnu í kosningaundirbúningnum, hef ðu verkamenn svo hæglega getað komið í veg fyrír alla þjTrna, og staðíð svo nokkurnveginn sem einn maður i sjálfri kosningunni. Lá mundi öðruvísi farið hafa, en raun varð á, og þetta meinlega félags- Klæðaverzlun Gtiðmundar Sigurðssonar. Reykjavík. Telefón 77. sundurlyndi ekki orðið þeim svona herfilega til minkunar. Samhuga samtök kvenna við þessar kosningar, er ljós vottur þess, að verka- menn hefðu getað komið ársinnijafn- snildarlega fyrir borð og þær, og geng- ið af hólmi kosninganna með sigur- bros á vörum, bara ef þeir hefðu lát- ið samvinnu og gott skipulag fara saman í undirbúningi sinum. Pað er verkamönnum hér bein- línis til minkunar, að vita bæjarstjórn- inanýju skipaða embættismönnum ein- vörðungu, en eiga þar sjáltir ekki einn einasta mann. Hvar sjá þeir betur vott síns eigin sundurlyndis og félagsleysis. En sjálfsagt láta verkamenn víti sín við þessar kosningar, verða sér aú varnaði við þær næstu. Gramur kjóstmdi. Íi8. desember. Sá dagur var laugardagur og rann á loft upp bjartur og broshýr, — en aldrei undrast eg annað meir, en það, er gerðist þann dag. Eins og flesta rekur minni til, fór þá fram einhver sú snarvitlausastá slökkviliðsæfing, er sögur fara af hér í bæ. Pað hafði sem sé einhvern veginn borist í loptinu þá um morguninn, að hans »hávelborinheit« og af guðs náð »sprautuliðsforingi« í Reykjavíkurbæ, lögfestur ræðismaður hinna sænsku krúnu og lýðkjörinn fulltrúi í hinu gamla og nýkosna bæjarráði« hefði dottið í hug sú goðumlika ráðdeild, að stofna til alfullkominnar slökkvi- liðsæfingar í allsherjar nafni, kl. 1—2 þennan dag. — Þessi fregn gekk fyrst eins og kvis frá manni til manns, er einn staðhæfði, sem lireinan sannleik, en annar skelti við skolleyrunum, rétt eins og lnin hefði fæðst lijá prent- smiðjupóstinum — í munnum málgef- inna vatnsbera, eða þá í laugunum —, því eins og nærri má geta, fannst slökkviliðskonginum engin ástæða til, að tilkynna þetta »turniment« á form- legan hátt, þ. e. með auglýsingu. Leið nú svo og beið þar til kl. eitt, að þrír fílefldir brunakallarar fóru geist um götur og torg, með básúnu- hljómi hvellsterkum, og hafði hver þeirra hundrað stráka á hælum sér,

x

Þjóðhvellur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðhvellur
https://timarit.is/publication/222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.