Þjóðstefna


Þjóðstefna - 15.03.1917, Qupperneq 3

Þjóðstefna - 15.03.1917, Qupperneq 3
þJÓÐSTEFNA * leg vörn gegn ósvífnu baknagi vitgranns glæpamanns“. Síðast kemur nafn hennar fyrir hjá Voltaire í bréfínu frá Cirey 16. og 30. júlt 1736, þar sem hann biður Moussinot ábóta, sem var trúnaðarumboðsmaður hans, að kaupa lítið skrifborð með hjálmi og láta flytja það undir sínu nafni til Madame de Winter- feld, Kue Platiére, við St. Agnes Nonner. þannig reyndi Voltaire, þegar hann var fjörutíu og tveggja ára gamall, með þessari litlu hugul- semi að endurvekja minninguna um sig hjá konu þeirri, sem hann hafði elskað og tilbeðið þegar hann var átján ára gamall ungl- ingur. Síðustu fréttir. Sömu vandræðin haldast enn með samgöngurnar, og ekki sjá- anlegt að úr þeim muni rætast í bráð. Síðustu símfregnir segja, að fjölda skipa sé sökkt, og að Vilson forseti hafi þegar látið byrja að vopna kaupför Banda- ríkjanna. þingi Bandaríkjanna hafði þó verið slitið, án þess að það tæki nokkra fullnaðarákvörð- un viðvíkjandi því máli, því það gekk ekki fram í efri málstof- unni. Sagt er að Englendingar kaupi feyknin öll af skipum í Bandaríkjunum, og að skip komi vopnuð vestan að inn á ófriðar- svæðið. Að öðru Ieyti virðist svo sem allt standi í sama farinu og áður, að því er snertir sigl- ingar hinna hlutlausu þjóða. Svo virðist nú, sem stórkost- legar orustur séu í aðsigi á vest- urvígstöðvunum. Fregnir frá 8. þ. m. sögðu, að Vilhjálmur keis- ari, Hindenburg og Falkenhayn væru þá vestur í Gent í Belgíu, og var þess jafnframt getið, að þeir ætluðu að leggja allt kapp á að komast til Calais. Sömuleiðis var sagt, að þjóðverjar hetðu þá hafið sókn af nýju hjá Verdun. Austur í Mesopotamíu hafa Eng- lendingar sótt mikið fram í vet- ur. Síðustu fregnir segja, jð þeir hafi tekið Bagdad, og virðist svo sem Tyrkir séu þá báglega stadd- ir, því naumast er hugsanlegt, að þeir mundu sleppa Bagdað fyr en í fulla hnefana, þar sem sú borg einmitt hefur verið höfuð- ból Tyrkja þar eystra. Ný hreyfíng er komin á heima- stjórnarmál íra, og segja síðustu fréttir, að þeir krefjist nú að lög- in séu sett í gildi, og stjórn Eng- lands lýsi yfir því, að svo geti orðið, ef þess sé óskað. En hún vill ekki neyða Ulsterbúa inn undir vald írsku heimastjórnár- innar, og er þá sama ósáttin út af þessu uppi enn, sem yfir stóð þegar ófriðurinn byrjaði. Sagt er að Frakkar hafi gefið út yfirlýsingu um það, að þeir ætli að krefjast þess að fá aftur Elsass-Lothringen. Ástandið á Norðurlöndum fer síversnandi, meðan samgöngu- haftið stendur. Stjórnarskifti eru orðin í Sví- þjóð vegna landvarnarmálsins. þingið hafði ekki viljað veita það fé, sem stjórnin óskaði eftir. Frétt í Morgunbl. segir, að stjórnin í Danmörku hafi lagt löghald á út- lent hveiti, og talað sé um járn- peningasláttu á þingi Dana. Miklir kuldar og snjókoma hafa verið í Danmörku upp á síðkast- ið og einnigsuður um Mið Evrópu og á vesturvígstöðvunum. Athugið Að taisimanúmer niín eru fram- vegis þannig : Verzlunin í Kola- sundi nr. 605. Heima á Stýrimannastíg nr. 667. O. ELLINGSEN. Saltfiskur ágætur fæst í verslun > > Nærfatnaður mikið úrval fyrir karla og konur. Sturla Jónsson. „Þjóðstefna“ eign félags í Reykjavík, kemur út viku- lega á fimtudögum. Verð fyrir áskrif- endur og lausasölu hið sama (5 aur. tölubl.) - Ojalddagi fyrir áskrifendur ákveðst af félagsstjórn. Þó verður al- drei krafist borgunar fyrirfram fyrir neinn hluta árgangs, Þeir sem vilja geta án verðhækkunar fengið blaðið sent heim til sín innan og utan Reykja- víkur, Adr, »Þjóöstefna« Reykjavík. Box 374. Sími 546. Alklæði margar tegundir. Sturla Jónsson, Auglýsine:ar í MI>jóðstefIlu‘, breiðast út til helstu heimila um allt Island. Utbreiðsla Þjóðstefnu fer stöðugt vaxandi bess vegna er hún á- gætt auglýsingablað. Fjerde Söforsi kringselskab er áreiðanleiðanlega það öflugasta og ábyggilegasta sjóvátryggingar- félag, sem starfar hér á íslandi. það tekur að sér allskonar SJóvátryggingar gegn vana legri hættu á sjó. þegar þér þurfið að senda vörur sjóleiðis á milli hafna á íslandi, þá vátryggið hjá þessu félagi. það tekur einnig að sér allskonar Strfðsvátryggingar gegn stríðshættu. Ef þér þurfíð að senda vörur tilútlanda þá gleymið ekki að vátryggja hjá þessu félagi. Ef þér þurfíð að senda skip, þá vátryggið skipið, farminn og mennina. Sönnunina fyrir því, að yður sé óhætt að vátryggja hjá þessu félagi, hafíð þér með því að vita, að þetta félag er eitt af stærstu sjóvátryggingarfélögum í Danmörku og öfl- ugustu í peningalegu tilliti. Islandsbanki hér gefur félagnu beztu meðmæli, sem sé að það sé mjög gott og ábyggilegt (solid) og öllum sé tryggt að skifta við það. Löggiltur umboðsmaður félagsins hér á íslandi er Þorvaldur Pálsson, læknir, Bankastræti 10, Reykjavík. Sími 334. Alnavara, Landsins stærsta bezta og ódýrasta úrval. Sturla jónsson 2 svo sem forlögin hefðu ásett sér að sýna það einu- sinni, hve jafnt þau úthlutuðu hamingjunni, og htfðu valið Önnu Klosstock til þess að bera vitni um hina guðdómlegu óhlutdrægni, þvt enda þótt hún lifði fyrir utan takmarkalínur frelsisins, var hún drottning í fanga- vistinni, heiðruð og dáð af hverjum manni, konu og barni í félagi því, sem hún var í. þegnar hennar tilheyrðu að vísu fyrirlitnum þjóð- flokki, en íbúarnir í gyðingahverfinu í hinum fjölmenna blómlega bæ, Czarovna, voru ánægðastir og hamingju- samastir allra þeirra, sem lifðu í gyðingabæjum Suður- Rússlands. það kvað meira að segja svo mikið að því, að þeir, í stað þess að styðja að því, að keisarastjórn- in rússneska héldi áfram í frálslyndisáttina bæði gagn- vart kristnum mönnum og gyðingum, höfðu oftar en einusinni vakið tortryggni og ótta hennar. í Czarovna var gott samkomulag milli kristinna manna og gyðinga. Borgarstiórinn. sem hét Ivan Pol- tava, og var hershöfðingi, áleit að það væri að þakka Nathan Klosstock föður Önnu. En hvorttveggja var undantekning, valmennska Poltava sem embættismanns og hið göfugmannlega örlæti gyðingakaupmannsins. Ef margir slíkir menn væru í landinu, mundi minni órói og áhyggjuefni vera þar, enda þótt hvorki stjórnarstefna keisarans í Rússlandi eða uppeldi gyðinganna, er þar búa, sé vel fallið til þess, að skapa göfuglynda landstjóra eða heiðarlega og drenglynda þegna. Czarovna var dæmi þess, að það er mögulegt, jafnvel undir ánauðarlöggjöf Rússlands, að þjóðfélag, sem er samsett af ýmsum þjóðum og allskonar kyn- 3 flokkum geti lifað, ef ekki í fulíu samræmi, þá samt án sífeldrar óvináttu. En það var áreiðanlega óvanalegur félagsskapur milli gyðinga og kristinna manna í þessum fyrirmyndarbæ í skattlandinu Vilna- vitsch. Gyðingar Rússlands eru annálaðir fyrir það, að þeir hafí alla verstu eiginleika þjóðar sinnar til að bera, en hitt er jafnvíst, að fégræðgi þeirra og drottn- unargirni er sprottin af hinni sífeldu og grimmilegu ofsókn, sem þeir hafa orðið fyrir. Lífskjör þeirra eru aumlegri en svo, að unt sé að lýsa þeim. þjáningar þeirra eru endurtekning á þvi, sem þeir urðu að þola t Egyptalandi, og þeir hafa enga von um, að bætt verði kjör þeirra eða þeim veitt frelsi. það lttur svo út, sem keisarastjórnin í Pétursborg ætli sér að eyðileggja þá algerlega. Löggjöfin fer með þá eins og glæpamenn og dæmir þá til að lifa í ákveðnum héröðum. Viða í Rússlandi eru ennþá gyðingahverfi eins og á miðöldunum. Gyðingarnir mega ekki eiga einn þumlung af rússneskri jörð. þeir mega aðeins stunda vissar, ákveðnar atvinnugreinir. þeir eru neyddir til að mæta á hinum opinberu skrifstofum á vissum tíma til þess að fá endurnýjuð þessi leyfisbréf sín. þeir verða þegjandi að þola móðganir og undirokun af hverjum kristnum manni sem vera vill, ef honum þóknast að troða þá undir fótunum, En þrátt fyrir þetta hefur þjóðflokki þessum altaf heppnast að halda tilveru sinni og jafnframt að við- halda trú sinni og má það kraftaverk kallast. Sérstaka gáfu virðast gyðingar hafa til að afla sér fjár, og það 4 undir hörðustu lifsskilyrðum, og hefur þjóðflokkur þessi því jafnan verið vel efnum búinn. í sérhverju sveitaþorpi er vanalega að minnsta kosti einn ríkur gyðingur, sem lánar peninga út gegn okurrentum, kaupir uppskeruna af hinum fátæka ná- búa sínum eða veitir honum skyndilán út á hana, leigir brennsluhús eins eður annars aðalsmannsins, veitir veitingahúsum forstöðu og neyðir trúarbræður sína til að auðsýna sér þá virðingu, sem hann fer á mis við hjá hinum kristnu meðbræðrum sínum. þar eð gyðingurinn um þúsundir ára hefur orðið að þola allskonar misþyrmingar og hrakninga, þá er ekki hægt að ætlast til þess, að hann breyJi betur við kristna menn en þeir hafa breytt við hann. þegar kristinn maður hatar gyðing, þá getur hann verið lullviss þess, að gyðingurinn endurgeldur honum það með tíföldu hatri. Ef nokkurt afkvæmi gyðings lætur leiðast til að taka aðra og mildari trú, þá er það, hvort sem um karl eða konu er að ræða, skoðað sem dautt t öllu tilliti. Svo langt er stundum gengið i þessu efni, að tóm kista er jörðuð í kirkjugarði gyðinga með hinum fyrirskipuðu helgisiðum, eins og í henni væri lík þess manns, sem fallið hefur frá trúnni. Yfir höf- uð er engin fyrirgefning til hjá gyðingum fyrir þá, sem kastað hafa trúnni. Nathan Klosstock mundi sennilega hafa tekið sér eins nærri fráfall dóttur sinnar frá trúnni og hver ann- ar gyðingur, enda þótt hann meðal kristinna manna i Czarowna væri kallaður „hinn göfuglyndi gyðingur“. Undir stjórn Poltava hershöfðingja, var hin stranga

x

Þjóðstefna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðstefna
https://timarit.is/publication/224

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.